Tíminn - 09.08.1983, Page 16
Opiö virka daga
9-19.
Laugardaga 10-16
H
HEDD
Skemmuwegi 20 Kopavogi
Simar (91)7-75-51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikið úrval
Sendum um land allt
Ábyrgð á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
SAMVINNU
TRYGGINGAR
&ANDVAKA
ARMULA3 SIMI 81411
abriel
HÖGGDEYFAR
- - .• Hamarshöfða 1
QJvarahlutir simí365io.
Ctromu Ritstjorn 86300 - Auglysingar 18300 - Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvoldsimar 86387 og 86306
ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1983
Mikill sigur íslenskra tónskálda: w
HLUIUR ÞÐRRA LANGSTÆRSTUR A
NÆSTU NORRÆNU TÖNUSTARHATÍD
■ „Mér er óhætt að segja að
hér er um að rxða frábæran
árangur íslensku tónskáldanna
og þá er ekki of sterkt að orði
kveðið,“ sagði Guðmundur
Emilsson hljómsveitarstjóri,
þegar Tíminn náði tali af honum
í gærkvöldi. Blaðamaður hafði
frétt að hann hefði setið fund
yfirdómnefndar fyrir næstu
Nurrænu tónlistarhátíöina sem
haldin verður í Kaupmannahöfn
að ári.
Ég mun að sjálfsögðu gefa út
fréttatilkynningu um þetta á
morgun sagði Guðmundur, en
féllst á að greina frá niðurstöðum
dómnefndarinnar sem hann
sagði skipaða einum fulltrúa frá
hverju Norðurlandanna völdum
af tónskáldafélögum hvers
lands.
„Yfirdómnefndin hittist nú í
annað sinn um helgina 5.-8.
ágúst, en áður hafði hún komið
saman í maí s.l. sagði Guðmund-
ur. „Nefndin valdi úrgcysilegum
fjölda verka eins og venjulega til
flutnings á næstu Norrænu tón-
listarhátíðinni. Tvö íslensk
kammerverk voru valin, „You
will hear thunder," eftir Hafliða
Hallgrímsson, og „Gloria" eftir
Hjálmar H. Ragnarsson. En það
sem vekur kannske mesta athygli
er árangur íslensku tónskáld-
anna á sviði stærri hljómsveitar-
verka. Það voru valin fjögur
íslensk hljómsveitarverk,
„Sónans,“ eftir Karólínu Eiríks-
dóttur, „Tvísöngur," fyrir lág-
fiðlu, fiðlu og strengjasveit, eftir
Jón Nordal, k larinettukonsert
eftir Pál P. Pálsson og óbókon-
sert eftir Leif Þórarinsson. En
þar með er ekki allt upp talið;
aðaltema næstu hátíðar verður
Musíkdrama og langstærsta
dramatíska verkið sem verður
flutt á hátíðinni verður íslenskt,
Silkitromman cftir Atla Heimi
Sveinsson.
Þetta þýðir það að hvað varðar
stærri hljómsveitarverk og mús-
íkdramatísk verk eru íslensku
tónskáldin langfremst. Þeim fell-
ur í skaut miklu meiri tími á
hátiðfnni en tónskáldum hinna
Norðurlandanna.
Ég held að þetta taki af
allan vafa um það hver staða
íslenskra tónskálda er núna inn-
an þessara vébanda. Þau njóta
þar mikillar virðingar og þeim er
sýnt geysilegt traust með þessum
niðurstöðum," sagði Guðmund-
ur Emilsson.
Nordisk musikfest er stærsta
tónlistarhátíð Norðurlanda. Á
næsta ári mun hún standa í 10
GRIINUR LEIKUR
AIKVBKIUI I
INGÓLFSSTRÆII
■ Eldur kom upp í húsinu
Ingfólfsstræti 4 rétt fyrir kl. 19.00
á laugardag. Slökkviliðið kom
strax á staðinn og gekk greiðlega
að slökkva eldinn en skemmdir
urðu all miklar á húsinu. Elds-
upptök eru ekki kunn en grunur
leikur á íkveikju. Fyrir viku
kviknaði í þessu sama húsi og þá
var einnig talið að um íkveikju
væri að ræða.
Eldurinn kom upp í mann-
lausri kjallaraíbúð og þegar
slökkviliðið kom á staðinn var
allmikill eldur í kjallaranum og
á miðhæð hússins. Slökkviliðinu
Norrænt umferdarslysa-
þing í Reykjavík:
Heildarkostnaður
vegna umferðar-
slysa 440 millj.
■ Heildarkostnaðurvegna um-
ferðarslysa á árinu 1982 er 440,7
milljónir króna, segir í skýrslu
Davíðs Á. Gunnarssonar, for-
stjóra ríkisspítalanna, en niður-
stöður hennar voru kynntar
blaðamönnum í gærdag á fundi í
tilefni af norrænu umferðarslysa-
þingi sem nú er haldið hér á
íslandi. Þar af eru 43,8 milljónir
tekjutap látinna, munátjón 126,4
milljónir og 270,5 milljónir
kostnaður við sjúkrahúss- og
stofnanavist og tekjutap slas-
aðra.
-Jól.
tókst að ráða niðurlögum eldsins
á 35^)5 mínútum. Þá leyndist
enn glóð undir klæðningu og
þurfti að rjúfa hana til að komast
að glóðinni. Slökkviliðið varsíð-
an á vakt við húsið til kl. 3.00 um
nóttina.
Að sögn slökkviliðsins urðu
miklar skemmdir í kjallara og
já fyrstu hæð hússins en önnur
hæðin slapp að mestu. Þó þurfti
að rífa þar meðfram miðstöðvar-
rörum til að komast að glóðum.
Slökkvistarfið gekk vonum fram-
ar því húsið er forskalað timbur-
hús og var margklætt að innan
imeð panel og spónaplötum.
jEinnig þurfti að rífa klæðn-
inguna után af húsinu til að
: komast að eldi í hálmeinangrun.
Eldsupptökin eru í rannsókn
hjá RLR en engar niðurstöður
lágu fyrir af þeirri rannsókn i
gær -GSH.
■ Slökkviliðið að störfum við
Ingólfsstræti 4 á laugardag.
Tímamynd: GE
dropar
Almenna námu-
félagið stofnað
■ Stofnað hefur verið í
Reykjavík Almenna námu-
félagið h.f. sem hlotið hefur
hið virðulega nafn „General
Mining Company“ á útlensku.
Er tilgangur þess eins og nafnið
gefur til kynna hvers konar
efnisvinnsla, sala og dreifíng á
efni, útflutningur á efni og allt
sem viðkemur framangreind-
um rekstri.
Stofnendur fyrirtækisins eru
Hafskip, Islensk endurtrygg-
ing, forsvarsmenn þessara
fyrirtækja, auk ýmissa ann-
arra. Hlutafé er ákveðið ein
miiljón króna og er hlutafjár-
söfnun lokið, að því er segir i
Lögbirtingarbiaðinu. í stjórn
sitja Gísli Lárusson, formaður,
Ingimar Haukur Ingimarsson
og Björgólfur Guðmundsson.
Forsvarsmenn Almenna námu-
félagsins virðast liins vegar líta
svo á að um citthvert lcynifélag
sé að ræða, því þeir hafa varist
allra frétta af fyrirætlunum
sínum, nema um sé að kenna
ótta við væntanlegt stéttarfélag
námaverkamanna.
Jónas í
stað Jóhanns?
■ Jóhann Guðmundsson,
forstöðumaður Framleiðslu-
cftirlits sjávarafurða, hefur
fengið ársleyfí frá störfum til
að gcta kynnt sér gæðamál hjá
nágrönnum okkar á liinum
Norðurlöndunum. Er ákvörð-
un um þetta tekin eftir harðar
og ákvcðnar umræður um
fyrirkomulag gæðamála á
undanförnum vikum, og
reyndar mánuðum.
í viötali Helga Péturssonar
á útvarpinu við Halldór Ás-
grímsson, sjávarútvcgsráð-
herra, í útvarpsfréttum í gær-
kveldi lét spyrjandi að því
liggja að Jóhanni hefði verið
gefínn kostur á að segja upp
eða fara í frí. Einkennileg var
spurnig fréttamannsins, en enn
einkennilegra var svar ráðherr-
ans. Niðurstaðan af hvoru
tveggja varð sú að hlustendur
urðu að geta i eyðurnar enda
fékkst enginn botn i málið.
Hvað sem öðru líöur, þá er
hitt ijóst að cinhvcr verður að
setjast í stólinn hans Jóhanns
þar til ný lög um fískmat og
fyrirkomulag þess verða sam-
þykkt á Alþingi í vetur, og hafa
Dropar heyrt því fleygt að
daga allt upp í þrenna tónleika á
dag. Þar munu koma fram 6
stórar hljómsveitir undir stjórn
frægra stjórnenda og má þar
nefna Leif Segerstam, Esa Pekka
Salonen frá Finnlandi og
Thomas Vetö frá Danmörku.
„Þetta verða sem sagt allt mjög
þekktar hljómsveitir og hljóm-
sveitarstjórar, þannig að þarna
fá íslensk tónskáld virkilega
góða kynningu'sagði Guðmund-
ur Emilsson að lokum.
- JGK
STROKU-
ARNIR
KOMU
í LEIT-
IRNAR
■ Tveir gæslufangar af Litla
Hrauni, sem struku þaðan fyrir
helgina, náðust í Reykjavík í
gær, eftir að hafa falið sig þar í
rúma tvo sólarhringa.
Fangarnir struku á föstu-
dagskvöldið og var sirax hafín
leit að þeim. Menn frá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins höfðu
síðan upp á mönnunum í gær-
dag cn þeir höfðu þá falið sig í
sitt hvoru húsinu. Að sögn
Rannsóknarlögreglunnar hafði
hún vissar grunsemdir um hvar
mcnnina væri að finna og
rcyndust þær vera réttar.
- GSH
Jónas Bjarnason, verkfræðing-
ur, fái það hiutverk.
Krummi ...
...sér að þá vantar ekki húmör-
inn á Þórshöfn.