Tíminn - 05.01.1918, Blaðsíða 4
4
TIMINN
frá ðtlönðum.
Með aðstoð Þjóðverja hafa Tyrk-
ir gert liamslausar tilraunir til þess
að ná aflur Jerúsalem af Bretum,
en þeim hafði ekkert orðið ágengt
í því efni er siðast fréttist.
Miklar skærur hafa orðið milli
ítala og Austurríkismanna. í fyrri
viku tóku Austurríkismenn þar 9
þúsundir lil fanga, en nú er sím-
að, að frakkneskar hersveitir, sem
komnar voru ítölum til hjálpar,
liafi rekið Auslurríkisinenn aftur á
bak yfir Piavaelfi og tekið af þeim
margt fanga. Þjóðverjar senda nú
óðfluga lið þangað suður Austur-
ríkismönnum til aðstoðar.
Á vesturvígstöðvunum liafa Þjóð-
verjar gert æðisgengin áhlaup, en
litlu fengið áorkað. Þar hafa ekki
stórtíðindi gerst undanfarnar vikur.
Vopnahlé sfendur milli Rússa og
Þjóðverja, og horíir allfriðvænlega
með þeim. Kröfur Rússa eru að
Þjóðverjar dragi lið sitt til baka
úr herleknum löndum, enda geri
þeir sjálfir hið sama, að Þjóðverj-
ar bæti einstökum mönnum eigna-
tjón, en herkostnaður falli niður,
að þjóðaratkvæði skeri úr hvað
um hertekin lönd verði. — Þýzk
blöð heimta að gengið sé að kröf-
um Rússa svo að sérfriður komist á.
Stórtíðindi mega það heita, sem
símuð er Visi, að Bandamenn haíi
lýst yfir því, að þeir ætli að taka
friðaruppástungur Rússa og Þjóð-
verja til rækilegra íhugunar.
í njTárskveðjuskeyti, sem Mr.
Lloyd George, forsætisráðherra
Breta sendi stjórnum Bandamanna
og nýlendum Breta, segist hann
hafa góða von um það, að áður
en þetta ný byrjaða ár sé liðið,
hafi Bandamenn náð því takmarki
sem sett var.
,LaMið‘ og samvinnufélögiD.
Oft má af litlu marka hvert
hugurinn stefnir. Og þótt menn
vilji á stundum dylja hug sinn —
einhverra hluta vegna — þá verða
smáatriði oft lil þess að fletta ofan
af hinu sanna hugarfari.
Reykjavikurblöðin hafa ekki
þorað að kannast opinberlega við
ímugust þann sem þau hafa á
samvinnufélögunuin. Pau vita sem
er, að samvinnuandinn hefir injög
gripið um sig, einkum í sveitum
og hugsandi mönnum er það al-
ment ljóst, að þar er á ferðum
einhver farsælasta stefna fyrir þjóð-
ina i heild sinni.
Væru blöðin óbundin af tillitinu
til kaupmanna, myndu þau vilja
vinna samvinnustefnunni gagn.
»Landið« stendur næst kaup-
mönnum allra blaða. Þó hefir það
ekki þorað að afhjúpa opinberlega
sinn innri mann ennþá. En í síð-
astliðinni viku gægðist hið sanna
hugarfar fram.
Blaðið getur þess og þykir held-
ur en ekki matur í þeirri svívirð-
ingu, að atvinnumálaráðherrann
hafi látið samvinnufélögin sitja
fyrir farrými í skipum lands-
stjórnarinnar frá Danmörku. Það
leynir sér ekki hvað blaðinu finst
mikið til um þetta.
Hvað er um þetla að segja?
Fyrst og fremst það að hér er
farið með algerlega tilhæfulaus ó-
sannindi. Alvinnumálaráðherrann
hefir forðast það að taka félögin
á nokkurn hátt fram yfir kaup-
menn og félögin hafa aldrei farið
fram á annað en það, að njóta
jafns réttar.
En i annan stað sýnir öll með-
ferð blaðsins á þessum ósannind-
um, hvað löngunin er sterk til
þess að geta rekið eitthvað ilt úr
sér til samvinnufélaganna. Á hinum
minsta flugfæti — ósönnum þó —
eru bygðar skammir og ónot. En
hin fornkveðna rætist, að fátt er
svo ilt að einugi dugi og nú þarf
enginn lengur að ganga þess dul-
inn hvern hug »Landið« ber til
farsælustu stefnunnar sem er að
búa um sig með þjóðinni.
— f þessu Ijósi ber að skoða
grein sem birtist í Landinu í gær
um samvinnufélögin, og sem sögð
er að vera úr bréfi úr Eyjafjarð-
arsýslu, en virðist standa nær blað-
inu sjálfu. Hugarfarið sem undir
býr hjá Landinu er hið sama og
réði dylgjunuin til félaganna sem
nefndar voru. Greinin er tilraun
að kljúfa innbyrðis samvinnu sam-
vinnumanna. Tíminn gerir ráð
fyrir að samvinnumenn leiti ekki
ráða til Landsins.
Samsærið.
»Vísir« og »Landið« gera sam-
særið að umræðuefní og nokkuð
sitt með hvoru móti. Bæði fullyrða
að Tíminn fari með ósannindi um
samsærið. Vísir segir að »því mið-
ur« sé það ekki satt að samtök
hafi verið um að steypa stjórninni
með valdi og marg tönnlast á þessu
»því miður«. Landið virðist aftur
á móti fordæma aðferðina með
heilagri vandlæting. — Hvort blað-
ið mun vera hreinskilnara?
Tíininn hefir fulla ástæðu lil
þess að spyrja blöðin á hverju þau
byggi það, að neita því ákveðið að
samsærið hafi átt sér stað. Þekkja
þau hjörtu og nýru allra Reykvík-
inga svo, að þau geti fullyrt það?
Blöðin gætu ekki neitað þessu svo
ákveðið nema með einu móti, að
þau vissu sína menn saklausa, en
vissu hinsvegar að þeim einum
gæti komið slíkt til hugar.
En »því miður« getur Tíminn
fullyrt að ekkert orð er ósatt sem
hann hefir sagt um samsærið. En
»sem betur fer« varð ekkert úr því
að þessu sinni.
En það er skylda góðra blaða
að benda þjóðinni á hættuna sem
af því stafar, fái slíkar hreifingar
að grafa um sig. Þær eru drepsótt
sem seint verður læknuð og fæðir
af sér alskonar óheilindi. Geti sam-
særismenn komið á stjórnarbylting,
riðið niður löglega stjórn landsins
og virt þing þjóðarinnar að vett-
ugi, þá er óvandari eftirleikurinn.
Þá er margföld hætlan á mót-
bylting. Þá er komin ný Sturlunga-
öld yfir landið.
Vegna þessara afleiðinga sam-
særisins hefir Tíminn gert það að
opinberu blaðamáli, en ekki til
þess að flytja æsingafréttir. Þjóðin
á öll að fá að vita, að möguleikar
þeirrar spillingar eru til hér á
landi. Hún á að vera á verði, að
þeir fái ekki að koma neina til
leiðar.
Það værí voðaleg tilhugsun ætti
ísland að lenda i þeirri ógæfu, að
þjóðin yrði að bráð samsærismönn-
um sem gerðu byltingar og mót-
byltingar, eftir sínu höfði, og það
á þeim alvarleguslu tímum sem
yfir landið hafa komið, þegar segja
má að hver má teljast feginn sem
á björg til næsta máls.
,Land‘~hreinsumn.
Þorvaldur bóndi í Syðstumörk
undir Eyjafjöllum hygst að vinna
stórvirki í »Landinu« alveg ný-
lega, þar sem hann er að reyna
að þvo B. Kr. tandurhreinan af
þeim ásökunum, sem bornar voru
á hann hér í blaðinu, í greinum
um bankamálsræðu hans m. m.
Það ræður að líkindum hvað úr
þvottinum verður, þar eð sjálfur
B. Kr. hefir ekki borið það við að
að hreinsa sig af þvi sem um
hann var sagt, hvoi'ki með rökum
né aðstoð laganna — enda hefir
Þorvaldur ekki annað í þvælið en
fáein stóryrði.
»Fjarlægðin gerir íjöllin blá« —
og svo halda menn að það sé gull
í fjöllunum. —
En Þorvaldur grípur á kýlinu.
Því að það er óþolandi að banka-
stjóri við þjóðbankann íslenzka
skuli þegja við slíkum áburði og
sökum sem á hann voru bornar í
nefndum greinum. Hvernig stendur
á því að hann leitar ekki aðstoðar
laganna til þess að hreinsa sig af
þeiin? Hann stendur gagnvart þjóð-
inni sannur að þessum sökum
vilji hann ekki hreinsa sig af þeirn
B. Kr. hefir haft nógan tíma til
þess að geta verið búinn að
hreinsa sig af ákærunum, en hann
hefir ekki gert það.
Þá verður að fara aðra leið.
Vilji hann ekki gera það sjálfur,
verður landsstjórnin að láta gera
það. Þjóðin á heimting á því að
bankastjóri við þjóðbankann verði
annaðhvort hreinsaður af slíkum
sökum, eða að hann fari frá, reyn-
ist þær sannar. Það er skylda
stjórnarinnar að láta slíka rann-
sókn fara fram, úr því B. Kr. hefir
ekki fundið livötina hjá sér til að
gera það.
Þjóðjarðirnar
Gfettinyanes í Borgarfjarðar-
hreppi og Sturluflöt í Fljóts-
dalshreppi eru lausar til
ábúðar frá fardögura 1918.
Umsóknir sendist
Sveini Ólafssyni í Firði.
Krétti r.
Tíðin. Þýðviðri það er hófst með
jólum, stendur enn og má heita að
nú sé orðin auð jörð alstaðar sunn-
anlands. Bati þessi mun hafa náð
um mestalt land nema Þingeyjar-
sýslu, eftir símfregnum að dæma
og víðast hvar komnir góðir hagar
nema þar.
Landsbankinn. Landsbankalögin
nýju gengu í gildi nú um áramót-
in. Magnús Sigurðsson sem hefir
verið settur bankastjóri um liríð
var sá eini sem sótti um nýja em-
baettið sem Iögfræðingur á að
skipa. Var lionum veitt embættið.
t hans stað hefir Benedikt Sveins-
son alþm. verið seltur bankastjóri
í sæti Bjarnar Sigurðssonar. Verður
því ekki neitað að með því er
brotin six grundvallarregla sem
fram hefir verið haldið hér i blað-
inu, að bankastjórar væru ekki
beinir þátttakendur í stjórnmála-
baráttunni.
Verður að ætlast til þess að sú
sjálfsagða krafa verði tekin til
greina, að þeir menn sem til fram-
búðar eiga að gegna þessum starfa
láti alt víkja fyrir honum og fyrst
og fremst þingmenskuna.
En vonandi er að þess verði
ekki langt að bíða, að fyrirhyggja
um störf og stöður verði meiri
hjá þjóðinni og þá verði það talið
sjálfsagt að sérmentuðu mennirnir
eiga að ganga fyrir stjórnmála-
mönnum, a. m. k. til bankastjóra-
stöðu við landsbankann.
»Norðurland« kvað kalla Tím-
ann vsaurblaða. og vmálgagn óald-
arflokksinsa. Ritstjórinn er Jón
Stefánsson.
Skipaferðir. Frakkneskt gufu-
skip kom hingað á nýársdag með
kol til Kol & Salt. Sterling kom
3. þ. mán. úr sinni löngu og taf-
sömu ferð austan um land, af því
að ekki varð komist fyrir Horn
sakir íss. Geysir, danskt gufu-
skip, kom hingað sama dag hlað-
ið vörum til kaupmanna og kaup-
félaga. Lagarfoss fer hlaðinn
vörum til Akureyrar nii um helg-
ina og llytur hingað kjöt í baka-
leiðinni. Sterling og fleiri skip
munu leggja af stað til Noi'egs með
kjötfarma nú á næstunni. Gert er
ráð fyrir því að þau skip megi
flytja farþega.
Ritstjóri:
Tryggvi Þórhallsson
Laufási. Sími 91.
Prentsmiðjan Gutenberg.