Tíminn - 12.06.1983, Side 2

Tíminn - 12.06.1983, Side 2
2 SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1983 Rabbað við Birgi Þorgilsson hjá Ferðamálaráði í tilefni þess að fyrstu ferjuferðirnar til landsins voru ná í vikunni: BILALEIGUR MUNU TAPA Á EDDUNNI Ferðaskrifstofurnar taka höndum saman um sameiginlegt sólarlandaflug: Svar þeirra — því bOaleigukostnaðurinn er helmingi meiri hér en í Bremerhaven, og farþegar Eddunnar leigja því frekar bílana þar og flytja ókeypis til íslands A faralds fæti ■ Birgir Þorgilsson markaðsstjóri Ferðamálaráðs nær náttúrlega ekki nokkurri átt. Þú þarft ekki annað en skreppa í reiðtúr, svona 5 kílómetra frá miðborg Reykja- ■ Síðastliðinn miðvikudag komu fyrstu bðarnir til landsins með skipum þeim sem flytja farþega og bíla hingað til landsins. Til Reykjavíkur kom Ms. Edda með talsvert erlendra ferðamanna og fluttu sumir þeirra bfla með sér og til Seyðisfjarðar kom nýja ferjan Nörröna sína fyrstu ferð á þessu sumrí. Ég snéri mér til Birgis Þorgilssonar, markaðsstjóra Ferðamálaráðs og spurði han hverjar væru ráðleggingar þær sem Ferðamálaráð vildi að ferðamenn, inn- lendir sem erlendir legðu upp með, er þeir ferðuðust um landið, láglendi jafnt sem hálendi: „Mikill meirihluti þessara aðila sem koma hingað til lands með bíla, eru bara með venjulega bíla og fara eftir okkar venjulegu vegum. Ég tel enga hættu á að þeir skemmi neitt fyrir okkur. Auk þess eru vegir um hálendið nú svo til allir ófærir þannig að ég er ekki trú- aður á umferð um hálendið næsta mánuðinn eða svo, sem gæti þýtt það að hálendisferðum seinkaði hér um einn mánuð miðað við það sem tíðkast í venjulegu árferði, sem aftur þýðir það að sáralítið sem ekkert verður hægt að fara um hálendið í sumar. Það er miður, ef svo fer, því mikill meirihluti þeirra sem fara um hálendið fara alveg að lögum og reglum hvað snertir akstur á slóðum, en svo eru það svörtu sauðirnir sem eru beinlínis komnir hingað til þess að fara út fyrir vegi og keyra þar sem aðrir hafa ekki farið áður. Yfir þá verður litlum iögum komið, nema með stórhertu eftirliti lögreglu og sýslu- manna. Við verðum hins vegar að muna að þessir útlendingar eru sára - sárafáir og íslendingar sennilega nokkuð mörg- ■ Fjallabflamir inni á hálendinu. um sinnum fleiri sem stunda sömu iðju, þannig að eftirlitið er ekkert síður þar hvað snertir okkur sjálfa, heldur en hvað varðar útlendingana.“ - Birgir, þú segir að íslendingar séu mörgum sinnum fleiri í hverju felst það að íslendingar gangi illa um landið sitt? „Gangi nokkrir aðilar illa um land, þá eru það við íslendingar. Ég þekki enga þjóð á vesturhveli jarðar sem gengur eins illa um landið sitt og við gerum. Það er verið að henda rusli og drasli allt í kringum sig, um leið og komið er út fyrir bæjarmörkin, sem víkur, til að sjá alla stíga varðaða með helvítis drasli og óþverra." Birgir sagðist eiga von á að með tilkomu ferjanna tveggja, þá myndu ferðir um landið í byggð fyrst og fremst vaxa talsvert, því meirihluti þeirra bif- reiða sem fluttur yrði til landsins væru venjulegir fólksbílar, en ekki torfæru, eða fjallabílar. Sagðist hann þess fullviss að meirihluti þess fólks sem kæmi hingað til landsins væri alsaklaus af því að vilja valda hér nokkrum spjöllum. Nú giltu strangari reglur um matvæli og bensín en gilt hefðu. Til að mynda mættu ferða- menn aðeins taka með sér 10 kíló af mat og aðeins mætti koma með tankfylli af eldsneyti. Aðspurður um hvort þessum nýju reglum yrði fylgt vandlega eftir, sagði Birgir: „Ja, þeir voru nú að tilkynna það við lúðrablástur mikinn, að tollvörðum á Seyðisfirði hefði verið fjölgað úr 15 í 20, en sannleikurinn er sá að þessi nýja ferja hún getur tekið helmingi fleiri farþega en Smyrill gat í fyrra, þannig að það hefði með réttu lagi átt að fjölga tollvörðunum í 30 ef þeir ætluðu að halda upp jafngóðri gæslu og þeir gerðu í fyrra, svo svona tilkynningar vekja ekki mikla virðingu hjá manni eða bjartsýni á bætt eftirlit“. - Birgir, er líklegt að bílaumferð um landið aukist til mikilla muna, með tilkomu þessara ferja? „Ég held að það verði nú engin stökkbreyting þar á. Einhver aukning verður, en ekki stórkostleg, í þessari bflamergð okkar. Ef þessu fer fram og heldur eitthvað áfram eftir sumarið í sumar, þá getur þetta aukist markvisst. Þeir sem helst þurfa að hafa áhyggjur, eftir að ferjurnar koma hingað til lands vikulega, önnur í Reykjavík og hin á Seyðisfirði, eru eigendur bílaleiga á Islandi. Það sem virðist ætla að gerast og það í talsvert ríkum mæli, er að fólk sem kemur hingað með ferju, t.d. frá Brem- erhaven, það leigir sér bíl úti, í stað þess að leigja hann hérna, ferðast um á bílnum hérna, og skilar honum svo þegar aftur er komið til Bremerhaven. Ástæður þessar, eru þær að ef þessi aðferð er notuð, þá fá ferðamennirnir bílaleigubílana á helmingi lægra verði en þeir kosta hér, og frían flutning með skipinu. Þetta getur því eitthvað komið við kaunin á bílaleigum, því bílaleigur hér erum með því hæsta sem gerist í Evrópu." við sam- drætti í sólar- landa- ferðum ■ Þó að samdráttar gæti á flestum sviðum þjóðlífs nú, þegar samdráttur þjóðartekna og harkalegar efnahags- aðgerðir stjórnvalda koma hvað harka- legast við pyngju launafólks, há gengis- felling er orðin staðreynd og vörur eru í hækkunarkapphlaupi, þá er ekki hægt að segja að barlómur ráði ríkjum hjá þeim sem annast ferðabransann hér á landi. Ég hafði heyrt það utan af mér, að svo hefði dregið úr bókunum í sólarlandaferðir eftir gengisfelling- una, afbókað hefði verið í stórum stíl og svo framvegis, að hrun íslenskra ferðamála virtist bókstaflega blasa við. Fór ég því á stúfana og spurði nokkra framámenn í ferðamálum út í þessi efni, en fékk hvarvetna sömu svörin: „Þetta gengur ágætiega hjá_okkur. Það hefur ekkert dregið úr bókunum. Hjá okkur gengur mjög vel..., en ég veit ekki um...“ Voru viðmælendur þó á einu máli um að núverandi ástand kæmi hvað harðast niður á sólarlandaferðum og svo hart, að flug hefðu verið felld niður, sameinað hefði verið í ákveðin flug, og sameining milli ferðaskrifstofa í önnur sólarlandaflug stæði nú fyrir dyrum. Ferðaskrifstofur þær sem bjóða upp á sólarlandaferðir til Mall- orka, Útsýn, Úrvai og Atlantic hafa nú sameinað flugferðir þangað, og samkvæmt heimildum Tímans eru fleiri ferðaskrifstofur með sameigin- legt sólarlandaflug í undirbúningi, þó það muni engan veginn frágengið enn. Heimildir mínar herma að þessar ferðir séu þær einu sem samdráttur sé í, því alltaf sé jafnmikil eftirspurn eftir sumarhúsum, flugi og bfl, o.þ.h.. „Bókanir í Ms. Eddu mjög góðar” Mjög gotl að vera með svona 5 til 600 manns” — segir Sverrir Hermannsson, sölustjóri Farskips hf. H „Bókanir í ferðir með Eddu eru mjög góðar, og það hefur verið mjög mikið bókað í ferðir með henni í júlímánuöi og reyndar í júní líka,“ sagði Sverrir Hermannsson, sölustjóri Far- skips hf þegar ég spurði hann hvernig hefði verið bókað í ferðir Ms Eddu nú í sumar. Aðspurður um hvað þeir hjá Farskip teldu „mjög gott“ þegar bókanir væru annars vegar sagði Sverrir: „Við teljum mjög gott að vera með svona fimm til sexhundruð manns.“ Sverrir sagði að ekki væri farið að bóka mikið cnn í ferðir seint í sumar, enda væru þær enn í skipulagningu. Væru uppi hugmyndir um að fara sér- staka bridgeferð og sérstaka skákferð, en það ætti allt eftir að skýrast nánar. Sverrir var spurður hversu margir farþegar yrðu í ferðunum sem ákveðnar hafa verið nú í júní, en þar er bæði Varðarferð og Heimdallarferð: „Það verða svona um 400 manns í hvorri ferð. Það er í rauninni ekki raunhæf tala, að tala um að Edda geti tekið 900 manns, því hún tekur aðeins 440 manns í klefum, og svo eru stólar og seldar ferðir á dekki einnig. Það er því ekki raunhæft að tala um að farþegafjöldi geti verið meiri en svona fimm til sexhundruð manns." H Ms. Edda á siglingu inn Reykjavíkurhöfn. Tímamynd - Árni Sæberg.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.