Tíminn - 27.05.1983, Side 20
Opið virka daga
9-19
taugardaga 10-16
HEDD“
Skemmuvegi 20 Kopavogi
Simar (91)7 75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land allt
Ábyrgð á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
SAMViNNU
TRYGGINGAR
&ANDVAKA
ARMULA3 SIMI 81411
.1S'
W
abriel
HÖGGDEYFAR
Hamarshöfða 1
m _ _ i | . • namarsnoic
Qjvarahlutir s.miaesio.
„VERDBÓLGUVANDINN EKKI
LEYSTUR MEÐ ROTHÖGGI”
■ „Ég held að það sé engin
forsenda til þess nú að gera sér
upp hugmyndir um hvernig
brugðist verður við, en hugur
manna kom vel fram í ályktun,
sem samþykkt var samhljóða á
miðstjórnarfundinum í dag,“
sagði Ásmundur Stefánsson,
forseti ASI, þegar hann var
spurður um viðbrögð verkalýðs-
hreyfingarinnar við efnahagsað-
gerðunum sem ríkisstjórn
STÓRMERKUR
DAGUR HJÁ
FJÖLSKYLDUNNI
■ „Þetta pr auðvitað stórmerk-
ur dagur hjá fjölskyldu okkar,“
sagði Steingrímur Hermanns-
son, þegarTímamenn hittu hann
ásamt fjölskyldu fyrir utan Há-
skólabíó laust eftir kl. 15.30. í
gær, en hann og fjölskylda hans
höfðu þá verið við skólaslit
Menntaskólans í Reykjavík, þar
sem sonur Eddu og Steingríms,
Hermann Ölvir útskrifaðist sem
stúdent.
„Þetta er svona merkur dagur
hjá okkur, þar sem sonur okkar
útskrifast sem stúdent og ég held
upp á 35 ára stúdentsafmæli
rnitt, en ég er einnig stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík,"
sagði Steingrímur og vart þarf að
taka það-fram að sjálfsagt það„
allramerkasta við þennan dag,
hjá þessari fjölskyldu, var það
að aðeins hálftíma eftir að
Steingrímur hafði verið við út-
skrift sonar síns í Háskólabíói,
var hann kominn með skipun-
arbréf forseta íslands í hendurn-
ar um að hann væri orðinn
forsætisráðherra íslands.
- AB
■ Hjónin Stcingrímur Her-
mannsson og Edda Guðniunds-
dóttir með soninn Hermann
Ölvir, nýútskrifaðan stúdent á
milli sín og systkini Hermanns
Ölvirs þau Guðmundur og Hlíf.
Tímamynd - Róbert
segir Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ
Steingríms Hermannssonar hef-
ur boðað.
I ályktun miðstjórnar ASÍ
segir: „Ný ríkisstjórn er tekin
við völdum. Þær aðgerðir sem
hún hefur boðað sýnast aðmegin-
■ efni snúast um afnám samnings-
réttar um kaup og' kjör og kaup-
máttarskerðingu tvöfalt til þre-
falt meiri en sem nemur sam-
drætti þjóðartekna síðastliðin tvö
ár. Stefnt virðist að því að um
næstu áramót verði kaupmáttur
um fjórðungi lakari en á síðasta
ári,
Ekki verður séð að mótuð hafi
verið samræmd atvinnustefna,
þannig að enn á ný er kjaraskerð-
ing eina svarið til þjóðarinnar.
Verkalýðshreyfingin mótmæl-
ir þessum aðgerðum harðlega og
miðstjórn A.SÍ. samþykkir að
boða til formannaráðstefnu 6.
júní næst komandi."
„Ég held að það sé ljóst að
verðbólguvandinn verður ekki
leystur með einu rothöggi og
ekki með aðgerðarleysi atvinnu-
leysis. Málið allt hefur samhengi
svo ég held að það verði að
takast á við þann vanda sem við
er að etja á breiðari vettvangi en
að keyra einhlítt á almenn kjör
eins og nú virðist á döfinni.
Annars er erfitt að meta stöð-
una svo vel sé meðan málefna-
samningur stjórnarinnar hefur
ekki verið birtur. Við höfum
reynt að fá hann í allan dag en
verið sagt að hann væri ekki
tilbúinn, “sagði Ásmundur.
- Sjó
dropar
Yerkfræðingar
fyrstir
■ Það vekur athygli, að í
kjölfar þeirra efnahagsráðstaf-
ana sem nýviðtekin ríkisstjórn
hefur ákveðið og fela í sér
töluverða kjaraskerðingu fyrir
launamcnn, þá skuli verk-
fræðingar verða fyrstir manna
til að mótmæla þeim. Á aöal-
fundi Kjarafélags verkfræð-
inga sem haldinn var í fyrra-
kvöld var lýst yfir eindreginni
andstöðu við fyrirætlanir vænt-
anlegs meirihluta á Alþingi um
„stórfellda kjaraskerðingu hjá
launafólki“. Öðruvísi Dropum
áður brá.
Páll ekki
umsækjandi
■ Páll Heiðar Jónsson hafði
samband við blaðið í gær, og
tjáði það rangt.sem fram kom
í þessum dálki í gær, að hann
hefði sótt um starf á deiid
erlendra frétta á sjónvarpinu.
Hér hefur heimildarmanni
Dropa greinilega orðið á í
messunni, og er Páll Heiðar
beðinn velvirðingar á þessum
mistökum.
Sverrir
samur við sig
■ Þcir sem til þekkja, vita að
Sverrir Hermannsson, er ein-
staklega fljótur að svara fyrir
sig, og oftast gerir hann það á
afar hnyttinn hátt.
Það vakti til að mynda
kátínu fréttamanna, sem biðu að
Bessastöðum í gær, eftir fregn-
um af fyrsta ríkisstjómarfundi
ríkisstjórnar Steingríms Her-
mannssonar, þegar einn frétta-
mannanna spurði Sverri, þar
sem hann skaust í gegnum
fréttamannaþvöguna, til að
skreppa í síma, hvað annað
hefði gerst á þessum ríkis-
stjórnarfundi en það að forseti
íslands hefði undirritað skip-
unarbréf ríkisstjórnarinnar, að
Sverrir svaraði með eftirfar-
andi orðum: „Mér dettur ekki
í hug, að byrja á því núna strax
að hafa orð fyrir ríkisstjórn-
inni. Það er alltof snemmt!“
Menntamála-
ráðuneytið:
Knútur
ráðu-
neytis-
stjóri
■ „Ég hef nú unnið í þessu
ráðuneyti í 30 ár og verið
staðgengill ráðuneytisstjórans
i 20 ár, svo að ég orðinn
sæmilega kunnugur öllum
hnútum þar og það verður ekki
svo stór breyting á hjá mér þótt
ég taki nú við starfi ráðuneytis-
stjóra," sagði Knútur Hallsson
í samtali við Tímann í gær, en
í gær skipaði Ingvar Gíslason
Knút í stöðu ráðuneytisstjóra
menntamálaráðuneytisins frá
1. ágúst n.k. að telja en þá
lætur Birgir Thorlacius af störf-
um við ráðuneytið.
Birgir Thorlacius hóf störf í
stjómarráðinu árið 1935 og
hefur verið ráðuneytisstjóri í
menntamálaráðuneytinu síðan
1947.“ Ég er rétt að komast inn
í þetta“ sagði Birgir í gær
þegar hann tók á móti nýja
menntamálaráðherranum,
Ragnhildi Helgadóttur í ráðu-
neytinu í gær.
11 umsækjendur voru um
starf ráðuneytisstjórans. -JGK
Madur
handtekirm
við toli-
skoðun
í Keflavík:
Var meö
töluvert af
amfetamíni
innvortis
■ Tæplega fertugur maður
var handtekinn í Keflavík fyrr
í vikunni þar sem í fórum hans
fannst amfetamín við venju-
lega tollleit. Var maðurinn
fluttur á lögreglustöðina í
Keflavík til yfirheyrslu og þá
kom í ljós að hann hafði tölu-
vert magn af amfetamíni inn-
vortis.
Að sögn Gísla Björnssonar
var farið fram á gæsluvarðhald
yfir manninum og var hann
úrskurðaður í 21 dags
varðhald.
Gísli sagði einnig að rann-
sókn þessa máls væri það ný-
hafin' að ekki væri hægt að
greina nánar frá einstökum
latriðum. -FRI
Krummi
...ætli tannlæknar og Hæsta
réttardómarar verði ekki næst
ir til að mótmæla á eftir verk
fræðingunum