Tíminn - 08.05.1983, Page 24

Tíminn - 08.05.1983, Page 24
SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1983. Sumir dagar eru merkilegri en aðrir dagar - að minnsta kosti fyrir suma. Þannig er því yarið um 1. maí í lífi Bjarna Guðbjörnssonar bankastjóra Útvegsbankans. Bjarni útskrifað- ist úr Kennaraskólanum 1. maí árið 1941 og hóf samdægurs störf við Útvegsbankann í Reykjayík. 1. maí árið 1975 byrjaði hann svo aftur í aðalbankanum í Reykjavík eftir að hafa gegnt stöðu útibússtjóra Útvegsbankans, fyrst á ísafirði og síðar í Kópavogi. Og 1. maí síðast liðinn, eða nákvæmlega 42ur árum eftir að hann hóf störf í Útvegsbankanum, lét hann af starfi sínu sem bankastjóri, fyrir aldurssakir þó ekki sé það á honum að merkja. Það er auðséð, um leið og maður kemur inn fyrir dyr þeirra Bjarna og Gunnþórunnar, að þau hafa einhverjar taugar til ísafjarðar. Ljósmynd af ísafirði, málverk frá Hnífsdal og einnig mynd af fyrsta vélbáti ísfiröinga ásamt teikningum Sigfúsar Halldórssonar af gömlum húsum í Neðsta-kaupstað - elsta hluta ísafjarðar kaupstaðar - og af húsum við Silfurtorg og Hafnarstræti prýða veggi stigagangsins upp í íbúð þeirra. Og efst trónir stýri úr gömlum báti frá Isafirði. Úppi á stigapallinum mætir manni svo sá stærsti og „blómlegasti“ burkni sem undirrituð getur hugsað sér. Inni fyrir tekur svo við ilmur af blómum sem samstarfsfólk og viðskiptavinir Bjarna færðu honum, ásamt öðrum gjöfum, er hann lét af störfum. Og þá erum við koinin inn í stofu og ég byrja að spyrja - að uppruna fyrst að venju. ■ Bjarni og Gunnþórunn heima í stofu, en Gunnþórunn, sem er mikil hannyrðakona eins og sjá má, saumaði út rokokóstólinn sem hún situr í og annan til. ■ „Ég er innfæddur Reykvíkingur,“ segir Bjarni, „móðir mín var Jensína Jensdóttir frá Hóli í Hvammssveit og faðir minn var Guðbjörn Guðbrandsson bókbindari, en hann var ættaður úr Saurbæ í Dalasýslu. Ég ólst upp í Reykjavík ásamt sex systkinum en er nú bara einn eftir. Nú, ég gekk í barnaskóla, fór síðan í Menntaskólann í Reykjavík og tók gagnfræðapróf þaðan árið 1930, en það ár létust móðir mín og tvær systur, en faðir minn féll frá árið 1927. Ég varð þá að hætta námi og fara að vinna. Ég stundaði ýmis störf, var stundum vallar- vörður á íþróttavellinum, en gerðist síðan bílstjóri. Fyrst ók ég stöðvarbíl en síðan gerðist ég strætisvagnabílstjóri í 3 ár, þar til í bensínverkfallinu 1939, þá var strætisvagnabílstjórum fækkað og ég var látinn fara. Pá hóf ég nám í Kennaraskólanum og fékk að setjast í annan bekk vegna þess að ég hafði góða undirbúningsmenntun. Þar var ég svo í tvo vetur, útskrifaðist 1941 og fór þá beint í bankann." - Þú hefur ekki haft hug á því að fara að kenna? „Það æxlaðist nú bara þannig að mér var boðið starf í Útvegsbankanum og ég taldi mér ekki fært að neita því, þótt launin væru lág. Ég fékk tvöhundruð krónur á mánuði, sem var það sama og konan fékk á skrifstofu hjá Sambandinu. Þá fóru margir skólafélagar mínir í hernámsvinnu og rökuðu saman pening- um. Gerðust múrarar, gervismiðir o.fl. og fengu fjórum sinnum meira kaup en ég“ - Varstu ekki eitthvað í íþróttum á þessum árum? „Ég er fæddur Valsmaður og var í fótbolta, dálítið í frjálsum íþróttum líka í Glímufélaginu Ármanni. En árið 1930 breyttist margt og þá hætti maður megin- hlutanum af þessu sprikli. Ég keppti þó af og til með úrvalsliðinu sem nú er kallað en hét fyrsti flokkur þá. Ég fór t.d. með þeim í keppnisför til Noregs og Danmerkur árið 1931 en svo hætti ég þessu alveg þegar ég byrjaði að keyra því þá gat ég ekkert æft. Ég var svo fulltrúi Valsmanna í Knattspyrnuráði Reykjavíkur um tíma en hætti því þegar ég flutti vestur. Ég hef alltaf saknað samskiptanna við Valsmenn en þau tengsl rofnuðu þegar ég flutti vestur. Það breytist margt þegar maður flytur svona í annað byggðarlag. En ég er ennþá í Val og fer á flesta leiki þeirra.“ - Hverjir spiluðu með Val á þessum tíma? „Þctta var gullaldarlið Valsmanna," segir Bjarni brosandi, „skipað Frímanni Helgasyni. Hrólfi Bcnediktssyni, bræðr- unum Jóhannesi og Magnúsi Bergsteins- sonum, Grímari Jónssyni, Ellert Sölva- syni, Sigurði Ólafssyni o.fl., þetta voru allt feykilega góðir knattspyrnumenn. í röðum andstæðinganna, en á þessum tíma voru nú KR-ingar sterkastir, var einnig fjöldi góðra manna." - Hefur knattspyrnan breyst mikið frá því er gullaldarlið Valsmanna var upp á sitt hesta? „Henni hefur farið mikið fram yfir- lcitt, þótt stundum finnist manni nú reyndar sem hún standi í stað.“ - En hvað finnst þér uin atvinnu- mennsku í knattspyrnu? „Ég sakna þess mjög að missa góða menn til útlanda, þeir efnilegustu fara út, en þaö cr ekki auðvclt að sporna við því þegar gull og grænir skógar eru í boði erlendis." Við vendum nú kvæði okkar í kross og innum Gunnþórunni aðuppruna. „Éger úr Norður-Þingeyjarsýslu, fædd á Kópa- skeri og alin upp þar. Móðir mín er Rannveig Gunnarsdóttir frá Skógum í Öxarfirði og faðir minn var Björn Krist- jánsson fyrrverandi kaupfélagsstjóri og alþingismaöur, Hann er nú látinn. Hann var mikill samvinnumaður og sat í stjórn Sambands ísl. samvinnufélaga fram á efri ár." „Þá varð maður bara að gjöra svo vel að vera heima...“ „Nú ég fór í Héraðsskólann á Laugar- vatni og síðan í Húsmæðraskólann að Laugum. Frænka mín fór þá þangað og mig langaði þá að fara líka. Það þótti eftirsóknarvert því skólastjóri þar var þá Kristjana Pétursdóttir frá Gaut- löndum, alvqg frábær manneskja. Áður var ég búin að hugsa mér að fara i Menntaskólann á Akureyri og var búin að fá þar skólavist en hætti við, og enn í dagsé ég alltaf eftir því að það varðekki. Síðan fór ég að vinna hjá Sambandinu í Reykjavík og hér lágu leiðir okkar Bjarna saman. Við giftum okkur árið 1941 og eignuð- umst fyrsta barnið 1943. Þá hætti ég að vinna úti því að í þá daga var ekki um annað að ræða. Þá voru ekki barna- heimilin og dagheimilin eins og nú er, maður varð bara að gjöra svo vel að vera heirna og hugsa um sín börn. En svo breyttum við til árið 1946, þegar Bjarni fékk eins og hálfs árs frí í bankanum, og fórum til Danmerkur." „Já, ég fór að vinna í Privatbankanum í Kaupmannahöfn,*' segir Bjarni, „og var þar í sex mánuði en þá fórum við til Stokkhólms þar sem ég vann í Skandi- naviska bankanum." „Þetta var mjög skcmmtilegur vetur," ■ segir Gunnþórunn, „við leigðum okkur stóra íbúð sjö saman - tveir bræður mínir og tveir aðrir ungir menn sem þarna voru í námi ásamt frænku minni sem einnigvar í námi-ogég hélt heimili fyrir allt liðið. Við áttum saman yndisleg- ar stundir þennan vetur. Þegar líða tók á veturinn fór ég á námskeið í sama skóla og frænka mín var í, Handarbetets vánner, ég gat þá ekki lengur stillt mig um að taka dálítinn þátt í því sem þar fór fram. Við komum svo heim um vorið 1947, þá var Heklugosið að byrja og farþegar skipsins héldu sér vakandi heila nótt til þess að missa ekki af gosinu ef Hekla skyldi sjást." Bjarni hélt áfram að vinna í Útvegs- bankanum eftir að þau komu heim, við ýmis störf, m.a. var hann deildarstjóri ábyrgðardeildar um skeið. En þegar Halldór Halldórsson útibússtjóri Út- vegsbankans á Isafirði lést í nóvember 1949, var þess farið á lcit við Bjarna að hann tæki að sér útibúið. „Hann kom heim einn laugardaginn í janúar 1950 og sagði: Viltu koma til ísafjarðar?", segir Gunnþórunn og Bjarni bætir við að hann hafi átt að svara þessu á mánudeginum á cftir, „enda Helgi Guðmuúdsson bankastjóri, sem bauð mér stöðuna, þekktur að því að vilja fá skjót svör." „Ertu vitlaus, sagði ég." segir Gunn- þórunn, „það kemur ekki til mála, - en þegar ég fór að hugsa mig um fannst mér að ég gæti ekki látið á mér standa. Ég setti þó þau skilyrði að við yrðum alls ekki lengur en fimm ár, en þau urðu nú fleiri. Við bjuggum á ísafirði í 23 ár en sex síðustu árin vorum við hérna á veturna á meðan Bjarni var á þinginu og fórum svo vestur á vorin." - Og hvernig kunnirðu svo við þig fyrir vestan? „Ég kunni að mörgu leyti mjög vel við wkm ■ Gunnþórunn situr hér við myndina af ísafirði. ■

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.