Tíminn - 27.05.1983, Side 3
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ1983
3
fréttir
íbúasamtök
Grjótaþorps:
„Þolin-
mæði
okkar er
senn á
þrotum”
■ Ibúasamtök Grjótaþorps hafa boðað
borgarstjóra og borgarráðsmenn til
fundar við íbúana að Grjótagötu 5,
föstudagskvöldið 27. maí kl. 22:00.
í bréfi frá samtökunum segir að þann
1. nóv. sl. hafi birst í dagblöðunum
auglýsing frá borgarstjóranum í Reykja-
vík, þar sem vakin var athygli borgarbúa
þ.m.t. íbúasamtaka, á að koma með
óskir og ábendingar vegna gerðar fjár-
hagsáætlunar fyrir árið 1983. í framhaldi
þessarar auglýsingar sendu samtökin
borgarstjóra bréf með óskum íbúanna
um framkvæmdir í þorpinu. '
Pann 6. maí sl. barst svo bréf frá
borgarstjóra við óskum þessum en engin
þeirra var þar tekin til greina. í bréfinu
segir að íbúasamtökin harmi þessar
undirtektir og lýsa furðu sinni á því að
fyrst skuli auglýst eftir tillögum en síðan
öllum neitað. íbúarnir segjast þó ætla að
gera úrslitatilraun til að ná samstarfi við
borgaryfirvöld með því að bjóða þeim
borgarráðsfulltrúum til fundar að
Grjótagötu 5, eins og áður greindi.
Athygli er vakin á tímasetningu fundar-
ins, en hún er sérstaklega valin til þess
að borgarráðsfulltrúar fái ef til vill betri
innsýn í þau vandamál sem við er að etja
í Grjótaþorpi.
-ÞB
Langbylgju-
stöðin áfram
fjarlægur
draumur:
Vatns-
endastöð-
in sífellt
hrörlegri
■ „Þetta er eitt af þeim þarfaverkum
sem bíða síns tíma,“ sagði Hörður
Vilhjálmsson fjármálastjóri Ríkisút-
varpsins þegar Tíminn spurði hann hvað
miðaði með byggingu nýrrar langbylgju-
stöðvar fyrir útvarpið austan fjalls, sem
hugmyndir hafa lengi verið uppi um.
„Til að koma á fót þessari stöð þarf
gífurlegt fjármagn og við höfum ekki séð
hana sem viðráðanlegt verkefni ennþá.
Það hafa farið fram nokkrar undirbún-
ingsrannsóknir, en meira hefur ekki
gerst í málinu. Hins vegar er þetta
ákaflega brýnt verkefni og sameiginleg
þörf sem á það kallar frá mörgu tilliti.
Fyrst er að nefna að þetta myndi ópna
útsendingarleið ef FM kerfið brygðist,
en það byggir eins og kunnugt er á
nokkurs konar þrepaflutningi frá einum
sendi til annars um landið. Langbylgju-
stöð yrði hins vegar svo langdræg að hún
myndi nýtast öllum landsmönnum ef FM
og örbylgjukerfið færi út. Þannig er hún
mjög mikilvæg vegna öryggismála þjóð-
arinnar og eins vegna miðanna í kringum
landið."
- Hvernig er ástandið á langbylgju-
stöðinni á Vatnsenda?
„Stöðin þar var reist árið 1929 og nú
hefur ekkert verið gert fyrir hana í mörg
ár. Möstrin halda áfram að ryðga og eru
orðin mjög illa farin af ryði. Þetta felur
í sér vissa áhættu. En ein ástæðan fyrir
því að viðhald á möstrunum er í algeru
lágmarki er kannske sú að menn eru
alltaf að gæla við hugmyndir um nýja
langbylgjustöð".
-JGK
imissan
Við einir bjóðum
verðbólgunni og gengis-
fellingum byrginn
Við bjóðum þér:
NISSAIM STANZA luxus fjölskyldubíl á gamla
verðinu (Gengi 24.5.'83) eins og engin gengisfell-
ing hafi orðið.
Býður nokkur betur?
Við bjóðum þér:
NISSAN CABSTAR vöru-eða sendibíl á grind
á gamla verðinu (Gengi 24.5. '83) eins ogengin
gengisfelling hafi orðið.
Býður nokkur betur?
Við bjóðum þér:
Alla NISSAN CHERRY bíla og
Alla NISSAN SUNNYbíla
sem voru bankaborgaðir fyrir 24.5. '83
Býður nokkur betur?
Nú er að hrökkva eða stökkva
fyrir þá sem ekki sáu við síðustu gengisfeilingu.
VIÐ BJOÐUM BETUR
INGVAR HELGASON HF ■ Sími 33560
SÝNINGARSALURINN / RAUÐAGERÐI
o NISSAN