Tíminn - 08.05.1983, Page 10
SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1983.
■ Amma Shany ásamt barnabarnabarni sínu Gjulpari.
Amma Shany sótt heim:
110 ára og aldrei
til læknis komið
„Salam-alcikum, Shany amma.
Hvernig líður þér?“
„Mjög vel, þakk fyrir.“
„Hversu oft ferð þú til laeknis?"
„Ég hef aldrei komið til læknis á
ævinni."
„Og hún er þegar hundrað og tíu
ára,“ segir Mazair Ibadov, forstjóri Azi
Aslanova Ríkisbúsins, þar sem Shany
Kulijeva vann áður en hún fór á
cftirlaun.
Við sitjum í garðinum, drekkum te
úr bláum bollum og tölum rólega
saman. Andlitið á Shany ömmu, sem í
fyrstu virðist hreyfingarlaust, lifnar við
þegar hún talar og brosir. Hún svarar
spurningum greiðlega og orðum hennar
fylgja handahrcyfingar, scm hún gerir
til að Icggja áherslu á orð sín.
„Hundrað og tíu ára. Það getur margt
gerst á þeim tíma. Hefur þú orðið vör
við einhverjar breytingar í náttúrunni
eða á fólki?“
„Já, bæði í náttúrunni og hjá fólki.
Loftið er orðið miklu þurrara eftir að
fenin voru þurrkuð upp, sem höfðu svo
slænt áhrif á heilsu barna, Nú eru
ræktaðar hérsítrónuroggrænmeti, sem
í mínu ungdæmi var óþekkt hér um
slóðir, Fólk er betra, býr yfir meiri
þekkingu og lifir góðu lífi. Það er ekki
hæg't að bera saman þetta hús og
leirkofann, sem áður stóð hér. Og
skólarnir og háskólarnir, sem barnabörn
mín og barnabarnabörn stunda nánt i.
Ég skipti lífi mínu í tvo hluta: Gamla og
nýja. Nýja lífið er núna."
„Hvert af bamabörnunum og
barnabarnabörnunum er líkast þér,
þegar þú varst ung?“
Shany amma leit hugsandi á hóp af
stúlkum, sem umkringdu hana. Grönn
stúlka með rjóðar kinnar brosti breitt
og steig fram.
„Það er ég, amma. Ég er líkust þér.
Líttu bara á mig.
„Já, það cr hún," segir Shany
Kulijeva og bendir á hana. „Gjulpari."
Gjulpari tekur utan um ömmu sína
og við finnum tímann snúa til baka og
gerum okkur í hugarlund, hversu fögur
Shany hefur verið 17 ára að aldri. Það
heyrist smellur í myridavél og Jashar
Mamedov, félagi minn hefur fest
augnablikið á mynd.
„Nú á dögum eru margar konur, sem
vilja eiga aðeins eitt barn. Hvað mundir
þú segja við unga konu, sem hefur
ákveðið að eignast ekki annað barn?“ j
„í fyrsta lagi mundi ég segja, að nú j
séu góðir tímar til að eignast börn.
Fæði, klæði og skólar eru fyrir hendi.
Hver og einn þarfnast bræðra og systra.
Og ég myndi segja konu, sem teldi, að
fæðing gæti haft skaðleg áhrif á vöxt
hennar, að það skaðaði hvorki heilsu
né fegurð. Ég átti mörg börn og sjáið,
hvað ég hef lifað lengi og hvcrsu
hamingjusöm ég er með barnabörnum
mínum og barnabarnabörnum mínum.
Það eru þau, sem lengja líf mitt. Ég
væri ekki hér, ef þau væru ekki hér.
„Hvernig eru börn alin upp í
fjölskyldu þinni?“
„Fyrst á morgnana bjóða þau
foreldrum sínum og mér góðan dag,
síðan borða þau morgunverð og fara í
skóla eða til vinnu. Allir hjálpa til við
húsverkin við að halda húsinu og
garðinum hreinum og hlýða hinum
eldri. Þegar eldri bróðir eða systir segir
þeim sem yngri er að gera eitthvað, er
það gert tafarlaust og í staðinn hjálpa
hin eldri yngri bræðrum sínum og
systrum. Börnunum er innrætt kurteisi,
árvekni, heiðarleiki og blíða - það er
regla í fjölskyldunni."
„Ferðu snemma á fætur á
morgnana?”
„Já, mjög sncmma."
„Hvað borðar þú venjulega?"
„Hrísgrjón, grænmeti og kjöt. Áður
en ég fer að sofa fæ ég mér
mjólkurglas."
„Vísindamenn hafa nýlega uppgötvað
að það stuðlar að heilbrigðum svefni að
drekka mjólkurglas fyrir svefninn."
„Við erum búin að vita það lengi."
„Finnst þér gaman að horfa á
sjónvarp?"
„Já, einkum söngva og dans.“
„Dansaðir þú, þegar þú varst ung.“
„í síðasta skipti dansaði ég í
brúðkaupi eins barnabarns míns fyrir
um 25 árum."
„Hvernig eyðir þú eftirlaununum
þínum?“
„Kaupi það sem ég þarfnast og það
scm mig langar í. T.d. keypti ég nýlega
þennan gullhring."
„Áttu einhverja sérstaka ósk?“
„Mig langar að sjá stóru borginar.
Og svo langar mig líka til að fá sírna."
Síðari setninguna sagði hún í átt til
Nazil Ibadov, formanns staðarráðsins og
var augsýnilega að leggja áherslu á, að
hér væri um einkamál að ræða.
„Hver hringir í þig?“
„Barnabörn mín í Bakú og Sumgait -
og þú í Moskvu."
Við höfum setið og talað í tvo
klukkutíma og sólin var að setjast og
farið að kólna. Farkhad tók jakkann
sinn og lagði hann yfir axlir ömmu
sinnar og kyssti hana.
„Finnst þér vænt um ömmu þína?“
„Ef við hefðum ekki elskað hana,
hefði hún ckki lifað svo lengi."
En einfalt og viturlegt. Fólk verður
að elska hvort annað til að lifa.
Shany amma bauð gestinum frá
Moskvu að borða með sér. Elsta -
tengdádóttirin Khjuri fór að baka
brauð, yngsta tengdadóttirin fór út í
garð að ná í grænmeti og Sarkhad,
yngsti sonur hennar klifraði upp í
mórberjatréð eftir berjum. Gjulpari
sótti nýtt te og einhver náði í nokkra
geysistóra tómata og skar þá í sneiðar,
sem minntu á blóm. Þrír ungir
myndarlegir menn, Farkhad, sem er
bakari, Sharafat verkstjóri og
Kukhabat, sem vinnur á skurðgröfu
lögðu á bo'rðið.
Við skáluðum fyrir Shany ömmu og
ég lagði enn eina spurningu fyrir hana.
„Shany amma. Þar sem þú hefur lifað
löngu lífi og ert ein af fáum konum,
sem það hefur gert, hver er boðskapur
þinn til annarra kvenna?"
„Ósk mín til allra kvenna í heiminum
er sú, að börn okkar séu heilbrigð."
Hún breiddi út faðminn svo að hún næði
til allra. „Þá verðum við mæðurnar
hantingjusamar."
APN
Hitler var
dópisti
Dagbækur einkalæknis hans
komnar fram
■ Adolf sáíugi Hitler er mikið í
fréttum þessa dagana eins og kunnugt
er og ástæðan er auðvitað dagbækurnar
nýfundnu sem staðhæft er að hann hafi
skrifað með eigin hendi.
Það nýjasta á þessum vettvangi eru
dagbækur sem einkalæknir Hitlers, dr.
Theodore Morell, hélt um heilsu hans
og nú hafa í fyrsta skipti komið fram
opinberlega og verið gefnar út af breska
sagnfræðingnum David Irving.
Dagbækur Morells leiða ýmislegt
forvitnilegt í ljós um heilsufar
Foringjans, t.d. að hann notaði kókaín
reglulega, bæði til að lina aðskiljanlegar
þrautir og til að hugsa skýrar. Annað
lyf sem Hitler fékk er ekki síður
merkilegt, karlhormóninn testosterone.
Vonandi að hann hafi gagnast Evu
greyinu Braun betur með því móti!
Þá kemur fram í dagbókunum að
Hitler notaði blóðsugur til að taka sér
blóð. Blóðtakan var til þess að losna við
suð sem Hitler hafði fyrir eyrunum, og
eins og kókatnið átti það að auðvelda
honum að hugsa skýrar.
Dagbækurnar afsanna þá skoðun
sumra að Foringinn hafi þjáðst af
kynsjúkdómi. Svo varekki. Og tippið á
honum var heldur ekki lítið eins og
sumir sálfræðingar sem velt hafa
margvíslegum komplexum hans fyrir
sér hafa getið sér til um.
Það kemur fram í bókunum að
Foringinn þjáðist af Parkinson-veiki og
hefur því átt erfitt með að halda á penna
síðustu æviárin. Sagnfræðingurinn
Irving, sem upphaflega var þeirrar
skoðunar að hinar umdeildu dagbækur,
sem kenndar eru við Hitler, væru
falsaðar, telur nú að þær séu ófalsaðar
vegna þess að skriftin á síðustu
blaðsíðum þeirra ber einkenni
Parkinonveiki. Falsararnir gátu ekki
vitað um þennan sjúkdóm," segir
Irving. Þá staðhæfingu hans er aftur á
móti unnt að draga í efa, enda margt
óljóst um það hverjir höfðu
læknadagbækur dr. Morells undir
höndum frá stríðslokum og fram til þess
tíma að þær komust í hendur Irvings.
. Allt um það: læknadagbækurnar um
heilsufar og mataræði Hitlers eru
fróðleiksnáma fyrir þá sem af
einhverjum ástæðum hafa áhuga á
einkahögum þessa ógeðfellda og
ógæfusama manns.
Adolf Hitler. Teikning eftir David Levine.
Notaðir lyftarar
í miklu úrvali
2. t. raf/m. snúningi
2.5 t raf
1.5 t pakkhúslyftarar
2.5 t disil
3.21 disil
4.3 t dísil
5.01 dfsil m/húsi
6.01 dfsil m/húsi
r 2
f L4 - 1 -
K. JÓNSSON & CO. HF.
Vitastíg 3
Simi 91-26455
Söngskglinn / Reykjavík
Umsóknarfrestur um
skólavist i
Söngskólanum í Reykjavík
næsta vetur verðurtil 19. maí n.k. Umsóknareyð-
ublöð fást í Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar
og á skrifstofu Söngskólans, Hverfisgötu 45, R.
Sími 21942 - 27366, þar sem allar nánari
upplýsingar eru veittar daglega frá kl. 13.00-
17.00.
Skólastjóri
erlend hringekja