Tíminn - 27.05.1983, Blaðsíða 12
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ1983
Eitt ár síðan fyrsti vistmaðurinn kom í Sunnuhlíð:
Ný söfnun í gangi til
aðfuilgera kjallarann,
— þar sem verður verndaður vinnustaður fyrir öryrkja og aldraða.
■ Soffía Eygló Jónsdóttir, sem unnið hefur fyrir hjúkrunarheimilið í 4 ár, en er nú
nýlega hætt, færði Þórði á Sæbóli fyrstu páskaliljurnar ór garðinum sínum í tilefni
dagsins. Við borðið sitja f.v. Helga Sveinsdóttir kona Þórðar, á Sæbóli, Kristján
Júlíusson, ísleifur Hannesson og Gunnar Árnason. (Tímamynd Anna)
Kópavogsbúa og stefnt er að því að
safna 1 milljón króna. Það samsvarar að
meðaltali 300 krónum á hvert heimili.
Samhygð sú, sem Kópavogsbúar hafa
sýnt við byggingu Sunnuhlíðar er einstök
í sögu félagsmála á íslandi og þótt víðar
væri leitað og ef vel tekst til með
söfnunina nú verður hafin full starfsemi
í kjallaránum á Sunnuhlíð seinni hluta
þessa árs.
Framkvæmdastjóraskipti urðu í
Sunnuhlíð 1. mars s.l. Þorgeir Runólfs-
son tók þá við starfinu af Hildi Hálfdán-
ardóttur. Hjúkrunarforstjóri í Súnnu-
hlíð er Rannveig Þórólfsdóttir og yfir-
læknir Guðsteinn Þengilsson.
■ Myndin er fr^J. degi hægrí umferðar á íslandi, 26. maí 1968.
SYNUM MEIRI AÐ-
GÁT í UMFERÐINNI
15 ár liðin frá því að hægri umferð hófst hér á landi.
■ 25. maí var eitt ár liðið frá því að
fyrsti vistmaðurinn kom í Sunnuhlíð,
hjúkrunarheimili aldraðra í Kópavogi.
Það var Þórður Þorsteinsson, hrepp-
stjóri, á Sæbóli. Á miðvikudag héldu
vistmenn og starfsfólk upp á daginn með
því að hafa vöfflur með rjóma með
kaffinu, en starfsfólk í eldhúsi gaf vöfflu-
járnið til Sunnuhlíðar einmitt á þessum
degi. Sunnuhlíð er ekki vistheimili fyrir
langlegusjúklinga heldur fyrst og fremst
hjúkrunarheimili, sem á að veita tíma-
bundna hjálp þeim öldruðum, sem veikir
eru. Óhjákvæmilega er þó nokkur hluti
vistmanna langlegusjúklingar. Frá því
stofnunin tók til starfa í fyrra og til
aprílloka í ár voru legudagar alls 12.166.
Alls voru 159 sjúklingar lagðir inn og 120
útskrifaðir. En þótt sjúklingar séu út-
skrifaðir þýðir það ekki að Sunnuhlíð
hafi sleppt af þeim hendinni. Þvert á
móti er vel fylgst með líðan þeirra m.a.
í gegnum heimahjúkrun og heimilis-
hjálp, og margir koma aftur og aftur.
Þessar upplýsingar er að finna í
fréttabréfi sem heitir Við byggjum
hjúkrunarheimili aldraðra í Kópavogi
og er nýkomið út. Þar er einnig sagt frá
því að nýtt átak fyrir öryrkja og aldraða
í Kópavogi er að hefjast við að fullgera
húsið. Innrétta á 450 fermetra rými í
kjallara, sem margfaldar gildi Sunnu-
hlíðar bæði fyrir vistmenn og eins fyrir
öryrkja og aldraða, sem eru utan heimil-
isins. í kjallara Sunnuhlíðar á að vera
verndaður vinnustaður fyrir öryrkja og
aldraða, sem Kópavogsbær mun sjá um
rekstur á, sextíu manna salur fyrir fundi
og félagsstarfsemi og bókasafn og
geymslur fyrir heimilið.
Sendir hafa verið út gíróseðlar til
■ í gær voru liðin 15 ár frá því að hægri
umferð hófst hér á Jandi. Árið 1983 er
norrænt umferðaröryggisár og Umferð-
arráð skorar á landsmenn að nota í
auknum mæli brosið góða frá tímum
H-umferðarinnar og leitast við með
breytni sinni á daglegri vegferð að laða
fram jákvætt viðhorf allra vegfarenda.
Á þann hátt minnumst við 15 ára afmælis
hægri umferðar best.
Tala látinna í umferðarslysum varð
mún lægri en önnur ár árið 1968, þegar
hægri umferðin tók gildi, en þá létust 6
manns í umferðarslysum. Næsta ár létust
tólf í umferðarslysum og næstu ár þar á
eftir er talan komin upp fyrir 20 manns
og hefur ekki farið niður fyrir það síðan
nema árið 1976, en þá var talan 19. Það
er auðséð af línuritinu, sem hér fylgir að
aukin aðgát í umferð þarf að koma til.
Allir ökumenn eiga að haga sér eins og
þeir gerðu árið 1968 og helst betur.
Kæruleysi í umferð er orðið allt of
algengt og þjóðir Norðurlanda hafa nú
ákveðið að gera sameiginlegt átak til
þess að draga úr hættu í umferðinni. Hér
á landi hófst ,',Norræna umferðaröryggis-
árið“ með ráðstefnu, er Samband ís-
lenskra sveitarfélaga, Umferðarráð og
fleiri héldu í febrúar. í grein eftir Bjöm
Friðfinnsson í tímaritinu Sveitarstjórn-
armál segir m.a.: Því hefur verið haldið
fram að um 3/4 hluta umferðarslysa megi
rekja til mistaka ökumanna, en 1/4 hefði
mátt koma í veg fyrir með endurbótum
á umferðarmannvirkjum. Slík skipting
hlýtur ætíð að orka tvímælis, en ljóst er,
að sveitarstjórnir og yfirvöld vegamála
geta gert margt til þess að draga úr
slysahættu. Er tvískipting þjóðvega á
blindhæðum líklega besta dæmið um
þetta, en með tiltölulega ódýrum að-
gerðum, sem vegaverkstjóri einn átti
upptökin að, tókst að fækka slysum
verulega við slíkar aðstæður. Við getum
aldrei útilokað umferðarslys, en við
getum fækkað þeim stórlega, það sýnir
reynslan frá gildistöku hægri umferðar.
eidhúshornið ■
Marengskaka með súkku-
laðikremi
Marengs:
6 eggjahvítur,
300 gr flórsykur,
1 matsk. edik,
Krem: ,
200 gr smjðr,
200 gr flórsykur,
2 eggjarauður,
100 gr suðusúkkulaði.
■ Eggjahvíturnar eru stífþeyttar og
sykur og edik þeytt saman við. Marengs-
ið er sett í tvö eða þrjú mót með lausum
botni. Bakað við 125 gráðu hita, þar til
það er orðið þurrt og síðan kælt á rist.
Kremið er hrært á meðan úr mjúku
smjörinu, flórsykrinum, eggjarauðum
og bráðnu súkkulaði. Setjið kremið á
milli botnanna, ofan á kökuna og utan á
hliðarnar og kælið kökuna, þar til krem-
ið hefur stífnað. Kakan er síðan skreytt
með rifnu súkkulaði og flórsykri.
Terta með eplamauki
125 gr smjör,
125 gr sykur,
3 eggjarauður,
200 gr hveiti,
1 tsk. lyftiduft,
4 matsk. rjómi,
1 matsk. vanillusykur,
Marengs: 3 eggjahvítur og 125 gr sykur.
Fylling: Eplamauk og 2 dl þeyttur rjómi.
■ Hálfbræðið smjörið og hrærið vel
með sykrinum. Hrærið einni eggjarauðu
út í í einu, síðan hveiti og lyftidufti og
rjóma og vánillusykri. Skiptið deiginu í
tvö mót með lausum botni og bakið
kökurnar í ca. 20 mín. við 175 gráðu
hita. Þeytið á meðan eggjahvíturnar,
bætið sykrinum í og skiptið eggjamass-
anum yfirkökumar tvær. Bakið áfram í
um 20 mínútur við sama hita. Takið
kökurnar úr mótunum og kælið þær. Þær
eru síðan lagðar saman með þykku lagi
af eplamauki og þeyttum rjóma.