Tíminn - 12.06.1983, Qupperneq 20

Tíminn - 12.06.1983, Qupperneq 20
20 SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ1983 Rockall nýja platan með: Mezzo í 75. sæti ■ Lagið Rockall með Mezzoforte sem gefið var út í Bretlandi á lítiili plötu 27. maí síðastliðinn hefur nú tekið flugið. í þessari viku komst Rockall í 75. sæti breska vinsældalist- ans og bendir allt til þess að þetta sé bara fyrsti áfanginn á leið lagsins upp listann. í siðustu viku var Rockall leikið alls 5 sinnum á rás 1 í BBC auk þess sem það fékk talsvcrða spilun í Radio Luxembourg og í 20 öðrum útvarpsstöðvum sem staðsettar eru víðsvegar í Brctlandi. Vikuna 30. maí til 4. júní lék Mezzoforte í Baileys klúbbnum í Watford og var fullt útúr dyrum öll kvöldin. Um helgina var svo haldið norður til Glasgow þar sem Mezzo- forte tróð upp ( Pavillion á mánudags- kvöldið 6. júnf. Voru jnóttökur skoskra aðdáenda hljómsveitarinnar stórkostlegar hreint út sagt. Aðrir tónleikar Mezzoforte þessa vikuna eru sem hér segir: Þriðjudaginn 7. júní Fusion í Aberdeen Miðvikudaginn 8. júní Coasters í Edinborg Fimmtudaginn 9. júní Dingwalls í Sheffield Föstudaginn 10. júní Seven Manor Hotel i Kidderminster Síðan verður haldið áfram suður á bóginn og kemur hljómsveitin til Lundúna 30. júní og leikur í Dominion Theatre þá um kvöldið. ■ Classix Nouveaux GRACE ■ Það var Ijót aðkoma í Sigtúni þann 3. júní. Þetta forljóta samkomuhús.eða öllu heldur hlaða, var svo troðfullt að það minnti mig á gubbukenndu skóla- böllin sem framhaldsskólarnir standa fyrir. Einn kunningi sem ég hitti var búinn að vera þarna í klukkutíma og sagðist vera búinn að hlusta á sömu lögin aftur og aftur í diskótekinu. Það reyndist vera rétt, allavega voru endurtekin sömu lögin á meðan ég beið í einn og hálfan tíma eftir Grace. Hún átti að byrja hálf ellefu en kaus að byrja á miðnætti. Ég held að ég hafi aldrei séð jafn mikla eftirvæntingeftireinumlistamanni^alur- inn var einfaldlega á suðupunkti og margir orðnir hálf svekktir. Kannski út af því að tími er peningar og það áttrsvo sannarlega við þarna, því Grace selur sinn tíma ansi dýrt, húri kom aðeins fram í þrjú korter, ekki mínútu lengur, og þar að auki með músikina á teipi. Þegar hún steig á sviðið og faldi sig bakvið tröppur, sem voru sviðsmyndin, skipuðu áhorfcndur sér í fjórar lofthæð- ir; á gólfið, uppi á palli sitjandi og standandi á borðum og nokkrir fóru í Tarsanleik í hlöðubjálkunum. En til allrar hamingju var þessi langa bið ekki til einskis, því fullir íslendingar eru engin meinlaus lömb í túni. Og það er alls ekki í eðlinu að bíða eftir engu. Þetta show var magnað og vægast sagt mikil upplyfting fyrir okkur sveitafólkið. Það er kannski fullsterkt að segja að þetta hafi verið tónleikar, þar sem flutningur tónlistarinnar var sem áður sagði á bandi, en cngu að síður var þetta flott fyrir augun og tónlistin frábær. Prógrammið hófst á Walking in the Rain af Nightclubbing og áhorfendur voru með strax frá byrjun. Ég man nú ekki alveg röð laganna, en Grace söng My Jamaican Guy, La Vie en Rose, Pull up to the Bumper, Nipple to the bottle og I need að man. í síðastnefnda laginu gaf Grace sterklega í skyn með mynd- rænum hreyfingum innihald textans og ég var farin að halda að hún þyrfti á manni að halda. í einu laganna fékk hún þó kærkomið kompaní, einn úr salnum dansaði við hana í smátíma og hún virtist alsæl með það. Það er erfitt að standa í stað við hljómfall laga eins og Pull up to the Bumper sem ásamt Freak Out með Chic er eitt skemmtilegasta diskólag sem undirritaður hefur heyrt um ævina. Ég átti erfitt með að greina laglínu La Vie en Rose í meðförum Grace, miðað við Edith Piaf, en útsetningin á því var alveg milljón og virtist því sem næst allt annað lag. Reyndar virðist Grace hafa sérstakt lag á að útsetja söngva sína og nægir þar að nefna Libertango og videó- ið kringum það lag. Eftirvæntingin sem ég minntist á áðan hélt ég að hafi einungis stafað af spenn- ingnum yfir að sjá Grace Jones holdi klædda. Fyrir mína parta hef ég alltaf litið á þessa hárprúðu veru frekar sem vélmenni en flesk og blóð, vegna sér- kennilegrar framkomu, útlits og kalds söngs. í fyrsta laginu, Walking in the Rain, stóð hún kyrr með ljóskastarann aðeins í andlitið og hélt ég að þannig myndi hún veröa gegnum prógrammið. En smátt og smátt fór hún að dilla sér og bróðir hennar, klæddur í sams konar búning með sömu „ógreiðslu" dansaði á móti henni í mjög skemmtilegum strobe ljósum. Svona á heildina litið var þessi skemmtun fyllilega 380 króna virði, því hérna á Islandi eigum við ekki þess kost að sjá svona lagað daglega. Aðstandandi showsins, Leopold Sveinsson á miklar þakkir skilið þótt Sigtún hafi verið frámunalegur staður fyrir svona viðburð. - Bra. nútíminn ■ Grace Joncs ásamt bróður sínum á leið í Sigtún. Nú-Tímamynd Árni Sæberg MOGO HOMO STÆRRI OG MUN RETRI ■ Hljðmsveitin Mogo Homo hefur verið til hér í einni cða annarri mynd undanfarin tvö ár cða svo, oftast sem dúett þeirra Óskars og Óðins úr Taugadeildinni. Nú hefursveitinver- ið stækkuð.að mun. gttarleikari og ivær söngkonur bæst í hópinn og eru þéssar breytingar til mikilla bóta. Þannig skipuð tróð þcssi sveit upp í Félagsstofnun t síðustu viku, ásamt hljómsveitinni ISS og Þorsteini Magnússyni en fyrirutan þessi númer var boðið upp á hljómsveit, hvers nafn ég veit ekki og vil raunar helst gleyma sem fyrst, tveir blásarar og einn gítarleikari, sem áheyrendur klöppuðu niður. Auk þessa flutti „reið ung kona" Ijóð eftir sjálfa sig. Þorsteini Magnússyni míssti ég af einu sinni enn en ég kom þegar blásaratríóið var að láta áheyrendum l^iðast, en á eftir þcim hellti sú unga rfciða úr skálum sínum yfir lýðinn sem taldi um 50 manns. Tónlist Mogo Homo er scm fyrr, nýrómantík cða tölvupopp, trommur og syntesizer á bandi, Óskar sér um sönginn ásamt stúlkunum tveimur sem aðallega „humma“ meö. Önnur þeirra, Steinunn, söng raunar eitt lag ein og vildu margir meina að það hafi verið hið eina af viti sem sveitin gerði þetta kvöld, nokkuð til í því og að skaðlausu mætti hún sjást meir í sveitinni enda með geysi skemmtilcga rödd. Á heildina litið er Mogo Homo hinsveg- ar á réttri leið, lögin létt ogskemmti- leg og renna greinilega Ijúflega inn- um hlustir áheyrenda. Iss var aðalnúmer kvöldsins og lentu þeir á hálfgcrðum bömmer þar sem nokkuð af fólkinu streynjdi út mcðan þeir léku og voru þó ekki margir fyrir. Þeir áttu í nokkrum vandræðum með kerfið, eins og raun- ar MH einnig, þar sem hljóðnemi söngvarans datt út nokkrumsinnum. Ef maður mundi skilgreina tónlist MH sem mjög þurran Martini var Iss á við tvöfaldan tequila, án salts og sítrónu, þung nýbylgja með fönktvafi þar sem er blástur Einars Arnar í nokkrum laganna en þeir bregða einnig fyrir sig létt klassík, lagið Valsinn, og eru með ýmsar skemmti- legar „pælingar“ í gangi sem þó virðast ekki ná þeim tökum á áheyr- endum sem til er ætlast. _fri Classix Iss með ■ Afráðið er að hljómsveitin ISS muni koma fram í Laugardalshöll, ásamt Q4U, á undan Classix Nouveaux á tónleikunum n.k. fimmtudagskvöld, þann 16. júní. ISS er nú að æfa upp nokkur ný og „létt“ lög að því er Einar Örn tjáði ■ Hljómsveitin Tappi Tíkarrass er nú að byrja upptökur á nýrri lp plötu út í Southern Studios í London og hófst verkið s.l. miðvikudag en Tappinn hefur um nokkurt skeið, haldið til í borginni. Upptökumaður á plötunni verður Tony Cook sem mörgum er að góðu Nútímanum fyrir þessa tónleika og vafa- laust verður forvitnilegt að sjá útkom- una. Þetta ættu því að geta orðið „þrumu- tónleikar" ef allt fer að óskum allavega er Hallvarður umbi ekki í neinum vafa um það. _pR| • •• kunnur hérlendis og ekki er stúdíóið heldur alveg óþekkt hérlendis því Purrk- ur Pillnikk tók þar upp eina af plötum sfnum. Það munu vera Steríó og Gramm sem gefa þessa nýju plötu út í sameiningu. -FRI Kikk á plast Rokkhljómsveitin TCikk er nú á leiðinni með að skrifa undir tveggja ára plötusamningvið Steinar. Líklegt er að hljómsveitin geri tvær eða þrjár plötur á þeim tíma. Undanfarið hefur Kikk spilað mik- ið úti á landsbyggðinni fyrir dansi, en mun líklega spila talsvert hér í kringum fyrstu plötuna. T.d. kemur hún fram á Lækjartorgi 17. júní. Eins og þegar er heyrinkunnugt hefur sá gamli poppari, Nikulás Ró- bertsson, gengið til liðs við hljóm- sveitina. - Bra. Þrjár góðar með Echo ■ Þrjár íslenskar hljómsveitir munu hita upp fyrir Echo and the Bunnymcn á tónleikum þeirra í Laugardalshöll í byrjun júlí en þau eru Egó, Grýlurnar og Deild 1. Egó og Grýlurnar kannast allir við en Deild 1 var áður Puppets eins og greint hefur verið frá hér, þeir breyttu um nafn um leiðog Björgvin Gíslason kom inn í bandið sem hijómborðsleikari. Tappi tíkarrass í Southem

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.