Tíminn - 09.08.1983, Side 9

Tíminn - 09.08.1983, Side 9
ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1983 13 á vettvangi dagsins Tekjuskatts formið úrelt ■ Hitabylgju júlímánaðar verður enn ekki vart hvað veðráttuna snertir, en hinn árlegi glaðningur skattarnir komu inn um bréfalúguna nú á dögunum. Síðan hefur mörgum hitnað í hamsi. Við íslendingar rekum dýrt samfélag sem þarf á miklum tekjum að halda, enda grípur köld loppa ríkisvaldsins víða gjald af vöru og þjónustu. Tekjuskattur og tekjuútsvar eru ekki nýtt fyrirbæri. Hér áður fyrr sátu hrepps- nefndarmenn og áætluðu þessi gjöld eftir efnum og ástæðum, þeirri tilfinn- ingu hversu einstaklingarnir væru efnum búnir. í dag gera allir menn í landinu flókin skattaframtöl á tekjum sínum og eign- um, sem send eru á skattstofur, að vísu ekki verulega fókin hjá launafólki, en þeim mun flóknari hjá þeim sem eitthvað reka sjálfstætt. Að fela tekjur sínar og eignast þær sjálfur reynist mörgum auðvelt, án þess að hafa rangt við. Hinum fjölgar þó með ári hverju sem semja við náungann um að gefa ekki tekjurnar upp, afhenda ekki nótu o.s.frv. Ennfremur færist í vöxt að menn ráði sig með skilyrðum um að tekjur séu ekki gefnar upp o.s.frv., svo og svo mikið sé greitt undir borðið. Að kunna að stela undan skatti á íslandi er dyggð og merki sjálfsbjargarviðleitni. Því er málum nú svo háttað að tekju- skattsformið hefur gengið sér til húðar, er fyrst og fremst skattur sem leggst á launþegana. Launafólkið hefur fyrst og' fremst aflað sér miðlungs og hárra tekna með vinnusemi, oft við að bjarga verð- mætum. Það á í raun engra annarra kosta völ en að vinna langan dag. Vegna mikillar vinnu renna oft dagvinnulaunin beint í skattana. Þetta fólk yrði gjald- þrota ef vinnan minnkaði eða vinnuþrek- ið dvínaði. Eftir að skattseðlarnir koma út er oft þetta launafólk, þrátt fyrir háar tekjur, sest á bekk með allra lægst launaða fólkinu í landinu. Eftir að skattseðlarnir koma út er oft þetta launafólk, þrátt fyrir háar tekjur, sest á bekk með allra lægst launaða fólkinu í landinu. Þeir munu margir gleðjast þessa dag- ana einstaklingarnir, sem jafnvel eiga dýr atvinnutæki, vinna mikið og sýnast burðugir þegnar samfélagsins vegna þess að þeir búa ríkmannlega og lifa hátt. Þessum mönnum tókst vel til með skatt- framtalið, þeir munu skjótast á sólar- strönd með fjölskylduna, skála þar í. freyðandi bjór eða endurnýja bílinn sinn. Þeir sluppu um möskva skattyfir- valdanna, en í þeim situr launalýðurinn sem dauður fiskur. Það sama fólk, sem verst er leikið þegar, kaupið er skert, það á enga leið fram hjá netum ríkis- valdsins. Skattalögin eru þessu fólki ranglátari en fyrr. Hjón fá ekki lengur að skipta tekjum sín á milli fyrir álagningu. Lög- gjafinn hefur nefnilega gert að sínum ráðgjöfum rauðsokka og öfgahópa, sem telja hjónabandið slæma stofnun og að þau hjón séu brengluð, sem telji rétt að annar aðilinn sé heima að hugsa um bú og börn. Okkar dýra samfélag þarf mikla pen- inga en þá verður að sækja á réttlátan hátt í vasa einstaklinganná, eigi lýðræðið að lifa. Þar verða menn að sitja við hið sama borð. „Með lögum skal land byggja, en ólögum eyða" eru enn orð dagsins. Tekjuskattur af launafólki er ekki réttlátur, þegar hinir stóru sleppa svo margir sem raun ber vitni um. Slíkt ástand skapar aðeins úlfúð og öfund og ýtir undir svartan markað. Fleiri og fleiri sækja laun sín og aukatekjur undir borðið. Skal þó tekið fram að sem betur fer eru ekki allir menn, sem þess eiga köst, undir þá sök seldir að stela undan skatti. Þökk sé þeim. Hin nýja ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar hét því í stefnuyfirlýsingu sinni að tekjuskattur yrði lækkaður með auknum persónuafslætti. Ég fæ nú ekki séð að hækkun persónuafsláttar nú sé nema verðbólguhækkun á milli ára. Þess ber einnig að minnast að Sjálf- stæðisflokkurinn, sem náði því marki enn einu sinni í síðustu kosningum að vera langstærsti flokkur landsins, gaf út fyrir kosningarnar bláa bók, sem bar nafnið „Með bjartsýni og atorku - Frá upplausn til ábyrgðar." Sjálfstæðisflokkurinn lofar kjós- endum ýmsu, komist hann til valda, s.s. afnámi tekjuskatts á almennar launa- tekjur, ennfremur skiptingu tekna á millihjóna. Hvareru efndir loforðanna? Við þær aðstæður, sem nú blasa við og hér hefur verið lýst, verður að fara nýjar leiðir, Tekjuskattur einstaklinga er nú ca. 15% af tekjum ríkissjóðs, meðan t.d. tekjur af seldri vöru og þjónustu er 50%. Tekjuskatt ber að fella niður og ná þeim tekjum af neyslunni, ekki síst með því að skattleggja óþarfa og lúxusvörur. Hvað þá, kunna menn að spyrja, með alla hálaunamennina, ráðherrana, al- þingismennina, læknana, bankastjór- ana og forstjórana? Staðreyndin er sú að margir rneð laun á borð við þeirra, bera ■ Guðni Ágústsson lág og engin gjöld. Það væri þó trúlega hægt að lækka laun þessara aðila á eftir og spara þannig útgjöld. Skattstofurnar, sem nú taka við öllu pappírsflóðinu, hinum fölnuðu stað- reyndum um efnahag manna, gætu fækk- að fólki, skattalögreglan hætt að rýna á tölur, sem hún ekki skilur. Tekjuútsvars- álagning ætti að vera verkefni sveitar- stjórna. Þannig væri ábyrgðin um réttlæti komin á herðar lýðkjörinna fulltrúa heima í sveitarfélögunum, sem ekki gætu lengur horft vatnsbláum augum á mennina, sem ekki bera vinnkonuút- svar, en stunda líferni auðjöfra. Ég hvet að lokum hina ungu ríkis- stjórn, sem á sér stórt ætlunarverk, að íhuga þessi mál. Megi réttlætið og jöfn- uðurinn verða sett í öndvegið, þá verður hitabylgja næsta júlímánaðar ekki af mannavöldum. Guðni Ágústsson Selfossi Hugmynda- fræði Fram- sóknarflokksins — eftir Guðmund Jónsson frá Kópsvátni ■ I grein í Tímanum 21. júní sl. ræðir Ingvar Gíslason alþingismaður um styrk og stöðu Framsóknarflokksins síðustu 20 árin. Bendir hann á, að í kosningun- um 1963 hlaut flokkurinn 28,2% at- kvæða og 19 þingmenn kjörna, en í síðustu kosningum hlaut flokkurinn að- eins 19,0% atkvæða og 14 þingmenn kjörna. í báðum tilfellum hlaut flokkur- inn tvo þingmenn umfram atkvæðamagn miðað við fullan jöfnuð milli flokka á landinu öllu. Ingvar Gíslason bendir á, að flokkur- inn hefur átt aðild að ríkisstjórn, en Ingvar hefur hins vegar engar skýringar tiltækar á fylgistapi flokksins, en hafnar þó þeirri tilgátu, að það sé bundið við ákveðnar persónur í flokknum. Engin ein skýring mun duga til að skýra fylgistap flokksins. Réft er þó að benda á, að síðustu 12 árin hefur mikil og vaxandi verðbólga verið óleysanlegt viðfangsefni stjórnvalda, og vafalaust hefur Framsóknarflokkurinn tapað nokkru fylgi vegna þessa. Framsóknarflokkurinn hélt flokks- þing í mars 1959. Þar flutti Kristján Friðriksson, iðnrekandi, erindi um stjórnmálastefnu flokksins, og einnig gaf hann út bækling um sama efni. Þar segir m.a.: „Einu sinni átti flokkurinn helming þingmanna á Alþingi, en mjög er viðbú- ið, að eftir tvennar kosningar sem líkur eru til að í hönd fari, muni hann ef til vill ekki eiga nema um það bil einn fjórða af fulltrúunum á Alþingi. Um orsakirnar fyrir þessu má margt segja, en skal ekki rakið hér, en aðeins horfst í augu við þá staðreynd, að útlit er fyrir að áhrif flokksins í þjóðlífinu fari minnkandi þrátt fyrir sín góðu málefni og sína góðu fulltrúa - nema því aðeins að veruleg breyting verði í þá átt að fylgi flokksins aukist. Erindi mitt við ykkur að þessu sinni er að greina ykkur frá, að ég tel mig sjá orsakirnar fyrir þessu að nokkru leyti, og tel mig einnig hafa tillögu til úrbóta, sem ég reyni hér að koma á framfæri og bið góða menn að íhuga af velvild og án fyrirfram ákveðinna hleypidóma. Það sem ég einkum tel að hafi staðið flokknum fyrir þrifum í stjórnmálabar- áttunni er vöntun á þjóðmálalegri hug- myndafræði (Ideologiu), sem geti verið leiðarstjarna fyrir flokkinn, þegar taka þarf afstöðu hinna einstöku mála, sem fyrir koma í þjóðlífinu." Kristján gerði síðan nánari grein fyrir þessari skoðun sinni og nefndi síðan nokkur dæmi um, hver stefna flokksins ætti að vera að hans dómi í einstökum málum. Hér verður ekki farið nánar út í það en þó má nefna eitt dæmi. „í kaupgjaldsmálum eigum við að taka upp nýja og ákveðna stefnu. Ábyrga stefnu í samræmi við alla okkar ábyrgu pólitík. Allur hinn menntaði heimur hefur horfið frá því að láta hnefaréttinn gilda í samskiptum og sam- búðarháttum manna. Við eigum að stefna að því að deilur í launamálum verði fyrst og fremst útkljáðar með samkomulagi, en síðar með dómsúr- skurðum, þegar samkomulagið þrýtur, alveg eins og í öðrum deilumálum sið- menntaðra manna." En málflutningur Kristjáns Friðriks- sonar hlaut engar undirtektir á flokks- þinginu, hvorki hjá foringjum flokksins eða öðrum þingfulltrúum. Samt sýnir reynslan nú, að Kristján reyndist sannspár. Fylgi flokksins fer minnkandi eins og Ingvar Gíslason hefur réttilega bent á, og örsökin cr án efa að nokkru leyti sú, sem Kristján benti á fyrir 24 árum, þ.e. að stefna flokksins hefur ekki verið endurskoðuð og byggð upp á traustum grundvelli. Stjórnmálaflokkur er samtök manna, sem vinna að framgangi ákveðinna stefnumála, og þá hlýtur það að vera grundvallaratriði, að félagarnir viti, hver stefnumál eru og séu sammála um þau í meginatriðum. Það er þó rétt að benda á, að Fram- sóknarflokkurinn er ekki eini flokkur- inn, sem býr við staðnað hugmyndakerfi, heldur má segja það sama um alla gömlu flokkana. Þetta skýrir líka að nokkru það fylgi, sem nýju framboðin hlutu í síðustu kosningum. Forsvarsmenn þeirra settu' fram ýmis athyglisverð mál- efni, sem vöktu umhugsun og umræður meðal kjósendanna. Framsóknarflokkurinn hefur líka stundum vanrækt að bera fram ákveðna stefnu, þegarsérstök tilefni gefast. Fyrir síðustu kosningar varaði flokkurinn ein- dregið við því að láta kjósa tvisvar til Alþingis á þessu ári, og það var að vísu sterkur leikur, en flokkurinn hefði líka átt að hafa sjálfstæða stefnu í kjördæma- málinu og bera fram tillögu um að leysa það mál á einfaldan og raunhæfan hátt en láta vera að styðja þann skelfilega óskapnað, sem hinir gömlu flokkarnir vildu knýja fram. Sams konar mistök voru gerð 1959, þegar núverandi kjördæmaskipan var tekin upp. Þá studdi flokkurinn óbreytta kjördæmaskipan, en gerði engar tillögur um endurbætur, sem voru óumdeilan- lega nauðsynlegar, til þess að kjördæm- unum fækkaði ekki verulega. Kópsvatni, 29. júní 1983 Guðmundur Jónsson Runciman, er trúlega öllum öðrum fróð- ari um sögu Miklagarðsríkis og landanna við austanvert Miðjarðarhaf á miðöld- um. Hann var háskólakennari í Cambþ- dge á árunum fyrir síðari heimsstyrjöld, en varð sendifulltrúi við breska sendiráðið í Sofíu og síðan í Karíó í stríðinu. Síðan var hann um skeið prófessor í sögu og listfræði Miklagarðsríkis við háskólann í Istanbúl. Eftir það var hann búsettur í Grikklandi um tveggja ára skeið cn gegndi síðan prófessorsembættum við ýmsa háskóla í Evrópu og Ameríku. Hann hefur skrifað mörg rit um sögu Miðjarðarhafs- og Botnalanda á miðöld- um og er þriggja binda saga krossferð- anna þeirra þekktast. Umfjöllun Sir Stevens um lista- og menningararf Miklagarðsmanna í þess- ari bók er einkar læsileg og skemmtileg. Um liststfl og mermingararf Miklagardsríkis Steven Runciman: Byzantine Style and Civilization. Penguin Books 1981 (2. útg.) 238 bls. ■ Þeir, sem komið hafa til Istanbúl, þar sem áður hét Konstantínópel, en Mikligarður á voru máli, og gengið þar á söfn og í moskur mun seint gleyma mörgum þeim stórkostlegu listaverkum, sem borgin hefur að geyma. Flest hinna glæsilegustu listaverka eru frá stórveld- istíma Miklagarðsríkis á miðöldum, en vekja enn athygli fyrir sérstæðan stíl og oft ótrúlcga fagra litasamsetningu. Þessi litla bók er eitt bindi í ritröð um evrópskan liststíl og menningu í aldanna rás. í henni er fjallað um listir og menningu í Miklagarðsríki hinu forna, fjallað um hvert listtímabil fyrir sig og sýnd þróun lista, einkum myndlistar. Bókin er prýdd fjölmörgum myndum og geta þeir, semekki nenna að lesa textann fengið dágóða mynd af þróuninni með því einu að skoða myndirnar. Höfundur bókarinnar, Sir Steven Texti hans er skýr og Ijós og settur fram á svo einfaldan hátt, að leikmenn fa vel notið. Sama máli gegnir um myndirnar, sem bókina prýða. Þær eru vel valdar, falla vel að textanum þannig að hvort bætir annað upp og gerir lesturinn ánægjulegri og fróðlegri. í bókarlok er myndaskrá, ábendingar um frekari lest- ur fyrir þá sem vilja kynna sér efnið nánar og loks nafnaskrá. Jón Þ. Þór. r

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.