Tíminn - 25.05.1983, Blaðsíða 1

Tíminn - 25.05.1983, Blaðsíða 1
■ Eusebio Eusebio meðVíkingi gegn Stuttgart ■ Portúgalski knattspyrnusnillingur- inn frá árum áður, Eusebio, sem lék með Benfica og portúgalska landsliðinu, var heimsfrægur og þótti einn besti knatt- spyrnumaður heims á 7. áratugnum, kemur hingað fil lands og leikur með Víkingi gegn Stuttgart 9. júní. Samkvæmt upplýsingum frá Guðgeiri Leifssyni, sem er einn aðalframkvæmda- stjóri Víkings í heimsóknarmálunum, mun Eusebio leika með Víkingum. Kappinn vinnur nú við þjálfun hjá Benfica, lagði skóna á hilluna fyrir allnokkrum árum. Glæsimark Óskars færði Þórsurum annað ■ Glæsilegt mark Óskars Gunnarsson- ar af 25 metra færi, færði Þór frá Akureyri jafntefli í leik liðsins gegn KR á Laugardalsvelli í gærkvöldi. Mark Óskars kom er 5 mínútur voru til leiksloka og hefði það verið ósanngjarnt ef KR-ingarnir hefðu hirt bæði stigin. Þórsarar voru betri aðilinn í þessum leik og flest hættulegustu marktækifærin voru þeirra. Helgi Bentsson átti það fyrsta, strax á 5. mínútu er Stefán Jóhannsson mark- vörður KR varði hjólhestaspyrnu hans vel. Um miðjan fyrri hálfleik náðu KR-ingar nokkrum tökum á leiknum undan vindinum og á 20jnínútu skapað- ist hætta við mark Þórs. Sæbjörn Guð- mundsson tók innkast og kastaði inn í vítateig þar sem boltinn hoppaði fyrir markið, og Óskar Ingimarson skallaði af stuttu færi í stöngina. Stuttu síðar tók KR forustuna. Erling Aðalsteinsson fékk þá boltann í vítateig Þórsara, hann sneri sér eldsnöggt við og stigið sendi hann með góðu skoti í horn Þórs-marksins án þess Þorsteinn Ólafs- son kæmi vörnurn við. Þórsarar voru með vindinn í bakið í síðari hálfleik og réðu gangi leiksins lengst af. Bjarni Sveinbjörnsson komst tvívegis í mjög góð færi á 9. og 10. mínútu en Stefán varði vel í bæði skiptin. Þá varði hann á 28. mínútu mjög vel skot Guðjóns Guðmundssonar. En inarkið hlaut að koma, og það var Óskar Gunnarsson sem skoraði það fyrir Þór. Boltanum var rennt til hans úr aukaspyrnu á 25 metra færi og fast skot Óskars fór í vinstra markhomið. Fögnuð-, ur þórsara mikill, enda verðskulduðu þeir annað stigið fyllilega. Stefán Jóhannsson markvörður KR var besti maður liðsins, en hjá Þór voru þeir bestir Árni Stefánsson og Nói Björnsson í annars jöfnu liði sem var að stíga sín fyrstu skref á grasi á þessu ári. Dómari Friðjón Eðvaldsson og átti góð- an dag. Umsjón:Samúel örn Erlinesson Landslidm gegn Spánverjum valin: „Við eigum mögu ef við náum stemmningu sagði Jóhannes Atlason landsliðsþjálfari ■ „Við eigum alveg möguleika gegn Spánverjunum, ef við náum upp góðum leik og stemmningu á vellinum", sagði lóhannes Atlason landsliðsþjálfari í knattspyrnu á blaðamannafundi sem haldinn var af KSÍ og Eimskip í gær vegna tilkynningar landsliðanna í knatt- spyrnu sem leika eiga gegn Spánverjum um næstu helgi. „Ef við náum upp stemmningsleik eins og við höfum náð upp á undanfömum árum, þá eigum við möguleika. Ég sá það þegar ég fylgdist með leik Spánverja og Möltubúa á dögunum, að Spánverjar létu mjög léleg- an völlinn á Möltu fara í taugamar á sér, þannig að aðstæðurnar hér, Laugardals- völlurinn á vori, eru okkur mjög hag- stæðar," bætti landsliðsþjálfarinn við. Á blaðamannafundinum í gær, sem haldinn var á öldum Atlantshafsins, ef svo má að orði komast, því fundurinn var um borð í einu skipa Eimskips, Álafossi, sem lá við festar í Sundahöfn, voru landsliðin tvö sem valin hafa verið vegna leikjanna við Spánverja um næstu helgi, tilkynnt. Leikið verður á laugar- dag í flokki leikmanna 21 árs og yngri, og á sunnudag í flokki A-landsliða. Leikirnir eru liður í Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu. Landsliðið er þannig skipað: lands- Markveröir: félag leikir Þorsteinn Bjarnason Í.B.K. 18 Guðmundur Baldursson Aðrir leikmenn: Fram 8 Viðar Halldórsson F.H. 21 Ólafur Björnsson ll.B.K, 3 Sigurður Lárusson Í.A. 8 Janus Guðlaugsson F.H. 25 SævarJónsson C.S. Briigge 12 RagnarMargeirsson C.S. Brögge 6 AmórGuðjohnsen Lokercn 12 Pétur Pctursson Antwerpen 16 GunnarGislason K.A. 7 ÓmarTorfason Víkingur 10 Ami Sveinsson Í.A. 38 LárusGuðmundsson Waterschei 9 Heimir Karlsson Víkingur 3 SigurðurBjörgvinsson Í.B.K. 2 Landsliðið 21 árs skipað: og yngri er þannig Markverðir: A U-21 Ögmundur Kristinsson Víkingur 2 StefánJóhannsson Aðrirleikmenn: K.R. 1 1 ÓmarRafnsson U.B.K. 1 3 llafþór Sveinjónsson Fram 2 4 Benedikt Guðmundsson U.B.K. 0 1 Erlingur Kristjánsson K.A. 2 3 Stcfán llalldórsson Víkingur 0 0 Aðalsteinn Aðalsteins. Víkingur 2 3 Jóhann Þorvarðarson Víkingur 0 0 JónGunnarBergs U.B.K. 1 2 Sigurjón Kristjánsson U.B.K. 3 3 SigurðurJónsson Í.A. 0 0 Guðmundur Toriason Fram 0 0 ÓliÞórMagnússon Í.B.K. 0 2 Sigurður Grétarsson U.B.K. 9 2 ValurValsson Valur 0 1 Bikarkeppni KSÍ í gær - sjá bls. 12 HM 1986 íknatt- spyrnu í Mexíkó ■ Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, ákvað á fundi sínum á föstudag að næsta heimsmeistarakeppni í knatt- spyrnu yrði haldin í Mexikó. Það verður árið 1986. Þetta er í fyrsta skipti sem land heldur HM í knattspymu tvisvar, áður var HM í knattspymu í Mexikó 1970. Þar með er lokið mikilli streitu milli Amerikuríkjanna um að fá keppn- ina, en Bandaríkin og Kanada lögðu mikla áherslu á að fá keppnina. Reagan Bandaríkjaforseti sendi meira að segja FIFA skeyti á föstudagsmorgun þar sem hann fór fram á að nefndin sem um málið fjallaði íhugaði vel þá mögu- leika sem Bandaríkjamenn hefðu upp á að bjóða, áður en tekin yrði afstaða. Þetta kom fyrir ekki. Nefnd FIFA sagði Bandaríkin og Kanada ekki uppfylla þær kröfur sem krafist væri, og því yrði keppnin haldin í Mexikó. Ekki voru Bandaríkjamenn hressir með þessa niðurstöðu, né heldur Kanadamenn, sem voru bjartsýnir mjög fram á síðasta dag. Bandaríkjamenn reyndu að tjalda stórum körlum, svo sem Reagan og Henry Kissinger, sem var formaður viðræðunefndar Banda- ríkjamanna. Hin fátæka þjóð Mexikó fékk keppnina, og mun vafalítið standa vel að henni, því þar eru öflug knatt- spyrnumannvirki og knattspyrna í há- vegum höfð, mikil uppáhaldsíþrótt þar í landi. Aðalástæðurnar fyrir því að keppnin fór ekki til hinna landanna tveggja eru þær að langt er þar milli keppnisstaða, og einnig mun það ekki vinsælt hjá leiðtogum knattspymuíþrótt- arinnar að Bandaríkjamenn leika eftir breyttum reglum, sem þeir hafa engan spurt um leyfi til að gera. ■ KR ingar sækja hart að Þórsmarkinu í leiknum í gær, en án árangurs. Tímamynd Árni Sæberg.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.