Tíminn - 27.05.1983, Page 1
Stjórnarsáttmálinn — Sjá bls. 9
FJÖLBREYTTARA
OG BETRA BLAÐ!
Föstudagur 27. maí 1983
119. tölublað - 67. árgangur
'.....................' ■ '
T 1H WSÍÍ I
i
, * J,
■ Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, undirritar skipunarbréf ráðherra nýrrar ríkisstjórnar á Bessastöðum síðdegis í gær. Tímamynd: Róbert
Efnahagsrádstafanir ríkisstjórnarinnar koma til framkvæmda:
FIMM BRAÐABIRGÐALðG
VERÐA GEFIN ÚT í DAG
— Gengi krónunnar verður fellt um
■ Þegar gjaldeyrisdeildir
bankanna opna á nýjan leik í
dag, verður gengi íslensku krón-
unnar 14.5 prósentustigum lægra
en það var þegar gjaldeyrisdeild-
um bankanna var lokað í fyrra-
dag. Er þessi gengisfelling ein
þeirra aðgerða sem ákveðnar
hafa verið til aðstoðar sjávarút-
veginum. Aðrar efnahagsráð-
stafanir, sem ríkisstjórnin hefur
boðað í málefnagrundvelli
sínum, verða í formi fímm bráða-
birgðalaga settar í dag.
Ér Tíminn ræddi við Steingrím
Hermannsson, forsætisráðherra
um efnislegt innihaid þessara
bráðabirgðalaga, sem ríkis-
stjórnin gengur frá á fundi sínum I
nú fyrir hádegi, sagði hann að
bráðabirgðalögin um afnám
verðbótavísitölunnar og
ákveðna verðbótaprósentu á
laun 1. júní og 1. október nk.
8% og 4% og bráðabirgðalög
um hert verðlagseftirlit á tíma-
bilinu til 1. október nk. yrðu
gefin út af honum sem forsætis-
ráðherra, en bráðabirgðalög um
kjarabætur, sem yrðu greiddar ■
úr ríkissjóði, yrðu sett af fjár-
málaráðherra. Þá yrðu sett
bráðabirgðalög af viðskiptaráð-
herra um gjaldfrest á verðtryggð-
um lánum, og síðast en ekki síst
yrðu sett bráðabirgðalög um
sjávarútvegsmál, gengismun,
kostnaðarhlutdeild og fleira sem
nauðsynlegt væri til þess að létta
á þeim vanda sem fyrir væri og
það væri sjávarútvegsráðherra
sem setti þau lög.
Steingrímur sagði að stærsti
liðurinn í bráðabirgðalögunum
um aðstoðina við sjávarútveginn
væri að sjálfsögðu það að lagður
væri niður olíusjóðurinn, auk
þess sem olíugjaldið væri lagt
niður, en samtals væru þessir
tveir þættir 17%. í stað þessara
niðurfellinga, kæmi kostnaðar-
hlutdeild, sem yrði einhversstað-
ar í kringum 25%, en það væri
ekki alveg endanlega útkljáð.
Tíminn bar undir Steingrím
gagnrýni þá sem fram hefur kom-
ið hjá launþegasamtökum og
14,5%
fleirum á efnahagsaðgeröir þær
sem boðaðar eru: „Við boðum
harðar aðgerðir í þessum mál-
efnasamningi, til þess að forða
frá þeirri mestu kjaraskerðingu
sem íslenska þjóðin hefur orðið
að þola, frá því fyrir stríðið, ef
óheft verðbólga er látin geisa
hér,“ sagði Steingrímur og bætti
við: „Það er útilokað mál, að
það væri hægt að halda atvinnu-
vegunum öllum gangandi, með
svona ársfjórðungslegum hækk-
unum. Ég vil því segja að þetta
eru aðgerðir til þess að forða
stórri kjaraskerðingu.
Það er hins vegar alveg ljóst,
að í verðbólgu eins og nú er, þá
verður að ná henni nokkuð hratt
niður til að byrja með, og slíkt
veldur vissri röskun, en við ger-
um sérstaklega ráð fyrir aðgerð-
um til þess að draga úr þeirri
röskun, hjá þeim sem minnst
mega við henni. Við viðurkenn-
um svo sannarlega að einhver
kjaraskerðing er framundan,
enda óumflýjanlegt í Ijósi þeirra
einföldu staðreynda, að afli og
þjóðartekjur hafa minnkað. En
ég leyfi mér að efast um að
kjaraskerðingin verði meiri,
heldur en hún hefði orðið, ef
ekkert væri að gert.“
Steingrímur sagði að hann
myndi leggja áherslu á að ná
fram samsföðu ,með launþegum,
en það yrði hins vegar tekið af
fullri hörku á niðurrifsöflum.
- AB
STEINGRÍMS
TEKUR VIÐ!
■ „Samkvæmt bciðni yðar,
forseti íslands, hef ég tekist á
nendur að mynda ráðuneyti, og
fengið í ráðuneyti með mér Geir
Hallgrímsson, og alþingismenn-
ina Halldór Ásgrímsson, Jón
Helgason, Alexander Stefáns-
son, Matthías Á. Mathiesen,
Ragnhildi Helgadóttur, Albert
Guðmundsson, Matthías
Bjarnason og Sverri • Hermanns-
son. í trausti þess að yður,
forseti íslands, þóknist að skipa
ofangreinda menn ráðherra í
ráðuneyti íslands, leyfi ég mér,
virðingarfyllst að leggja fyrir
yður til undirskrift’ar. skipunar-
bréf þeim til handa,“ sagði
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra m.a. á rtkisráðs-
fundi sem haldinn var að Bessa-
stöðum kl. 16.00. í gær.
Ríkisstjórn dr. GunnarsThor-
oddsen kom til Bessastaða kl.
11.00 í gærmorgun, og baðst dr.
Gunnar Thoroddsen þá lausnar
fyrir sig og ráðuneyti sitt.
Strax að loknum ríkisráðs-
fundinum síðdegis í gær var
haldinn fyrsti ríkisstjórnarfund-
ur nýrrar ríkisstjóruar undir for-
sæti Steingríms Hermannssonar,