Tíminn - 09.08.1983, Qupperneq 4

Tíminn - 09.08.1983, Qupperneq 4
TBB •• Utveggiaklœöning fyrir íslenskar aöstœöur áótrúlega hagstœöu veröi! Hina stílhreinu Plagan Populár útveggja- klæðningu fáið þið hjá okkur. Hentar bæði nýbyggingum og gömlum húsum, t.d. ef auka þarf einangrun þeirra. Veggklæðning í hæsta gæðaflokki. Lítið inn og kynnið ykkur kosti Plagan Populár veggklæðningarinnar. BYGGIIMGAVORUVERSLUN fc/T NJ KOPAVOGS BYKO ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1983 f réttir | TIMBURSALAN SKEMMUVEGI 2 SÍMI:410Q0 T, Skóladagheimili - Forstöðumaður Starf forstöðumanns á skóladagheimilinu að Kirkjuvegi 7, Hafnarfirði er laust til umsóknar. Laun samkv. kjarasamningi við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar. Umsóknarfrestur er til 20. ágúst n.k. og skulu umsóknir sendast undirrituðum. Athygli er vakin á rétti öryrkja til starfa samanber 16. gr. laga Nr. 27/1970. Upplýsingar um starfið veitir dagvistarfulltrúi hjá félagsmálastofnun Hafnarfjarðar, sími 53444. Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði. 1 S/34 Kerfisfræðingur Kerfisfræðing vantar til þess að annast tölvubók- hald með IBM s/34. Upplýsingar gefa Ólafur Sverrisson kaupfélags- stjóri eða Jón Einarsson fulltrúi í síma 93-7200. Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi. Einar á Skörðugili „Viljum að hross hafi sama rétt og annar búfénaður" Skagafjörður: „Ég er alfarið á móti því að mönnum verði bannað að reka hross á afrétt. Hvaða réttlæti er í því ef maður býr aðallega með kýr og á svo kannski eitthvað af hrossum, að hon- um sé kannski algerlega bannað að reka þau á afrétt, en nágranninn - sem byggi kannski með 500 fjár mætti reka hverja kind á afrétt? Jarðirnar hafa átt þessi hlunnindi á afréttinum í alda- raðir. Því ekki að láta bændur hafa ákveðnar beitareiningar, og þeir ráði síðan sjálfir hvaða bústofn þeir hafa og fyrir hvaða skepnur þeir nota sinn beitarrétt? Það er líka offramleiðsla á kindakjöti og því ætti þá frekar að bera á afréttinn af almannafé og lögvernda hann fyrir sauðfé. Við bændur viljum ekki ofbeita afréttinn, en við viljum að hross hafi þar sama rétt og annar búfénaður“. Það er Einar Gíslason í Skörðugili í Skagafirði sem hafði þetta að segja m.a. er við leituðum álits hans á þriðjungs til helmings fækkun hrossa í landinu og banni við því að reka þau á afrétti, vegna umræðu um þessi mál að undanförnu. „Auðvitað eigum við fslendingar fjölda af hrossum sem eru lítils virði og getur því verið að ágætt væri að fækka þeim um tíma a.m.k. Þegar efnahagur minnkar hjá fólki harðnar markaður- inn og verður minna um kaup á hrossum. Kólnandi veðrátta og minni gróður hefur líka viss viðbrögð. Hins vegar eru margar hliðar á þessu máli, misjafnar aðstæður hjá mönnum og erfitt að alhæfa neitt. Nokkrir menn hér í Skagafirði lifa t.d. á hrossum eingöngu, temja þau og selja. Aðrir eru með nær gagnsiaus og arðlaus hross, selja kannski eitt og eitt trippi, en reka líka á afrétt. Þriðji hópurinn er svo alfarið á sláturmarkaðinum, þ.e. folaldaslátrun. Þeir eru að vísu fáir í Skagafirði, en meira í Húnavatns- og Rangárvallasýslum. í þeim sýslum hafa líka flestir mikið af heimalandi og geta nýtt grasið af því með þessu móti. Þegar haglendið er fyrir hendi og ekki þarf að reka sfóðið í almenningshaga er þetta ekki verri framleiðsla en hver önnur. Það eru því margar hliðar á þessu eins og ég sagði og erfitt að setja heildarreglur um hver á að slátra hverju og hverjir ekki“, sagði Einar. - HEI Glimrandi gangur hjá Límtrés- verk- smiðjunni á Flúðum Árnessýsla: „Það hefur gengið mjög vel hér og jafnvel betur en við höfðum reiknað með. Það hefur verið mjög mikið að gera þennan rúma mánuð sem verksmiðjan er búin að starfa og þurft að bæta við mannskap,“ sagði Guðmundur Ósvaldsson, fram- kvæmdastjóri Límtrésverksmiðjunnar á Flúðum. Starfsmenn sagði hann nú orðna 17, allt fólk úr hreppunum í kring, Hrunamannahreppi, Skeiðum og Biskupstungum. Guðmundur sagði þá búna að af- greiða 40 pantanir þennan rúma -mánuð, að segja má allstaðar af iand- inu og í allar gerðir bygginga, t.d. leikskóla, raðhús, saltfiskverkunarhús á Reyðarfirði og nú væri verið að framleiða bita sem notáeigi í vikursíló fyrir Steypustöðina Valiá í Sundahöfn, svo eitthvað sé nefnt. Spurður um framhaldið kvað Guð- mundur verksmiðjuna hafa næg verk- efni út septcmber, einungis vegna pantana scm nú þegar liggja fyrir. Eitthvað sé einnig úti af tiiboðum sem eigi eftir að skila sér. Mjög mikið sé um að menn sendi tilboð, til kannski 5-6 aðila. Þar cr það innflutningurinn sem verksmiðjan er í samkeppni við. Guðmundur taldi að þeir hafi staðist samkeppnina ágætlega, yfirleitt verið heldur undir, eða á svipuðu verði. Um þetta sé þó erfitt að segja þar scm engar tvær pantanir séu eins - eininga- vcrð gcti rokkað um 30-40% eftir því hvað um er að ræða. í verksmiðjunni vinna 3 smiðir, rafvirki og vélvirki og síðan verka- menn. -HEI. Ágæt spretta í N-Þingeyjar- sýslu N-Þingeyjarsýsla: „Ég held að það hafi nú ræst sæmilega úr þessu - það hefur sprottið vel síðan hann fór að hlýna og komið ágætt gras“, sagði Hólmfríður Kristdórsdóttir, húsfreyja á Gunnars- stöðum er við spurðum hvernig ræst hafi úr þar um slóðir. Þegar við töluðum við Óla á Gunnarsstöðum í júní voru menn að bera á túnin miili snjóskaflanna. Heyskap sagði hún þó ekki langt kominn - sumir séu nýlega byrjaðir og ekki farnir að hirða neitt ennþá. Þurk- ar hafi verið litlir, þar sem segja mætti að varla liði dagur án þess að ekki kæmi a.m.k. ein skúr. Að öðru leyti hafi veðrið verið heldur gott á milli. - HEI „Heimilið og f jöl- skyldan“ — aðalmál fundar vestfirskra kvenna Vestfirðir: Garðyrkjumál, orlofsmál, málefni húsmæðraskólans Ósk á ísafirði og námskeiðahald sem kvenfélögin geta nýtt sér þar voru helstu umræðuefni á aðalfundi Sambands vestfirskra kvenna sem haldinn var í Súðavík fyrir nokkru. Aðalmál fundarins hét „Heimilið og fjölskyldan“. Um það fluttu framsöguerindi þar sr. Dalla Þórðardóttir og Áslaug Jensdóttir á Núpi. Það var kvenfélagið Iðja í Súðavík sem sá um fundahaldið að þessu sinni, en félögin innan S.V.K. halda fundina til skiptis. Þorbjörg Bjarnadóttir, sem verið hefur formaður Sambandsins s.l. 6 ár gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Nýr formaður var kosin Jóna Valgerð- ur Kristjánsdóttir í Hnífsdal og aðrar í stjórr. Elísabet Agnarsdóttir á ísafirði og Hildur Einarsdóttir í Bolungarvík. - HEI

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.