Tíminn - 08.05.1983, Síða 2

Tíminn - 08.05.1983, Síða 2
SUNNUDAGUR 8. MAI 1983. ■ Ef þu kemur á mannamót og hlustar eftir því sem fólk segir, þá er næsta öruggt aö þú þarft ekki að bíöa lengi, áður en þú heyrir að fólk er farið að ræða megrunarkúrinn Scarsdale. Það er eins og annar hver íslendingur sé í megrun og allir eru á Scarsdale, eða svo til allir. Um- sjónarmanni Eldhúskróksins fannst vel við hæfi að fá manninn sem í raun ber ábyrgð á því að þessi heimsfrægi kúr og leiöbein- ingar með honum hefur verið gefinn út í bókarformi hér á landi, til liðs við sig og kynna eins og eina mataruppskrift af Scarsdale kúrnum í Eldliús- króknum. Maðurinn er enginn annar en Guðlaugur Bergmann, (Gulli í Karnabæ) og þegar ég fór þess á ieit við hann að hann gerði mér þennan greiða tók hann mér Ijúfmannlega og kvað þetta guðveikomið. Eg fór því í Scarsdaleheimsókn til Gulla og konu hans Guðrúnar Guðjóns- dóttur (Gunnu) og sona þeirra tveggja, Guðjóns og Guðlaugs yngri. Gulli var svo faglegur við niðurskurðinn í hrásalatið, að það var alveg augljóst að hann var ekki að gera þetta í fyrsta sinn. Tímamyndir Árni Sæberg í Scarsdaleveislu hjá Gulla Bergmann og Gnnnu Úthafsrækjur ogkjúklingar BakeSamm á boðstólunum - Aður en við snúum okkur að veisluuppskriftinni, fæ ég Gulla til þess að segja mér frá því hvernig hann kynntist Scarsdalekúrnum upphaflega: „Ég fer mánaðarlega til Englands í sambandi við viðskipti, og einn inaður sem ég á viðskipti við þar og hitti reglulega þarer Mr. Solomon, Gyðingur að sjálfsögðu. Solomon var alltaf mjög feitur, en svo gerist það þegar ég kem á eina sýninguna, að hann er orðinn tággrannur. Ég spurði hann hvað hefði komið fyrir hann og hann segir mér að hann hafi farið á Scarsdale og segir mér síðan frá þessum kúr. Hann sagðist hafa farið að hitta gamla skölafélaga, sein hefðu útskrifast nteð honum,-og þar á meðal hefðu verið gamlar vinkonur hans. Ein þeirra hefði sagt við hann að hann hcfði alltaf vcrið flott og smart gæi, en nú væri hann orðinn feitur, ljötur gamall karl. Þetta sagði hann að hefði verið scr talsvert áfall og hann hefði því farið að lcita sér að hentugum kúr, og fundið þetta ameríska kerfi, Scarsdale. Hann sagði mér svo hvar ég gæti fcngið bókina, ég fór og keypti hana og byrjaöi á Scarsdalc. Þetta var í endaðan febrúar 1981 og um mánaðamót júní júlí, var ég búinn að léttast um 23 kíló. Matvælasérfræðingar geta fyrir mér rætt um að það vanti hitt og þetta inn í kúrinn og deilt á hann, eins og þeir hafa gert í blöðum hér upp á síðkastið. En það hreytir því ekki að mataræðið á þessum Scarsdalc kúrum er ákveðið af lækni sem er hjarta- og magasérfræð- ingur. Hann hefur, með því að prófa sig áfram í mörg ár, sett saman þessa matseðla, og þeir gefa árangur - það er staðreynd. Auðvitað ættu þeir sem eiga við meiriháttar þungavandamál að stríða, að fara í kúrinn í samráði við lækni, enda ráðleggur hann það." - En snúum okkur nú aö matnum sem þau Gunna og Gulli buðu upp á, en Gunna á heiðurinn af eldamennskunni, (Gulli aðstoðaði við hrásalatið). Forrétt- urinn er ljúffengar úthafsrækjur með sítrónubát og hálfri trefjabrauðsneið, ristaðri. Aðalrétturinn er úr Sælkerakúr Scars- dale, og er það kjúklingaréttur, sem nefnist Bake Samm. Kjúklingur Bake Samm, réttur fyrir fjóra Kjúklingur, skorinn í átta hluta, öll húð fjarlægð og fita skröpuð af 4 matskeiðar kjúklingakraftur 1/4 teskeið svartur pipar 2 brúskar steinselja, niðurskorin 1/4 tcskeið oregano 3/4 matskeið hvítlaukssalt 1 meðalstór laukur, mjög þunnar snciðar ca. 500 grömm ferskir sveppir, niður- snciddir, 4 matskeiðar vatn. 2 matskeiðar smátt saxaðar möndlur Setjið kjúklingahlutana á grunna bökunarpönnu, penslið með kraftinum og brúnið hratt allar hliðar. Snúið oft og haldið kjötinu röku með kjúklingakraft- inum. Takið út úr ofninum og kryddið með pipar, steinselju.oregano og hvít- laukssalti. Hitið ofninn í 180 gráður (slökkvið á grillinu) Bætið við lauk, sveppum og vatni. Setjið lok yfir og bakið þar til kjúklingurinn er meyr og laukurinn gegnumsoðinn, en það tekur 45 til 60 mínútur. Haldið röku meðan eldað er mcð því að hella yfir sjóðandi vatni eða kjötseyðinu, ef með þarf. Dreifið söxuðu möndlunum yfir, rétt áður en borið er ftam. Með þessu báru Gulli og Gunna frani hrásalat úr fersku grænmeti eins og tómötum, gúrkum, séllerí o.fl. Hitaeiningasnautt „dressing1- var einnig á boðstólunum fyrir þá sem vildu. Skemmst er frá því að segja að þegar ég snæddi þennan sannkaliaða veislumat, þá var mjög svo erfitt að gera sér í hugarlund, að ég væri að snæða fæði sem ráðlagt er í megrunarkúr, cnda er það höfuðgaldurinn við Scarsdale, eftir því sem Gulli sagði: „Málið er það, að þetta mataræði á ekkert sérstaklega við feita menn. Þetta á við alia menn, öll börn - alla fjölskylduna. Galdurinn er að í Scarsdale felst grundvallarbreyting á hugsunarhætti til mataræðis, og skýring- in á vinsældum þessa kúrs et einfaldlega sú, að hartn virkar." Með öðrum orðum, þið sem þurfið að ná af ykkur nokkrum pundum, þiö ættuð að kynna ykkur Scarsdale - það gerði ég! Verði ykkur að góðu. ■ Er hann ekki proffalegur hann Gulli með húfuna, er hann lítur á Kjúklinginn Bake Samm hjá henni Gunnu sinni? ■ Ilmurinn hlýtur ágætiseinkunn hjá Gulla og Gunna fær koss að launum. ■ „Jæja, góði. Varstu á gægjurn," gæti Gunna og Gulli hafa sagt við Ijósmyndarann okkar hann Árna Sæberg, þegar hann smellti þessari. Hörður Sigurjóns- son, yfirþjónn á Broadway hristir fyrir okkur verð- launadrykkinn sinn: Stripper sem færði honum Islandsmeistara titilinn 1983 og rétt til þátttöku á HM á næsta ári ■ Hörður Sigurjónsson, yfirþjónn á Broadway hefur reyndar einu sinni áður verið hér í Drykkjarhorninu, en mér fannst vcl við hæfi að biðja hann að gefa okkur aðra uppskrift þar sem hann er nýbakaður íslandsmeistari og það var drykkur hans Stripper sem færði honum titilinn í keppni barþjóna aö Hótel Sögu nú fyrir skömmu. Yfirburðir Harðar voru slíkir. aö hann hlaut 59 stig af 60 stigum mögulegum, cn keppnin fór þannig fram að 20 þjónar hristu eða blönduðu drykk sinn. í fjögur glös, og dómararnir, smökkuðu síðan á fjórum mismunandi drykkjum hver og gáfu drykkjunum einkunnir. Mest var hægt aö gefa hverjum drykk 15 slig, þannig að þeir scm dæmdu drykk Harðar, Stripper hafa gefið hans drykk toppeinkunn, 15, eða þrír af tjórum dómurum, og sá ljórði hefur gcfið honum 14 stig, þannig að það verður ekki annað séð, en að drykkur Harðar verðskuldi það að heita fslandsmeistaradrykkurinn 1983. Hörður hefur nú áunnið sér rétt til þess að taka þátt í HM í Hamborg á næsta ári og hugsar hann eflaust gott til glóðarinnar. Hörður. sem var hálfpartinn eftir sig, eftir síðustu helgi, en þá gcrði hann víst lítið annað í Broadway en að hrista drvkkinn sinn Stripper fyrir gcsti staðarins, og hristi líklega hátt í 150 yfir helgina, var svo elskulegur að gefa okkur uppskriftina að þessum verðlaunadrykk sínum.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.