Tíminn - 28.12.1952, Blaðsíða 4

Tíminn - 28.12.1952, Blaðsíða 4
4. TÍMFNN, sunnudaginn 28. desember 1952. 294. blaff, Pált A. Jónsson frá Hvítafelti: Orðið er frjálst „Góð samkoma - mikið fyllerí" Eg hefi oröið þess var, að tillögur mínar um sjálfsvörn sveitanna gegn samkomu- spjöllum hafa vakið nokkra athygli. Einhverjum þótti ó- trúleg lýsing mín á sam- komum í sveitum, öðrum þótti sem rétt væri frá skýrt, en hins vegar væri ekkert við þessu að gera og ástand- ið mundi lagast án aðgerða, og enn öðrum þótti sem ég gerði hlut sjávarþorpa og kaupstaða of slæman en hlífa sveitafólkinu sjálfu. Mér þykir hlíða að gera frek ari grein fyrir málinu, á með an ég bíð þess að heyra frá þeim aðilum, sem tillögurn- ar voru sérstaklega sendar. Það hefir hver sína skoðun á því hvað honum þykir hóf og hvað óhóf. Á dansleik hér í nágrenninu nú á síðast- liðnu hausti, voru áflog og hrindingar ölvaðra manna svo miklar, að í heilan klukkutíma, að sagt er, var ekki reynt að dansa. Hvort það var á sama dansleik, eða öðrum, geta þeir, sem kunn- ugri eru upplýst, sem ölvað- ur maður fékk löngun til þess að kyrja einn af sam- komugestunum, lávaxinn meinhægan mann. Náði hann tökum á hálsi hans og herti að. Fórnarlambinu barst hjálp rétt áður en önd- in skauzt úr kroppnum. Þess vegna fékk ekki sama sveita- fólkið og stóð fyrir þeim dans leik, jarðarför í ábætir. Á öðrum samkomustað var einn samkomugestanna að greiða inngangseyri sinn við neðsta þrep uppgöngu í dans sal, þegar karlmaður kom svífandi niður stigann og lenti á andliti gestsins með þeim árangri, að blóð stökk þegar um hann allan. Þótti þessum aðkomumanni mót- tökurnar óvingjarnlegar. Það hefir atvikast svo, að undanfarin 20 ár, eða rúm- lega það, hefir oft verið til mín leitað um ýmiskonar að- stoð á skemmtunum í byggð- arlaginu. Mér hefir verið mjög ljúft að veita þá aðstoð eftir mætti. Undantekning er nú hin síðari ár ef hægt er að segja, að vinnufriður hafi verið á opinberum samkom- um. Þori ég ag fullyrða af eig in reynslu, að þar hefir mjög breyzt til hins verra. Snemma vetrar í ár tók ég allmikinn þátt í aðstoð við sarr;komu til að afla fjár til nýja spítalans á Akureyri. Var þar mikið fjölmenni. Þeg ar samkoman var sett, dag- skrá lýst og samkomugestir boðnir velkomnir, æskti sam- komustjóri þess, að menn skemmtu sér án áfengis. „Við skálum fyrir því“^ hrópaði ungur maður frammi í saln- um. Ég átti að lesa þar lítinn frásöguþátt. Kliöur var mik- ill og ég bað mér hljóðs. „Haltu kjafti“, var hrópað í salnum. Það gerði ungur sveitapiltur, sonur ágætra foreldra og alinn upp á prýðis heimili, en var nú í félags- skap, sem honum hentaði ekki. Síðan varð það að sam- komulagi milli mín og óróa- mannanna, að þeir færu fram fyrir dyr á meðan ég læsi, svo að ég yrði þeim ekki til truflunar og leiðinda, og undu báðir aðilar veli þeim samningi. Næsti dagskrárlið- ur var söngur, einsöngur, tví- söngur og kvartett. Kliður var í salnum allan tímann. Næst las starfsbróðir minn upp kvæði af mikilli prýði. Þá skröfuðu ölvaðir menn fullum rómi um allan salinn. Síðin hófst bögglauppboð til ágóða fyrir hinn heitt þráða spítala. Ég bauð upp. Ölvað- ir menn eru ekki sínkir á fé, en einum þeirra þótti ég ekki taka til greina rausnarlegt boð sitt. Þá fylgdi þessi árétt ing: „Nú, það verður að drepa mannhelvítið!" Verkn aðurinn var ekki framinn. Síðar um nóttina var svo einn af samkomugestunum barinn til óbóta er hann átti leið fram hjá óróasegg, þeim hinum sama, er fluttur var í handjárnum, ölóður, af ann- ari samkomu í héraðinu í sumar er leið. Þeir, sem fyrir þessari samkomu stóðu, fengu við ill an leik tvo unga menn til þes$ að hafa með höndum eftirlit. Þeir reyndu eftir mætti að standa í stöðu sinni en fengu ekki að gert. Þess skal getið, að langflestir samkomugesta voru hinir prúðustu og sá fremur fá- menni hópur ölvaðra manna, er samkomuspj öllunum olli var ekki úr sveitinni, þar sem samkoman var haldin. Það verður hver að gera upp við sjálfan sig hvort hann telur þau dæmi er ég hefi nefnt samboðin siðuðu fólki eða ekki. Einnig bið ég lesendur, að bera þessi dæmi saman við þeirra reynslu af samkomu í byggðum lands- ins. Ég held að það sé misskiln ingur, að ég veitist sérstak- lega að kaupstaðabúum í til- lögum mínum og greinar- gerð. Það mun að vísu mála sannast, að á meðan vegir eru færir frá kaupstöðum og sjávarþorpum út um byggðir landsins eiga menn þaðan mesta beina og óbeina sök á samkomuspjöllunum. Ég spurði einn nemanda minn, sem heima á í sjávarþorpi, hvernig ástæður væru í þess- um efnum heima hjá honum, Jivort þar væru um samkomu spjöll að ræða. „Nei,“ sagði hann, „strákarnir, sem ann- ars mundu gera þau, fara all ir á dansleikina í sveitunum". Hitt sé fjarri mér, að gera lítið úr sök sveitamanna sjálfra. Þeir boða samkomur sínar í útvarpi og blöðum. Þeir vilja að sem flestir komi og eru oft fullkomlega kæru- lausir um samkomuna að öðru leyti, ef þeir aðeins fá hinn umbeðna aðgangseyrir. Þeir valda einnig sjálfir sam komuspjöllum, sjaldan þó heima í sínum eigin sveitum. Og rétt mun það vera, að þeir, sem koma með mest á- fengi á samkomurnar koma úr kaupstööum, eða frá opin berum Vinnustöðum. Leyni- vínsalarnir eru líka langflest ir þaðan. Um eina slíka samkomu, sem hér er að framan nefnd, var spurt í haust. „Hvernig var samkoman?" „Ágæt samkoma", var svarið. „Var ekki ölvun?“ „Jú, mikið fyllirí“. Þetta er alvarlegasti hlut- urinn. Allt of mörgum þykir ástandið gott, eða a. m. k. það gott að ekki sé orð á ger andi. Margir sveitamenn vilja ekki skipta á tekjuöflun arsamkomum eins og að fram an er lýst, og skemmtun, sem hefir á sér menningar- snið en gefur minni hagnað. í sveitunum býr margt af fólki. Það lifir miklu menn- ingarlífi og hefir gert, og er að gera hreina byltingu í ræktun og byggingum. Það' æfir söng og sjónleiki með' ærinni fyrirhöfn og oft með1 furðu góðum árangri. En J þegar kemur á samkomustaö, lætur það sér sæma að þola' bótalaust og án sjálfsvarnar j samkomuspjöll nokkurra af- vegaleiddrar, hóflausra ung- linga, og leggst, þá stundum sjálft í svaðið í því ástandi, sem engin skepna jarðarinn- ar önnur en mannskepnan lætur sér sæma. í tillögum mínum er reynt að benda á raunhæfar leiðir til úrbóta. Það er leikur einn, að ráða bót á þessum mann- lýtum ef vilji er fyrir hendi — vilji nógu margra, skipu- j lagðtir og sameinaöur. Þar er hvergi farið fram á það, að allir gerist bindindismenn. Fram á hitt er farið, að allir, sem minnsta snefil ,hafa af ábyrgðartilfinningu, geri sig ekki að skepnum og verra en það, og hinum verði bægt burtu frá þeim stöðum, þar sem þeir valda spjöllum. Aðalfundur Frjálsíþróttaráðs Reykjavíkur Aðalfundur Frjálsíþrótta ráðs Reykjavikur fyrir starfs; árið 1952 var haldinn hinnj 14. desember s. 1. að Café Höll. Formaður ráðsins,! Bargi Friðriksson setti fund-1 inn og tilnefndi fundarstjóra' Þórarinn Magnússon. Þá flutti formaður árs- j skýrslu ráðsins fyrir liðið ^íarfsár. Var skýrslan hin ýt arlegasta og sýndi greinilega, að F. í. R. R. haföi látið mörg | jmál til sín taka á árinu og jfitjað upp á ýmsum nýjung- |Um. Merkasta nýjungin var eflaust stofnun mótanefndar, Jer sæi um framkvæmd allra j frjálsíþróttamóta í Reykja- , vík. Þá var skýrsla móta- nefndar F.Í.R.R. flutt. Af skýrslu hennar var Ijóst, að Kr. S. Sig. sendir mér eftirfar- andi pistil í tilefni af kröfum verka lýðsfélaganna um styttan vinnu- dag: | „— Já, nú er það af, sem áður var. Sá, sem þetta ritar, man þá tíð, að vinnudagur var 11 ntundir,' og engin frí árið um kring. nema þegar vetrarveðrin leyfðu ekki úti- vinnu. Launin voru 20—25 aurar á tímann, og aðeins greitt fyrir unna stund. Ég veit vel, að' allir þurfa að fá há laun, þar sem allar bfsþarf- ir manna eru komnar í svo hátt verð. En það verður að vinna fyrir laununum, sem maður fær. Það er rangt að heimta laun fyrir þá daga, eða vikur, sem ekkert er unn ið. Prá mínum sjónarhóli séð, cr það löghelgaður þjófnaður. Það hlýtur hver hugsandi maður að sjá, að þ.-.ð er ekki sanncjarnt að láta greiða sér laun fyrir þrjár vikur, bara til að slæpast, og það á bezta bjargræðistíma ársins. Það er meira virði aö hafa vinnu, árið um kring, þótt kaupiö sé ekki hærra en þaö nú er, en að það sé hækkað, og vinna sé engin til. En það leiðir auðvitað til þess, ef kaup yrði hækkað, að framleiösl- an dregst saman, og atvinnan minnkar. Og um leið hækkar vísi- talan, og verð á öllum nauðsynja- vörum. En það er önnur leiö fær til að vinna sér kjarabætur. Það er að lengja vinnudaginn um 1—2 klst. Það er heilbrigð og vel fær leið. Það þarf enginn að segja mér, að það sé ofraun heilbrigðum manni að vinna 9—10 stundir á dag. Það þarf heldur enginn að segja mér, að menn afkasti jafn miklu á 8 tímum sem á 10, þótt menn hafi haft sér það til afsökunar, þegar þeir hafa verið að stytta vinnu- daginn. Þvert á móti er það stað- reynd, að afköst manna eru lélegri nú, en þau voru fyrir og um síð- ustu aidamót, þegar vinnudagurinn var 11 tímar. Eg er orðinn nógu gamall til að hafa séð hvort tveggja. Ég er fæddur 1875. En I vinnudagur var fyrst styttur nið- ur í 10 tíma, að mig minnir, 1906, og var 10 tímar í mörg ár eftir það. Það hefir enginn þörf fyrir 16 tíma hvíld á sólarhring, enda nota fáir allan þann tíma til hvíldar. Svo iangur iðjuleysistími er miklu frekar til að aia upp í ungum mönnum slæpingsskap og alls kon- ar óreglu. Aukin framleiðsla er það eina, sem getur bjargað þjóðinni úr því hörmungarástandi, sem hún nú er komin í. En aukin framleiðsla fæst ekki meö hækkuðu kaupi, og stytt- um vinnudegi. Það þýðir ekkert lengur að heimta allt af öðrum. Hver einstaklingur verður að leggja fram alla sína krafta til að bjarga því, sem bjargaö verður. I 1 Eg vil svo að lokum stinga upp á því, að verkalýðsfélögin falli frá kröfum sínuin um hækkuð laun, en í þess stað beittu sér fyrir því, að vinnudagurinn verði lengdur um 1—2 tíma, með sömu launum og nú gilda, þannig, að timakaup það, sem nú gildir fyrir 8 tima vinnu, verði það sama fyrir 9—10 tíma vinnu. Ennfremur að öll önnur stéttasamtök, svo sem fagfélög. fé- j lög starfsmanna ríkis og bæja, bíl- stjórafélög, og yfirleitt allir vinn- andi menn, geri slíkt hið sama. Það verður hver einasti þjóðfé lagsþegn að taka höndum saman við það opinbera, og bjóða fram alla sína krafta til hjálpar. Hjálp- in kemur ekki af sjálfu sér, og ekki heldur með eilífu stríði á milli launþega og vinnveitenda. Heldur með því að sameina alla krafta.“ Vill ekki einhver, sem er á ann- arri skoðun og Kr. S. Sig., láta til sín heyra? Starkaður. (nefndin hafði átt við marg- 'víslega örðugleika að etja á þessu fyrsta starfsári sínu, Jen engu að síður þótti sýnt, j aö fyrirkomulag þetta væri jmikil endurbót. Nokkrar um- Jræður urðu út af mótasjóði F. í. R. R. Áttu félögin þrjú jÁrmann í. R. og K. R. að skipta með sér nettóágóða sjóðsins, eins og. reglugerð sjóösins gerir ráð fyrir. U. M.F.R. var óánægt með þessa ráðstöfun. Var því samþykkt sú tillaga, að U.M.F.R , skyldi taka þátt í skiptingu sjóðs- ins sem svaraöi hlutfallstölu (U.M.F.R. á þátttöku þess á mótum á árinu og í fullu samræmi við þátttöku hinna félaganna. Stjórn F. f. R. R. bar fram tilllögur til samþykktar. Með al þeirra voru: „Að aðalfund ur F. í. R. R. samþykkir að (Framhald á 7. síðu). Jarðarför mannsins míns RAGNARS ÖGMUNÐSSONAR frá Kaldárhöfða, er Iézt af slysförum 23. þ. m„ fer fram þriðjudaginn 30. desember og hefst með hús- kveðju á heimili okkar aff Ljósafossi kl. 10 fyrir liádegi. Jarffsett verffur að Stóru-Borg. Fyrir mína hönd og ar-narra ættingja Svava Jónsdóttir. Ferffir verffa frá Bifröst kl. 8 fyrir hádegi. .................................................... Lokað vegna vaxtareiknings 30. og 31. desember. Sparlsjéðsw* Heykjjavíkiir i nágresasiís >♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Stúdentafélag Keykjavíkur verður haldin í Sjálfstæðishúsinu n.k. þriðjudag og hefst kl. 9 síðdegis. Fjölbreytt skemmtiskrá. Aðgöngumiöar verða seldir í Sjálfstæðishúsinu milli klukkan 5 og 7 á morgun. Þetta er síöasta kvöldvaka fyrir „siðaskipti.“ STJÓRNIN. ♦♦♦♦♦♦♦♦♦i

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.