Tíminn - 19.07.1983, Blaðsíða 4
4
Kennari við
Samvinnuskólann
Kennarastarf í verslunar og viðskiptagreinum við
Samvinnuskólann í Bifröst er laust til umsóknar,
til 1. ágúst n.k.
Umsóknir sendist skólastjóra, sem veitir allar
upplýsingar.
Samvinnuskólinn Bifröst,
311 Borgarnes. Sími 93-5001
Kennarar -
Lausar stöður
Almenn kennarastaða í 1.-6. bekk og staða
smíðakennara við grunnskóla Hafnarhrepps.
Góð vinnuaðstaða. Húsnæði á staðnum.
Upplýsingar veita: Sigþór Magnússon í síma
97-8148 og Guðmundur Ingi Sigbjörnsson í
síma 97-8321.
Styrkur til háskólanáms í Japan
Japönsk stjórnvöld bjóöa fram styrk handa (slendingi til háskólanáms
í Japan námsárið 1984-85 en til greina kemur aö styrktímabiliö veröi
framlengt til 1986. Ætlast ertil að styrkþegi hafi lokiö háskólaprófi eöa
sé kominn nokkuð áleiðis í háskólanámi. Þar sem kennsla við
japanska háskóla fer fram á japönsku er til þess ætlast aö styrkþegi
leggi stund á japanska tungu um a.m.k. sex mánaða skeið.
Umsækjendur skulu ekki vera eldri en 35 ára. - Umsóknir um styrkinn,
ásamt staðfestum afritum prófskírteina, meðmælum og heilbrigð-
isvottorði, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,101
Reykjavík, fyrir 15. ágúst n.k. - Sérstök umsóknareyðublöð fást í
ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
13. júlí 1983.
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚLI 1983
fréttir
■ Hér er saman kominn hópurinn úr Vinnuskóla Reykjavíkur sem gerði sér dagamun í gær í góða veðrinu, en eins og sjá
má er þetta mjög harðsnúið lið.
Eigum til á lager
hinar vel þekktu
HEYÞYRLUR
Tvær vinnslubreiddir.
Lyftutengdar og dragtengdar.
VÉLADEILD SAMBANDSINS
BÚVÉLAR Ármúla 3 Reykjavik S. 38 900
Kennarastöður
Kennarar óskast við grunnskólann á Hellu Rangárvöllum
í eftirtöldum greinum: raungreinum, íslensku og
myndmennt. Húsnæði í raðhúsi eða einbýli til reiðu á
staðnum.
Umsóknir sendist fyrir 27. júlí til formanns skólanefndar:
Óli Már Aronsson, Heiðvangi 11, 850 Hella.
Skólanefnd grunnskólans á Hellu.
■ í byrjun sumars voru innritaðir tæplega 1200 unglingar í vinnuskóla Reykjavíkur. Þessum unglingum
var skipt niður í 36 hópa í borginni þar sem þeir hafa verið að vinna ýmis störf í borginni og nágrenni
hennar. Starfræktar hafa verið 9 aðalbækistöðvar og hafa verið víða fleiri en einn flokkur á sama stað við
vinnu.
Megintilgangur vinnuskólans er fyrst og fremst að kenna unglingunum til verka, en samhliða er reynt
að stuðla að öðrum þáttum sem eru þroskandi fyrir unglingana. Er þá gjarnan um ýmisskonar íþróttamót
og leiki að ræða sem reynt er að koma með á vissum tíma og fléttað er inn í starfstíma skóians.
í góða veðrinu í gær voru nokkrar deildir vinnuskólans saman komnar inni í Heiðmörk og fóru þar fram
ýmsir leikir og skemmtanir sem unglingarnir efna yfirleitt til þegar líður að lokum skólans. Um var að
ræða m.a. fótbolta, brennó, limbokeppni, reiptog o.fl. auk þess sem varðeldur var kveiktur. Við náðum
tali af nokkurm þeirra sem þarna voru og spjölluðum lítillega við þá um vinnuskólann, krakkana og
starfsemina yfirleitt.
■ „Við höfum óskaplega gaman aj því að gróðursetja tré. Þegar hríslurnar verða orðnar svona stórar ætlum við að halda
veislu og bjóða ykkur ef þið viljið“, sögðu þessar blómarósir sem starfa í vinnuskólanum.