Tíminn - 12.06.1983, Page 27
SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ1983
27
smáborgarinn Kafka og hrekkjalómur-
inn Hasek. Kafka skrifar í bréfi um:
„...hið ókleifa varðandi það að skrifa
ekki, skrifa á þýsku ellegar þá einhverju
öðru tungumáli, - já, það er hægt að
tilgreina hið fjórða: hið ókleifa varðandi
það að skrifa yfirleitt."
Fleiri vísbendingar? Nema hvað -
ómæli sálfræðilegrar ævisögurýni, duld-
irnar og fóbíurnar. Veikburða einstakl-
ingur sem hrópar á lífsrými innan fast-
mótaðrar gyðinglegrar fjölskyldugerðar.
Kafka stríddi allt sitt líf við einn stórpúka
- föður sinn. Hermann Kafka, tröllauk-
inn mann með nautssvíra og gotneskt
höfuðlag. í vitund Kafka var faðirinn
holdtekja þess valds sem ekki þarf að
spyrja um lög eða rétt, voldugur, hroka-
fullur, ímynd þess afls sem deilir og
drottnar eftir geðþótta. Faðirinn hafði
alla þá eiginleika sem Kafka fannst sig
sárlega vanta og vanmetakenndin geis-
aði því af ofurafli í sál hans, einkum
þegar kvenfólk var annars vegar. Hann
stóð tvívegis á þröskuldi hjónabandsins,
en hopaði síðan er atlot ástmeyjanna,
Felice og Milenu, fóru að brenna á
honum. Á sama hátt lagði skáldfaðir
hans og annar forgengill existensíalism-
ans, Daninn Sören Kierkegaard, á flótta
er hjónabandið lagði snörur sínar fyrir
hann. Ástæður Kafka voru líka gildar.
Hann var heilsutæpur, kvalinn af óræðu
samviskubiti, áleit að til þess að stofna
heimili þyrfti hann frekar eiginleika
föðurins en sína eigin, og ritstörfin voru
honum brennandi þörf og köllun.
í eldinn
Þannig var allt hans vitundarlíf - sú
hlið sem ekki laut að tryggingunum, sem
hann mun hafa rækt af mannskemmandi
samviskusemi - líf andlegrar vanlíðunar
helgað ritstörfum. Samt lét Kafka ekki
mikið frá sér fara meðan entist. Aðeins
fáeinar fabúlur í tímaritum og tvö lítil
söfn með prósabrotum og smásögum:
„Betrachtungen" (Athuganir) og „Ein
Húngerkúnstler" (Sultarlistamaður)
fyrir áeggjan vina. Kafka renndi aldrei í
grun að hann ætti eftir að verða einn
hinna ódauðlegu. Hann var óframfærinn
með afbrigðum, hélt þó engu leyndu
fyrir pappírnum, en óaði líkast til við
því að koma upp um sig með því að birta
stærri verk, full af brotum og brota-
brotum úr eigin ævi.
Svo dó hann og það kom á daginn að
eftir hann lágu þrjár skáldsögur, fjöldi
óprentaðra smásagna, auk dagbóka og
bréfa sem fylltu heil fjögur bindi. Á
dánarbeði bað hann vin sinn Max Brod,
miðlungsrithöfund, að koma því sem
eftir lá í skúffunni á eldinn. Max, sem
allar götur síðan hefur þótt einn helstur
velunnari betri bókmennta, sveik merki,
ólukkans hrappurinn, og hélt rakleitt til
næsta útgefanda. Næstu árin stýrði hann
svo útgáfum á stórvirkjum hans, skáld-
sögunum Slotinu og Málaferlunum, og
Ameríku, eilítið lítilvægara verki. Og
hinn læsi heimur tók andköf... En hefði
Kafka raunverulega viljað að handritin
eyddust á eldi brennanda, hefði hann þá
ekki átt að skreiðast framúr helsjúkur og
... Hér er heilladrjúgur tvískinnungur.
Málaferlin
Málaferlin (Der Prozess): „Einhver
hlýtur að hafa borið ljúgvitni gegn Jósef
K., því einn morgun var hann handtek-
inn án þess að hafa brotið nokkuð af
sér. “ Jósef K., bankablók og meðalmað-
ur í alla staði er ákærður fyrir glæp sem
hann veit ekki hvers eðlis er. Hann
stendur hjálparvana andspænis óskiljan-
legu og stirðu réttarkerfi, hann er stadd-
ur í völundarhúsi þar sem engin undan-
komuleið er til og speglast í endalausum
stigum, göngum og kompum dómshúss-
ins. í baráttu Jósefs K. verða undirtyllur
og kontóristar hvarvetna á vegi hans, en
að baki býr ósýnilegt og óskiljanlegt vald
sem hvergi gefur á sér færi, er alltum-
faðmandi en um leið óendanlega fjarri.
Barátta hans er til einskis, á endanum er
hann tekinn af lífi án þess að hann sé
nokkru nær um það hver glæpur hans er.
Söguhetjan í Slotinu (Das Schloss),
sem heitir einfaldlega K., á líka í
vonlausri baráttu við ósýnilegt yfirv'ald.
Hann er að mörgu leyti andstæðan við
nafna sinn Jósef K., rótlaus flakkari sem
kemur óvænt í sveitaþörp seint um nótt
og reynir síðan ákaft að koma sér inn
undir hjá yfirvaldinu í Slotinu sem
gnæfir yfir þorpið, en hefur ekkert upp
úr krafsinu nema skeytingarleysi og
niðurlægingu.
Sess sinn í bókmennta og menningar-
sögu verðskuldar Kafka tæpast fyrir
stílgaldur eða stundlega nýsköpun máls.
Mörgum þýðendum hans hættir meira
að segja til að lagfæra stílbragðið. Styrk-
ur hans liggur fyrst og fremst í einstöku
næmi, eins konar ofurskynjun á veru-
leikanum sem hvorki þarf að sýnast eða
berast á. Líkt og hjá öðrum skynjara af
svipuðu tagi, sjálfum Dostoévskí, situr
formið oft á hakanum, er í raun nauðaó-
merkilegt á köflum og ritlistin ekkert til
að taka andköf yfir. Það er sjálfsrýnin,
einlægnin, óvægin naflaskoðun, þessi
hamslausa tjáning sem næstum hefur
verk slíkra höfunda yfir gagnrýni. Gald-
urinn felst í milliliðalausu samspili lista-
manns og veruleika, þeirra viðmið er
ekki skapalón hversdagslegrar fagur-
fræði.
Milli stafs og hurðar
„Everybody’s trying to be my baby“ -
margir ritskýrendur sjá í Kafka dagsbrún
existensíalisma og absúrdisma eftir-
stríðsáranna. Marxistar sjá gjarna í
honum napra ádeilu á pappírsveldi og
handahófskenndar verkanir borgaralegs
þjóðfélags. Eða er hann að deila á
skrifræðiskommúnismánn, sem var í
burðarliðnum um það leyti er hann féll
frá? Guðhræddu fólki þykir hann skrifa
flestum betur um leit að æðra lífsgildi,
trúarlega óvissu, efann í návist þess guðs
sem smækkar í sömu mund og alheimur-
inn þenst út, og telja verk Kafka bera
vott um óslökkvandi trúarþorsta.
Og svo framvegis. Innra með honum
berjast flestar tilfinningar við andstæðu
sína - undirgefni Jósefs K. við uppreisn-
argirni K. í Slotinu, ást og andstyggð á
konum, hann óttast það að þær éti sig
með húð og hári, hann „eyðileggist í
öðrum," saurlífisseggurinn og spámað-
urinn, löngunin til að samlagast borgara-
legum lífsmáta og vissan um að á þeim
vettvangi getur hann aldrei verið heill og
óskiptur. Hann er staddur milli stafs og
hurðar, og listamannsköllunin, „án
ábata, án ástar, án fjölskyldu og tekna,
reist á bjargi hjartans," svo notuð séu
orð Rilkes, er hvort tveggja sáluhjálp
hans og hans mesta ógæfa.
Ef til vill þykja slíkar vanmetakenndir
hálf grátbroslegar í okkar formyrkvaða
efnishyggjusamfélagi; en eðlilega átti
Gregor skinnið Samsa í Hamskiptunum
erfitt með að samlagast er hann vaknaði
einn morguninn í rúmi sínu og hafði
ummyndast í risastóra pöddu - áður en
yfir lýkur veltist hann svo um í eigin saur
og því rusli sem gengur undan öðrum
fjölskyldumeðlimum. Eða hr. K í Slot-
inu sem átti í höggi við andstæðing sem
var eins og „The Chesire Cat“ í Lísu í
Undralandi, gufaði upp þangað til
ekkert var eftir nema kalt glottið. Og
Jósef K. sem var sakaður um glæp sem
gat allt eins verið erfðasyndin sjálf.
Endurskrift
En höfum hugfastan vísdóm sem
Jorge Luis Borges gefur listilega í skyn í
smásögunni frægu um Pierre Menard,
Höfund-Quijotes: á vissan hátt endur-
skrifum við allar bækur sem við lesum,
sníðum þær að eigin smekk og andlegum
þörfum okkar sjálfra. Þetta-á'ékkT-síst
við um slíkan ráðgátuhöfund sem Kafka
er. Hollast er að taka túlkanir og útlist-
anir með fullri aðgát; fjöldi þeirra er í
besta falli meðmæli með höfundinum.
Sendum bókmenntafræðingana á tog-
ara! Lesum bækur í stað bóka um bækur!
Undir lokin er ekki úr vegi að minnast
á gagnkvæma ást Kafka og sálgreiningar-
innar. Þurfti maðurinn ekki að komast
undir læknis hendur? Það má gera að
því skóna. Hann fór hvergi og þakklátir
lesendur anda feginsamlega. Angistin,
sambandið við hinn drottnandi föður,
óvægin hreinleikakrafa hans, kynferðis-
leg vanmetakennd, sektarvitundin, sam-
viskubitið, hið tvöfalda líf hans - allt eru
þetta sjúkdómseinkenni, talin viðfangs-
efni sálgreiningarinnar. Og vissulega
hafa sálgreinendur rýnt af öllum sálar-
kröftum í ævi Kafka og rit. Sjálfum var
honum þetta fullljóst, enda greindi hann
sjálfan sig með aðferðum Freuds og
stílaði síðan niðurstöðurnar til föður
síns í ósendu bréfi, Bréfi til föðurins
1919.
Taugaveiklunin
Þar gerir hann upp sakirnar við sjálfan
sig og reynir að komast fyrir rætur
taugaveiklunarinnar sem þrúgaði hann
alla tíð. Hann ásakar föður sinn fyrir að
hafa kúgað sig í bernsku með sínum
næstum guðlega mætti, geðþóttavaldir
vanþóknun og sífelldum kröfum. Af-
leiðingarnar sér Kafka í veiklyndi, sekt-
arkennd og skorti á sjálfstrausti. Hann
gat ekki kvænst, gat ekki lifað mannsæm-
andi lífi, honum var engrar undankomu
auðið, líkt og tamda apanum talandi í
smásögunni Skýrsla flutt Akademíu.
Hann var dæmdur til að lifa lífi sultar-
listamannsins, svo notað sé hans eigið
orð. Hvorki sektarkenndina né andúð-
ina á föðurnum fékk hann upprætt, en
altént fann hann þarna hvata til að skrifa
verk sem láta engan ósnortinn. Ósnort-
inn? Ef bækur Káfka hafa á lesandann
þau áhrif sem hann taldi æskileg við
lestur skáldsagna hljóta þær að duga:
„Ef bók sem við erum að lesa vekur
okkur ekki eins og ef við værum lamin
með henni í hausinn, til hvers þá að lesa
hana? Til þess að hún færi okkur ham-
ingju? Drottinn minn dýri, við værum
líka hamingjusöm ef við hefðum engar
bækur, og bækur sem færa okkur ham-
ingju gætum við, ef svo bæri undir,
skrifað sjálf. En það sem við getum ekki
verið án eru bækur sem dynja yfir okkur
eins og ógæfa og valda okkur hugraun-
um, eins og dauði einhvers sem við
elskum meira en okkur sjálf, eins og
sjálfsmorð. Bók verður að vera ísöxi til
að brjóta hafið sem er frosið innra með
okkur."
Franz Kafka kvaddi þennan heim 3ja
júní 1924. Það er haft fyrir satt að flestir
venslamenn hans sem Iifðu, systur hans
og ástkonur, hafi týnt lífinu í útrýming-
arbúðum þúsundáraríkisins, þar sem
stóðu, vænti ég, fyrir búi dóinsstjórarnir
úr Málaferlunum og hinir háu herrar úr
Slotinu.
Egill Helgason
HOLLAÍSD
heybindivélin
Vinsælasta og mest
selda heybindivélin
á markaðnum
Ein af höfuðástæðum fyrír vinsældum
NewHolland hér á landi, erað
New Holland verksmiðjurnar hafa
hannað vélarnar fyrir fíngert hey og
íslenska staðhætti.
Við bjóðum tvær stærðir
'H°1~ÚANrs
•• . | ,s
JL
nrís
l\EW HOLLAf\D 370
Breidd sópara 1,57 m.
Stimpilhraði 80 siög við 540 snúninga á aflúrtaki.
Stimpilslaglengd 76 cm.
Verð kr. 143.000.-
^Kew hollai\d 378
Breidd sópara 2,00 m.
Stimpilhraði 93 slög við 540 snúninga á aflúrtaki.
Stimpilslaglengd 76 cm.
3ja hjöruliða drifskaft.
Verð kr. 159.000.-
(gengi 20/4 ’83)
Afkastamesta vélin á
íslenska markaðnum
Örfáum vélum óráðstafað úr síðustu
sendingu.
G/obus?
LÁGMÚLI 5, SIMI 81555