Tíminn - 23.06.1983, Page 3
FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1983
3
fréttir
Aurskriður lok-
uðu veginum
um Ólafs-
fjarðarmúla
■ Miklar aurskriður féllu á veginn fyrir
Ólafsfjarðarmúla um hádegisbilið í gær.
Ekki tókst að ryðja veginn fyrr en seint
í gær og biðu þá margir eftir að komast
yfir.
Snjóalög eru enn í fjallinu og í
gærmorgun var mikið vatnsveður sem
orsakaði þessar skriður. Að sögn sjónar-
votta voru þetta stærstu skriður sem
fallið hafa á þennan veg. Enn er mikil
vinna eftir við hreinsun vegarins, þó
hægt hafi verið að opna hann, og eins er
talin hætta á að fleiri skriður falli á
þessum slóðum.
- GSH
Sinfónían í
hljómleikaferð
■ Sinfóníuhljómsveit (slands leggur af stað
í hljómleikaferð um Vesturland og Vestfirði
í dag og verða fyrstu tónleikarnir í kvöld kl.
21.00 á Búöardal. Á efnisskrá verða óperu-
forleikir og óperuaríur, þættir úr Haefners-
serenöðu og hornkonsert eftir Mozart og 5.
sinfónía Beethovens. Stjórnandi verður Páll
P. Pálsson, einsöngvari Sigríður Ella
Magnúsdóttir, einleikari á horn, Joseph Ogn-
ibene og einleikari á fiðlu og konsertmeistari
Einar G. Sveinbjörnsson, en hann gegnir
starfi konsertmeistara við sinfóníuhljóm-
sveitina í Malmö í Svíþjóð. Auk þess mun
Hlíf Sigurjónsdóttir leika einleik á fiðlu með
hljómsveitinni á tónleikum á Isaftrði, en þar
verður flutt breytt efnisskrá; Skerpla 11 eftir
Jónas Tómasson, Fiðlukonsert í Á-dúr eftir
Mozart og Sinfónía nr. 2 eftir Jean Sibelius.
Verk Jónasar er samið sérstaklega fyrir
heimsókn hljómsveitarinnar til ísafjarðar og
verður frumflutt á tónleikunum.
Tónleikarnir verða annars sem hér segir:
Búðardalur- fimmtudaginn 23. júní kl. 21.00
Þingeyri - föstudaginn 24. júní kl. 21.00
ísafjörður- laugardaginn 25. júní kl. 15.30
Bolungarvík - sunnudaginn 26. júní kl. 15.30
Suðureyri - sunnudaginn 26. júní kl. 21.00
Flateyri - mánudaginn 27. júní kl. 21.00
Patreksfjörður - þriðjudaginn 28. júní kl.
21.00.
- JGK
Reykvíkingar:
IR TIL FÓGETA
— Bankar og sparísjóðir
annast öflun veðbókar-
vottorða og þinglýsingu
veðskuldabréta
■ Reykvíkingum mun framvegis gefast
kostur á að spara sér árlega unt 15. þús.
heimsóknir til Borgarfógetaembættisins
í Reykjavík, eftir samkomulag em-
bættisins við viðskiptabanka og spari-
sjóði í borginni. Frá 27. júní n.k. er gert
ráð fyrir að bankar og sparisjóðir í
Reykjavík annist öflun veðbókarvott-
orða og þinglýsingu veðskuldabréfa hjá
embættinu, samkvæmt frétt frá við-
skiptabönkum og sparisjóðum.
Með samkomulagi þessu er hugmynd-
in að draga úr þeirri fyrirhöfn scm fylgt,
hefur lántöku hjá lánastofnunum. Sé lán
tryggt í fasteign hefur lántakandi þurft
að útvep veðbókarvottorð, sem tekur
tvo daga að fá og þinglýsa síðan veð-
skuldabréfi eftir útgáfu þess, sem tekur
aðra tvo daga. Samtals hefur þetta því
krafist 4 ferða hvers lántakanda til
fógetaembættisins, eða samtals um 15.
þús. ferðir á ári vegna slíkra lána,
samkvæmt frétt frá bönkum og spari-
sjóðum. Fyrir þessa þjónustu taka lána-
stofnanirnar sérstakt gjald, sem nú er28
kr. fyrir útvegun veðbókarvottorðs og
sama upphæð fyrir þinglýsinguna, eða
samtals 56 krónur.
Reynist þjónusta þessi vel er fyrirhug-
að að bankar og sparisjóðir leiti sam-
komulags við önnur fógetaembætti um
sama fyrirkomulag.
- HEI
Eiríkur Ingimundarson
Haukur Ólafsson
Ragnar Júlíus Hallmannsson
■ Jarðneskar leifar sjómannanna ungu
sem fórust í brunanum um borð í
Gunnjóni GK 506 voru fluttar til
Reykjavíkur í gærmorgun með flugvél.
Fyrirhugað var að flytja líkin suður á
þriðjudagskvöldið en þá var ekki flug-
veður.
Varðskipið Þór kom með líkin til
ísafjarðar kl. 18.00 á þriðjudagskvöld.
Þór lagðist á ytri höfnina en hafnsögu-
bátur fór til móts við varðskipið. Sjó-
mennirnir voru síðan kistulagðir um
borð í Þór en hafnsögubáturinn flutti
kisturnar í smábátahöfnina á ísafirði þar
sem Iögreglan tók á móti þeim.
Sjómennirnir sem létust hétu Eiríkur
Ingimundarson, fæddur 30. apríl 1963,
Haukur Ólafsson, fæddur 5. janúar 1958
og Ragnar Júlíus Hallmannsson, fæddur
18. júní 1966. Haukur lætur eftir sig
unnustu og 9 mánaða gamlan son en
Eiríkur og Ragnar Júlíus voru ókvæntir.
- GSH
■ Lík skipverjanna á Gunnjóni flutt í land á ísaflrði. Hafnsögubátur sótti líkin út í
varðskipið Þór en þau voru kistulögð um borð. Líkin voru síðan flutt til Reykjavíkur
í gær. Tímamynd Guðmundur Sveinsson
STOR-
xnfíBliRÐUR
CHARLES
Hinn ókiýndi konungur sóttónlistarinnar ásamt 25
manna stórhljómsveit i Broadway fimmtudaginn
7. júlí kl. 20.00 og 23.00
(Aðeins þessi eini
dagur á íslandi)
FORSALA
aðgöngumiða hefst föstudaginn 24. júní
í Fálkanum Laugavegi 24 og Suðurlandsbraut 8.
GETA Nl) SPARAÐ
SÉR 15ÞIÍS. FERD-
Sjómennirnir ungu sem fórust um borð
í Gunnjóni GK:
Jarðneskar leifar þeirra
fluttar til Reykjavlkur