Tíminn - 23.06.1983, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ1983
TOSHIBA
Ferðagræjunum
x %
0
#
Kannaðu kjörin
EF
verð kr.
5.480.-
EINAR FARESTVEIT 4, CO. HF.
BERGSTAÐASTRÆTI I0A - SlMI 16995
Sandharpa til sölu
til sölu er ný VIBRASCREEN-sandharpa með
vökvaknúnu hristisigti, 40 feta færibandi, matara
og sílói. Hagstætt verð og góð greiðslukjör.
Upplýsingar í síma (91) 19460 og (91) 77768
(kvöldsími).
GRJOTGRINDUR
Á FLESTAR TEGUNDIR BIFREIÐA
KVORT
KÝSTÞÚ
GATEÐA
GRIND?
BIFREIÐA
SKEMMUVEGI 4
K0PAV0GI
SIMI 7 7840
Kverkstæðið
nastós
Eigum á lager sérhannaðar grjót-
grindur á yfir 50 tegundir
bifreiða!
Ásetning á
staðnum
SÉRHÆFBIRIFIAT 06
fréttír
Fæöingarheimili Reykjavíkurborgar:
REKSTRARHALUNN NÁLÆGT
6 -7 MILUÓNUM í ÁR!
- Breytingar á húsnæði sem ekki er talin þörf á
kosta 4-5 milljónir króna til viðbótar
■ „Niðurstaðan er sú að greiða verður
6-7 milljóna halla á Fæðingarheimilinu í
ár. I breytingar á húsnæði og tækjakaup
fara 4-5 milljónir króna og rúmin standa
auð eftir sem áður,“ sagði Kristján
Benediktsson, borgarfulltrúi, í um-
ræðum um Fæðingarheimili Reykjavík-
ur á borgarstjúrnarfundi á fimmtudag.
Ennfremur sagði Kristján að ákvörð-
un hefði verið tekin um að taka í notkun
hluta af húsnæði heimilisins undir minni-
háttar skurðaðgerðir á sviði kven-
lækninga, sem hvorki heilbrigðisráðu-
neytið né sérfræðingar á kvennadeild
Landspítala teldu þörf fyrir á Reykjavík-
ursvæðinu. Þá sagði hann að ráðist hefði
verið í tækjakaup og breytingar á hús-
næði áður en nokkuð hefði legið fyrir um
þátttöku ríkisins í þeim kostnaði né
heldur þátttöku í væntanlegum rekstri.
Loks sagði Kristján að ekki hefði verið
kannað hvort starfsleyfi fengist.
- Sjó.
■ Landslið yngri spilara í bridge sem spilar á Norðurlandamótinu í Þrándheimi. Sitjandi frá vinstri eru Stefán Pálsson,
Hróðmar Sigurbjörnsson, Aðalsteinn Jörgensen og Karl Logason. Standandi frá vinstri eru Bragi Hauksson, Sigríður Sóley
Kristjánsdóttir og Sigurður Sverrisson fyrirliði.
Tímamynd Ari
Ungir bridgespilarar á leið til Noregs
■ Norðurlandamót yngri spilara í
bridge hefst í Þrándheimi í Noregi á
sunnudag. Alls spila 9 lið á mótinu: A
og B lið frá Finnlandi, Danmörku,
Noregi og Svíþjóð og eitt lið frá Islandi.
Liðin spila einfalda umferð með 24ra
spila leikjum en þetta fyrirkomulag hef-
ur verið notað á tveim síðustu Norður-
landamótum.
íslenska liðið er skipað þeim: Sigurði
Sverrissyni fyrirliða, Aðalsteini Jörgen-
sen, Stefáni Pálssyni, Braga Haukssyni,
Sigríði Sóley Kristjánsdóttur, Hróðmari
Sígurbjörnssyni og Karli Logasyni. Þetta
er í fyrsta sinn sem kona spilar í opnu
landsliði íslands í bridge.
Aðeins Aðalsteinn og Stefán hafa
spilað erlendis áður en hin Norðurlöndin
senda öll leikreynd lið á mótið. f dönsku
og finnsku liðunum eru meðal annars
spilarar sem munu keppa á Evrópumót-
inu í opnum flokki seinna í sumar. Það
má því búast við að róðurinn verði
þungur að þessu sinni en ísland hefur á
tveim undanförnum mótum lent í þriðja
sæti.
Tíminn mun birta fréttir af mótinu
eftir fimm umferðir og einnig að mótinu
loknu en því lýkur fimmtudaginn 30.
júnf. - GSH
Mikill kostnaður við sorphirðu í Reykjavík:
„EKKI DYRARA EF
Á ALLT ER LITIД
— segir borgarverkfrædingur
■ „Ég er ekki þeirrar skoðunar að
sorphirða sé dýrari í Reykjavík en í
öðrum bæjarfélögum þegar á allt er litiö.
Það verður að líta á heildarkostnaðinn,
en ekki einungis þann hluta hans sem
bæjarfélögin greiða,“ sagði Þórður Þor-
bjarnarson, borgarverkfræðingur m.a.,
spurður skýringa á því hvers vegna
sorphirða sé dýrari í Reykjavík en annars
staðar. j Tímanum í gær kom fram að
kostnaðurinn árið 1981 hafi t.d. numið
267 kr. á hvern íbúa í Rcykjavík en 147
kr. í Kópavogi.
Þórður kvað eflaust nokkrar skýringar
til á þessu. í Reykjavík séu t.d. fleiri
verslunarfyrirtæki og önnur fyrirtæki
sem hi'rða þurfi frá, þannig að ekki þýði
eingöngu að deila í íbúafjöldann. í öðru
lagi þurfi fólk í öðrum bæjarfélögum að
kaupa plastpoka undir sorpið, þannig að
þar sé á' vissan hátt verið að velta
kostnaðinum yfir á íbúana.
Hins vegar kvað hann umtalsverðan ,
vinnusparnað við losun með pokum, þar
sem hreinsunarmenn verði t.d. að skila
tunnum aftur á sinn stað.
í skýrslu hreinsunardeildar fyrir árið
■ Ökumenn á höfuðborgarsvæðinu
eiga þess kost nú í vikunni að fá ókeypis
þjálfun í akstri og meðferð bifreiða.
Þjálfunarnámskeið þetta er liður í bættu
umferðaröryggi á Norrænu umferðarári
sem nú er næstum hálfnað. Námskeiðið
verður haldið í húsakynnum Bifreiða-
eftirlits ríkisins að Dugguvogi 2, fimmtu-
dagskvöldið 23. júní og hefst kl. 20.00.
í fréttabréfi frá Umferðarráði segir að
þarna sé um að ræða skemmtiiegt kvöld
fyrir ökumenn á öllum aldri sem hafa
1980 kvað Þórður koma fram að 40.485
sorpílát voru þá í notkun og hafði
fjölgað um 1.286 frá árinu á undan. Alls
unnu þá 93 menn við sorphirðuna allt
árið. - HEI
áhuga á að endurhæfa sig í akstri og ekki
síður í meðferð og viðhaldi bifreiða. Að
námskeiðinu standa Bifreiðaeftirlit
ríkisins.Tryggingafélögin, Umferðarráð
og Ökukennarafélag íslands.
A námskeiðinu verða haldin erindi
um fébætur og tryggingar, meðferð og
viðha.ld bifreiða með tilliti til orkusparn-
aðar, akstur í bæjum og á þjóðvegum og
um manninn við stýrið. Einnig fer fram
verkleg þjálfun undir leiðsögn öku-
kennara.
Nýjung fyrir ökumenn:
Ókeypis þjálfun í
akstri bifreida