Tíminn - 12.06.1983, Page 16

Tíminn - 12.06.1983, Page 16
SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 1983 Þar sem myndmálið ræður ríkjum...Þar sem myndmálið ræður ríkjum... cr sú að eitt lið sé að störfum á hverri vakt. Nú er hins vegar eitt lið á Breiðafirði og verður þar á miðvikudaginn og hin liðin þrjú verða öll að vinna þann dagvið fréttirnar. Eitt lið verður á Kirkju- bæjarklaustri, eitt á Seyðisfirði og eitt hér í bænum. Við verðum alltaf að hafa eitt lið hérna í bænum ef eitthvað kemur uppá. Þetta verður erfiður dagur en við reynum að ná þessu öllu." Ég dólaði um fréttastofu sjónvarps fram yfir hádegi og reyndi að fylgjast sem best með. Það var rólegt þennan mánudagsmorgun og frétta- mönnunum gekk fremur illa að ná sambandi við þá sem þeir ætluðu að tala við. Um tvöleytið var enn ekki búið að ákveða neinar tökur, sem benti til þess að upp úr fimm yrði allt brjálað. Ólafur var búinn að fá loforð um viðtal við nunnurnar í Hafnarfirði daginn eftir, en þær ætluðu að halda af landi brott á föstudaginn. Ég hafði fengið leyfi til að fylgjast með því hvernig sjónvarpsviðtal fer fram og at fréttalista dagsins þóttumér nunnurnar mest spennandi. Ég ákvað því að frcsta seinni hluta dagsins á fréttastofunni - koma frekar aftur á morgun þegar mitt áhugamál yrði á döfinni. Ég er nú ekki hlutlausari blaðakona en þetta... Með nunnum til Bessastaða Við lögðum af stað til Hafnarfjarðar í frægum bíl sjónvarpsins klukkan 14:45. Þegar við komum til klaustursins voru nunnumar, átta að tölu, að búa sig til kaffiboðs hjá Vigdísi forseta á Bessastöðum. Var nú græjunum snarað út úr bílnum og takan undirbúin. Ólafur spurði svo Míríam,príonnnuna,hvert þær færu, hvort þær myndu sakna íslands, hvers vegna og þess háttar. Hann spurði þó ekki þei’rrar spurningar sem emhverjum á fréttastofunni þótti sjálfsögð vegna þess að útlenskir karlmenn eru alltaf spurðir að því hvernig þeim lítist á íslenskar konur, nefnilega: nvernig finnst ykkur íslenskir karlmenn? Enda v:*r þessu nú líka slegið fram í gríni... Að aflokinni töku við klaustrið var haldið út á Btssastaði. Við náðum þangað á undan leigubíl- unuin sem óku nunnunum og var græjunum enn snarað út úr bílnum og allir settu sig í viðbragðs- stöðu. Þær voru svo myndaðar þegar þær stigu út ■ Katrín Ámadóttir í þularstúdíói. úr bílnum og þegar þær komu inn í blómastofuna á Bessastöðum og tóku í hendina á forseta vorum. Síðan voru þær myndaðar við kaffiborðið í bókhlöðunni - en þetta hafa lesendur eflaust séð í fréttatíma sjónvarpsins síðastliðið þriðjudags- kvöld. Og þær voru meira að segja myndaðar svo mikið að Ólafur var farinn að tvístíga. Hann sagði mér að stundum þætti sér nóg um myndatökurnar, það lægi oft við að fjölmiðlafólk tæki athafnir sem þessa yfir. Nú, en Ólafi tókst um síðir að gefa „teaminu" merki um að hætta nú, og við snerum aftur heim á leið, með viðkomu við klaustrið, þar sem ekki hafði unnist tími til að mynda húsið sjálft í fyrstu atrennu. Að því búnu var erindið úti og stefnan var sett á sjónvarpshúsið. Er þangað kom,um fimmleytið.hófst vinnslan á fréttinni. Kom þá til kasta klipparans sem klippir burt eða endurraðar atburðunum á nýtt mynd- band í samráði við fréttamanninn. Þá verður náttúrlega fyrst að skoða tökuna í heild og ákveða síðan hvað skal standa. Tökur í þessari frétt voru tólf mínútur, en sú frétt sem sjónvarpsáhorfendur sáu stóð yfir í 2 mínútur og 19 sekúndur. Þessa rúmlega tveggja mínútna frétt tók nær fjórar klukkustundir að vin en Ólafur greip einnig í símann og sinnti öðr..m verkefnum inn á milli. Þetta er nokkuð lengri tími en venja er vegna þess að fara þurfti á tvo staði og varð ferðin því tvöfalt lengri en venjulega. Þegar búið er að ákveða hvaða skot á að nota í fréttina á fréttamaðurinn eftirað skrifa textann, scm miðast algjörlega við myndina. Myndmálið ræður og fréttamaðurinn skýtur einungis inn texta til að tengja myndefnið saman.Hann verður því að reikna nákvæmlega út hversu mikinn texta hann skrifar. I þessari tilteknu frétt hafði Ólafur tíu sekúndur fyrir texta í upphafi fréttarinnar, 40 sekúndur í fréttinni miðri og sjö sekúndur til að ljúka henni. Hér þýðir ekkert að láta móðan mása. Það er myndin sem talar. „Þá er sko krísa u Þá er klukkan sem sagt orðin sjö og farið að styttast í’ða. Karl vinnur að því að koma fréttun- um í útsendingarhæft form. Hann býr til nýjan fréttalista með nokkuð nákvæmri tímaáætlun, raðar fréttunum, fyrst eftir fréttagildi og síðan eftir því sem þægilegast er og skráir hvort þeim fylgi filmur eða myndbönd sem eru tvenns konar, eftir því hvort um íslenskar eða erlendar fréttir er að ræða. Síðan þarf hann að gera handritin og það sem þeim fylgir klár, láta útbúa þá grafík’ sem þarf - teikningar og/eða kort - og fylgjast með klippingunni. Ef hún gengur seint verður hann að ákveða hvað á að hafa forgang svo hægt sé að senda út. Ef fréttir gerast rétt fyrir átta eða seinna er hugsanlegt að taka upp á kassettu og senda beint út. En þess gerist ekki þörf, að þessu sinni eru allir tilbúnir rétt fyrir hálf átta. Reyndar hefði Sigurveig verið tilbúin með allar sínar fréttir klukkan fjögur, ef hún hefði náð í Steingrím forsætisráðherra. Klukkan 19.25 kom klipparinn með myndbönd- in til Karls sem þaut með þau niður á Ampex, þar sem þau eru tekin upp á breiðara myndband, tommubreitt, en það dregur nafnið Ampex af skrásettu vörumerki sínu. Og innlenda efnið fer á Ampex OB en það erlenda fer á Ampex II. Þá er ekkert eftir nema að fara niður í sminkun. í kvöld er Guðmundur þulur, en einnig þylja fréttamennirnir Guðjón og Bogi. Ég fylgist með útsendingunni sem gengur vel að því er best verður séð. Allir þræðir liggja til Karls, eins og leiðirnar til Rómar forðum. Hann hefur samband við alla sem að útsendingunni standa, en mér er sagt að ef þulur eða fréttamenn sjást tala í símann í miðri útsendingu þá sé sko krísa! Engin krísa í þetta sinn, en uppi á fréttastofunni hinkrar fólk-við til þess að fullvissa sig um að ekki sé hringt og kvartað yfir fréttunum. Það kemur víst fyrir, en að því loknu mega allir fara heim. Égfórheim. -sbj.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.