Tíminn - 12.06.1983, Page 6

Tíminn - 12.06.1983, Page 6
SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1983 6 erlend hringekja ■ Hann breiðir úr sér þessi - enda er hann í strætó og á leið heim úr vinnunni á mesta umferðartíma dagsins! Ætli konur séu yfirleitt OF tillitssamar? TÁKNMÁL LlKAMANS LÝGUR EKKI Áfram með Listatrimmið ■ Skyldu margar nútímakonur verða fyrir því að karlmenn segi þeim að þær séu lítilvægari persónur en þeir, einungis vegna þess að þær séu konur? Nei, sennilega ekki. Að minnsta kosti eru litlar líkur til þess að þeir hafi sagt það svona beinlínis. En búast má við því að flestir karlmenn scm verða á vegi nútímakvenna, allt frá vinum og vinnufélögum til ókunnugra manna, , hafi litillækkað þær orðalaust. Og því miður hafa konurnar líkast til gefið viðkomandi karlmönnum til baka merki um það að þær þekki og viðurkenni lægri stöðu sína. Svo er táknmáli líkamans fyrir að þakka, hinum ríkulega og, að mestu leyti, ómeðvitaða táknforða hreyfinga og svipbrigða scm við mannfólkið notum til þess að tjá hvert öðru tilfinningalegt ástand okkar. Eitt af þeim grundvallaratriðum sem táknmál líkamans upplýsir fólk, sem er að hittast í fyrsta sinn um, er félagslcg staða þess. Staða er ákaflega vandræðalegt hugtak á þcim jafnréttistímum sem við lifum en óneitanlega afskaplega mikilvægt. Einhverskonar lagskipting tíðkast meðal allra dýra sem lifa í hópum og þau hafa öll, mannfólkið meðtalið, lært að forðast endalausa baráttu um þrepin. Þau hafa þróað með sér táknkerfi sem þau nota til þess að tjá hvert öðru að þau þekki stöðu sína og hyggist halda henni. Þeirsem rannsakað hafa táknmál mannslíkamans hafa komist að því að jafnvel táknmál kvenréttindasinnaðra kvenna og karla túlkar enn þá skoðun að karlmenn séu konum æðri. Til þess að geta hugsanlega náð raunveruiegu jafnrétti verðum við því ekki aðeins að breyta hugmyndafræðinni heldur einnig öðrum og miklu djúpstæðari venjum. nefnilega háttum okkar á að hreyfa okkur, tala og einnig því hvernig við notum rýmið í kringum okkur... Taka má dæmi af ósköp venjulegri gönguför. Þegar maður nálgast einhvern úti á götu fer fram hratt og næstum ómeðvitað gagnkvæmt mat í nokkurra metra fjarlægð en síðan víkur annar hvör aðilinn til hliðar. Ef mjög augljós stöðumismunur er á vegfarendunum sem mætast víkur venjulega manneskjan sem lægra er sett. Rannsóknir sýna að á meðan að kona víkur í annað hvert skipti fyrir öðrum konum þá víkur hún nær alltaf fyrir körlum. Hún setur sjálfa sig skör lægra en karlana, án þess að gera sér grein fyrir því sjálf. Karlmenn víkja einnig miklu oftar fyrir öðrum körlum en fyrir konum. Þeir staðfesta hærri stöðu sína með því áð víkja ekki. Þeír beita einnig þeim forréttindum þeirra sem ofar standa í þjóðfélagsstiganum að horfa beint framan í konurnar sem þeir mæta á förnum vegi - en sl íkt merki um stöðu sína og vald gefa þeir ekki öðrum karlmönnum nema að um ögrun sé að ræða. Frammi fyrir þessu beina konur augliti sínu í aðra átt að hætti þeirra sem eiga í vök að verjast. Þetta hegðunarmynstur ristir dýpra en að kynferðinu einu. í suðurríkjum . Bandaríkjanna urðu svartir menn að víkja fyrir hvítum þegar þeir mættust á götu og ef þeir horfðu beint framan í hvítan mann var þeim refsað. Efist einhver um að staða sé orsök þessa fyrirbæris, en hvorki kynferði né kynþáttur, ætti sá hinn sami að skreppa í dýragarðinn. Þegar yfir-apinn hreyfir sig úr stað víkja allir úr vegi fyrir honum. Þcir sem skör lægra eru settir í apabúrinu koma á hæla honum á báðar hliðar en horfast ekki í augu við hann. Einnig cr athyglisvert að yfir-apinn hcfur meira pláss til eigin nota en hinir aparnir sem halda sig í hæfilegri fjarlægð - rétt eins og við höldum okkur í hæfilegri fjarlægð frá háttsettum opinberum persónum sem oft hafa.: fylgdarlið cða lífverði sem gæta þess að þær lítillækki sig ekki með of náinni snertingu við almúgann. Hvort kynjanna skyldi svo hafa meira pláss til persónulegra nota? Til þess að komast að því er nóg að kíkja inn í strætisvagn á mesta umferðartímanum. þeir sem sitja með útglennta fótleggina og handleggina þægilega niður með síðunum eru karlmenn. Samanherptu verurnar við hliðar þeirra, sem sitja með fótleggina limda hvor við annan á ýsta þriðjungi sætisins, eru konur. Þessi „samherpingar" viðbrögð eru ósjálfráð viðbrögð konunnar við þeirri kröfu karlmannsins að hans sé rýmið. Konur þurfa að vera orðnar heilmikið meðvitaðar um réttindi sín til þess að þær hætti að gefa karlmönnum cftir allt plássið. Persónulega rýmið er í rauninni yfirráðasvæði hvers og eins og maður gctur orðið vitni að hinum fjölbreytilegustu „landhelgisdeilum" á hvaða skrifstofu sem er. Alkunna er t.d. að því hærra sem maður er settur innan fyrirtækisins því stærra er yfirráðasvæði hans og því erfiðara er að ráðast inn á það. Yfirmaöurinn getur gengið inn á yfirráðasvæði yngri starfsmanns að vild. tyllt sér á skrifborðsbrúnina hjá honum, snuðrað ofan í skúffurnar og rótað í pappírunum. Sá yngri getur hins vegar ekki gert slíkt hið sama inni á skrifstofu yfirmannsins. Bældar hreyfingar og samanherptar stellingar eru merki um undirokun. Slík hegðun er líka svo hefðbundið merki um kvenleika að konum er frá blautu barnsbeini innrætt að þannig verði þær að hegða sér til-þesss að þær geti talist kvenlegar. Stellingarnar sem þeir hæst settugeta leyft sér, en konum líðast alls ekki þar sem bæði kynin eru saman komin, flytja þann boðskap að viðkomandi geti slakað á í krafti valds síns. Hann breiðir þá gjarnan úr sér á þann hátt að viðstaddir skilja undir eins að hann meinar. „Ég stend svo ofarlega t valdastiganum að ég hef ekkert að óttast - mig getur enginn sært.“ Slíkur maður krefst heilmikils rýmis fyrir sjálfan sig. Á fundi er t.d. maðurinn sem situr með annan ökklann á hinu hnénu og hallar sér aftur á bak í stólnum með hendurnar fyrir aftan höfuðið áreiðanlega forseti samkundunnar. Konur eiga örugglega eftir að arka langa leið áður en þær geta leyft sér þessar . ókvenlegu yfirmannsstellingar í vinnunni, án þess að eiga það á hættu að glata virðingu sinni! Önnur forréttindi hinna hátt settu er rétturinn til að snerta þá sem neðar standa. Sá sem snertir er hærra settur en sá sem er snertur. Þetta merkir ósköp einfaldlega að í mannþröng er meira stjakað við konum en körlum. Það þýðir einnig að verslunar(karl)menn ýta konum til hliðar með handaflinu þegar þeir þurfa að ryðjast um fjölmennar verslanirnar en segja aftur á móti „afsakið“ við karlmennina. í hvert sinn sem karlmaður ýtir konu lauslega (en líkamlega) í gegnum dyr, tekur um handlegg hennar er þau ganga saman eða þrífur í handlegginn á henni þegar hann talar, flytur hann henni einföld en skýr skilaboð þess efnis að staða hans sé æðri en hennar. Það er svosem ágætt ef svo er... en flestir karlmenn telja sig frjálsa að því að snerta hvaða konu sem er á þennan hátt, alveg óháð því hvernig stöðu þeirra er háttað. Rétt eins og fullorðið fólk telur sér frjálst að snerta börn (sem standa á neðra þrepi í þjóðfélagsstiganum en fullorðnir) og gæludýr sem hafa alls enga stöðu í samfélaginu. Það er þess vegna sem hin minnsta kynferðislega áreitni getur orðið konum svo óskaplega hvimleið. Kynferðislegu tilburðirnir eru nær alltaf lítillækkandi. (Og það er þess vegna sem karlmönnum finnst sem karlmennskunni sé af þeim flett þegar konan tekur frumkvæðið, en það tilheyrir karlmönnum að hefðbundnum sið. Við það hrapar hann um nokkur þrep, sé litið til stöðu hans.) Á sama hátt er rétturinn til að hefja samræður í höndum þess sem ofar stendur. Og það er einmitt þess vegna sem flestum konum finnst óþolandi þegar verkamenn öskra á eftir þeim upp úr skurðum sínum ýmiss konar athugasemdir um persónur þeirra, vafasamar eður ei. Slík hegðun kemur konunni fyrir á „sínum“ stað - skör lægra en karlmanninum. Stærsta táknið um lága stöðu sína bera konur þó framan í sér - og snúum við þá aftur tii apanna. Þeir sem eru brosandi eins og óðir í hverju horni eru lægst settu aparnir í hópnum. Brosið táknar að þeir uni glaðir við sitt - með brosinu tryggja þeir yfir-apanum að þeir hyggist ekki ógna veldi hans. Yfir-apinn brosir ekki - því skyldi hann vera að því? Hann þarf ekki að þóknast neinum. Bros okkar mannfólksins er komið af brosi apanna og þjónar enn að hluta til sama tilgangi. Rannsóknir sýna að á mannamótum brosa konur meira en karlar og að bros þeirra eru yfirleitt merkingarlaus og segja ekkert um tilfinningar hinna brosandi kvenna. Karlmenn brosa á hinn bóginn yfirleitt af innri þröf. Börnin læra meira að segja þegar á unga aldri að á meðan bros karlmanna eru jákvæð þá eru bros kvenna næstum því hlutlaus. Bros kvenna eru iðulega ekki annað en afsökunarbeiðni sem mýkir sjálfkrafa sérhverja staðhæfingu, kröfu og jafnvel skipun, slípar eggina af fullyrðingunni og lofar öllum að þær þekki sinn stað í tilverunni og hyggist ekki klífa hærra í metorðastiganum. Rannsókn á konum sem vinna hjá bandarískum sjónvarpsstöðvum sýndi að þær sem brostu ekki nógu mikið þegar yfirmaðurinn var í námunda við þær voru ávítaðar. Þeim var sagt að vera þægilegri í viðmóti - en með því var að sjálfsögðu átt við að þær ættu að vera jafn undirokaðar í viðmóti og þær eru í raun og veru. Munum að það er táknmál líkamans sem gildir og því verður að breyta. Rannsóknir sýna að þegar fólk segir eitt en líkaminn annað þá er það táknmál líkamans sem ræður - við trúum því alltaf. Svo við skulum þurrka brosið ‘ framan úr okkur stelpur, skella löppunum upp á borð og fara að tala hreint út... ■ Ekki verður annað sagt en að Stú- dentaleikhúsið hafi farið vel af stað með Listatrimmið á dögunum og stigið stórt skref með sinni fyrstu dagskrá sem nefndist Aðeins eitt skref. Sú dagskrá hófst á afar skemmtilegu Steinaspili eftir Elías Davíðsson - satt að segja hafði ég ekki hugmynd um að jafnmikil músík byggi í steinum og þarna kom fram. Apinn hans Kafka, sem margir hafa stautað sig í gegnum í þýskutímum í menntaskóla, var góður í meðförum Rúnars Guðbrandssonar. Lokaatriði dagskrárinnar og það sem hún dró nafn sitt af var leik-tónverkið Solo un paso - Aðeins eitt skref - eftir spænska tónskáldið Luis de Pablo. Ekki man ég til þess að hérlendis hafi áður verið flutt verk af þessu tæi og þetta var í þriðja sinn sem Solo un paso er flutt í víðri veröld. Verkið fjallar á afar skemmtilegan hátt um hið háalvarlega málefni kúgun - með sérstöku tilliti til kúgunar í formi náms. Slíkt viðfangsefni hentar stúdentaleikhúsi afbragðs vel ög verða stúdentar aldrei nægilega til þess hvattir að vera vel á verði og stunda víðtæka og djúpstæða fagrýni. Verkið sem krefst jafnt leikrænna sem tónlistar- legra tilburða var mjög vel flutt af Jóhönnu V. Þórhallsdóttur og Kolbeini Bjarnasyni. Jóhanna, sem er fyrst og fremst söngkona, sýndi ríkulega leik- hæfiieika og rödd hennar, sem er bæði mjög falleg og sérstök, naut sín vel í þessu verki. Þá svíkur flautuleikur Kol- beins ekki. Og nú undirbýr Stúdentaleikhúsið aðra dagskrá sína sem verður frumflutt í Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut í kvöld. Dagskráin nefnist Jökull og við og er hún helguð Jökli Jakobssyni, en hann hefði orðið fimmtugur nú í haust hefði honum enst aldur. Þau Svanhildur Jóhannesdóttir og Viðar Eggertsson hafa unnið þessa samantekt úr verkum Jökuls og annast þau einnig leikstjórn. Leikhópurinn samanstendur af atvinnu- leikurum og öðrum meðlimum Stúdent- aleikhússins. — Dagskráin Jökull og við skiptist í tvo hluta. í fyrri hlutanum verður leikið úr ýmsum verkum Jökuls, bæði skáldsögum og leikritum en eftir hlé vcrður fluttur einþáttungurinn Knall, sem Jökull skrif- aði fyrir svið, en hann var fluttur í útvarpi árið 1972. Þau sem koma fram í fyrri hluta dagskrárinnar eru Þröstur Guðbjartsson, Edda V. Guðmundsdótt- ir, Svanhildur Jóhannesdóttir, Iðunn Thors, Davíð Ágúst Davíðsson, Ingrid Jónsdóttir og Erla Ruth Harðardóttir. Viðar Eggertsson fer síðan með eina hlutverkið í einþáttungnum. Jökuli Jakobsson var einn af vinsæl- ustu leikritahöfundum íslendinga síð- ustu áratugina. Hann var í fremstu röð skálda sem hófu íslenska leikritun til þeirrar virðingar og athygli sem hún hefur notið að undanförnu. Viðar sagði í stuttu spjalli við Helgar- Tímann að þau tækju fyrir ákveðið minni sem höfundur endurtæki í flestum verka sinna - á nýjan og ferskan hátt hverju sinni. Þetta minni er um fólk sem á sér draum um öðruvísi líf - það dreymir um að einhver komi og hrifsi það burt úr hversdagsleikanum. Fólkið á sér sem sagt draum um lífsfyllingu sem rætist ekki, þannig að draumurinn verð- ur veruleiki þess. Viðar sagði ennfremur að Knall fjallaði einnig um einsemdina - einþáttungurinn væri eintal manns sem bíður í samkomusal eftir manninum sem á að tala. Á meðan maðurinn bíður styttir hann sér stundir við ímyndaðar viðræður við „vin“ sinn, en sá sem á að tala kemur aldrei. Dagskráin Jökull og við verður sem fyrr segir frumflutt í kvöld en síðan verður hún flutt sunnudags- og mánu- dagskvöld kl. 20.30 öll kvöldin. Stúdentaleikhúsið heldur síðan áfram Listatrimmi sínu en minna má á að starfsemin byggist að sjálfsögðu á því að fólk mæti bæði vel og stundvíslega! Það sem er framundan hjá Stúdenta- leikhúsinu nú alveg á næstunni er djass þann 16. júní, en þá mun kvartett Árna Scheving leika. Síðan verða fluttir fjórir einþáttungar eftir Samuel Beckett 23. júní og mun Árni Ibsen leikstýra þeim. í júlí er svo fyrirhugaður Reykjavíkur- blús, sem er dagskrá byggð á nýlegum sögum og textum er tengjast Reykjavík og verður hún ívafin músík. Þá er einnig fyrirhuguð kynning á ungu ljóðskáldi utan af landi ásamt klassískum gítarleik. Listatrimmið fór vel af stað og nú er bara að halda áfram að trimma!

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.