Tíminn - 12.06.1983, Síða 5
SUNNUDAGUR 12. JIJNÍ 1983
er slæmt og fólk vill fá tækifæri, til að
gleyma erfiðleikunum. Og því er tra-la-
la stíllinn allsráðandi í óperunni, allir
keppast við að. setja upp sætar og
fyndnar gamanóperur eins og til dæmis
Rakarann í Sevilla. Óperuhóparnir lifa
á svonalöguðu í tíu ár, og slá þá kannski
til og fá söngvara úr Metropolitan í New
York til að syngja Aidu eftir Verdi.
Þetta er niðurdrepandi fyrir unga söngv-
ara - hvað það er lítið af þrumum og
eldingum, sem vissulega eru þóstór hluti
af allri óperu. Ég átti stundum erfitt
uppdráttar vegna þess að mér hættir til
að vera svolítið yfirþyrmandi, áleitinn,
demónískur - hlutverkin sem mér fellur
best að syngja eru líka þess eðlis.
Big bissness
Það er þá ekkert hlaupið að því að
komast á þennan eftirsótta tind?
Auðvitað er þetta big bissness eins og
annað - það er alveg sama hvort hæfi-
leikarnir eru miklir eða litlir, maður þarf
alltaf að eyða ótrúlegum tíma og
kröftum í að sleikja sig upp við einhverja
forstjóra og fyrirmenn. Big bisness já,
og kúltúrinn kemur númer tvö. Frum-
skilyrðið er að hafa góðan umboðsmann,
annars þarf maður að standa í öllu þessu
sjálfur, hringja, skrifa ótal bréf, ganga á
milli skrifstofa - selja sig. Ég á alveg nóg
með það að syngja og reyna að þróa mig
áfram. Það er víst engin auðveld leið til
að koma sér áfram. Maður þarf að reyna
allar dyr, banka á dyr, vera reiðubúinn
að brjóta niður dyr - svo þegar dyrnar
loks opnast kemst maður venjulega að
því að það var enginn þar inni. Þetta
eyðir ómældri andlegri orku.
Samkeppnin er óskapleg. Það mæta
kannski 130-150 manns í meðal-áheyrn,
og 500 manns þegar verið er að prófa í
hlutverk á Broadway. Og það mætti
halda að þetta væru fegurðarsamkeppn-
ir: klukkan ekki orðin tíu og allir samt
uppstrílaðir, konurnar málaðar, í,kjól-
um og háhælaskóm. Karlarnir nýklipptir
í fötum upp á 300 dollara og 100 dollara
skóm, kannski örlítið málaðir líka. Svo
fer það inn og setur upp heilt leikrit,
gefur sig út fyrir að vera sérstakt,
viðfelldið, fullt af hæfileikum - og það
sem skiptir mestu máli, að reyna að sýna
að þeir muni græða peninga á manni.
Þetta er bisness - eins og að selja
frauðkökur í sellófani ...ekkert annað.
Ad leikstýra
söngvurum
Ertu þá flóttamaður á fslandi?
Nei, ætli það. En ég hef búið allt mitt
líf í Bandaríkjunum þar sem maður þarf
helst að vera reiðubúinn að drepa ömrnu
sína og selja kölska sálina til að komast
áfram. Þetta er góð og nauðsynleg
tilbreyting að fara eitthvað annað. Ég
gæti vel hugsað mér að vera hér eitthvað
áfram ef það verða einhver not fyrir mig
við söng og kennsiu. Nú hef ég til dæmis
ntikinn áhuga á því að vinna með
söngvurum sem leikurum, þjálfa þá í
leiklistinni, jafnvel leikstýra.
Margir söngvarar geta alls ekki leikið,
skýt ég inn í.
Margir leikarar geta ekki leikið, svarar
Bob. En ég var fjögur ár í einum besta
leikaraskóla í Bandaríkjunum, Herbert
Berghoff-stofnuninni í New York, þar
sem námið er byggt á Stanislavski-að-
ferðinni.
Var þá ekki erfitt fyrir þig að syngja í
konsertuppfærslu á jafn dramatískri óp-
eru og Toscu?
Svona konsertuppfærslur hafa líka
margt til síns ágætis. Ef eitthvað er gera
þær meiri kröfur til söngvarans. Maður
þarf helst að kunna hlutverkið betur,
þekkja það svo vel að maður geti gert
persónurnar lifandi án frelsisins á svið-
inu, hreyfinga, búninga og leikmyndir.
Nú ertu aðaliega óperusöngvari á
sviði, eitthvað hefurðu þó fengist við að
syngja ljóð?
Ég er mjög spenntur fyrir því að halda
tónleika með þýskum, frönskum, ítölsk-
um og jafnvel íslenskum söngvum. Ég
hlakka til þess í haust að flytja hér
prógramm sem við Selma Guðntunds-
dóttir píanóleikari.höfum sett saman úr
ýmsum ítölskum aríum, ljóðum úr Don
Quixote eftir Ravel og Dichterliebe eftir
Schubert.
Þar sláum við botn. Ég prísa mig
sælan að hafa fengið þó þetta upp úr
Róberti. Sumir söngvarar hafa það fyrir
sið að þegja alfarið daginn sem þeir
syngja. Mannsröddin er jú viðkvæmt
hljóðfæri...
e.h.
EMI5SAN
INGVAR HELGASON HF,
Tvær bílasýningar á sama degi
laugardag og sunnudag kl. 2-5.
Sýnum að Rauðagerði 27 og við
Golfskála Reykjavíkur, Grafarholti.
Kylfingar, áhugamenn um golf og svo auðvitað öll við hin, koma upp i Grafarholt um
helgina til aðfylgjast með NISSAN-DATSUN mótinu, síðasta stigamótinu fyrir val
landsliðsins, sem keppir í París. Á Grafarholtinu getum við notið golfsins, kaffisiná,
útsýnisins og síðast en ekki síst notið þess að sjá og fræðast um hina ódýru og
bankaborguðu _________
NISSAIM
CHERRY
OG S
IMISSAINI
SUNNY
Ef þú hefur ekki tíma til að fara upp á Grafarholt (5 km. frá Reykjavík), þá bjóðum við
það sama (fyrir utan golfið) í
Allar gerðir teknar upp í nýja.
INGVAR HELGASON HF ■ Simi 33560
fcQ Bflaleiga Iw Carrental
Dugguvogi 23. Sími82770
Opið 10.00-22.00. Sunnud. 10.00-20.00 Sími eftir lokun: 84274 - 53628
Leigjum út ýmsar Þvoið, bónið og
gerðir fólksbíla. gerið við bílana
Sækjum og sendum ykkar í björtu og rúmgóðu húsnæði.
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
Rösk barngóð stúlka
óskast á heimili í Reykjavík, ekki yngri en 19 ára, fæði
og húsnæði á staðnum.
Góð aðstaða til náms í kvöldskóla (öldungadeild). Þeir
sem óska eftir nánari upplýsingum, sendi bréf til
auglýsingadeildar blaðsins merkt „3 börn“.
Utboð
Sjóefnavinnslan h.f. óskar eftir tilboöum í útvegun á tveim hiturum úr
stáli. Stærö hvors um sig er 376 m2. Hitarar geta annaö hvort verið
smíöaöir hér á landi eða verið innfluttir.
Gögn fást afhent á skrifstofu Sjóefnavinnslunnar h.f., Vatnsnesvegi
14, Keflavík og hjá Vermi h.f., Höföabakka 9, Reykjavík.
Tilboöum skal skila Vermi h.f. fyrir kl. 11 miövikudaginn 6. júlí 1983.