Tíminn - 10.01.1920, Qupperneq 4
4
TíMINN
gagnalausu stofuna, þar sem hann
var vanur að vera á nóttinni,
ásamt með einum fimmtíu piltum
öðrum. Þeir þyrptust inn með litlu
lírurnar sínar og harmóníkurnar,
seldu manni peningana af hendi,
sem var með stutt skegg á efri
vör og blés þykkum reykjarmekki
af svörtum vindli. Því næst sett-
ust þeir og borðuðu »makaróní«,
áður en þeir háttuðu. Hann var
víst geðvondur í kvöld, því að
hann hreytti einhverju í einn af
drengjunum sem kom of seint, og
f hina sem voru að gefa íkornan-
um sem sér af matnum, eða litla
rauðskrýdda apanum sem sat á
öxl þeim. — Nú lá drengurinn
alveg meðvitundarlaus úti á göt-
unni, en litla stúlkan inni í hús-
inu tísti sí og æ, eins og brjóstið
á henni væri búr, fult af söng-
fuglurn.
þegar klukkan sló niu í ítalska
skólanum í Old Comptongötu, stóð
kennarinn upp, leit út um glugg-
ann og sagði:
»Nú höfum við sagt söguna um
hina löngu leið til föðurlands okk-
ar, en á meðan hefir komið hríð,
svo við munutn eiga fult í fangi
með að rata heim«.
Börnin hlógu og svöruðu örugg:
»Góða nótt, herra læknir«.
»Góða nótt drengir. Guð fylgi
ykkur«, sagði kennarinn.
Hann var maður roskinn, tígu-
legur yfir ennið og með sítt skegg.
Mildi hvíldi yfir raunalegu and-
litinu, röddin var mjúk, mildi var
i fasi hans. Þá er drengirnir voru
farnir vafði hann um sig rauð-
fóðraðri yfirhöfn og hélt á eftir
lærisveinum sínum. Hann sá það
fljótt, að aðvörunin hafði ekki
verið ástæðulaus:
»Til allrar hamingu«, hugsaði
hann, »er að eins örstutt heim til
mín, það er annað en gaman að
rata í þessu myrkri«.
Hann komst loks heim að húsi
sinu við Sóhó-torg og þá er hann
ætlaði að ganga inn um hliðið,
var hann rétt búinn að stíga ofan
á litinn líkama, sem lá í kút upp
við hliðarsúluna.
»Drengurl« tautaði hann, »vesa-
lingur, sem sefur undir berum
himni i þessu veðri! Vaknaðu,
barnið gottl Þetta má ekki« —
sagði hann hátt um leið og hann
beygði sig til þess að vekja hann.
Drengurinn svaraði honum ekki,
en fór að tauta með þeim róm
sem var yfirkominn af svefni:
»Ó, berjið mig ekkil Það er
vegna snjóarins. Eg skal koma
heim á réttum tíma næst! Níu
pence, já, þeir eru hér — en litla
Jinny er svo kalt«.
Maðurinn stóð kyr eitt andar-
tak og hugsaði sig um, því næst
þrýsti hann fast á dyrabjölluna.
götuna, til þess að beiðast ölmusu,
eða deyja úr hungri«.
»Vesalingurinn litlil«
»Þegar eg hugsa um þjáningar
þeirra, þá svellur mér blóð í æð-
um — einkanlega af því það eru
börn rníns elskulega föðurlands
sem eru saklaus fórnardýr þessara
mannhunda«.
»Hve þung mun hún vera, refs-
ingin, sem drottinn veitir þessum
þorpurum, í öðru lífi!«
»Það lítur út fyrir, elskan min,
að hann gleymi því alveg í þessu
lífi og það er ærin ástæða um að
við höfumst eitthvað að. Eg skal
sjá um að þessir glæpamenn fái
að kenna á lögunum, séu nokkur
lög til á Englandi sem ná til
þeirra«.
Tíðln. Árið hafði endað kulda-
lega, norðanátt og 10 stiga frost
víðast hvar um land. Laugardag-
inn 3. janúar hefir dregið nokkuð
úr frostinu, logn og sumstaðar
sunnanandvari. Hitinn í Þórshöfn
1 stig. Á mánudaginn þann 5. er
kominn 5.5 stiga hiti í Færeyjum,
1.5 stig í Vestmannaeyjum. Suð-
vestanátt víðast hvar á landinu.
Daginn eftir sama vindstaðan, en
hitinn minni í Færeyjum, en hláka
hér á landi. Miðvikud. 7. jan. er
komin norðanátt, frost í Reykja-
vík liðug 8 stig, á Grímsstöðum
13 stig, en þýtt í Færeyjum. Þar
rokhvast á vestan og snjókoma.
Sænskur konsúll. Það mun nú
fullráðið að Svíar sendi hingað í
sumar konsúl, með meira valdi
og verksviði en áður hefir verið,
en ófrétt er enn hver það veröur.
Hannesarsjóður. Auglýstur er
til umsóknar styrkur úr sjóði Hann-
esar Árnasonar, 2000 kr. á ári í
fjögur ár. Er það í fjórða sinni
sem hann er auglýstur, hafa þrír
áður fengið styrkinn, prófessorarnir
Ágúst H. Bjarnason, Guðmundur
Finnbogason og Sig. Nordal.
Umsóknir sendist háskólaráðinu
innan 6 mánaða frá birting aug-
lýsingarinnar.
Pjóðvinafélag8bækurnar eru
seint á ferðinni í þetta sinn. Al-
manakið kemur inn úr dyrunum
7. jan. og Andvari »kemur ein-
hverntíma seinna«. Enn heldur
háskólinn danski einkaréttindum
sínum, því að stimpill hans er
framan á. Hvað á það lengi að
haldast? Og nú eru gömlu dýrð-
lingarnir komnir aftur á dagana,
í stað árstíðaskrárinnar.
stjórnin er seljandi og er söluverð-
ið 150 þús. kr.
Endurskoðun Landsbankans.
Pétur Jónsson alþm. frá Gaut-
löndum, sem kosinn var af þingi
í sumar endurskoðunarm. Lands-
bankans, kvað hafa sagt af sér
því starfi og stjórnin skipað Guð-
jón Guðlaugsson alþm. til starfans
til bráðabirgða.
Eimskipafélagið hækkar farm-
gjöld á vörum frá Ameríku um
10°/o, vegna sívaxandi útgjalda þar
vestra.
Nýárssundið féll niður af þessu
sinni, vegna ónógrar þátttöku vænt-
anlega.
Bæjarsíminn. Nýtt skipulag er
nú að komast á um miðstöð
Reykjavíkur, enda var hún orðin
alt of lítil. Er verið að bæta við
nýrri miðstöð. Verða 800 lægri
númerin í gamla miðstöðvarborð-
inu, sem kallað er A, en yfir 200
nýjir talsimanotendur fá samband
við nýju miðstöðina B.
Prentunarteppa varö hér í
Reykjavík frá ársbyrjun til 7. þ.
m. Hafa prentarar lengi haft með
sér félag og hefir það samið við
prentsmiðjueigendur um öll kjör
hvers einstaklings innan stéttarinn-
ar, nemafjölda o. fl. Hafa samn-
ingar lengst af gilt um ár í senn,
og í hvert sinn sem endurskoðun
þeirra hefir átt sér stað, hefir fé-
laginu tekist að bæta að einhverju
kjör prentara, annaðhvort um laun,
vinnustundafjölda, borgun fyrir
veikindadaga, sumarhvild o. s. frv.
Hefir félagið löngum stilt í hóf
kröfum sínum og notið virðingar.
Er langt síðan að það tók að
semja um átta stunda vinnudag, en
nú mun það einkum hafa verið sú
krafan jafnhliða 40°/o kauphækkun,
sem olli því að félag prentsmiðju-
eigenda hætti að semja, kvaðst
mundi taka afleiðingunum, og or-
sakaði vinnuteppuna. Þótti prent-
urum prentsmiðjueigendur skera
upp herör með þessu tiltæki. Sam-
heldni þeirra er mikil og er ósagt
hve lengi hefði á teppunni staðið,
ef Jón Magnússon forsætisráðherra
hefði ekki gengið í málið og kom-
ið því til vegar að tekið var til
samninga að nýju. Varð þeim lok-
ið á einum degi. Vinna prentarar
9 stundir þetta ár, gegn skilyrðis-
lausu loíorði vinnuveitenda um 8
stunda vinnudag næsta ár. Öðrum
kröfum sínum munu prentarar
hafa fengið fullnægt að öllu eða
einhverju leyti og fulla borgun
fengu þeir fyrir 3 daga af 5 sem
teppan stóð, en prentsmiðjurnar
fá að fjölga nemum til muna.
Fjárkláða hefir orðið vart 1
Norðurárdal.
»Borgin eilífa«. Hall Caine, höf-
undur sögunnar sem nú hefst í
blaðinu, er talinn einhver allra
mest lesin núlifandi skáldsagnahöf-
undur í heiminum, og »Borgin ei-
lífa« er einhver besta og frægasta
sagan sem hann hefir ritað, en
hann hefir ritað mesta fjölda af
bókum. Einu af skáldritum hans,
»John Storm«, hefir verið snúið í
leikrit og var leikið hér í bænum
um árið, við hina mestu aðsókn,
það hefir sömuleiðis verið sýnt
hér á kvikmyndaieikhúsi. Ein skáld-
saga hans, »G!ataði sonurinn«, ger-
ist að mestu leyti á íslandi, enda
ferðaðist Hall Caine hingað til
lands laust eftir aldamótin. — Tim-
inn ræður mönnum til þess að
lesa söguna, jafnóðum og hún
kemur út og halda blöðunum vel
saman, því að sagan verður ekki
sérprentuð og valda sumpart annir
í prentsmiðju, sumpart kostnaðúr,
og á hinn bóginn kemur sagan
fyrir svo margra augu í Tímanum.
Kappskák. Taflfélög Reykjavík-
ur og Akureyrar stofna tíl kapp-
skákar. Á að tefla fimm skákar,
allar í senn, allar i nótt og senda
II.
Hálfum klukkutíma síðar lá
litli drengurinn á legubekk í lækn-
ingastofu læknisins. Það var nota-
leg stofa, eldur í arni og lampi
og dró ljóshlíf úr birtunni. Hann
var meðvitundarlaus enn þá, en
það var búið að færa hann úr
blautu fötunum og ullarábreiðum
var vafið um hann. Læknirinn
sat við höfðalagið og vætti varir
hans í Koníakki, en góð kona,
hún var eins og dýrlingur í and-
litsfalli, kraup hinumegin við legu-
bekkinn, og strauk um fætur hans
og iljar.
»Nú er hann að rakna við,
mamma«, tautaði læknirinn.
»Já loksins!« sagði kona hans.
»Veslings litli landi minn. Eitt
fórnardýrið enn, þessara þrælasala,
sem gera sér ítalska drengi að fé-
þúfu. Þeir ferðast frá einu þorpi
til annars og tæla börn frá for-
eldruin sínum, með loforðum um
50—60 krónur. Með fölsuðum
námssamningum fara þeir í kring
um iögin og reka þessa litlu,
varnarlausu vesalinga til Englands,
eins og sauðahjörð. Þeir koma
þeim fyrir í húsum sem eru verstu
hrákasmíði, láta þá hafa harmón-
íku, líru, apa, ikorna, eða búr með
hvítum músuin, og reka þá út á
Samskot eru að herast smám-
saman til lýðháskólans í Færeyj-
um og verða birt síðar hér í blað-
inu. Munið að senda þau fljótlega,
sem hafið í hyggju að gera það!
Embætti. Síra Ólafur Stephen-
sen hefir fengið veiting fyrir
Bjarnanesprestakalli. Síra Þorvald-
ur Jakobsson í Sauðlauksdal hefir
fengið lausn frá embætti, frá næstu
fardögum, sökum heilsubrests.
Ásmundnr Guðmundsson skóla-
stjóri á Eiðum kom til bæjarins
rétt fyrir jólin og dvelst hér þang-
að til hann fær ferð austur aftur.
Er það erindið að ráðgast við
stjórnarráðið um byggingu handa
skólanum, samkvæmt því sem
samþykt var á síðasta þingi. Verð-
ur væntanlega byrjað á henni á
vori komanda.
Slys. Maður féll nýlega útbyrðis
af seglskipinu »Muninn« og drukn-
aði. Skipið var á heimleið frá út-
löndum.
Bjorgunarskip Vestmanaeyinga.
Vestmannaeyingar hafa keypt fiski-
rannsóknarskipið »Thor«, sem siglt
hefir mörg ár hér við land og á
að verða björgunarskip. Danska
Búnaðarnámsskeið
verður að Eiðum nú í vor, 14. maí — 30. júní. Enn
fremur mun á sama tíma haldið námsskeið í vefnaði, og
hafi nemendur með sér fyrirvaf. Aðrar upplýsingar um
það námsskeið gefur frú Sigrún Blöndal, Eiðum.
Umsóknir um námsskeiðin séu komnar til mín fyrir
miðjan apríl, og mega umsækjendur ganga út frá því
að þeim verði veitt inntaka, svo framarlega sem þeim
verða engín orð gerð þegar um hæl.
St. í Revkjavík 5. jan. 1919.
Asmundur Guðiimtidasoii.
Eins og kunnugt er, brann hluthafaskrá H.f. Eimskipafélags íslands
í aprílmánuði 1915. Hefir að mestu tekist að koma henni í samt lag
aftur á þessum tíma sem liðinn er frá því að hún brann, en samt
sem áður vantar oss enn þá nöfn og heimilisfang eiganda eftirfarandi
hlutabréfa:
A-flokkur:
257 265 302 1046 1053 1677 4003 4752 4808
258 297 303 1047 1054 1821 4004 4753 4809
260 298 304 1048 1590 3940 4068 4756 4815
262 299 305 1049 1670 3997 4069 4757 4818
263 300 455 1051 1671 3998 4748 4793 4959
264 301 1045 1052 1676 4001 4751 4800 ...
JB. -flolílcui-:
58 964 966 980 1083 1190 1219 ...
960 965 970 1082 1188 1216 ... ...
C-Íiolíltui':
1005 1116 1117
Er því hér með skorað á eigendur ofangreindra hlutabréfa, að gefa
sig fram liið allra fyrsta, skriflega eöa munnlega, á skrifstofu félagsins
I Reykjavik.
Stjórnin.
Hérmeð skal vakin athygli þeirra hluthafa félagsins, sem eigi hafa
fengið greiddan arð af hlutabréfum sinum fyrir árið 1915, á því, að
samkvæmt 5. gr. félagslaganna eru arðmiðar ógildir, ef ekki hefir verið
krafist greiðslu á þeim áður en 4 ár eru liðin frá gjalddaga þeirra.
Eru menn því aðvaraðir um að vitja arðsins fyrir 1915, í siðasta lagi
fyrir 23. júní þ. á., þar eð hann fæst eigi greiddur eftir þann tíma.
Stjórnin.
XJ in b o ö.
Peir hluthafjársafnendur og aðrir, sem kynnu að vanta
eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja aðalfund félags-
ins 26. júní þ. á. eru beðnir að gera aðalskrifstofu félags-
ins í Reykjavík aðvart, og tiltaka hversu mörg eyðublöð
þeir giska á að þeir þuríi.
H.f. Eimskipafélag íslands.
leikina um síma. Hefir landsíma-
stjórinn lánað símann.
Skipstjón. Vélbáturinn »Guðrún«
úr Reykjavík, hefir að líkindum
farist. Hefir ekki spurst til hans í
nokkra daga og leit orðið árang-
urslaus. Sást siðast til hans af
Akranesi. Fjórir menn voru á bátn-
um: Júlíus Sigurðsson frá Bygð-
arenda, skipstjóri, Sigurður Jó-
hannesson, frá Móakoti, vélamað-
ur, Sigurður Guðmundsson og
Benedikt Sigurðsson.
Slys. Það slys vildi til á gaml-
árskvöld, vestur á Þingeyri við
Dýrafjörð, að skot úr gamalli fall-
byssu hljóp í handlegg á manni
og varð þegar að taka handlegg-
inn af upp við öxl. Varþað Óskar
Jóhannesson Ólafssonar póstaf-
greiðslumanns og fyrverandi al-
þingismanns.
Leikfélag Iteykjavíkur byrjar
að leika »Sigurður Braa« eftir Jo-
han Bojer, annað kvöld.
Ritstjóri:
Tryggvl Þórhallsson
Laufási. Simi 91.
Prentsmiöjan Gutenberg,