Tíminn - 27.05.1983, Page 2
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ1983
■ Halldór Ásgrímsson og Jón Arnalds ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu.
Tímamynd Róbert
„TAKA VERÐUR
NÚ A AF FESTU
OG SANNGIRNI
— segir Halldór Ásgrímsson,
sjávarútvegsrádherra
■ „Mér er ljóst að það eru mörg
vandamál framundan í efnahagslífinu,
ekki síst í sjávarútveginum," sagði Hall-
dór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra,
er Tíminn spurði hann hvernig starf
sjávarútvegsráðherra legðist í hann, en
Halldór tók við því embætti síðdegis í
gær.
„Sjávarútvegurinn er jú sú undirstaða,
sem við byggjum á að langmestu leyti,“
sagði Halldór, „og það er því mikilsum-
vert að þessi atvinnugrein gangi vel.
Fólkið í landinu getur ekki lifað eðlilegu
lífi, nema þessi atvinnugrein sé bærilega
blómleg. Nú er þannig ástatt í landinu,
að afli hefur minnkað nokkuð, og þarf
því að gera ráðstafanir sem nauðsynlegar
eru til að þessi atvinnugrein geti haldist
gangandi. Mitt fyrsta verkefni verður að
standa að slíku. Ég er hins vegar sann-
færður um það, að íslenskur sjávarútveg-
ur á sér mikla og bjarta framtíð, ef vel
er á haldið, en til þess að svo megi verða,
verður að taka nú á, af festu og sann-
girni, þannig að þessi atvinnugrein geti
haldið áfram að vera langstærsti stólpinn
í þjóðarbúi íslendinga.,,
-AB
Dagbjört
rrVandamálin
ekki leyst nema
með samstarfi”
— segir Albert Guðmundsson,
fjármálaráðherra
af góðum manni, Ragnari Arnalds, og
vona að ég verði eins farsæll í starfi og
hann,“ sagði Albert.
- Munt þú áfram verða forseti borgar-
stjórnar?
„Ég reikna með að tala um þau mál
við borgarstjóra við fyrsta tækifæri og
býst við að þá verði gengið svo frá að
allir geti vei við unað,“ sagði Albert
Guðmundsson. -Sjó.
■ „Ég geri mér ljóst að hin gífurlegu
vandamál sem að steðja verða ekki leyst
nema með góðu innra samstarfi í ríkis-
stjórninni og samstarfi stjórnarinnar við
fólkið í landinu,“ sagði Albert Guð-
mundsson, fjármálaráðherra nýju ri'kis-
stjórnarinnar.
„Hvað mitt ráðuneyti varðar verða
efnahagsmálin og náttúrlega staða ríkis-
sjóðs helstu viðfangsefnin. En ég tek við
■ „Það var óvænt ánægja að sjá þig hér - en þú verður að fyrirgefa að það stendur
B á lyklinum, en það er vegna þess að framsóknarmenn sátu svo lengi í ráöuneytinu,"
sagði Ragnar Arnalds uni leið og hann afhenti nýja fjármálaráðherranum, Albert
Guðmundssyni, lyklana.
Tímamynd GE.
Stúlkan
komin
fram
■ Stúlka sú sem hvarf á laugardag
á leiðinni milli Stokkseyrar og
Reykjavíkur og lýst var eftir er
kornin fram.
Að sögn lögre'glunnar á Selfossi
mun stúlkan hafa hringt heim til sín
og látið vita að alit væri í lagi með sig
en nánari upplýsingar hafði lögreglan
ekki er við ræddum við hana í
gærkvöldi.
Stúlkan heitir Inga Jóna Gunn-
þórsdóttir, 16 ára, til heimilis að
Engjaseli 12 á Stokkseyri.
- FRI
„Þarf strax
aðgerðir í hús-
næðismálum”
— segir Alexander Stefánsson,
félagsmálarádherra
■ „í fljótu bragði sýnist mér að hús-
næðismálin verði stærstu viðfangsefnin í
mínu ráðuneyti. Það þarf strax að ná
samkomulagi um aðgerðir til að koma
þeim málum í viðunandi horf,“ sagði
Alexander Stefánsson, félagsmálaráð-
herra. „Hins vegar er við fleiri viðfangs-
efni að fást, t.d. á sviði sveitastjórnar-
mála, en þeim er ég sem betur fer vel
kunnugur. Þá má nefna málefni fatlaðra,
fjölskyldumál og sitthvað fleira."
- Ertu bjartsýnn á að stjórnin nái
árangri í efnahagsmálum?
„Þetta byggist náttúrlega allt á traustu
samstarfi þeirra semtakast á viðverkefnin
og fólksins í landinu. Auðvitað verður
maður að vera bjartsýnn á að það
takist,“ sagði Alexander. -Sjó.
■ Svavar Gestsson býður eftirmann sinn, Alexander Stefánsson, velkominn til
starfa í félagsmálaráðuneytinu.
Tímamynd. GE.
„Tel alla rádherra eiga að
ráða sér aðstoðarmerm”
— segir Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra
■ „Það er óhjákvæmilegt annað, en ég
ráði mér aðstoðarmann, en ég hef nú
ekki hugleitt enn hver það ætti að vera,“
sagði Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra er Tíminn spurði hann í
gær hvort hann hygðist ráða sér aðstoð-
armann að embætti forsætisráðherra.
„Ég er þeirrar skoðunar að allir ráð-
herrar eigi að ráða sér aðstoðarmenn,
því' þetta cr svo mikið starf," sagði
forsætisráðherra.
Tíminn spurði fleiri nýju ráðherranna
hvort þeir hefðu hugleitt hvort þeir
myndu ráða sér aðstoðarmenn. Jón
Helgason, landbúnaðar- dóms- og
kirkjumálaráðherra sagðist ekki hafa
tekið neina ákvörðun um það; Alexand-
er Stefánsson, félagsmálaráðherra sagð-
ist ekki hafa ákveðið neitt í þessu efni,
en hann sagðist búast við því að ráða sér
aðstoðarmann, en það yrði þó ekki fyrr
en að vandlega yfirlögðu ráði, með
hliðsjón af þeim verkefnum sem upp
kæmu á fyrstu vikunum í félagsmála-
ráðuneytinu. Þeir Albert Guðmundss
fjármálaráðherra og Sverrir Hermam
son, iðnaðarráðherra höfðu ekkert
kveðið í þessum efnum, og herma heii
ildir Tímans að svo sé málum jafnfrai
háttað um aðra ráðherra Sjálfstæð
flokksins.
Höskulds-
dóttir:
Margir
óhressir
með
stjórnar-
sam-
starf ið
■ „Ég vil að það komi fram að það
var mikill fjöldi miðstjórnarmanna
Framsóknarflokksins sem sátu hjá
viö atkvæðagreiösluna utn stjórnar-
samstarfið og eru óhressir með það
aö Framsóknarflokkurinn skuli nú
ganga til stjórnarsamstarfs við Sjálf-
stæðisf!okkinn,“ sagði Dagbjört
Höskuldsdóttir frá Stykkishólmi, í
samtali við Tímann í gær, en hún á
sæti í miðstjórn Framsóknarflokks-
ins.
„Það eru cinkum þeir menn sem
starfa innan verkalýðshreyfmgarinnar
sem eru uggandi vegna þessa stjórn-
arsamstarfs. Ekki það að ntenn
viðurkenni ekki nauðsyn þess að
gripiö verði til efnahagsráðstafana
eins og staðan cr, en það verður að
segjast cins er að ntargir framsóknar-
ntenn eru lítið hrifnir af því að
mynduð sé stjórn með Sjálfstæðis-
flokknum.
- JGK
Þmg
kallað
saman
íhaust
■ „Ég geri ekki ráð fyrir að' þing
vcrði kallað santan fyrr en á cðli-
legum tíma, cða KUtktóber í haust,"
sagði Stcingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra, cr Tíminn spurði
hann í gær, hvort það hefði eitthvað
verið rætt í ríkisstjórninni hvenær
ætti að kalla Alþingi saman.
Steingrímur sagði aðspurður að
um þctta væri samkomulag í ríkis-
stjórninni.
' - AB