Tíminn - 09.08.1983, Síða 8

Tíminn - 09.08.1983, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1983 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Gísli Sigurósson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gislason. Skrifstofustjóri: Ragnar Snorri Magnússon. Afgreiðslustjóri: Siguröur Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elfas Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrímsson. Umsjónarmaiur Helgar-Tímans: Atli Magnússon. Blaöamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Friörik Indriöason, Guðmundur Sv. Hermannsson, Guömundur : Magnússon, Heiöur Helgadóttir, Jón Guöni Kristjánsson, Jón Ólafsson, Kristín Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (iþróttir), Skafti Jónsson, Sonja Jónsdóttir, Þorvaldur Bragason. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guöbjörnssson. Ljósmyndir: Guöjón Einarsson, Guöjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Kristín Þorbjarnardóttir, María Anna Þorsteinsdóttir, Siguröur Jónsson. Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar: Siöumúla 15, Reykjavik. Sfml: 86300. Auglýslngasími 18300. Kvöldsimar: 86387 og 86306. Verð f lausasölu 18.00, en 20.00 um helgar. Áskrift á mánuöi kr. 230.00. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent hf. Tilraunir Alþýðubanda- lagsins til að verða forustuflokkur ■ Af hálfu leiðtoga Alþýðubandalagsins er nú unnið að því að samfylkja þeim fjórum flokkum, sem eru í stjórnarandstöðu, undir forustu Alþýðubandalagsins. Þetta er að vísu ekki gert mjög áberandi. Aðallega er talað um, að þessum flokkum sé nauðsynlegt að vinna saman, þar sem þeir eigi það sameiginlegt að vera andstæðingar stjórnarinnar. Eftir að slík samvinna hefur myndazt, ætlar Alþýðubandalagið sér smám saman að ná forustunni. Leiðtogar Alþýðubandalagsins gera sér góðar vonir um að Bandalag jafnaðarmanna og Kvennalistinn gíni við þessu agni. Síðar verði svo hægt að láta þau renna saman við Alþýðubandalagið, líkt og Málfundafélag jafnaðar- manna á sinni tíð. Vel gæti komið til mála, að Alþýðu- bandalagið breytti um nafn, enda nafnbreyting ekki ótíð á þeim flokki. Spurningin er hvort Alþýðuflokkurinn verður tilkippi- legur til slíkrar samvinnu. Hjá honum er farið að fenna í spor þeirra Héðins Valdimarssonar og Hannibals Valdi- marssonar. Gott væri fyrir Alþýðuflokkinn að rifja upp sögu þeirra. Fyrir Alþýðuflokkinn, Bandalag jafnaðarmanna og Kvennalistann er ekki ófróðlegt að minnast þess, hver urðu úrslit síðustu borgarstjórnarkosninga í Reykjavík. Ósigur fráfarandi borgarstjórnarmeirihluta þá stafaði öðru fremur af því, að kjósendur litu svo á, að forustan væri í höndum Alþýðubandalagsins, þar sem það var langstærst flokkanna, sem mynduðu meirihlutann. Margir kjósendur óttuðust, að áhrif Alþýðubandalagsins yrðu of mikil af þessum ástæðum og yrðu enn meiri, ef sami meirihluti héldist áfram. í raun og veru var það þó ekki á rökum reist, að áhrif Alþýðubandalagsins væru óeðlilega mikil. Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins og Alþýðuflokksins höfðu í fullu tré við borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins og stóðu iðulega saman, þegar Alþýðubandalagið tók að gerast of kröfu- hart. Það tókst hins vegar ekki að gera þetta nógu ljóst, enda ráku hinir öflugu fjölmiðlar Sjálfstæðisflokksins óspart þann áróður, að Alþýðubandalagið drottnaði með harðri hendi í borgarstjórnarmeirihlutanum. Sá ótti, sem þannig skapaðist við Alþýðubandalagið, átti mikinn þátt í að afla fyrrverandi borgarstjórnarmeiri- hluta óvinsælda. Margar konur, sem höfðu hallazt að Alþýðubandalaginu, gerðu sér grein fyrir þessu, og vildu því ekki lengur binda trúss við það. Þetta varð upphaf kvennaframboðsins þótt fleira kæmi þar til sögu. Gleggst kom þetta svo fram í sjálfum borgarstjórnar- kosningunum. Alþýðubandalagið ekki aðeins stórtapaði fylgi, heldur náði það einnig til samstarfsflokka þess í borgarstjórninni. Framsóknarflokknum tókst að vísu að halda velli, miðað við borgarstjórnarkosningarnar 1978, en rétti hvergi nærri við, miðað við fyrri borgarstjórnar- kosningar. Að sjálfsögðu var það ekki eina ástæðan, að margir kjósendur höfðu vantrú á forustu Alþýðubandalagsins, en hún var án efa mjög veigamikil. Af þessu dæmi og raunar mörgum fleiri má hiklaust: draga þá ályktun, að Alþýðubandalagið getur aldrei orðið farsælt og sigurvænlegt sem forustuflokkur íhaldsand- stæðinga. Því valda ástæður, sem liggja í augum uppi og óþarft ætti að vera að rekja hér. Það er rétt, að það á ekki að vera markmið umbótasinn- aðs fólks að kljúfa sig í marga flokka. Það er verkefni, sem bíður síns tíma, að sameina umbótaöflin. En ráðið til þess er ekki að Kvennalistinn, Bandalag jafnaðarmanna eða Alþýðuflokkurinn kalli yfir sig sömu örlög og Málfunda- félag jafnaðarmanna á sinni tíð. Pólitísk örlög Héðins og Hamýbals eiga að vera til viðvörunar. Þ.Þ. &múmi Er rétt að stefna að ákvæðisvinnu lækna á sjúkrahúsum? „Ákvæðisvirman gefur okkur betri útkomu” segir Logi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landakotsspítala ■ „Fjárhagslega séð álít ég að ákvæðis- vinnan gefi okkur betri útkomu, þ.e. að lækniskostnaður mundi vera hærri ef læknarnir væru á föstum launum. Við höfum minni kostnað af læknisþjónustu per. legudag en á hinum spítulunum, hingað til a.m.k. Á hinn bóginn eru læknarnir okkar ágætlega haldnir í launum, þannig að báðir aðilar hagnast á þessu fyrirkomulagi. Hvað þjónustuna varðar tel ég hana einnig í góðu lagi, a.m.k. eru læknarnir okkar ekki í neinum vandræðum með að fá sjúk- linga“, sagði Logi Guðbrandsson, fram- kvæmdastjóri Landakotsspítala, spurð- ur hvort hann telji ákvæðiskerfi í greiðslum til lækna heppilegra en föst laun, eins og yfirleitt tíðkast á spítulum. En breytingar í þá átt hjá ríkisspítulun- um, hafa nýlega komið til umræðu sem kunnugt er. Á Landakoti kvað Logi læknum ávallt hafa verið borgað eftir ákvæðiskerfi allt frá árinu 1902. Logi kvaðst þó ekkert vilja fullyrða um hvort ríkið gæti sparað með slíkri kerfisbreytingu. Ef t.d. læknalaun á Landspítalanum væru reiknuð út frá taxta Landakots taldi hann ekki ólíklegt að læknar þar mundu telja sig mjög vanhaldna í launum, vegna þess að hlutfallslega væru þeir miklu fleiri. Á Landakoti fari laun lækna algerlega eftir því hvaða verk þeir inna af hendi, þ.e. þeir fái ákveðna greiðslu fyrir verk hvenær sem það sé framkvæmt, en engar yfirvinnugreiðslur eða slíkt. Útkall að nóttu til sé t.d. ekki greitt sérstaklega, nema að viðkomandi þurfi að gera einhverja aðgerð sem greiða á fyrir. Með ákvæðiskerfinu kvað Logi heildar- laun læknanna nokkurnveginn ráðast af sjúklingafjöldanum, en ekki fjölda lækna. Ef nýjum lækni væri bætt við yrðu þvf raunverulega þeir sem fyrir eru að deila með honum þeim tekjum sem þeir hefðu ella haft af þeim rúmum sem sjúklingar hans fengju. Hjá læknum á föstum launum tækju þau hins vegar engum breytingum hvort sem mikið eða lítið er að gera á viðkomandi spítala. Logi tók fram að það væru mörg atriði sem kæmu inn í þetta mál önnur en beinn kostnaður. Á Landakoti hafi t.d. hver sjúklingur sinn ákveðna lækni, sem beri ábyrgð á honum allan tímann sem hann er á spítalanum, allan sólarhringinn. -HEI. ■ Stefán Stefánsson talar fyrir minni íslands á íslendingadaginn í Gimli. Vestur-íslendingar halda upp á íslendingadaginn íGimli: „ÍSLAND ÞARF EKKI AÐ ÓTTAST AÐ VIÐ MUNUM BREGÐAST” ■ Vestur íslendingar héldu upp á Islendingadaginn í Gimli, Manitoba, helgina 31. júlí til 1. ágúst. Hátíðarhöld- in fóru fram á hefðbundinn hátt með söng, dans og leiksýningum og 1. ágúst var hátíðardagskrá þar sem Stefan Stefans- son fyrrverandi formaður þjóðræknis- félagsins flutti aðalræðuna og mælti fyrir minni íslands. Hreinn Líndal mælti fyrir minni Kanada og Sveinbjörg Björnsson flutti ávarp fjallkonunnar. i Stefán Stefánsson er fyrrverandi yfir- maður lögreglunnar í Manitobafylki. Hann hefur unnið lengi fyrir íslendinga- félögin í Kanada, var m.a. í blaðstjórn Lögberg-Heimskringla og einn af stofn- endum Viking Travel sem hefur skipu- lagt ferðir til íslands síðan 1976. f ræðu sinni minntist Stefán meðal annars á hvað íslendingum hefði tekist vel að varðveita sjálfstæði sitt gegnum aldirnar og þrátt fyrir að íslendingar væru fámenn þjóð hefði hún komið sér upp fullkomnu heilbrigðiskerfi, skóla- kerfi frá grunnskóla til háskóla og sam- göngukerfi svo nokkuð væri nefnt. Stefán minntist einnig á þann árangur sem konur hefðu náð í jafnréttisbaráttu sinni á íslandi. Parværi eini kvenforseti heims sem hefur verið kjörinn í frjálsum kosn- ingum, og kvennalisti hefði náð að koma þrem þingmönnum að í síðustu alþing- iskosningum. í lok ræðu sinnar sagði Stefán að Vestur-íslendingar ættu að vera sér þess meðvitaðir að þeir væru afkomendur þessarar fjarlægu þjóðar og það sem Vestur-fslendingar hefðu afrekað væri tilkomið vegna þeirrar djörfungar og styrks sem þeir hefðu fengið í arf frá forfeðrum sínum. Pað yki styrk þeirra til að halda við arfleifð sinni, tungu og menningu. „ísland þarf ekki að óttast að afkomendur þess hér á þessu landi muni nokkru sinni bregðast því,“ sagði Stefán að lokum. -GSH.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.