Tíminn - 08.05.1983, Blaðsíða 13

Tíminn - 08.05.1983, Blaðsíða 13
,>m JíV jt vro*u'j/xiw SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1983. þeirri þýðingu sem hagsmunaárekstrar verkalýðsins og auðmanna hefur haft. Og Marx rak hughyggjumenn á stampinn og sýndi þeim fram á hvernig hugmyndir manna stjómast frekar af peningum og hagsmunum heldur en af einhverri „hreinni" skynsemi. Lenínisminn og stalínisminn, sem Rússar byggðu á keningum Marx, hafa alið af sér samfélagsgerð sem fáir Vest- urlandabúar telja öfundsverða. Við sjáum Sovétríkin oftast fyrir okkur sem land ófrelsis. í því er áreiðanlega mikið hæft, en þeir hafa að mörgu leyti góða almenningsþjónustu, líkt og Norður- landabúar hrósa sjálfum sér af. Nú er svo komið að jafnvel ítalski kommún- istaflokkurinn staðhæfir að marxisminn dugi ekki lengur til að blása lífi í stjómmálahreyfingu þeirra, að marxism- inn eigi ekki lengur skilið að vera vörumerki fyrir hugmyndafræði kom- múnismans. I staðinn benda þeir á Keynes. Á endastöðinni Enski hagfræðingurinn John Maynard Keynes fæddist fyrir 100 árum, já árið sem Marx dó (hvað segja andmælendur endurholdgunarkenninga um þá stað- reynd?!). Keynes varð frægur á fjórða áratugnum fyrir að mæla vissum ríkisaf- skiftum í hagkerfi Vesturlanda bót. Reyndust ráð hans eina lyfið við sjúk- dómi heimskreppunnar miklu. En Svíar hafa nokkuð hneigst í áttina til keynes- isma. Hér er ríkið að mörgu leyti öryggisnet almennings, og til þess er ætlast að ríkið geri sitt til að halda atvinnuleysi niðri. En ríkið er ekki síður öryggisnet fyrirtækjanna. Ríkið er alltaf reiðubúið að konta stórfyrirtæki. sem á í vanda, til hjálpar, - til að forða uppsögnum. Ut unt gluggann minn sé ég strætó bíða á endastöðinni. Á hann er límt plakat með auglýsingu frá sænska Al- þýðusambandinu. Þar segir: Frelsi er að hafa atvinnu. Þetta er dálítið gott hjá krötunum, finnst mér. Þetta stenst kannski ekki undir smásjá félagsheim- spekinga né þeirra sem hafa langskóla- próf í framboði og eftirspurn. En þetta á erindi til okkar hér þegar-kratar sitja einir í ríkisstjóm og samt eru sett ný met í atvinnuleysinu. í febrúar voru hér 155 000 manns atvinnulausir beinlínis, en um það bil milljón í viðbót var atvinnulaus að hluta (með skammtíma- vinnu o.fl.) Og hvers vegna er frelsi það aö hafa atvinnu? Er það vegna þess að atvinnu- lausir fá ekki laun og skortir þannig svigrúm til kaupa? Ónei. Frelsi er ekki fólgið í að kaupa; enda hafa flestir hér einhverjar tekjur þótt þeir hafi ekki vinnu. Menn eru ekki settir út og látnir deyja þótt þá vanti vinnu. Ekki lengur. Frelsið sem felst í því að hafa vinnu liggur ekki síður í hinu, að hverjum manni er það djúpstæð persónuleg nauð- syn að stunda starf. Einstaklingurinn þarf starf sem kallar á hann, lætur hann finna að hans sé þörf. Og maður vill afkasta einhverju. láta eitthvað af sér leiða. finna að maður sé til, sé skapandi. Jafnvel fábreytt verksmiðjustarf er ekki gersneytt möguleikanum á að fullnægja1 þessari þörf. Hitt er svo annað mál að það er engin röksemd á móti kaupkröfu að starfið sé skemmtilegt. Enda finnst einum það starf skemmtilegt sem öðrum leiðist kannski fram úr hófi. Mér datt svona í hug að minnast á atvinnuleysið af því að sumir vilja endi- lega stytta vinnutíma launafólks í svona fjórar til fimm stundir á dag, og tel ég óvíst að slíkt sé ráðlegt (frekar að gera störfin skemmtilegl). Þó á slíkur boð- skapur auðvitað erindi á Islandi þar sem flestir vinna tvöfaldan vinnudag og verkalýðshreyfingin er í raun réttri ‘ennþá að berjast fyrir 10 tíma vinnudegi. En mér datt þetta líka í hug vegna þéss að sú hugmynd virðist hafa náð til íslands og grasserar meðal ungra íhaldsmanna að helsta ráðið gegn verð- bólgu og einhverju sem gengur undir nafninu „ójafnvægi í hagkeríinu" sé aukning atvinnuleysis. Þeir vilja skera niður ríkisstarfsemina sem mest og skeyta engu, frekar en Reagan og félag- ar, hvort þúsundir manna kunni að verða verklausar fyrir vikið. Ætli drykkjuskapur og sjálfsmorð séu ekki nógu alvarlegt vandamál fyrir þó að maður fari nú ekki að hlýða glæfraráð- um þessara ungu fylgismanna atvinnu leysisins. Svoleiðis piltar hefðu gott af að glugga í Keynes, mætti segja mér. mm&B messur Bænadagurinn ■ Guðsþjónustur í Reykjavíkurprestakalli sunnudaginn 8. maí 1983. Árbæjarprestakall Guðsþjónusta í Safnaðarheimili Árbæjar- sóknar kl. 2. Hlutavelta fjáröflunarnefndar Árbæjarsóknar í Safnaðarheimilinu eftir messu (kl. 3). Sr. Guðmundur Þorsteinsson. Ásprestakall Guðsþjónusta Norðurbrún I. kl. 2. Kaffisala Safnaðarfélags Ásprestakalls eftir messu. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson. Breiðholtsprestakall Bænadagsguðsþjónusta kl. 14 í Breiðholts- skóla. Sr. Lárus Halldórsson. Bústaðakirkja Guðsþjónusta kl. 2. Sr. Jón Bjarman messar. Organleikari Guðni Þ. Guðmundsson. Fund- ur Kvenfélags Bústaðasóknar mánudags- kvöld. Sóknarnefndin. Digranesprestakall Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 2. Sr. Þorbergur Kristjánssori. Dóinkirkjan Messa kl. 11. Sr. Þórir Stephensen prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Hjalta Guð- mundssyni. Organleikari Marteinn H. Friðr- iksson. Elliheimilið Grund Messa kl. 10. Sr. Þorsteinn Björnsson. Fella- og Hólaprcstakall Guðsþjónusta í Safnaðarheimilinu að Keilu- felli 1, kl. 2. Þetta verður síðasta guðsþjón- ustan áþessum stað. Sr. Hreinn Hjartarson. Fríkirkjan i Reykjavík Alrnenn guðsþjónusta kl. |4. Ræðuefni: Máttur bænarinnar. Fríkirkjukórinri syngur við hljóðfærið Pavel Smid. Sr. Gunnar Björnsson. Grensáskirkja Messa kl. 11.00Sr. Michael Harpcr prédikar. Árni Arinbjarnarson organisti. Kaffisala Kvenfélagsins kl. 3.00. Kvöldmessa með altrisgöngu „Ný tónlist" - Sr. Michael Harper prédikar. Mánudag og þriðjudag verða samkomur nieð Sr. Michael Harper í safnaðarheimilinu og hefjast þær kl. 20.30. Sr. Halldór S. Gröndal Hallgrímskirkja Messa kl. 11. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Messa kl. 2 fyrir heyrnarskerta og aðstandendur þeirra. Sr. Miyako Þórðarson. Sýning Sigrúnar Jónsdóttur listakonu á kirkjuskrúða veröur opnuð í anddyri Hall- grímskirkju sunnudaginn 8. inaí kl. 15 og verður hún opin til sunnudagsins 15. maí. (Sjá nánar í fréttatilkynningu). Þriðjudagur 10. maí. kl. 10.30, fyrirbæna- guðsþjónusta, beðið fyrir sjúkum. Spilakvöld kl. 20.30 í Félagsheimilinu. Miðvikudagur 11. maí kl. 22.00 Náttsöngur. Fimmtud . messa kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Á uppstigningardag er einnig ferð á vegum opins húss til Þorlákshafnar og Strandakirkju. Lagt verður af stað frá kirkj- unnikl. 13. Þátttakatilkynnistsafnaðarsystur í síma kirkjunnar 10745 eða heimasíma 39965. Landspítalinn Messa kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Háteigskirkja Messa kl. 11. Kaflisala kvenfélagsins í Domus Medica kl. 15. Sr. TómasSveinsson. Kársnesprestakall Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11 árd. Sr. Árni Pálsson. Langholtskirkja Guðsþjónusta kl. 2. Prestur sr. Sigurður Haukur Guðjónsson, organleikari Jón Stefánsson.Sóknarnefndin. Laugarnesprestakall Laugardagur: Guösþjónusta Hátúni 10B, 9 hæð kl. 11. Sunnudagur: Messa kl 14. Sigríður M. Guðj- ónsdóttir syngur einsöng. Þriðjudagur: Bænaguðsþjónusta kl. 18. Oppstigningardagur: Messa kl. 14. Sigur- björn Einarsson fyrrv. biskup prédikar. Hall- dór Vilhelmsson syngur einsöng. Kaffisala Kvenfélagsins í nýja safnaðarheimilinu eftir messu. Fjölbreytt dagskrá. Sr. Jón Dalbú Hróbiartsson. Neskirkja Messa kl. 14. Miðvikudagur, fyrirbænamessa kl. 18.20, beðið fyrir sjúkum. Sr. Frank M. Halldórsson. Seljasókn Guðsþjónusta kl. 14 í Ölduselsskóla. Sr. Ólafur Jóhannsson skólaprestur messar, fyrirbænasamvera Tindaseli 3, fimmtudags- kvöld kl. 20.30 . Sóknarnefndin. Seltjamarncssókn Guðsþjónusta kl. 11 í Sal Tónlistarskólans. Sr. Frank M. Halldórsson. Safnaðarfélag Ásprestakalls: Safnaðarfélag Áskirkju verður með kaffisölu sunnudaginn 8. maí að Norðurbrún 1 að aflokinni messu sem hefst kl. 14. Hlíðarendakirkja í Fljótshlið Messa sunnudaginn 8. maf kl. 14. Organisti Margrét Runólfsdóttir. Sváfnir Sveinbjarnar- sjöiimi-laiidsmenn ]5%afeláttnr í\erttoanöK JL eru \ci6ldæði\etiarins Iqgö til hliðar Auðvitað fylgir því viss söknuður - þau hafa jú hlýft við frosti, kulda og sjó- gusum vetrarins. En ekki klæðist maður þeim á balli, leikhúsi eða notalegum veitingastað. Hvað þá á „veiðum í landi“. Þessvegna býður TORGIÐ og HERRA- RÍKIN þér í tilefni tímamótanna, 15% afslátt af hinum glæsilegu SIR jakka- fötum, SIR - gallinn við hæfi í landi, gallinn, sem gefur „veiðivon". Mtni; 27211 rrcnJiriMKI Snorrabraut. Qæsixe. Hamrabag-KópavogL MKVang - Hafnarfrói VIÐ HÖNNUM, TÖLVUSETJUM OG PRENTUM SKYRSLU- OG REIKNINGSEYÐUBLÖÐ FYRIR TÖLVUR. TOLVUPAPPIR A LAGER. NY, FULLKOMIN LEISER-LJÓSSETNINGARVÉL OG PRENTVELASAMSTÆÐA. REYNIÐ VIÐSKIPTIN. PRENTSMIDJAN £JUL ».f. Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur, sími 45000 iff Útboð Tilboö óskast í lögn dreifikerfis Hitaveitu í Hafnarfjörð 10. áfanga. Setberg I fyrir Hitaveitu Reykjavíkur. Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykjavik gegn 1.500 kr. skilatryggingu. Tilboðin veröa opnuö á sama staö þriöjudaginn 24. maí 1983 kl. 14 e.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR FríkirUjuvegi 3 — Sími 2S800 Caterpillar varahlutir til sölu, bæði í jarðýtur, veghefla, Upplýsingar í síma 32101. Aðalfundir Samvinnutrygginga G.T. og Líftryggingarfélags- ins Andvöku verða haldnir að Hótel Blönduósi föstudaginn 3. júní 1983 og hefjast kl. 10 f.h. Dagskrá: Verður skv. samþykktum félaganna. Stjórnir félaganna.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.