Tíminn - 08.05.1983, Blaðsíða 25

Tíminn - 08.05.1983, Blaðsíða 25
Heimsókn til Bjarna Guðbjörnssonar, fyrrverandi bankastjóra og alþingismanns og konu hans Gunnþórunnar Björnsdóttur: „Neistinn er alltaf fyrir hendi" — segir Bjarni, sem kveðst vera orðinn einskonar aukamaöur í pólitíkinni J’ctta er orðið alveg glórulaust og ekki nema von að fólk hneykslist á útihúafarganinu mig,“ segir Gunnþórunn, „en mig lang- aði alltaf suður. En við eignuðumst þar marga góða vini sem við söknunr. Margir þeirra eru nú reyndar fluttir suður, sumir fluttu m.a.s. á undan okkur, en allt eru þetta vinir okkar enn í dag.“ ' „Svona var nú banka- stjóralúxusinn í þá daga...“ (1En ég minnist þess alltaf hvað. mér fannst skrýtið fyrsta haustið, eftir að fór , að dimma og áður en snjórinn kom. Þá fannst mér ég vera komin ofan í tunnu, það var svo dimmt og fjöllin þrengdu að mér. En svo vandist maður þessu eins og öllu öðru og ég minnist margra fallegra vetrarkvölda þegar fjöllin og bærinn spegluðust í pollinum og tunglsljósið var sem mest.“ , „Við fluttum þarna inn í 120 ára gamalt hús," segir Bjarni „það var seilingarhæð mín til lofts og er ég nú ekki hár maður. Þvottahúsið var í óupphit- uðu útihúsi .og vatnið iðulega frosið. Eldhúsið var einnig mjög kalt þar sem það var viðbygging með 3 útveggjum." „Ég þurfti alltaf að setja þvottapottinn í samband að kvöldi,“ segir Gunnþór- unn, „til þess að allt væri orðið heitt að morgni." „Svona var nú bankastjóralúxusinn í þá daga,“ segir Bjarni og brosir við, „við kyntum húsið fyrst með kolum þó ekki sé lengra síðan, en sennilega búa ekki margir ísfirðingar við slíkt í dag. En 1962 fluttum við úr þessu húsi í nýlegt hús, og það voru mikil viðbrigði." - Hvernig var atvinnuástandið á ísafirði þegar þið komuð þangað? „Það ríkti mikið atvinnuleysi .þegar við komum, útgerðin var á hausnum. Þá voru starfandi á ísafirði tvö útgerðarfé- lög, Njörður h.f. og Samvinnufélag ís- firðinga. sem var stofnað rétt fyrir 1930 fyrir atbeina Finns Jónssonar alþingis- manns og með góðri hjálp Jónasar frá Hriflu er mér sagt. Samvinnufélag ísfirð- inga var geysimikið átak þegar það var stofnað. Útgerðarfélögin sem fyrir voru höfðu selt báta burtu en Samvinnufé- lagið keypti svo sjö nýja báta frá Noregi. Það var mikil lyftistöng fyrir atvinnulífið á staðnum, þegar bátarnir komu. En þetta var sem sagt komið að lokum þegar við komum, útgerðin var að leggjast niður, bæði hjá Nirði og Sam- vinnufélaginu. Þá var byrjað á nýjan leik, nýir aðilar, heimamenn sem voru miklir dugnaðar- forkar, stofnuðu tvö ný útgerðarfélög sem enn eru athafnasöm, Gunnvöru h.f. og Hrönn h.f. Þessi félög létu Skipa- smíðastöð M. Bernharðssonar h.f. á ísafirði smíða sitt hvorn 39 tonna bátinn, en skipasmíðastöðin hafði verið verk- efnalítil um nokkurra ára skeið. Enda var atvinnuleysið svo mikið þegar við komum árið 1950 að með hverju strand- ferðaskipi sem kom flutti ein, tvær eða þrjár fjölskyldur burt. En þegar skipa- smíðarnar hófust á ný með smíði þessara tveggja báta fyrir heimamenn batnaði ástandið. Hinir nýju bátar fóru að leggja meiri afla á land heima og skipasmíða- stöðin fékk einnig verkefni annars staðar frá." - Þú hefur verið í nánun tengslum við útgcrðina sem útibússtjóri Útvegsbank- ans? „Já, óhjákvæmiiega og ég tel það gæfu ísfirðinga að árin 1950-51 voru útibús- stjórar Útvegsbankans og Landsbankans yngri menn í nánari tengslum við at- vinnulífið en áður gerðist. Við vorum í tengslum við'hinn venjulega mann. Mað- ur var svo farinn að þekkja vélarhljóðið í hverjum báti fyrir sig þegar þeir voru að koma inn og það varð að vana að fara niður á bryggju á kvöldin til að forvitnast um það hversu mikinn afla bátarnir hefðu fengið." - En þú Gunnþórunn, hvað hafðir þú fyrir stafni á ísafirði? „Ég var heima með börnin og átti auk þess alls konar áhugamál. Ég var í Kvenfélaginu Ósk, í skólanefnd hús- mæðraskólans, söng með Sunnukórnum og kenndi líka handavinnu í gagnfræða: skólanum einn vetur. Ég hafði alltaf nóg ,að gera, Bjarni var líka norskur konsúll og það var oft mikið að gera í kringum það. Einu sinni voru t.d. átján nórskir skipstjórar í mat hjá okkur á hvítasunnu- dag.“ „Það var vegna þess að það hafði orðið sjóslys," segir Bjarni, „tvö eða þrjú norsk skip fórust í Vestur-ísnum milli lslands og Grænlands í ofsa veðri. Þá skipulögðu öll norsku skipin sem voru í Vestur-ísnum leit á þessu svæði og miðstöðin var ísafjörður þvi að þar var eina konsúlatið á Vestfjörðum. Um þetta leyti voru á milli 11 og 1200 Norðmenn á 40 skipum á ísafirði og ekkert gerðist - ekkert fyllerí eins og oft er hjá Norð- mönnum. Annars lenti ég aldrei í neinum vandræðum í þau tuttugu ár sem ég var norskur konsúll, þurfti aldrei að mæta fyrir rétti eða neitt slíkt.“ Hlökkuðu alltaf til páskanna „Um páska var alltaf mikið tilhlökk- unarefni að fá ges'ti frá Reykjavík á skíðavikuna", segir Gunnþórunn, „þá voru oft margir gestir eins og gjarnan er á ísfirskum heimilum um páskana. Ég var þá alltaf búin að undirbúa allt fyrir bænadagana og gat síðan átt frí með fólkinu. Og svo nestuðum við okkur og fórum upp á Dal." Það er greiuilegt að Gunnþórunn minnist þessara daga sem góðra daga. - Hvað um pólitíkina Bjarni, byrjað- irðu fyrir vestan? „Ég var nú eitthvað byrjaður að vinna í kosningum og öðru áður en ég fór vestur, vann t.d. fyrir Rannveigu Þor- steinsdóttur þegar hún var kosin á þing árið 1949, en hún var fyrsti þingmaður Reykvíkinga sem Framsóknarflokkur- inn fékk kjörinn á þing. Ég var svo í öðru sæti á lista Fram- sóknarflokksins í bæjarstjórnarkosning- unum á ísafirði 1954, en það var í fyrsta sinn sem Framsóknarflokkurinn bauð •fram í bæjarstjórnarkosningum þarsjálf- stæðan lista. Þá voru tvcir menn frægir fyrir það á ísafirði og þó víðar væri leitað að geta sagt fyrir um niðurstöður kosninga, næstum upp á atkvæði. Þetta voru þcir Hannes Halldórsson og Stefán Stefáns- son, góðir vinir og heilinn og sálin í sitthvorum flokknum. Hannes í Sjálf- stæðisflokknum en Stcfán í Alþýðuflokknum. Þeir sögðu okkur að við værum alvcg vonlausir, það væri útilokað að við fengjum mann kosinn, við myndum fá innan við> 100 atkvæði. Við sögðumst aftur á móti ætla að fá 150 atkvæði en fcngum svo 155 atkvæði og einn mann inn! En þetta þótti töluvcrð „sensasjón" vegna þess að þeim félög- unum, Halldóri og Stefáni, skeikaði svona mikið. • Gúttormur Sigurbjörnsson, forstjöri SundhaHar ísafjarðar, sem var þarna í fyrsta sætinu, flutti svo suður til Reykja- víkur 1955 þannig að ég lenti í þessu undireins." - - Hvernig gekk bæjarstjórnarsam- starfið? „Það myndaðist þarna góður meiri- hluti Alþýðuflokks og Framsóknar, bæjarstjóri var Jón Guðjónsson úr Al- þýðuflokki, traustur og ágætur maður í alla staði. Við reyndum að hlynna að atvinnulíf- inu eftir mætti, bærinn var í sárum frá því skömmu eftir stríð en var að byrja að lifna viö aftur um þessar mundir. Síðar var svo farið út í malbikun gatna o.fl. Annars er pólitíska baráttan í svona bæjum, þar ,sem allt er háð sjávarút- veginum, fremur einhæf og bar mest á milli í atvinnumálunum. Þá var aðallega tekist á um bátaútgerð og togaraútgerð, en hin síðarnefnda gekk alltaf heldur þunglega og það voru ætíð miklar deilur í kringum hana.“ - Hvenær tókstu svo þátt í þingkosn- ingum? „Það var við vorkosningarnar 1959, ég var þá frambjóðandi Framsóknarflokks- ins en það var í síðasta sinn sem ísafjörður var sérstakt kjördæmi. Þetta eru frægar kosningar en sú einkennilega útkoma varð að Alþýðuflokkurinn og Framsóknarflokkurinn fengu nákvæm- lega jafn mörg atkvæði, 269 hvor. Þetta þótti mjög merkilegt í þeim rauða bæ sem ísafjörður hafði verið. Frambjóð- andi Alþýðufiokksins var Steindór Steindórsson menntaskólakennari frá Akureyri. Eftir þessar kosningar voru öll kjör- dæmin á Vestfjörðum sameinuð í eitt og síðan var kosið aftur í október sama ár. Ég var þá þriðji maður á listanum og aftur í sama sæti í kosningunum 1963.“ - Hver voru helstu málin í pólitíkinni þá? „Það var nú bara þetta venjulega landsmálaþjark og auðvitað auk þess ýmis mál sem sérstaklega snertu Vest- firði, svo sem samgöngumál o.fl. Ég fór ekki inn á þing fyrr en árið 1967, þegar Hermann Jónasson hætti, en hafði þó tekið sæti Hermanns sem varamaður nokkrum sinnum áður. Síðan sat ég á þingi í tæp sjö ár.w Skuttogarakaupin ollu straumhvörfuni - Nú varstu samtíma pólitísku kemp- unum fyrir vestan, Hermanni Jónassyni, Hannibal Valdimarssyni o.fl., hvernig kunnirðu við þig í þeim félagsskap? „Ég kunni mjög vel við mig og reyndar kynntist ég ákaflega mörgum góðum mönnum í öllu kjördæminu en kannske ■ í þessu húsi bjuggu þau fyrstu tólf árin á ísafirði. Þar bjó eitt sinn Þorvaldur Jónsson læknir en í húsinu bebit á móti í sömu götu bjó þá Skúli Thoroddsen. Þeir voru pólitískir andstæðingar og er sagt að oft hafi þeir sent 1 hvor öðrum tóninn yfir götuna!

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.