Tíminn - 08.05.1983, Qupperneq 27
SUNNUDAGUR 8. MAI 1983.
27
Höfum nú á lager okkar
landsþekktu einfasa rafmótora,
meó tilheyrandi rofabúnaói.
Stæróir: 10-18 hö.
Rakaþéttir.
Bændum er ráólagt aó senda
inn pantanir sem fyrst.
SUG
ÞURPKUNAR
"40I0RAR
Tæknilegar upplýsingar
Steinsteypa er blanda af sandi, möl, sementi, vatni og íblöndunarefnum, er hafa bætandi
áhrif á steypuna. Steinsteypa er flokkuð niður í brotþolsflokka eftir styrkleika. Algengustu
brotþolsflokkar eru í röð eftir vaxandi styrkleika S-120, S-160, S-200, S-250 og S-350, en
þessi flokkun táknar 28 daga brotþol 15 x 30 cm sívalninga, sem steyptir eru úr viðkomandi
steypublöndu. í venjuleg hús er S-200 algengast.
Þykkleiki steinsteypu er mældur eftir því hversu marga cm sérstök keila úr blautri steypu
sígur þegar mótið er fjarlægt. Því hærra sem sigmálið er, því þynnri er steypan. Venjuleg
tregfljótandi steypa er með sigmáli 5-10 cm , þunnfljótandi með meira en 20 cm sigmáli.
Steypan verður því þynnri sem meira vatni er bætt í hana. Of mikið vatn í steypu hefur
skaðleg áhrif. Aldrei skyldi setja meira vatn í steypu, en minnst verður komist af með.
I steinsteypu er blandað ýmsum efnum til að breyta eiginleikum hennar. Loftblendi- og
þjálniefnið H-Loft frá Woermann er sett í alla steypu frá Steypustöðinni.hf til að auka
veðrunarþol steinsteypunnar, draga úr vatnsþörf og auövelda niðurlögn hennar.
Flotefni eru sett í steypuna, þar sem steypan þarf að vera fljótandi, léttfljótandi eða
þunnfljótandi við niðurlögn, eða þar sem þarf að fá slétta áferð á steypufleti, án þess að
þau veiki hana, eins og verður við þynningu með vatni.
Eftir ítarlegar samanburðarrannsóknir á hinum ýmsu efnum mælir Steypustöðin hf með
flotefninu Flot 78.
Steinsteypan er burðarás mannvirkisins. Gæta verður vel viö niðurlögn steinsteypu að
ekki myndist göt í veggi eða að steypa skilji sig og myndi malarbreiður. Vandið til allrar
meðferðar steinsteypu.
Upplýsingar
um
Alkalískemmdir
í þeim mannvirkjum á Reykjavíkursvæðinu, sem notuð hefur verið möl og sandur úr
Hvalfirði hefur borið á skemmdum í steinsteypu, vegna efnabreytinga er eiga sér staö milli
sementsins, saltsins og steinefnanna.
Kísilsýraisteinefnunum myndar meðalkalíumsementsinsog saltsins kísilsýruhlaupsem
sprengir steypuna. Til að koma í veg fyrir slíkar skemmdir hefur kísilryki verið bætt út í
sementið, og notkun óvirkra steinefna verulega aukin í samræmi við niðurstöður rannsókna
er Steinsteypunefnd hefur látið gera. Steypustöðin hf hefur ávallt notað og haft á
boðstólum óvirk steinefni.
Steinsteypukaup
Sú hugmynd að dreifa steinsteypu með bifreiðum frá blöndunarmiðstöð þróaðist í
Bandaríkjunum og fyrst.slíkra stöðva ÍEvrópu.Steypustöðin hf varreistá Islandiáriöl947.
Steypustöðin hf býður húsbyggjendum þjónustu sina. Við reynum að fullnægja óskum
viðskiftavinaokkareftir bestu getu. Skrifstofa okkar er við mynni Elliðaánna að Sævarhöfða
4. Sími okkar er 33600. Hafið samband við einhvern eftirtaldra aðila: Jón Ólafsson
skrifstofustjóra, Svein Valfells verkfræðing, Halldór Jónsson verkfræðing.
Yfirverkstjóri -
Reykjavíkurhöfn
Reykjavíkurhöfn óskar að ráða yfirverkstjóra.
Verksviö: Verkstjórn við verklegar framkvæmdir
við hafnarmannvirki og aðra mannvirkjagerð á
vegum Reykjavíkurhafnar.
Æskileg iðnaðarmenntun með framhaldsnámi.
Laun samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafé-
lags Reykjavíkurborgar.
Nánar upplýsingar gefur yfirverkfræðingur.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri
störf skulu hafa borist undirrituðum eigi síðar en
13. maí n.k.
Hafnarstjórinn í Reykjavík, 28,apríl 1983
Gunnar B. Guðmundsson.
Steinsteypupantanir
Verkstjóri okkar, sem tekur við steinsteypupöntunum.heitir Ottó Gíslason, s. 36470 eða
33600. Steypu þarf helst að panta með nokkrum fyrirvara þar eð hana þarf að framleiða
um leið og hún er afhent.
Steypustöðin hf tekur að sér að sjá um pöntun á steypudælu eða krana, ef annars er
ekki óskað.
SÆVARHÖFÐA 4, PÓSTHÓLF 245, 105 REYKJAVÍK, SÍMAR: 33600 - 34845 - 36470