Tíminn - 08.05.1983, Side 5
SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1983.
tT-mmm
5
baki alþjóðlegri hryðjuverkastarfsemi.
Frekar er hér um að ræða dæmi um það
hve langt Sovétmenn eru reiðubúnir að
ganga til að leysa einstök vandamál sem
upp koma í leppríkjum þeirra í Austur-
Evrópu.
Þessi skýring vekur athygli á atriði
sem sérfræðingar starfsemi hryðjuverka-
hópa eru nú mjög uggandi um: Mörg ríki
eru farin að nota leiðir hryðjuverkanna
í stjórnmálaágreiningi við önnur ríki.
Staðreyndin er sú, segja þessir sérfræð-
ingar, að svo mörg ríki styðja hryðju-
verkasveitir að það eitt nægir til að vísa
samsæriskenningunni á bug.
Hryðjuverk: þriðja
tegund stríðsátaka
Brian Jenkis, breskur sérfræðingur
sem rannsakað hefur starfsemi hryðju-
verkahópa, bendir á að hryðjuverk séu
að verða þriðja tegund stríðsátaka, hin
eru opið stríð og skæruhernaður. „Þetta
er sú tegund stríðs þar 'sem veikasta
þjóðin getur haft í tré við hina sterk-
ustu.“
Sprenging bandaríska sendiráðsins í
Beirút á dögunum er að líkindum enn
eitt dæmi um ríkisstyrkta hryðjuverka-
starfsemi. Ariel Merari sem starfar við
hermálastofnun í Tel Aviv í ísrael telur
að sprengja sú sem notuð var til að
granda sendiráðinu hafi verið of vand-
virknislega gerð til að geta verið fram-
leidd af trúaröfgahóp þeim sem lýst
hefur ábyrgð á hendur sér. Hann heldur
því fram að sá aðili sem sprengjunni
kom fyrir hljóti að hafa nótið aðstoðar
erlendrar ríkisstjórnar - einhverrar sem
áhuga hafi á því að valda óánægju í
Bandaríkjunum með afskipti þeirra af
deilumálum í Líbanon eða vilji þrýsta á
Bandaríkjastjórn að beita áhrifum sín-
um til að koma ísraelsher út úr Líbanon.
Iran og frak beita hryðjuverkum
samhliða stríðsrekstrinum við Persaflóa.
írakar hafa sakað írani um að bera
ábyrgð á tveimur sprengjum sem-
sprungu í bifreiðum í Beirút í síðustu
viku en þá lét fjöldi manna lífið. írakar
hafa gefið í skyn að þeir muni hefna
árásarinnar með sömu aðferðum, og
skotspónninn verði íranir eða írönsk
mannvirki utan írans eða innan.
Abu Nidal-hópurinn
Það eru írakar sem hafa veitt Abu
Nidal-hópnum skjól, en sá hópur hefur
klofið sig út úr Frelsissamtökum Palest-
ínumanna og myrðir jafnt hægfara Pal-
estínumenn sem Gyðinga. Abu Nidal-
hópurinn bar ábyrgð á morðinu á sendi-
herra fsraels í Lundúnum í fyrrasumar,
en sem kunnugt er notuðu ísraelsmenn
það sem tylliástæðu til að hefja innrás í
Líbanon.
Heimildarmaður í einni leyniþjónust-
unni á Vesturlöndum' segir að Nawaf
Rosan sem dæmdur hefur verið í 35 ára
fangelsi fyrir að skipuleggja morðárásina
í Lundúnum sé starfsmaður leyniþjón-
ustu íraks, jafnframt því að vera annar
valdamestur maður í Abu-Nidal
hópnum. í fyrra ákvað stjórn Reagans í
Bandaríkjunum að fjarlægja írak af lista
yfir lönd sem styðja hryðjuverkastarf-
semi, og getur því haldið áfra.n að selja
þangað vopn.
Nýlega stóð Abu Nidal-hópurinn að
því að myrða hægfara PLO-sinna á fundi
alþjóðasamtaka jafnaðarmanna í Port-
úgal; Issam Sartawi. Það morð og fleiri
upplýsingar um stuðning íraka við
hryðjuverkamenn bendir til þess að
Bandaríkjastjórn hafi tekið ranga
ákvörðun.
Önnur ríki í Miðausturlöndum beita
einnig hryðjuverkum í vaxandi mæli.
Líbýumenn láta myrða stjórnarandstæð-
inga sína á erlendri grund, og vitað er
um slík morð nýverið á Englandi, Ítalíu,
Þýskalandi, Grikklandi og Líbanon.
Sýrlendingar hafa einnig stutt hryðju-
verkastarfsemi. Heimildir í Atabaríkj-
unum benda til þess að þaðan fái Abu-
Nidal hópurinn einnig stuðning. Enn
fremur telja frönsk lögregluyfirvöld að
það hafi verið erindreki Sýrlendinga sem
myrtu sendiherra Frakka í Líbanon árið
1981, og að þeir hafi einnig staðið fyrir
blóðugum árásum á Frakka og eignir
þeirra í Líbanon, þ.á.m. sprengjuárás-
inni á franska sendiráðið í maí á síðasta
ári þegar 14 manns létu lífið.
Talið er einnig að sýrlenskir leyniþjón-
ustumenn hafi komið fyrir sprengjum í
bifreiðum í Frakklandi til að ráða af
dögum andstæðinga sína. Frakkar hafa
nýverið vísað tveimur sýrlenskum sendi-
mönnum úr landi, og kallað sendiherra
sinn í Damaskus heim.
fólk f listum
■ Ásdís Magnúsdóttir í hlutverki fröken Júlíu ásamt Niklas Ek sem dansar hlutverk
þjónsins, Jean.
I Ingveldur Hjaltcsted fer með hlutverk Santuzzu í óperunni Cavalleria Rusticana.
Síðasta frumsýning Þjóðleikhússins á stóra sviðinu á þessu leikári:
Óperan Cavalleria Rnsticana
og ballettinn Fröken Júlía
■ Sigríður Ella Magnúsdóttir fer með hlutverk Lolu.
■ 1 gærkvöldi 6. maí var síðasta
frumsýning Þjóðleikhússins á stóra svið-
inu á þessu leikári. Frumsýnd voru tvö
verk, óperan Cavalleria Rusticana og
ballettinn Fröken Júlía.
Óperan Cavalleria Rusticana sem er
eftir Pietro Mascagni er nú flutt í
leikstjórn Benedikts Árnasonar, en leik-
mynd og búninga teiknaði Birgir Engil-
berts.
Cavalleria Rusticana hefur einu sinni
áður verið flutt hér í Þjóðleikhúsinu,
það var á jólum árið 1954 og urðu
sýningar þá samtals tuttugu. Með hlut-
verkin fóru þá Guðrún Á. Símonar,
Ketill Jensson, Guðmundur Jónsson,
Þuríður Pálsdóttir og Guðrún Þorsteins-
dóttir en María Markan söng sem gestur
í tvö skipti.
Þau sem fara með hlutverkin í þetta
sinn eru Ingveldur Hjaltested (Sant-
uzza), Sigríður Ella Magnúsdóttir
(Lola), Halldór Vilhelmsson (Alfio),
Sólveig Björling (Mamma Lucia) og
rúmenski tenórsöngvarinn Constantin
Zaharia sem fer með hlutverk Turiddu.
Zaharia fæddist í Búkarest og ólst þar
upp. Hann stundaði tónlistarnám í Tón-
listarakademíunni þar í borg á árunum
1963-68. Strax að námi loknu vakti hann
mikla athygli og kom fram í óperum í
heimalandi sínu og útvarpi og sjónvarpi.
Zaharia er einn af eftirsóttustu yngri
tenórum Evrópu um þessar mundir,
búsettur í Vín, en syngur mikið í
Frakklandi, Þýskalandi og Austurríki,
meðal annars á ýmsum helstu tónlistar-
hátíðunum.
Óperan Cavalleria Rusticana gerist á
Sikiley og er mikið ástardrama, skap-
heitt og blóðugt. Óperan sem er stöðugt
á verkefnaskrá helstu óperuhúsa heims,
gerist öll einn páskadagsmorgun, en fá
verk munu vinsælli í óperuhúsum heims-
ins. Hún var fyrst flutt í Teatro Constanzi
í Róm árið 1890 og fór þegar sigurför um
allar jarðir, var t.d. sýnd í Konunglega
leikhúsinu þegar árið eftir.
Texti óperunnar er saminn eftir
þekktu leikriti, sem sikileyska skáldið
Giovanni Verga bjó úr einni af smá-
sögum sínum, sem birst hafði árið 1884.
Pietro Mascagni samdi ýmsar óperur,
en þetta er sú eina sem hefur orðið
sígild. Hljómsveitarstjóri að þessu sinni
er Jean-Pierre Jacquillat en Agnes Löve
hefur æft söngvarana og Þjóðleikhúskór-
inn sem gegnir miklu hlutverki í þessari
óperu. Kórinn hefur nýlega verið stækk-
aður og hafa margar nýjar raddir bæst í
hópinn. Sinfóníuhljómsveit Islands
leikur scm endranær í óperusýningum
Þjóðleikhússins og sömulciðis í ballettin-
um.
Ballettinn Fröken Júlía er eftir Birgit
Cullberg, sem er einn frægasti dansa-
höfundur Norðurlanda og löngu
heimskunn. Fröken Júlía er þekktasta
verk hennar og hefur verið sett upp í
þrettán löndum frá því er ballettinn var
frumfluttur árið 1951. Sums staðar hefur
hann verið fluttur nálega 1500 sinnum.
Ballettinn Fröken Júlía er byggður á
samnefndu leikriti August Strindberg,
sem margir þekkja og fylgir hann efnis-
þræði leikritsins mjög skýrt. Birgit Cull-
berg kom hingað til lands og hefur hún
sjálf stýrt undirbúningnum, ásamt að-
stoðarmanni sínum, Jeremy Leslie
Spinks, sem hefur æft verkið.
Fröken Júlía var áður sýnd hér á
listahátíð 1960 í tilefni tíu ára afmælis
Þjóðleikhússins. Birgitta Cullberg
stjórnaði þeim flutningi og dansaði einn-
ig eitt hlutverkanna, en aðrir aðaldansar-
ar voru erlendir.
íslenska dansmærin Ásdís Magnús-
dóttir fer nú með hið margslungna og
erfiða hlutverk fröken Júlíu á móti
Niklas Ek, sem talinn er einn fremsti
Cullberg-dansari í heiminum. Þess má
geta að Niklas Ek er sonur Birgittu
Cullberg. Síðar mun annar dansari, Per
Arthur Segerström, aðaldansari Stokk-
hólmsóperunnar og góðkunningi ís-
lenskra dansunnenda, dansa hlutverkið.
f öðrum helstu hlutverkum eru Ingibjörg
Pálsdóttir, Birgitta Heide, Örn Guð-
mundsson og Ólafía Bjarnleifsdóttir og
aðrir dansarar í íslenska dansflokknum,
auk ballettnema og leikara.
Jean-Pierre Jacquillat stjórnaði síðast
uppfærslu Þjóðleikhússins á La Bohéme,
sem hlaut mikið lof. Síðan hefur hann
meðal annars stjórnað Carmen í Parísar-
óperunni.