Tíminn - 08.01.1921, Síða 4

Tíminn - 08.01.1921, Síða 4
4 Tií'M’I N N Snlawerðii er fyrst um sinn frá áramótum ákveðið ki’. 200,00 smálestin. EflamÆssveffsIwmim Peningabréí með innl. kr. 55)°°) uppbót á i hest seldan Utflutningsnefndinni 1919. Utanáskrift: Jóh. Guð. Guðmundsson, Hvammi, hefur^ekki komist til skila, og er geymt hjá Utflutningsnefndinni. Eigandi bréfsins er beðinn að gefa sig fram. , Utllutningsneíndin. bNÉnsMi Skóuerslun Hafnarstræti 15 Selur landsins bestu gúmmí- stígvél, fyrir fullorðna og börn — ásamt allskonar leðurskó- fatnaði, fyrir 1 æ g s t v e r ð. Greið og ábyggileg viðskifti. Ræðunni var tekið með einróma fagnaðarlátum, og óðara tók Luigi til máls. „Bróðir! f>ér hafið á réttu að standa. pjóðin er orðin þreytt á orðunum einum. Nú er kominn tími til að hefjast handa. Félagið okkar: Lýveldi mannanna, leggur oss efnin upp í hendurnar. Við höfum hálft hundrað þúsund franka undir höndum og nefnd- irnar á Englandi, Rússlandi og þýskalandi senda daglega viðbót. Byssumar fáum við frá Belgíu og ungu mennirnir okkar kunna að nota þær“. Davíð Rossí stóð upp, en átti bágt með að fá hljóð. „Bræður“, hrópaði hann. „það er rán og morð, sem þið hafið í hyggju að stofna til. Rán — því að þið ætlið að nota þau efni til ófriðar, sem ykkur hefir verið trúað fyrir í þjónustu friðarins. Morð — því að þið stofnið í hættu lífi kvenna og barna, þúsundum saman. það skal ekki verða. Eg banna það“. „þér hótið því að vinna gegn vilja okkar“, sagði Malatesta. „Já, af öllum mætti og efnum“. „Gott og vel“, sagði Malatesta. „þar eð foringi okkar staðhæfir að einlcaskylda okkar sé sú, að hafa áhrif á þingið, þá er eg reiðubúinn til að hlýða. En“ — og nú kom blossi í augu honum — „ef forsætisráðherrann stendur við hótun sína, og ætlar að hefta málfrelsi okkar og öll sund eru okkur lokuð, þá — svo sannarlega sem Guð er til — þá skýt eg hann!“ „Eg líka!“ „Eg líka!“ „Eg líka!“ — Raddirnar gullu við eins og skothríð. Rossí stóð enn upp. „þið hótið því að skjóta forsæt- isráðherrann í þingsalnum. þið gjörið þá nákvæmlega hið sama, sem þið vítið í fari stjórnarinnar. þið beitið ofbeldi gegn ofbeldi og breytið eins og féndur laga og réttar. Hverjar verða afleiðing- amar? Um endilanga Norðurálfu mun ahnenningsálitið snúast gegn ykkui' og þið steypið þjóðinni í botnlausa glötun. Félagar! Kom- andi kynslóðir munu bölva ykkur. þið stöðvið framsóknina um mörg ár“. „það skiftir engu máli“, hrópaði Malatesta. „Við erum reiðubúnir að taka afleiðingunum. Ragir er- um við ekki“. Margir hlógu með honum og glósuðu um seinlæti Rossís. Rossí stóð upp. „Bræður! Ef þið vissuð það hve litla ástæðu eg hefi til þess að halda hlífiskildi yfir lífi Bonellís baróns, ef þið vissuð hversu mikla freistingu eg hefi til þess að láta ykkur skjóta hann einsog hund — þá munduð þið skilja það, að eg læt leiðast af röddu samvisku minnar og engu öðru, er eg segi, að eg sný við ykkur bakinu að fullu, undir eins og þið hafið drýgt þennan glæp“. „Vitanlega“, hrópaði Malatesta, „farið þér þá yðar leið, til þess að forða yður. Og hvers vegna? Blátt áfram af því að þér erað hræddur! — Iilustið á herrar mín- ir! Flokkur okkar sundrast af því að foringi okkar er ragmenni!“ Við þessi orð varð dauðaþögn í salnum. Rossí stóð hreyfingarlaus við borðendann. „Skiljið þér mig ekki, hr. Rossí?“ hrópaði Malatesta. „Jú fullkomlega!“ ,,Eg er reiðubúinn að veita yður uppreist hvenær sem er. Ætti það að vera á morgun?“ „Nei. 1 dag!“ „Og hvar?“ „IIér!“ „Hvenær?“ „Nú þegar!“ Davíð Rossí var náfölur. Hon- um var erfitt um mál. — Mótmæli heyrðust. þetta er hryllilegt! En raddirnar þögnuðu, því að á slík- um augnablikum verður hið ó- skiljanlega eðlilegt. „Lokið hurðinni“, var kallað. „Korða eða pístólu", sagði Malatesta. „Marghleypu", svaraði Rossí rólega. „þá er fljótast af lokið“. Malatesta fölnaði. „Gott“, svaraði hann og beit saman vörum, en það var aug- ljóst, að hann var hræddur. Marghleypumar komu óðara. Einvígisvottar fengnir og skilmál- ar ákveðnir. Undireins og hólm- göngumennirnir væru komnir á staðinn mættu þeir skjóta. En ef sá misti marks, sem yrði fyrri til að skjóta, mátti hinn ganga fram og skjóta á svo stuttu færi sem honum leist. Rossí tók við vopninu án þess að líta á það. Malatesta leit á það gaumgæfilega og spenti hanann með skjálfandi höndum. Hinir gengu til hliðar. Hólmgöngumenn- irnir voru látnir snúa bökum sam- an í miðri stofunni og gengu svo hvor til sinnar hliðar. Undir eins og Malatesta náði veggnum, sneri hann sér við og skaut. þegar reykurinn var far- inn, gat að líta, að Rossí stóð ó- særður og hægri hendin, sém hélt á marghleypunni, hékk niður með síðu hans. Hann bærði ekki á sér, en Malatesta skalf frá hvirfli til ilja. „Flýtið yður! Hefnið y,>ar“, hrópaði Malatesta með titrandi röddu. En Rossí bærði ekki á sér. „Verið miskunnsamir — og flýtið yður“, hrópaði Malatesta í dauðans angist. Rossí gekk feti framar, lyfti hendi og skaut upp í loftið. „þetta var nauðsynlegt“, sagði Rossí. „Eg gat ekki krafist friðar, ef menn mínir álitu mig hrædd- an“. Malatesta kastaði sér fyrir fæt- ur Rossís: „Fyrirgefið mér!“ hrópaði hann. „Fyrirgefið mér!“ „Standið upp! Eg hefi þegar fyrirgefið yður. En minnist þess, að héðan af á eg líf yðar!“ ------o------- Fréttir. Tíðin. Indælasta jólaveður jóla- dagana, vægt frost, logn og fult tungl, og hefir ekki komið svo fagurt veður um jólin í mörg ár. Síðan þýða, hægviðri og lítil úr- koma. Símaskráin 1921 er nýkömin, með venjulegum frágangi. Jafn- framt sendir símastjómin síma- noterdum bréf og skýrir þeim frá hversu erfið aðstaðan sé um alla afgreiðsluna. Símastúlkumar of- hlaðnar vinnu, símaborðin orðin alt of lítil, áhöldin hætta að segja rétt til af sliti — og er ekki unt úr þessu að bæta nema með ærn- um kostnaði og gjörbreytingu. En sá hefir veiið siður í bæ þessum, að kenna símastúlkunum um alt sem aflaga fer um afgreiðsluna, og einslega og opinberlega hafa menn tíðkað það að kasta hnútum að stúlkunum, eins og kappar Ilrólfs kraka grýttu Hött vesal- ing, og þann sönginn syngur a. m. k. eitt höfuðstaðarblaðið enn. Sannleikurinn mun þó vera sá, að illur aðbúnaður og stillingarleysi símanötenda veldur eigi síður óreglunni en stúlkurnar. Er það a. m. k. reynsla þess, er þetta skrif- ar, að allflestar stúlkurnar hafa fullan vilja á því að rækja starfið eins og unt er, eftir kringumstæð- unum. Slys. Á annan jóladag hrepti „ísland“ afarslæmt veður, á leið sinni til útlanda, tók út einn kynd- ara skipsins og hindraði veðrið gjörsamlega alla björgun. Minningargjöf færðu barna- skólabörnin Morten Hansen skóla- stjóra á jólunum — silfurbikar mjög fagran. Hefir hann gegnt skólastjórastöðunni í 30 ár. þorvaldur Thoroddsen prófessor er sagður á batvegi. Páll Ísólísson organleikari hélt hljómleika í Kaupmannahöfn rétt áður en hann lagði af stað heim. Einróma lof hlaut hann fyrir í blöðunum dönsku, bæði fyrir skilning sinn og leikni. Páll er nú að undirbúa það að æfa stóran karla og kvennakór, undir hljóm- leika í næsta mánuði. þorfinnur Karlsefni. Stand- myndin sem Einar Jónsson mynd- höggvari gerði vestra af þorfinni Karlsefni, var „afhjúpuð“ og af- hent Fíladelfíuborg hinn 20. nóv. síða'stl. og voru mikil hátíðahöld þvi samfara. íslenski fáninn blakti þar við hún og íslands var veglega minst, bæði að fornu og nýju. Halldór Hermannsson pró- fessor kom þar fram af íslands hálfu og þakkaði þann sóma sem íslandi var sýndur. Rit. „Morgunn“ er nýútkominn, 1. hefti II. árgangs, prýðilega læsi- legt hefti og fjölbreytt að efni. — „Iðunn“ er og nýútkomin, 3. hefti VI. árg. Flytur meðal annars stór- merkilegt erindi síra Kjartans Ilelgasonar, er hann flutti í félag- inu ,,íslendingi“ um för sína vest- ur um haf. Aðalgrein ritstjórans er árásargrein á spíritismann. — Sig. Ein. Illíðar dýralæknir hefir gefið út rit um samband manna- Bítra í Hraungerðishreppi fæst til kaups og ábúðar í næstu fardögum. Semja við eigandann Þorfínn Jónsson í Bitru. Reykjavík. Pósthólf 122 Sími 228 selur kornvörur, kaffi, sykur o. m. fl. — — alt með lægsta verði. — — Fljót afgreiösla! Áreiðanleg viðskifti. Tapast. hefir frá Hrísum í Helga- fellssveit brúnn hestur ómarkaður — má' lþó vera að sé markaður með fjöður a. v. Hesturinn er klárgengur, gamaljárnaður og útskeifur á aftur- fótum. Finnandi er vinsamlega beð- innjj að gjöra mér aðvart. Daníel Mattíasson, frá.jHrísum. Jörð til sölu og ábúðar. Jörðin Kleifakot í Mjóafirði í Reykjarfjarðarhreppi, 6 hndr. að fornu mati, er til sölu og ábúðar í næstk. fardögum. íbúðarbær í góðu standi og peningshús nýbygð með járnþaki, sem taka 130 fjár. Jörðin framfleytir í meðalári: 100 fjár, 3—4 hrossum og 1 kú. Nánari upplýsingar hjá undir- rituðum eiganda jarðarinnar. Guðbergur þórðarson, Bolungarvík. berkla og nautgripaberkla, og segir sögu þeirra rannsókna. Steingr. Matthíasson læknir víkur að sama máli í „Degi“. Sjálfur hefir Sigurður fengist töluvert við berklarannsóknir á kúm við Eyja- fjörð. Er það vel, að máli þessu sé haldið vakandi og er á öðrum stað í blaðinu lauslega drepið á nýjustu erlendu tíðindin um það. þessi rit- gerð Sigurðar er mjög þörf og fræðandi um sögu málsins ytra. En áður en langt líður ættu dýra- læknarnir að koma með ákveðnar tillögur um hvað eigi að gera hér á landi. Suðurganga. þrír íslendingar eru nýfamir til Ítalíu til stuttrar dvalar: Davíð skáld Stefánsson frá Fagraskógi, Ríkharður Jóns- son listamaður og Ingólfur læknir Gíslason. Gengið á dönsku krónunni hefir hækkað jafnt og þétt upp á síð- kastið. rannsóknir hófust norður þar, hefir þeim verið haldið áfram þyndarlaust, og eru framkvæmdar árlega meira eða minna. Sú þjóð, sem mest hefir til rannsóknar á Spitsbergen lagt, eru Svíar, þá Norðinenn, þó ekki fyr en um aldamót, Frakkar, þjóðverjar, Austurríkismenn, Englendingar, Ameríkumenn o. fl. Hafa Svíar ekki gert út færri en um 30 vís- indalega leiðangra, með sínum færustu vísindamönnum, sérfræð- ingum í ýmsum greinum og varið fleiri miljónum fjár til þessa. Norðmenn hafa á síðari áram einnig gert út marga leiðangra. Hafá hinar ýmsu þjóðir byggja látið rannsóknarstöðvar víða um landið, og vísindamenn hafst þar að á vetrum. Landfræðismæling- ar, jarðfræðisrannsóknir, dýra og jurtalíf á sjó og landi, veðurfræð- isathuganir, hafstrauma, ísrek o. fl. o. fl„ sem of langt yrði upp að telja, hefir verið rannsakað af mörgum bestu náttúrufræðingum Evrópu. Á ísland vort langt í land að verða jafnvel rannsakað og Spitsbergen er nú orðin. Enda óliku saman að jafna. því Spits- bergen telj a náttúrufræðingar, einkum jarðfræðingar, hreinustu gullkistu sína. Á þessu norðlæga heimskautalandi finna menn jarð- myndanir frá öllum tímablium jarðsögunnar, og mun það ein- stakt vera. þar sjá menn að ver- ið hefir sami gróður einu sinni sem nú er í Miðevrópu eða suður- hluta Bandaríkjanna. Má því lesa myndunarsögu jarðar svo að segja á þessum litla bletti. — Alls- konar sýnishom ólíkra bergteg- unda, þúsundir steingerfinga, jurta og dýra hafa verið tekin og flutt heim sér. Fjöldi vísinda- manna er enn í dag önnum kafinn við að lesa út úr steingerfingum þessum lífið sem ríkti hér fyrir miljónum ára í sjó og á landi. Margar merkilegar uppgötvanir hafa þegar verið gerðar á ýmsum svæðum, og fleiri eiga eftir að koma. Árin 1898—1902 fram- kvæmdu t. d. Svíar gráðumæling- ar, er mjög mikla þýðingu hafa með tilliti til lögunar jarðarinnar við heimskautin. Kostuðu mæling- ar þessar milj. króna, og út- gáfa ritanna um þær mælingar 50 þús. kr. Landfræðismælingar era nú gerðar svo nákvæmar sem frekast má, um land alt, og ná- kvæm landabréf til. Eftir hvem vísindalegan leiðangur hafa bæk- ur verið gefnar út, er lýsa ferðum og athugunum í stóram dráttum. Eru þær margar skemtilestur einn. Síðan koma vísindalegu rit- in. Hafa t. d. Svíar einir gefið út ca. *400 vísindaleg rit, er snerta Spitsbergen, og um 60 landabréf. Allar þessar rannsóknir hafa nú auðvitað þeim mun meiri þýðingu frá náttúrufræðislegu sjónarmiði, sem land þetta liggur svo norðar- lega, því menn hafa aldrei átt þess kost fyr að rannsaka svo nákvæm- lega hin svonefndu heimskauta- lönd, og er áreiðanlegt að rann- sókn þeirra muni fá mikla þýð- ingu í framtíðinni. Ilugsum bara um t. d. rannsóknir á hafísnum og ferðalagi hans, já, fyrir fsland. — Ilinir vísindalegu leiðangrar hafa ýmist verið kostáðir af opinberu fé eða einstökum mönnum með samskotum, eða hvorttveggja. Fyrsti norski vísindalegi leiðang- urinn var t. d. kostaður af furst- anum í Monacco. Fyrir utan þessa leiðangra, er beint fóru vísinda- legra erinda, hefir farið og fer enn fjöldi feröamiinnaskipa til Spits- bergen á ári hverju, og er þá stundum með einn eða annar vís- indamaður. Dvelja skipin þar vanalega yfir sumarið. Fólkið fer þangað til að njóta hvíldar og um leið hressingar í hinni dásamlegu fegurð og töfrandi sérkennileik heimskautalandsins. — Að lokum skal getið, að alt frá í byrjun 19. aldar hefir Spitsbergen haft mikla þýðingu fyrir þá, semreynt hafa að komast til Norðurheim- skautsins, og þeirra tala er mikil. Ilafa menn getað komist með því að fara til Spitsbergen fyrst sem svarar hálfleiðis til heimskauts frá íslandi. En til Spitsbergen hafa menn getað farið á skipi sínu án nokkurs sérstaks útbúnaðar, og var mikið við það unnið. Allir muna eftir Andrée, sem ætlaði fyrstur manna að fljúga til Norð- urheimskauts. Sjást ennþá rúst- irnar af húsinu er hann lét byggja á Spitsbergen. Ýmsar þjóðir hafa gera látið á Spitsbergen forðabúr, bæði fyrir þessa heimskautaleitarmenn og aðra nauðstadda. Lýkur hér svo þessu yfirliti yfir sögu og rann- sókn Spitsbergen. Skal nú stutt- lega lýst landinu, áður en vér för- um að segja frá kolanámunum og hagnýting þeirra. Frh. ------o------ Látinn er hér i bænum Bjarn- héðinn Jónsson jámsmiður. — Nýlátinn er ennfremur á Akranesi Jóhann hreppstjóri Björnsson, bróðir Guðmundar sýslumanns, Jóns kaupmanns í Borgarnesi og þeirra systkina. Hámarksverð. Verðlagsnefnd hefir afnumið hámarksverð á rúg- mjöli í Reykjavík. Hámarksverð í Reykjavík, í smásölu, á steyttum sykri er kr. 2,10 kg. og á höggn- um sykri kr. 2,25 kg„ og á kaffi í smásölu kr. 4,20 kg. Tvö íshúsanna eru að stækka hús sín, vegna hinnar auknu botn- vörpungaútgerðar. Nýja Bíó byrjar í kvöld að sýna kvikmyndina af Sögu Borgarætt- arinnar eftir Gunnar Gunnarsson, sem tekin var hér á landi. Embætti. Sigurjón Markússon sýslumaður Sunnmýlinga hefir sagt embætti sínu lausu frá ára- mótum. Gullfoss fór í gær norður um land og til útlanda. þórólfur bóndi Sigurðsson frá Baldursheimi var meðal farþega. Lögrétta minkar ofan í Vísis- stærð nú um áramótin. Manntalið. Ábyggileg tala um fólksfj öldann í Reykjavík er ekki orðin kunn enn, en búist við að verði nálægt 18,000, Embætti. Lárus Bjarnason er skipaður kennari við gagnfræða- skólann á Akureyri. Guðmundur Loftsson er settur sýslumaður á Eskifrði. Ritstjóri: Tryggvi þórhallsson Laufási. Sími 91. Prentsmiðjan Acta.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.