Tíminn - 23.06.1983, Blaðsíða 4

Tíminn - 23.06.1983, Blaðsíða 4
FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ1983 ■ Á leiðinni frá Flaley tók Vigdís forseti við stjórntaumunum dálitla stund, af ■ Að Hnjóti færði Ólafía Egilsdóttir, 89 ára gömul, forsetanum að gjöf forláta roðskinnsskó sem hún hafði gert. skipstjóranum, Jóni Ágústssyni, á flóabátnum Baldri. Tímamyndir: Arni Annar dagur heimsóknar forseta íslands um Vestfirði: VIGDÍSI FÆRÐ HVÍTREFSHERÐA- SU OG RODSKINNSSKÓR AÐ GJÖF FRÁ JÓNI ÓLAFSSYNI, BLAÐAMANNI TÍM- ANS I FERÐ FORSETA ÍSLANDS UM VEST- FIRÐI: ■ Forseti Islands, Vigdís Finnboga- dóttir hélt í gær áfram för sinni um Vestfirði. Lagt var af stað frá Flókalundi og farið að Látrum. Þar afhenti henni blómvönd lítil stúlka, Vigdís að nafni. Á Látrum voru staddir m.a. Þórður Jónsson hreppstjóri og Ásgeir Erlends- son, vitavörður á Látrabjargi, en þeir hafa báðir hlotið Fálkaorðuna fyrir björgunarstörf og Þórður að auki orðu frá bresku stjórninni. Á Látrum eru nú tveir bæir í byggð og þrír íbúar á hvorum þeirra. En mest hafa verið þarna 60-70 manns. Forseta og fylgdarliði var boðið í kaffi og meðlæti og át hver og drakk sem mest hann mátti. Að því loknu var haldið upp að vitanum á Látrabjargi. Þarvardrukk- in skál í viskí og hinn 73ja ára vitavörður Ásgeir Erlendsson bauð forseta velkom- inn. Það var gaman að spjalla við vitavörðinn gamla og hann sagði m.a. við blaðamann Tímans: „Þið hefðuð átt að vera hér árið 1936 um haustið, en þá skall á hrikalegt óveður sem gerði það m.a. að feykja 118 kílóa steini upp á Látrabjarg af klettinum um 50 metrum neðar. Einnig fórst þá franskt skip með 32 mönnum um borð." Þessi elsti vita- vörður landsins leysti Vigdísi síðan út með góðum gjöfum, hvítrefsherðaslá og bréfahníf úr steinflís. Þá var komið að kveðjustund og refaskytturnar og stór- riddararnir að Látrum voru kvaddir. Nú var haldið í Fagrahvamm í Rauða- sandshreppi til hádegisverðar í boði heimamanna - dæmigert kalt borð að hætti Vestfirðinga, harðfiskur, hangikjöt og hvaðeina. Vigdís gaf sér tíma til að heilsa öllum Rauðsendingum með handabandi. Össur Guðbjartsson, oddviti Rauðasandshrepps, sagði m.a. við þetta tilefni: „Þar sem afi þinn Þorvaldur Jakobsson þjónaði hér sem sóknarprestur í sveitinni, stendur þú okkur mjög nærri.“ Eftir góða máltíð í Fagrahvammi hélt ■ Ásgeir Erlendsson, elsti vitavörður landsins, á Látrum, færði forsetanum að gjöf forláta hvítrefsherðaslá, sem Vigdís þáði með þökkum. Vigdís að Hnjóti þar sem henni var falið að opna nýtt minjasafn. Ræðuhöld voru úti fyrir safninu áður en það var opnað. Töluðu þar Stefán Skarphéðinsson, sýslumaður, Bragi Thoroddsen, form. byggingarnefndar og höfuðp.aursafnsins, Egill Ólafsson, en liann hefur safnað lang mestum hluta gripanna á safninu og gefið þá til Vestur-Barðastrandarsýslu. Mun safnið bera nafn hans. Við þetta tækifæri voru Vigdísi gefnir roðskinns- skór, sem hin 89 ára gamla Ólafía Egilsdóttir frjá Hnjóti hafði gert. Þá þakkaði Vigdís móttökurnar og Stefáni Skarphéðinssyni fyrir gjafir og góða fylgd og sagði m.a.: „Svona eiga sýslu- menn að vera“. Opnaði Vigdís nú minjasafnið og skoðaði það í fylgd Egils. Litlu síðar var öllum boðið inn til skoðunar. Minjasafn þetta er hið glæsi- legasta og aðstandendum þess til mikils sóma. „Þetta ætti að fá fleira fólk hingað," sagði forsetinn. í Sauðlauksdal bjó afi Vigdísar Þor- valdur Jakobsson og það varð næsti viðkomustaður ferðalanga. „Loksins er ég mætt á ættaróðalið", sagði Vigdís þá og hló, er hún steig út úr forsetabílnum. Barðstrendingar gáfu Vigdísi þarna mál- verk af Sauðlauksdal eftir Þórdísi Tryggvadóttur. Eftir kveðjur og kossa í dalnum var haldið í Skápadal, en þar er á þurru landi mótorbáturinn Garðar, áður Garðar BA 64. Garðar er elsta stálskip íslendinga, smíðað árið 1912. Eigandi þess er Jón Magnússon og tók hann á móti Vigdísi forseta. Sagði hann m.a.: „Alls konar gömlum húsum er haldið við, en enginn hefur manndóm í sér til að varðveita gömul skip. Samt eru þau uppruni okkar - við komum jú með skipum hingað til lands." Vigdís spjall- aði við Jón og eftir að hafa skoðað skipið hélt hún til Patreksfjarðar, en þar var hún boðin til kvöldverðar og opins húss. Áætlun var nokkuð vel haldið í gær og í dag heldur Vigdís áfram ferð sinni um Vestfirði. - Jól.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.