Tíminn - 23.05.1944, Qupperneq 3
53. blað
TÍMITCN, l>riðjiidagiim 23. mai 1944
311
Knúts saga Rasmussens
FRAMHALD
En á þessum tímum, upp úr aldamótunum, var Grænland lokað
land. Þangað hafði enginn blaðamaöur komið. Margir velviljaðir
menn voru þeirrar skoðunar, að það væri fyrir beztu landinu og
íbúum þess, að því yrði haldið sem mest utan við strauma sið-
menningarinnar.
Yfirstjórnandi Grænlandsmála gerði allt, sem hann gat, til þess
að hindra leiðangurinn. En nýr tími hafði hafið innreið sína í
Danmörku, og einn góðan veðurdag lögðu leiðangursmenn fjórir
af stað. Auk Mylíus-Erichsens og Knúts, voru í förinni dr. Alfreö
Bertelsen og listmálarinn Haraldur Moltke greifi. Sá síðarnefndi
hafði áður komið til Suður-Grænlands, og hann hafði einnig
dvalið í Lapplandi, á íslandi og víðar. Með þeim Knúti tókst mikil
og góð vinátta.
Á leið sinni norður með Grænlandsströndum komu þeir við í
mörgum byggðum. Þóttu þeir mjög hnýsnir um allt, sem miður
fór. En á þessum slóðum voru eðlilega mjög víða gamlir og íhalds-
samir nýlendustjórar, og þóttust þeir ekki þurfa að láta þessa
unglinga, er helzt vildu umsvifalaust kollvarpa aldagömlum sið-
um og venjum, kenna sér neitt. Urðu því víða átök.
Um sumarið ferðuðust þeir í kvennabát milli byggðanna. Um
síðir komu þeir norður í fæðingarþorp Knúts, Jakobshöfn. Þar
komu þeir sér upp aðalbækistöð sinni og keyptu hunda og fóru
á hundasleðum til byggðanna við Diskóflóann. Knútur stóð auð-
vitað þeirra bezt að vígi, var ágætur ekill, kunni mál landsmanna
til hlítar og þekkti auk þess þorra fólksins á þessum slóðum. Fyr-
ir sleða sinn beitti hann stórum, hvítum hundum með svart
höfuð, er Karl Fleischer, föðurbróðir hans hafði gefið honum.
Þótt ekki séu nema fáir áratugir síðan þessir atburðir gerðust,
voru sumarferðir í Grænlandi allmiklu erfiðari þá en nú. Þá
voru ekki til þau nýtízku samgöngutæki, er nú er þó völ á.
Rtundum lá líka við sjálft, að leiðangursmönnum hlekktist á.
Rétt utan við hafnarmynnið við Sykurtopp hvolfdi til dæmis
húðkeip undir Knúti, og gat hann lengi vel ekki reist sig við aft-
ur, því að hann missti árina. Á síðasta augnabliki tókst honum
þó að sleppa undan bátnum. En svo þrekaður var hann orðinn,
að hann kom ekki nema öðrum fætinum upp í húðkeipinn. Bát-
inn rak þvert yfir fjörðinn og hékk Knútur á honum, hálfur út-
byrðis, unz stúlka nakkur varð hans vör og bjargaði honum.
Knútur varð borinn til húsa, því að hann var stirður og dof-
inn af kulda. Hann hresstist heldur, er hann var kominn í þurr
föt. Þegar hann hafði fengið sjóðheitt kaffi, spratt hann á fæt-
ur. Um kvöldið bar svo til, að efnt var til dansleiks í vöruskemm-
unni, og viti menn: Þar var koniinn Knútur Rasmussen og
dansaði „arfíneqpingasút“ og „sísamat“ næturlangt við stúlkuna,
er hafði bjargað honum. Sandi var stráð á gólfið, og var það í
frásögur fært, að skór Knúts hefðu verið gatslitnir að morgni.
Hann brá sér nú á hreindýraveiðár með Eskimóum og þótti
fljótt afbragð annarra veiðimanna að elju og kænsku.
í Góðvon slóst hann í fylgd með manni, sem Benediktus hét,
er grunaður var um ægilegt morð. Átti hann að hafa skorið sund-
ur skinn i kvennabát og orðið þess valdandi, að tuttugu og tveir
menn drukknuðu.
Þetta, að skera sundur skinnin í bátnum, er forn og all-al-
geng aðferð meðal Skrælingja, til þess að ráða menn af dög-
um. Við þessu er illt að sjá og verður aldrei sannað, að skinnin
séu skorin af mannavöldum, því að það ber oft við að þunnar
ísflögur valdi líkum slysum.
En Benediktus meðgekk aldrei þennan verknað. Sat hann þó
sex mánuði í haldi í þvottahúsi yfirlögregluþjónsins. Hann var
fullur beiskju í garð samlanda sinna, er hann var loksins lát-
inn laus, og af viðkynningu sinni við þenna mann komst Knút-
ur fyrst til hlítar að raun um það, hve næmar tilfinningar Eski-
móa eru.
Skammt frá Egedesminni bjó annar mjög einkennilegur mað-
ur. Hann hét Manasse. Hann hafði gerzt ofsatrúarmaður og var
farinn til trúboðs vestur á Baffínsland. En síðar gekk hann af
trúnni og snerist gegn kristindómnum. Beindist hugur hans mjög
eð félagsmálum og hugsaði hann meðal annars upp nýtt skipu>-
lag í sambúð manna, er að mestu leyti var samhljóða kenning-
um bolsevikka í Rússlandi áratug síðar.
Vitaskuld var maðurinn talinn geggjaður. En margar hugmynd-
ir og margs konar fróðleik um líf og lífsskoðanir Eskimóa sótti
Knútur til hans.
Nýr maður bættist nú í hóp leiðangursmanna. Það var
Jörgen Brönlund, æskuvinur Knúts og jafnaldri. Skyldi hann
vera túlkur leiðangursmanna. Hann dó hetjudauða nokkrum
árum síðar í öðrum Grænlandsleiðangri Mylíus-Erichsens og
bjargaði skýrslum og dagbókum hans frá tortímingu. Hann talaði
að vísu ekki sérlega góða dönsku, en hann þýddi hiklaust allt, sem
sagt var. Sá ágalli er nefnilega mjög ríkur í Eskimóum að vilja
ekki segja neitt það sem er óþægilegt, við nokkra manneskju.
Sjálfur tók Knútur ekki í mál að vera túlkur.
Mylíus-Ericsen var sérkennilegur maður. Hann var hugmynda-
íikur mjög og allt, sem honum datt í hug, varð að framkvæma
þegar í stað.
Honum hafði komið i hug að takast ferð á hendur
bvert yfir Diskóeyna. Og þessu var hrundið í framkvæmd, þótt
ekki væri að öllu leyti til stofnað af mikilli fyrirhyggju. Lágt
Trar af stað frá Góðhöfn.
Þessi ferð var í meira lagi kátleg. Mylíus-Erichsen kunni lítt
með hunda að fara. Jörgen Brönlund reiddist sleifarlaginu og
vildi helzt ganga frá öllu saman. Loks skall á hríðarveður, svo
að þeir urðu að halda kyrru fyrir. Það fauk ofan af þeim tjaldið,
og hundarnir átu aktygin, taugarnar og svipurnar upp til agna.
Loks urðu þeir matarlausir. Hundamaturinn gekk einnig til
þurrðar, og seinast urðu þeir að lóga hundunum. Allt var eítir
þessu. Sem betur fór komust þeir þó til byggða um síðir. En
vegalengdin, sem þeir ætluðu að fara, var ekki nema rösk dagleið.
A N N A L L
Dáuardægur.
Halldór Sigurðsson bóndi á
Valþjófsstöðum í Núpasveit lézt
að heimili sínu sunnudaginn 26.
f. m., rúmlega áttræður að
aldri. Hann var sonur merkis-
hjónanna Sigurlaugar Benja-
mínsdóttur og Sigurðar Rafns-
sonar, er lengst af bjuggu á
Snartarstöðum í Núpasveit.
Halldór átti átta systkini, en að-
eins tvö þeirra náðu fullorðins-
aldri, Ingimundur á Snartar-
stöðum, alkunnur sæmdarmað-
ur, og Hólmfríður á Valþjófs-
stöðum, er einnig var merk kona.
Bæði eru þau látin.
Ekki mun Halldór Sigurðsson
hafa notið skólamenntunar í
æsku, fremur en títt var um
bændaefni þeirra tíma, en heil-
næmt loftslag í fööurgarði og
fjölþætt áhrif traustrar sveita-
menningar og starfa gerðu úr
góðum efnivið slíkan mann, sem
hann varð. Halldór var kvæntur
Guðrúnu Jónsdóttur hinni ágæt-
ustu konu. Hófu þau búskap við
lítil efni og stopult jarðnæði, en
fyrir rúmum 50 árum fluttust
þau að Valþjófsstöðum. Höfðu
þau hálfa jörðina og þótti ekki
mikið jarðnæði. Nú eru Valþjófs-
staðir orðnir í höndunum á Hall-
dóri og Sigurði syni hans eitt
af fullkomnustu býlum norður
þar. Hýsing fullkomin. Heytaka
öll á véltæku, ræktuðu landi og
búrækt í bezta lagi. Sama gildir
um bæði býlin á Valþjófsstöð-
um. Hafa þau rafmagn til allra
heimilisnota frá vatnsaflstöð,
sem reist var fyrir allmörgum
árum.
Halldór og Guðrún eignuðust
þrjú börn, tvær dætur og einn
son, er upp komust. Eru dæturn-
ar, Hólmfríður og Sigurlaug,
báðar látnar, en Sigurður býr á
Valþjófsstöðum. Konu sína
missti Halldór fyrir um það bil
20 árum. Eftir það var hann í
skjóli sonar sína og tengdadótt-
ur. Halldór á Valþjófsstöðum var
fæddur til gæfu og farsældar.
Hans lífsglaða bjartsýni og hlýja
hugarþel sköpuðu honum vin-
sældir állra, er kynntust honum,
en þeir v.oru orðnir margir á
langri leið. Valþjófsstaðaheimili
var veitult með afbrigðum, enda
í þjóðbraut. í því sem öðru var
fjölskyldan samhent.
í tíð Halldórs Sigurðssonar
hafa á margan hátt stórfelldar
breytingar gerzt á sviði sveita-
lifs og búskapar. Gamlar aðferð-
ir, venjur og siðir hafa þokað
fyrir nýjum. Ýmsu góðu af því
tagi hefir víðast skolað fyrir borð
í því róti. Heimili Halldórs Sig-
urðssonar var undantekning í
þessu efni. Jafnframt því sem
þeir feðgar Halldór og Sigurður
voru manna fremstir í því að
tileinka sér þær nýjungar, sem
til framfara horfðu, héldu þeir
því bezta úr gömlum sið.
Ólafs almennan bókmennta-
skilning okkar. M. a. ætla ég að
hún kenni okkur að leita og
krefjast siðferðilegrar uppbygg-
ingar í því er við lesum, og það
er líka mikilsvert.
Svo er rétt að minna á fyrir-
tækið, sem gaf Á Njálsbúð út.
Menn ættu að styrkja Bók-
menntafélagið betur en verið
hefir um sinn. Það má vitan-
lega segja að stundum hafi gætt
nokkurra hrörnunarmerkja á
starfsemi þess undanfarið og
skal ekki ræða það hér. Á hitt
má minna, sem reynsla síðustu
ára sannar, að nýjum útgáfu-
fyrirtækjum getur llka orðið á.
Skírnir hefir jafnan verið
merkilegt tímarit. Öðru hvoru
hafa alltaf birzt þar öndvegis-
ritgerðir. Auk þess megum við
vel muna það, að þjóðleg fræði
hafa stöðugt skipað þar vegleg-
an sess.
Guðmundur Finnbogason læt •
ur nú af störfum hjá Bók-
menntafélaginu eftir að hafa
unnið þar mikið starf og merki-
legt. íslenzkir lesendur ættu nú-
að rétta eftirmanni hans örv-
andi hendur og hjálpa til þess,
að Hið íslenzka bókmenntafé-
lag geti framvegis orðið brjóst
og skjöldur andlegrar menning-
ar með þjóðinni. Það bezta, sem
félagið hefir gert á liðnum ár-
um vísar þann veg.
Halldór Kristjánsson.
Halldór á Valþjófsstöðum hef-
ir lokið löngu dagsverki og góðu.
Traustum og jöfnum tökum jók
hann og bætti reitinn sinn, en
steig aldrei á strá fyrir öðrum.
Líf hans og starf er til fyrir-
myndar. B. H.
Friðbjörn Þorsteinsson, sem
lengi bjó að Brekkukoti á Efri-
byggð í Skagafirði, andaðist að
heimili sínu, Reykjakoti í Ölfusi,
laugardaginn 18. marz. Hann var
fæddur að Finnastöðum í Eyja-
firði, 15. júlí 1865. Foreldra sína
missti hann ungur, en ólst síðan
upp hjá systur sinni og átti þar
hörðu að mæta hjá manni henn-
ar. Árið 1890 réðst hann vinnu-
maöur að Álfgeirsvöllum 1
Skagafirði til Ólafs Briem alþrn,,
og var þar í 13 ár. En árið 1903
fluttist hann að Brekkukoti til
Snorra, bróður síns, og var þar
í húsmennsku tvö næstu árin.
Árið 1905 andaðist Snorri frá
fimm ungum börnum. Friðbjörn
tók þá við búinu, kom öllum
börnunum til manns og tók síð-
ar sjötta fósturbarnið, er hann
ól upp. Fyrir nokkrum árum lét
hann af búskap og dvaldist síð-
an hjá bróðursyni sínum og
nafna, Friðbirni Snorrasyni,
fyrst í Brekkukoti, en nú síðasta
árið að Reykjakoti í Ölfusi.
Friðbjörn heitinn var gildur
bóndi og bætti jörð sína til
muna. Hann var gagnmerkur
maður og svo vandaður til orða
og verka, að fátítt er. Ég þekkti
hann frá barnæsku og heyrði
hann aldrei tala styggðaryrði né
lastmæli um nokkurn mann.
Hann var greiðamaður hinn
mesti, sannur vinur í raun,
jafnt dýra sem manna. Tryggð
hans, trúmennsku og dyggð yar
viðbrugðið af öllum, sem til
þekktu. P. H.
Málfríður Þorbjarnardóttir,
fyrrum húsfreyja á Hamri í
Hörðudal, lézt 6. janúar s. 1.
Hún var fædd að Spóamýri í
Þverárhlíð 23. sept. 1864, bjuggu
þar foreldar hennar Þorbjörn
Davíðsson og Guðrún Ásbjörns-
dóttir Péturssonar bónda í
Brekkubæ. Kona Ásbjörns var
Málfríður, dóttir Ásmundar
Jónssonar að Elínarhöfða á
Akranesi. Ásmundur var þrí-
giftur og átti um 30 börn, er
margt manna og merkra af hon-
um komið um Borgarfjörð og
víðar. Ætt Ásbjörns Pétursson-
ar í Brekkubæ má rekja til Lofts
ríka á Möðruvöllum og Skarðs-
verja aftur á 12. öld. Málfríður
fluttist ung vestur í Dali og
giftist Kristjáni Sveinssyni frá
Hamri. Reistu þau þar bú við
lítil efni, og eignuðust 7 börn,
sem öll eru á lífi og hin mann-
vænlegustu. Þrátt fyrir, þó oft
væri þröngt í búi, ríkti meiri
ánægja í lágreista bænum á
Hamri, en víða þar, sem víðara
var til veggja og efnin meiri.
Konan var greind og fróð, heim-
ilisfaðirinn gleðimaður og
söngvinn. Undu bþrnin þar á
myrkum vetrarkvöldum við
söng, sögur og margs konar
fróðleik, undir handleiðslu kær-
leiksríkra foreldra. Munu þau
uppeldisáhrif, er þáu nutu þar,
hafa orðið þeim drýgra vega-
nesti að heiman, en nokkrar
krónur í vasann. Ég held að slík-
ar konur sem Málfríður Þor-
bjarnardóttir hafi lagt stærstan
skerf til að viðhalda tungu vorri
og þjóðlegri menningu á liðnum
öldum.
Málfríður var skapmikil, en
hreinlynd og trygglynd svo af
bar. Þó stundum sviði undan
napuryrðum hinnar greindu
konu, er sagði hverjum sem í
hlut átti eins og henniþótti vera,
þá var falin undir þeim hjúp
eldur kærleiks og góðvildar, sem
yljaði inn að hjartarótum.
Hún var sáttfús og handtakið
hlýtt, er hún mætti samúð og
skilningi. Það er trú mín að
henni líði nú vel, hafin yfir
mannlegan breyskleika og skiln-
ingsleysi í bjartari heimkynnum
þar sem kærleikurinn og rétt-
lætið ríkir. H. P.
Ei rúða brotnar
hjá yður, þurfið þér aðeins að
hringja í síma 4160.
Höfum rúðugler af öllum gerð-
um og menn til að annast
ísetningu.
VEBZL. BRYNJA
Sími 4160.
Frá U. M. F. I-
(Framli. af 2. síðu)
Ungmennasambandi Snæfells-
ness- og Hnappadalssýslu, Sig-
urður Eiríksson, Miðskeri, sem
kennir hjá Úlfljóti, ungmenna-
sambandi Austur-Skaftfellinga,
Höskuldur Skagfjörð, sem
kennir hjá Umf. Skallagrími í
Borgarnesi, og Baldur Krist-
jónsson og Kjartan Bergmann;
GÆFAN
fylgir trúlofunarhringunum
frá
SIGURÞÓR, HAFNARSTR. 4.
Sent mót póstkröfu.
Sendið nákvæmt mál.
sem kenna hjá Umf. Reykjavík-
ur.
Mörg héraðssamböndin undir-
búa héraðshátíðir 17. júní næst-
komandi.
Samband ísl. stnnvinnufólafia.
SAMVINNUMENN!
Þegar eldsvoða ber að höndum, brenna ná-
iega í hvert sinn óvátryggðir innanstokks-
munir.
Frestið ekki að vátryggja innbú yðar.
Opai
ftaestiduft —
er fyrir n^kkru komið á
niarkaðinn og hefir þegar
lilotið hið mesta lofsorð, því
vel er til þess vandað á allan
hátt. Ðpal ræstiduft hefir
la þá kosti, er ræstiduft
þarf að hafa, — það hreinsar
án þess að rispa, er mjög
drj’igt, og er nothæft á allar
tegondir búsáhalda og eld-
húsáhalda.
IVotfð
O P A L rœstiduft
Raftækjavinnustofan Selfossí
framkvæmir allsltoiiar rafvirkjastörf.
Saltkjöt
Akveðið liefir verið að selja iunanlands
nokkuð af
stórhöggnu dilkakjöti
fyrir aðeins 462 krónur
heiltunnuna
Það af kjötiim, sem ekki selst fljótlega,
verður flutt út, og verða l»ví jieir, seni
ætla að kaupa kjöt til sumarsins, að
gera pantanir sem fyrst hjá KAUPFÉ-
LÖGUM eða SAMBAIVDEVU, o» vcrður
kjötið þá sent á hvaða höfn sem óskað er
með fyrstu ferð er fcllur.
ÍTSÖLlSTAlim TlMAJVS t REYKJAVlK
Verzluninn Vitinn, Lauganesvegi 52 ................ Sími 2260
Þorsteinsbúð, Hringbraut 61........................ — 2603
Flöskubúðin, Bergstaðastræti 10 ................... — 5305
Leifskaífi, Skólavörðustíg 3 ...................... — 2138
Bókaskemman, Laugaveg 20 B.........................
Bókabúð KRON, Alþýðuhúsinu ........................ — 5325
Söluturninn, Hverfisgötu .......................... — 4175
Sælgætisbúðin Kolasundi ...........................
Verzlunin Ægir, Gróflnni...........................
Bókaverzlun Finns Einarssonar, Austurstræti 1 ..... — 1336
Bókastöð Eimreiðarinnar, Aðalstræti 6 ............. — 3158
Ólafur R. Ólafs, Vesturgötu 16..................... — 1754
Jafet Sigurðsson, Bræðraborgarstíg 29 ............. — 4040
Konfektgerðin Fjóia, Vesturgötu 29 ................ — 1816
+ ÚTBREIÐIÐ TIMANN^