Tíminn - 27.05.1983, Síða 4
FOSTUDAGUR 27. MAI1983
Samsöngur
Söngfélag Skaftfellinga og kór Rangæingafélags-
ins í Reykjavík halda sameiginlegasöngskemmt-
un í tilefni 10 ára afmælis Söngfélags Skaftfell-
inga laugardaginn 28. maí kl. 15 í Skaftfellinga-
búö aö Laugavegi 178.
Kjarnaborun
Tökum úr steyptum veggjum fyrir hurðir, lottræstingu, glugga,
og ýmisskonar lagnir, 2", 3", 4", 5", 6" og 7" borar.
HLJOÐLÁTT OG RYKLAUST. Fjarlægum múrbrotið, önnumst
ísetningar hurða og glugga ef óskað er. Hvert á land sem er.
Skjót og góð þjónusta.
Kjárnaborun sf.
Símar 38203-33882
Sími 44566
RAFLAGNIR
Nýlagnir - Breytingar - Viöhald Æf
samvirkÍHV
Skemmuvegi 30 — 200 Kópavogur.
BilaleiganÁS
:ar RENTAL
29090 DAIHATSU
REYKJANESBRAUT 12 REYKJAVIK
Kvöldsími: 82063
Tungumálanámskeið
og íræðsluþættir
á
myndböndum
íSítW^
2. Paint - Llstmálun
Geturþú málað? Stærsta Ijón-
ið í veginum er e.t.v. einhvers
konar hræðsla vlð að byrja.
John FitzMaurice Mills sýnir
hór hvemig hægt er að „byrja"
á einfaldan hátt.
T. NMftMy- með-
ganga og fœðing
Sáriega áhugavert eríndi um
verðandi fomtda og með-
gönguna. Fylgst er meö ffit-
um verðandi foreldrum á með-
göngutímanum.
2. Buslness
Skemmtilegar æfingar og út-
skýringar á ensku viðskipta-
og verslunarmáli.Æfingamar
byggja á kennslubók, hljóö-
kassettu og myndbandi.
SnftbjörnJícnmtm&Q>.h.f.
Hafnarstræti 4 og 9 símar 11936 og 14281
Akureyrarumboð: Bókval
fréttir
Aðalfundur Kaupfélags Skaftfellinga:
Mótmælir stórhertum
innheimtuaðgerðum
Áburðarverksmiðjunnar
— Afleiðingarnar stórfelldur samdráttur i heyöflun
Skaftafellssýsla: Afkoma kaupfélags
Skaftfellinga batnaði í heild á síðasta
ári frá árinu 1981, að því er fram kom
á aðalfundi félagsins sem nýlega var
haldinn að Kirkjubæjarklaustri. Heild-
arvelta félagsins var 88,6 millj. króna
á síðasta ári og hafði hækkað um 62%
milli ára. Hagnaður nam 413
þús.króna eftir að afskrifaðar höfðu
verið um 2 milljónir króna. Stærsta
vandamálið í rekstrinum var sagt vera
hinn gífurlegi fjármagnskostnaður,
sem hækkaði um 53% frá fyrra ári.
Bókfærð fjármagnsgjöld námu 606
þús. krónum.
Alls komst 181 maður á launaskrá
hjá félaginu á s.l. ári, en fastir starfs-
menn um síðustu áramót voru 90.
Launagreiðslur á árinu námu um 12
millj. króna. Fjárfestingar á árinu
námu 2.231 þús. krónum.
Aðalfundurinn samþykkti harðorð
mótmæli gegn þeirri ákvörðun Aburð-
arverksmiðju ríkisins, að ofan á stór-
hækkað áburðarverð skuli nú eiga að
herða innheimtuaðgerðir við bændur
freklega frá því sem verið hefur, þar
sem samkvæmt tilkynningu skuli
áburður greiðast að hálfu fyrir lok maí
og síðari helmingurinn í ágústlok.
Augljóst sé að slíkar skuldbindingar
geti bændur ekki staðið við.
„Afleiðingin mun því vcrða stór-
felldur samdráttur í heyöflun og í öðru
heimafengnu fóðri. Skorar fundurinn
því á stjórn verksmiðjunnar að þessu
verði tafarlaust breytt, svo að greiðslu-
byrði verði ekki þyngri en verið hefur
hingað til“, segir í samþykktinni.
Formaður Kaupfélags Skaftfellinga
er Jón Helgason í Seglbúðum. í stjórn
voru endurkjörnir: Valur G. Odd-
steinsson í Úthlíð, Sigurður Ævar
Harðarson í Vík og Tómas Pálsson á
Litlu-Heiði. Kaupfélagsstjóri er
Matthías Gíslason.
- HEI
■ Lúðrasveit Grunnskólans í Borgamesi hefur komið fram opinberlega 25 sinnum frá síðustu áramótum við margskonar
tækifæri í heimahéraði. Tímamynd Ragnheiður
Lúðrahljómur í Vestmarmaeyjum um næstu helgi:
Sextán unglingalúðra-
sveitir á móti í Eyjum
Borgarnes/Vestmannaeyjar: Mót ung-
lingalúðrasveita verður haldið í Vest-
mannaeyjum dagana 27. til 29. maí
n.k. Sextán lúðrasveitir víðs vegar að
af landinu hafa látið skrá sig til þátt-
töku í mótinu.
Meðal þátttakenda er Lúðrasveit
Grunnskólans í Borgarnesi, sem sett
var á laggirnar í ársbyrjun 1981. Hljóð-
færaleikarar eru nú 23.
Lúðrasveitin leikur við margskonar
tækifæri í heimahéraði. T.d. hefur húr
komið fram opinberlega alls 25 sinnum
frá síðustu áramótum. Fyrsti stjórn-
andi lúðrasveitarinnar var Rúnar
Georgsson saxófónleikari. Núverandi
stjórnandi er Björn Leifsson.
- HEI
Aðalfundur Kaupfélags Suðurnesja:
Nær 1,4 milljóna
tekjuafgangur
á síðasta ári
Keflavik: Afkoma Kaupfélags Suður-
nesja var góð á árinu 1982, að því er
fram kom í skýrslu Gunnars Sveinsson-
kaupfélagsstjóra á aðalfundi félagsins
hinn 14. þ.m. Heildarsala Kaupfélags-
ins var tæpar 164,4 millj. króna, með
söluskatti og var það aukning um
66,5% frá'árinu áður. Tekjuafgangur
ársins varð 1.381.324 krónur og var
honum ráðstafað þannig að 1.170.000
kr. voru lagðar í stofnsjóð, 146.240 kr.
í varasjóð og65 þús. kr. sem eftirstöðv-
um til næsta árs. Eigið fé félagsins er
nú röskar 32,4 milljónir króna.
Fjárfesting félagsins í sölubúðum,
áhöldum og innréttingum var röskar
12.7 millj. króna á árinu, að meðtalinni
fjárfestingu við byggingu hins nýja
stórmarkaðar félagsins Samkaupa.
Mikil umræða fór fram á fundunum
um hínn nýja stórmarkað. Lýstu fund-
armenn ánægju sinni með framkvæmd-
ina og væntu þess að þetta mikla átak
félagsins yrði Suðurnesjamönnum
öllum til hagsbóta.
Aðalfundurinn samþykkti gjafir til
fclags- og menningarmála til eftirtal-
inna aðila: í orgelsjóð Útskálakirkju
20 þús. kr., til Körfuknattleiksdeildar
Í.B.K. 20 þús. kr., til safnaðarheimilis
í Grindavík 20 þús. kr., til Golfklúbbs
Suðurnesja vegna húsbyggingar 40
þús. kr. og til Starfsmannafélags
K.S.K. 75 þús krónur.
Fundinn sátu 90 af þeim 118 fulltrú-
um sem rétt áttu til fundarsetu úr 6
félagsdeildum, ásamt stjórn og fleiri
félagsmönnum. Svavar Árnason gaf
ekki kost á sér til endurkjörs í stjórn
félagsins og var Sæunn Kristjánsdóttir
kosin í hans stað, en endurkjörnir voru
Sigurður Brynjólfsson og Ólafur
Eggertsson, sem einnig áttu að ganga
úr stjórn að þessu sinni.
Hjá Kaupfélagi Suðurnesja var slát-
rað 9.294 fjár á s.l. hausti. Meðalþungi
dilka var 12,9 kg., sem er3,l% minna
en ári áður. - HEI