Tíminn - 12.06.1983, Síða 10

Tíminn - 12.06.1983, Síða 10
10 pistillinn SUNNUDAGUR 12. JUNI 1983 *j £ **»&£**■ Flliil KK* ® ®1 Ó REYKJAVK Ó REYKJAVÍK ■ Reykjavík er stærsta smáborg t' heimi niiðað við fólksfjölda. Reykjavík cr minnsta stórborg í heimi miðað við fólksfjölda. Réykjavík er það stærsta, mesta og besta sem hægt er að scgja um nokkra borg ef maður miðar við fólksfjölda eða vasaútgáfur. Miðað við hverja þúsund íbúa eru fleiri leikhús kvikmyndahús söfn veitingastaðirog þessháttar í Reykjavík en nokkursstaðar annars- staðar í hciminum. Að flatarmáli miðað við fólksfjölda er hún stærsta borg í heimi. Hún hefur hæsta meðalaldurinn fæstu glæpina og hæsta kirkjuturn í heimi ef enn er miðað við fólksfjölda. En alltaf má eitthvað betur fara. Ekki er það svo að við séum engir eftirbátar annarra þjóða. Titrandi af trega með kökk í hálsi og engan vegin ótilneydd neyðumst við til að viðurkenna að borg Davíðs hin síðari er ekki gallalaus. Símaklefar í borginni væri þeim jafnt skipt þurfa hver um sig að þjóna 25000 íbúum og þá þarf að endurnýja meira eðaminnacftirhverjahelgi.sjálfsalaþvotta- hús þrífast ekki fremurenönnursjálfvirk þjónusta vegna vandalisma borgarbúa og í borginni eru næstum engir gosbrunnar. Hversvegna í ósköpun- um hefur borg sem er jafn stútfull af vatni einsog Reykjavík enga gosbrunna? Rómaborg önnur höfuðborg í norðurálfu hefur jafngott vatn og Reykjavík og þar vellur vatnið fram hvar sem því verður við komið. I Reykjavík sem stærir sig af besta neysluvatni í heimi er meiriháttar mál að verða sér útum vatnsglas hvað þá að hægt sé að ganga að þartilgerðri bunu og stinga trýninu í hana. Mér telst svo til að á Stórreykjavíkursvæð- inu sé einn starfhæfur gosbrunnur. Heill gos- brunnur á hclming landsmanna. Á ég þar við himnasprautuna svonefndu sem aldrei er í gangi, galvaníseruðu rörbútana sem stingast uppúr suðurenda tjarnarinnar sem einhver fyrrverandi sendiherra gaf um árið þegar allt ætlaði vitlaust að verða. Ég man eftir tvcim öðrum bunum á Stórreykjavíkursvæðinu þær sem voru við Nesti í Fossvoginum og við Elliðaár. Tiltölulega nýlega hvarf styttan í Fossvoginum af stráknum sem pissaði uppí loftið (vonandi er hún bara til viðgerðar) en reyndar var strákurinn ekkert að pissa útí loftið heldur hélt hann á fiski sem ældi vatninu útúr sér en það sá maður ekki því hann sneri baki í umferðina og maður varð að aka inná planið og taka bensín eða þvo bílinn til að sjá hvernig í öllu lá. Bráðsnjallt! Hver á sökina á þessum gosbrunnaskorti borg- arinnar? Er við yfirvöld að sakqst eða listamenn- ina sjálfa? Hálf finnst mér ótrúlegt að jafnágætir myndhöggvarar og Einar Jónsson, Ásmundur Sveinsson og Sigurjón Ólafsson hafi aldrei hannað gosbrunna. Hér kemur hugmynd sem ég ætla í umboði áhugamannahóps um gosbrunna að gefa borgaryf- irvöldum með því skilyrði að henni sé hrint í framkvæmd. 1 norðurenda tjarnarinnar þarsem heita vatnið rennur í hana (kosturinn er sá að þennan gosbrunn verður hægt að starfrækja allt árið) verði komið upp vatnsskúlptúr til minningar um útigangsmenn þá sem eru óðum að hverfa úr bæjarlífinu, hafnarstrætisrónana. Þrír menn á stalli í frökkum krumpuðum fötum með skegg- brodda og hvaðeina sem við á enda sé það háð túlkun listamanns þess sem velst til verksins. Sá fyrsti stendur og blandar úr koggaglasi í malt- flösku og rcnnur vatnið úr glasinu og flóir útúr flöskunni. Aö baki honum stendur annar, styður hönd á öxl þess fyrsta hallar sér fram og ælir. Til hliðar stendur sá þriðji, snýr lítilsháttar frá og mígur í tjörnina. Við þessar aðalbunur má bæta mörgum smærri sem sprautast í allar áttir og við hönnun þeirra má hafa til hliðsjónar styttuna í Kaupmannahöfn af gyðjunni sem er að plægja upp landspildur í Svíþjóð til að flytja útí Norður- sjó og gera að dönsku eyjunum. Til að lappa uppá ástandið í brunnmálum borgarinnar þartil hannað hefur verið hæfilegt magn brunna til að sinna þörfinni mætti til bráðabirgða hlcypa vatni á styttur þær sem þegar eru til staðar. Þannig gæti vatn frussast með kviðnum á selnum sem ber Sæmund fróða, vatnsstrókur staðið útúr stjórnarskrá Kristjáns IX og einsog gárungarnir hafa margoft bent á þá er Ólafur Thors frá vissu sjónarhorni velstemmdur fyrir bunu í tjörnina. En allt yrðu þetta að vera bráðabirgðaráðstafanir. Þegar í stað verður að hefja framkvæmdir við að brunnvæða borgina þannig að hið heimsfræga gvendarbrunnavatn frussist og spýtist útúr ódauðlegum listaverkum rúlli tröppugang úr lítilli skál oní stærri skál oní enn stærri skál osfrv. og korna upp drykkjarbunum fyrir almenning ef vér eigum áfram að teljast til menningarþjóða. íslendingar verða að eignast sitt storkespringvand og það helst á Lækjartorgi og læk í Lækjargötuna. Vegna heita vatnsins getur Reykjavík haft allnokkra sérstöðu í brunnmálum heimsbyggðar- innar. Hægt væri að koma upp eftirlíkingum af heitum hverum hér og þar þannig að túrhestar þcir sem leggja leið sína hingað geti sleppt því að Benóný Ægisson skrifar hossast gullfoss- og geysishringinn en einbeitt sér þess í stað að alþjóðlegu næturlífi og kvennafari íslensku sem rómað er í erlendum blöðum og auk- ið drjúgum við gjaldeyrisforðann þá botnlausu hít. Reykvíkingar! Byrgið ekki börnum ykkar brunna framtíðarinnar. Leyfið þeim að sulla óáreittum. Byggjum brunna og betri borg. Vorið! Nú er komið vor og nauðganir fara að hefjast á tjörninni. Það ásamt komu'kríunnar og fallegu stúlkunum sem birtast óforvarindis í Austurstræti án þess að vera huldar treflum og hettuúlpum er óneitanlega fyrsta merki vorsins og þá sumarsins ef það skyldi koma í ár. Vinkonu minni nýdubbaðri í sumarkjól og kínaskó rann svo til rifja aðgangsharka steggjanna í fyrra að hún grýtti tylft þeirra þarsem þeir voru að hlýða kalli náttúrunnar frá varnarlausri kollu. Látiði hana vera helvítis kallrembusvínin æpti hún hamslaus og gleymdi gæsahúðinni á hand- leggjunum um stund (það er altaf kaldara útivið en maður heldur í henni Reykjavík) ætliði að drekkja henni? Þurfiði að vera allir á henni? En náttúran verður ekki lamin með lurk og þvísíður grýtt með smástcinum. Tjörnin heldur áfram að vera síðasta virki okkar kallrembusvín- anna um ókomna framtíð. En nú hafa konurnar eignast vígi gegn alda- gömlum ágangi og ruddaskap kallskepnunnar. Athvarf er það víst kallað. Ekki eru allir aðilar yfirgangskynsins alfarið ánægðir með þennan áfanga vildu sjálfsagt heldur fá að berja sínar konur í friði nú sem endranær. Til dæmis einn kunningi minn alþekktur fyrir ljósaperusölu og aðra líknarstarfsemi. Þó hann starfi í hinum og þessum góðgcrðarsamtökum sígefandi hjartabíla og þessháttar græjur vildi hann ekki styrkja kvenpening þann sem á dögunum stormuðu götur bæjarins seljandi límmiða til styrktar málefninu. Styrkja ykkur hreytti þessi góði maður útúr sér það væri þá helst ef ég sendi konuna mt'na. Konan stóð auðvitað að baki bónda síns og fordæmdi þessa starfsemi sem stefndi að upplausn heimil- anna. Áfram með ofbeldið. Meðan götubardagarnir geisa í Breiðholtinu (ég sem var farinn að halda að allur dugur væri úr nútímaunglingum og ætlaði að fara að pranga bardagalýsingum úr mínu ungdæmi inná einhvern þjóðháttafræðinginn. Þó finnst mér vopnabúnaðinum hafa hrakað. f þá daga lögðu menn nótt við dag að búa til sverð skildi og þessháttar en grjótkastarar voru illa séðir) stofna 20000 íslendingar dag ofbeldisins eða ofbeldislausan dag. Við hefðum átt að vita það gamlingjarnir af hippakynslóðinni að í stað þess að láta lögguna lemja okkur fyrir friðarviðleitnina þegar við vorum að mótmæla vietnam og tékkó hefðum við átt að biðja þá um undirskriftir. Ha! Láta dýrin Reagan og Andropov skrifa uppá að þeir lofi að vera aa-góðir við alla. Já þetta er einfaldari heimur en mig óraði fyrir. Já voðalegt er þetta orðið með ofbeldið það ætlar alt lifandi að drepa. Það er ólíkt skemmti- legra að horfa á vel útfært ofbeldi en að verða sjálfur fyrir því. Ég fór að sjá gaga ofbeldisfilmu um daginn og mikið gladdist hjarta mitt við að sjá þar allar uppáhaldsofbeldissenurnar mínar samankomnar á einu tjaldi. Sko... Það var einn lónlí gæi grænhúfa nýkominn frá Víetnam sem lendir í klandri við lögguna í einhverju krumma- skuði í usa. Síðan leiðir hvert af öðru hann stingur af á mótorhjóli vinnur á leitarmönnum og á lögregluþyrlu platar þjóðvarðliðið uppúr skónum lokast inní námu brýst þaðan út stelur hertrukk rústar helling af lögreglubílum sprengir upp bensínstöð leggur hálfan smábæ og lögreglustöð í rúst og kálar löggustjóranum. En hvað haldiði að helvítis gæinn geri svo þegar búið er að umkringja hann með ofurefli liðs? Hann gefst upp í stað þess að deyja hetjudauða. Djöfull var ég svekktur. Og mórallinn í myndinni. Jú gæinn hóstar honum uppúr sér í lokin. Hann var að þessu öllu saman af því að hann var svo svekktur yfir því að í Vietnam hafði honum verið treyst fyrir græjum uppá milljónir dollara en í usa var hann bara skítur á spýtu ekkert merkilegri en Elli í efnalaug- inni eða Kalli í kjötinu. Manni getur nú sárnað. Það er vorhugur í börnunum í Breiðholti ef treysta má orðum Morgunblaðsins og vorstemmn- ingar í hugljúfum nauðgunum fuglaríkisins. Engin ástæða lengur til að upplifa lcngur niðursoðnar gervistemmningar videovetrarins og als þess of- beldis heldur má meðtaka það dræ útí náttúrunni. Vidiótarnir eða vidjótarnir koma út gráir og guggnir og slást á hallærisplani eða á austurvelli. Þessi pistill átti eiginlega að vera um vorið (sjá upphafsorð) en einhvern veginn fórst það fyrir. Gleðilegt sumar.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.