Tíminn - 12.06.1983, Blaðsíða 9

Tíminn - 12.06.1983, Blaðsíða 9
SUNNUDAGUR 12. JÚNl 1983 Samiinna bænda hefur verið Akureyri mikil lyftístöng Samvinna bændanna ■ Um 1930 gaf ríkisstjórn Tryggva Þórhallssonar út vandað myndskreytt rit, sem hét Samvinna bændanna. Riti þessu var dreift víða um land. Útgáfa þessi sætti nokkurri andstöðu þáver- andi stjórnarandstöðu. cnda nokkuð óvenjuleg á þeim tíma. Tryggvi Þórhallsson hafði hins vegar svar á reiðum höndum: Samvinna eyfirzkra bænda hefði reynzt svo farsæl og árangursrík, að rétt væri að kynna hana öðrum til fyrirmyndar. Þetta rit sýndi vissulega glöggt, að Kaupfélagi Eyfirðinga hafði vegnað vel undir traustri leiðsögu kaupfélags- stjóranna þriggja Hallgríms Kristins- sonar, Sigurðar Kristinssonar og Vil- hjálms Þór. Hallgrímur Kristinsson gerði kaup- félagið að stórveldi í héraðinu þau fáu ár, sem hann stjórnaði því. Sá grund- völlur hefði þó getað skekkst mikið í efnahagsöngþveitinu eftir fyrri heims- styrjöldina, ef forsjállrar og öruggrar stjórnar Sigurðar Kristinssonar hefði ekki notið við. Mörgum fannst það æði djarft, þegar Sigurður Kristinsson tók við forstöðu Sambandsins, að Hallgrími bróðursín- um látnum, að hann skyldi fela 23 ára gömlum manni, Vilhjálmi Þór, aðtaka við stórn Kaupfélags Eyfirðinga. Sig- urður Kristinsson reyndist glögg- skyggn þar eins og endranær. Undir forustu Vilhjálms Þór efldist rekstur félagsins á flestum sviðum og það bætti við sig hverjum verkefnunum á fætur öðrum. Það var vegna þessara framfara, sem Tryggvi Þórhallsson fékk hugmyndina um að gefa út ritið Samvinna bændanna. Vilhjálmur Þór reyndist síðar sama hamhleypan, þegar hann tók við for- stöðu Sambands íslenzkra samvinnu- félaga af Sigurði Kristinssyni. Vafa- samt er hvort annar íslenzkur maður hefur verið athafnasamri og útsjónar- samari á þessari öld en Vilhjálmur Þór. lllt er því til þess að vita, að hann hefur í Seinni tíð hlotið oft óverð- skulduð eftirmæli. Nokkur bót er það í niáli, að hann hefur fengið réttmæta uppreisn í við- tali, sem Matthías Johannessen átti við Björn Þórðarson, en Vilhjálmur átti sæti í ríkisstjórn hans 1942-1944, Björn lætur í viðtalinu falla eftirfarandi ummæli um Vilhjálm: „Vilhjálmur sá mesti skörungur, sem ég hefi þekkt, og féllst alltaf á rétt rök.“ (Matthías Johannessen: Samtöl III. bls 36) Jakob og Yalur Síðan Vilhjálmur Þór lét af forystu í Kaupfélagi Eyfirðinga er; liðið tals- vert á fimmta áratug. Aðeins tveir menn hafa síðan verið kaupfélagsstjór- ar hjá Kaupfélagi Eyfirðinga, fyrst Jakob Frímannsson um langt skeið, og síðan Valur Arnþórsson. Það er gömul og ný staðreynd, að oft er meiri vandi að gæta fengins fjár en afla þess. Það getur oft verið auðveld- ara verk, þótt erfitt sé, að koma stórum fyrirtækjum á fót, en halda áfram vexti þeirra og viðgangi. Slíkt getur ekki gerzt án traustrar og fram- sýnnar stjórnar. Það er ekki ofsagt, að Kaupfélag Eyfirðinga hefur haldið áfram að þró- ast og styrkjast undir handleiðslu þeirra Jakobs og Vals. Skýrsla sú, sem félagsstjórnin og kaupfélagsstjórnin lögðu fram á síð- asta aðalfundi félagsins ber þess merki að fjárhagur þess er traustur. Hún segir m.a., að eigið fé og stofnsjóðir voru um 387.5 milljónir króna í árslok 1982. Undir forustu þeirra Jakobs og Vals hefur félagið haldið áfram að færa út kvíarnar. Það hefur jafnframt gerzt aðili að ýmsum hlutafélögum. sem komið hefur verið upp í Eyjafirði með þátttöku sveitarfélaga og einstaklinga. Allt hefur-þetta stuðlað að eflingu ■ höfuðstaðar Norðuriands og nálægra byggða. Lyftistöng Akureyrar Óþarft er að rekja það hér. að Kaupfélag Eyfirðinga hefur átt stærst- an þátt í því, að landbúnaður hefur hvergi dafnað betur á þessari öld en í Eyjafirði. Efnahagur bænda hefur óvíða eða hvergi verið jafngóður. Ingólfur Jónsson, fyrrum ráðherra og kaupfélagsstjóri á Hellu, lýsir því skemmtilega í endurminningum sínum, þegar hann réðist ungur maður til starfs hjá Kaupfélagi Eyfirðinga til að afla sér þekkingar um samvinnumál og samvinnurekstur. Hann telur sig hafa fengið þar gott veganesti. Sú þróun samvinnustarfs, sem Ing- ólfur Jónsson kynntist í Eyjafirði snemma á fjórða áratug aldarinnar, hefur haldizt óslitið síðan. En það eru ekki aðeins eyfirzkar sveitir, sem bera merki um mikinn ■ Valur Arnþórsson árangur af samvinnu bændanna. Mest- an svip hefur samvinna bændanna sett á Akureyri, höfuðstað Norðurlands. Akureyri væri fátæklegri bær og fámennari, ef Kaupfélag Eyfirðinga hefði ekki haldið uppi eins þróttmikilli og margháttaðri starfsemi og raun ber vitni. Enginn getur farið svo um Akur- eyri, að honum verði þetta ekki Ijóst. í skýrslu Vals Arnþórssonar á aðal- fundi var upplýst, að launagreiðslur kaupfélagsins og samstarfsfyrirtækja voru 187.2 milljónir króna á árinu 1982. Miðað við tryggingaskyldar vinnuvikur var starfsmannafjöldinn 1219, þar af hjá félaginu 1003 og 216 hjá samstarfsfyrirtækjum. Kaupfélagið er langstærsti launa- greiðandi á Eyjafjarðarsvæðinu og einn hinn stærsti í landinu öllu. Aukin samkeppni Því er stundum haldið fram sam- vinnustarfseminni til hnjóðs, að hún útrými einstaklingsrekstri, dragi úr samkeppni og leiði til einokunar. Reynslan á Akureyri sýnir að þetta er hrein villukenning. Öflugt samvinnustarf leiðir oft til harðari samkeppni. Þess ma efna fjölda dæma, að samkeppni var lítil eða nánast engin, áður en samvinnu- starf kom til sögunnar, Það hvatti ekki aðeins einkafyrirtækin til viðnáms, hpldur til þess að gera enn betur og standa samvinnufyrirtækjunum á sporði. Samvinnufélögin hafa þannig víða bætt verzlunina jafnt með eigin frum- kvæði og með því að kalla fram frumkvæði hjá keppinautunum. Einkareksturinn hefur haldið sínu á Akureyri. Samvinnureksturinn og einkareksturinn hafa sótt fram hlið við hlið, m.a. vegna þeirrar samkeppni, sem kom til sögu með stofnun kaupfé- lagsins. Á ýmsum sviðum, þar sem um stór verkefni hefur verið að ræða, hafa svo samvinnuhreyfingin og einkafyrirtæk- in tekið höndum saman og þannig lagt grundvöll að starfsemi margra mikil- vægra fyrirtækja. Sá áróður, að kaupfélögin sækist eftir einokun, er einkum byggður á því, að á afskekktari og fámennari stöðum er kaupfélagið oft eitt um hituna. Þetta stafar af því, að markað- urinn þolir ekki nema eina verzlun og er raunar of lítill fyrir hana. Undir slíkum kringumstæðum dregur einka- reksturinn sigoftast í hlé og leitar eftir arðvænlegri tækifærum. Kaupfélagið situr eftir með hallarcksturinn og reyn- ir að þjóna fólkinu, þótt meira en örðugt sé. Við þetta má svo bæta því, að allt það fé, sem hefur safnast á vegum Kaupfélags Eyfirðinga, hefur haldizt í héraðinu og orðið því til eflingar. Hið sama verður ckki sagt um allan cinka- rekstur þar. 254 fulltrúar frá 25 deild- um Það sést glöggt á skýrslu stjórnar og kaupfélagsstjóra, scm lögð var fram á síðasta aðalfundi Kaupfélags Eyfirð- inga, að félagsmenn taka virkan þátt í störfum þess og fylgjast mkeð rekstri þess. Félagið starfar í ekki færri cn 25 deildum, sem halda sína sérstöku fundi, m.a. til að kjósa fulltrúa á aðalfund. Alls kjósa félagsdeildirnar 254 fulltrúa á aðalfundinn, cn alls cru félagsmcnn 7247. Kaupfélagsstjórinn kappkostar að mæta á deildarfundum. Félagsménn hafa svo í vcrulegum mæli beint sam- band við hann eða forustumenn félags- ins. Reynt er á fundum að veita sem gleggstar upplýsingar. Fyrir aðalfund er gefin út ýtarleg skýrsla um starfsem- ina á liðna árinu og reikningslegar niðurstöður þess. Þannig er reynt að starfa fyrir opnum tjöldum eins og auðið er. Þórarinn Þórarinsson, y ritstjóri, skrifár mtl Stjórn félagsins, scm kosin er á aðalfundi, skipa sjö menn. Hún hélt 10 fundi á síðastliðnu ári og eru það hcldur færri fundir en áður. Sá háttur hefur verið tekinn upp, að hafa fundina færri en lengri en áður. Þannig fæst að ýmsu leyti meiri tími til að fylgjast með starfseminni og leggja á ráðin. Þörf aðhaldsaðgerða Samvinnuhreyfingin hefur gert, sér. Ijóst, að erfiöir tímar fara í hönd og því er þörf aðhaldsaðgerða. í áður- nefndri skýrslu stjórnar Kaupfélags Eyfirðinga segir svo um þctta, eftir að rætt hcfur verið um vcnjuleg verkefni stjórnarinnar: „Þótt framangreind viðfangsefhi stjórnarinnar séu hefðbundin og til umfjöllunar á ári hverju er rétt að taka fram, að óvenju niiklar og margítrek- aðar umræður uröu í stjórninni um rckstrarstöðu félagsins með tilliti til ríkjandi ástands í eínahags- og fjármál- um þjóðarinnar. Kaupfélagsstjóri gcröi stjórninni ítrekað grein fyrir þessum málum, sérstaklega þegar á árið leið og efnahagsvandi þjóðarinnar skýrðist. Slæni þróun ytri aðstæðna bitnaði með mörgu móti á rekstri félagsins með sívaxandi þunga eftir því scm á árið lcið, og kemur fram í hallarekstri allmargra deilda, sérstak- 'lega í iðnaði og verslun, svo scm frá vcrður skýrt nú á aðalíundi. Efnahags- vandinn og verðbólguþróunin var síð- an tckin til umræðu á breiðum grund- vclli innan samvinnuhreyfingarinnar með sameiginlegum fundi forystu- manna hrcyfingarinnar í Rcykjavík þann 28. janúar 1983. Einróma niöur- staða þess fundar var sú, að þörf sé mikilla aðhaldsaðgcrða í rekstri sam- vinnufélaganna meðan efnahags- og vcrðbólguþróun er svo óhagstæð scm raun ber vitni. Voru fundarmenn sam- mála um nauðsyn á eftirtöldum megin- aðgerðum: 1. Draga þarf úr vörubirgðum og auka veltuhraða þcirra. 2. Draga þarf úr útlánum. 3. Fjárfestingar þarf að forðast eftir megni og lcggja mikla áherslu á arðsemi þeirra fjárfestinga, sem óhjá- kvæmilegar eru. 4. Taka þarf til alvarlegrar endur- skoðunar allar taprekstúrseiningar og jafnvcl leggja þær niður, sé ekki útlit fyrir viðunandi rekstrargrundvöll. Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga hefur lýst sig sammála þörfinni á þessunt aðgerðunt og kaupfélagsstjóri hefur útskýrt þær á félagsráðsfundi og deild- arfundum nú í vor. Er það von stjórnar og kaupfélagsstjóra, að skilningur og góð samstaða starfsfólks og félagsfólks mcgi gera þessar aðgerðir raunhæfar og árangursríkar." Sameiginlégir hagsmunir Alltof mikið ber á þeim áróðri, að hagsmunir fólks í drcifbýli og þéttbýli, og hagsmunir bænda og launafólks, fari ekki saman. Samvinna bændanna í Eyjafirði sýn- ir bezt, að þessi áróður er alrangur. Akureyringar liafa vissulcga hagnazt á því á margan hátt, að blómlegur land- búnaður hefur dafnaö í Eyjafirði og á margvísleg samvinna bændanna sinn stóra þátt í því. Bændur hafa á sama hátt hagnazt á vexti Akureyrar og bættum kjörum fólks þar. Það hefur tryggt þeim vax- andi markað fyrir afurðir þeirra. Það er sannmæli, sem Einar Ben- ediktsson orti á sínum tíma um Reykjavík: Af bóndans auð hún aúðgast, verður stærri og auðgar hann, - þau hafa sama mið.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.