Tíminn - 23.06.1983, Síða 5
FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ1983
5
fréttir
■ Hér færir ein af yngri kynslóðinni Vigdísi blómvönd.
■ Upp í vitanum að Látrabjargi. Asgeir Eriendsson bendir forsetanum á heistu
kennileiti.
...
■ Vigdís Finnbogadóttir skálar hér við Guðmund Ólafsson í „sofandi breiðfirskum
hafmeyjum“, sem er sérstaklega tilreiddur kampavínskokkteill að hætti þeirra
Flateyinga.
■ Fjöldi eyjaskeggja var mættur á bryggjuna tii að taka á móti Vigdísi forseta við
komuna til Flateyjar.
Tímamyndir: Arni.
■ „Þau mál sem heitast
brenna um þessar mundir
eru friðarmál og mun
kirkjan hafa þar forgöngu
eins og hingað til“, sagði
herra Pétur Sigurgeirsson
biskup á þriðjudag við
upphaf prestastefnunnar.
„Ég vil hér benda á hið geysifjölmenna
heimsfriðarþing sem haldið var í Svíþjóð
nú í vor. Það fer vel á því að tengja
friðarmálin við ár Lúthers nú í ár, því
hann bendir okkur á þá einu leið sem fær
er í þeim efnum, þ.e. hinn heitttrúi
friður í gegn um Jesúm Krist. Vígbúnað-
arkapphlaupið er nú komið á það stig að
öllum stendur ógn af. Við teljum þó að
enn sé hægt að snúa við. Til þess að það
sé unnt verðum við að beita sjálfsafneit-
un, auðmýkt og kærleika. Verum
minnug þess, að sá getur allt sem trúna
hefur“, sgði biskup ennfremur.
„Það er hollt fyrir okkur íslendinga á
þessum tímamótum að meta og virða
þann trúararf sem okkur hcfur fallið í
skaut. Þegar siðbótin kom fram á sínum
tíma, sáu menn fram á nýtt tímabil sem
gæfi fyrirheit um betri tíma. Raunin
hefur líka orðið sú að flest það sem við
teljum okkur til gildis núna rekjum við
einmitt til siðbótarinnar“, sagði herra
Pétur Sigurgeirsson að lokum.
Að loknu erindi biskups, flutti dóms-
og kirkjumálaráðherra, Jón Helgason
ávarp og fór nokkrum orðum um þau
merku tímamót sem nú eru í tilefni þess
að 500 ár eru liðin frá fæðingu Marteins
Lúthers. En Jón sagði að við minntúmst
einnig annarra tímamóta um leið:
„Hér á ég við þann merka atburð,
■ Prestar ganga frá Alþingishúsi til Dómkirkjunnar við upphaf prestastefnu.
þegar séra Jón Steingrímsson eldprestur
flutti sína áhrifamiklu ræðu fyrir 200
árunt í tilefni þess að þá geysuðu hér
einhverjir þeir mestu jarðeldar sem
sögur fara af.“
Þau tímamót sem íslcnsk kirkja heldur
nú uppá leiða okkur óhjákvæmilega til
þess að huga að stöðu og gengi íslensku
kirkjunnar á líðandi stundu og hVer hún
muni vera um ókomna framtíð. Það er
Ijóst, að okkar tímar eru miklir breyt-
ingatímar og að mörgu er að hyggja
hvað trú og trúarlíf okkar íslendinga
áhrærir. Áhrifamáttur áróðurs er mikill
og kristin kirkja verður að vera á
varðbergi í þeim efnum. Heimilin eru
gjörbreytt og stór hluti af uppeldinu fer
nú fram utan þeirra. Hér er nauðsynlegt
fyrir kirkjuna að fylgjast með og koma
hinum kristnu skoðunum á framfæri.
Mér er ljóst að starf kirkjunnar er
stöðug barátta og að sú barátta er
stundum erfið. Ég held þó að menn hafi
gott af því að minnast hvernig til tókst
hjá séra Jóni forðum þegar hann treysti
á hina guðlegu forsjá", sagði Jón Helga-
son að lokum.
Fleiri ræður voru fluttar í gær á
prestastefnunni. Séra Jónas Gíslason
dósent flutti framsöguræðu sem hann
nefndi Siöbótaniaöurinn Marteinn
Lúther, séra Þorbergur Kristjánsson flutti
erindi sem hann nefndi Staða kirkjunnar
í þjóðfélaginu, og séra Þorbjörn Hlynur
Árnason flutti erindi sem hann nefndi
Kenning lúthersku kirkjunnar. Hinn al-
nienni prestdómur.
í gær var prestastefnunni svo fram
haldið og hófst með morgunbæn i
háskólakapellunni. Síðan fjölluðu um-
ræðuhópar um málefni prestastefnunnar
í kennslustofum. Framsögumenn um-
ræðuhópa skiluðu þá áliti og almennar
umræður fóru fram. Síðar fóru fram
kynningar á Lúthers-ári í samkomusal
Norræna hússins.
í dagverður framhald prestastefnunn-
ar með svipuðu sniði og kl. 10:00 verða
rædd aðalmál prestastefnunnar. Kl.
14:00 verður síðan rætt um kirkju-
fræðslunefnd og fyrirspurnum svarað en
síðan fara fram synodusslit. í kvöld
koma prestar svo saman heima í biskups-
garði. -ÞB
■ Biskupinn yfir Islandi, herra Pétur Sigurgeirsson ræðir hér við tvo presta ráðstefnunnar, þá séra Gunnar Björnsson og
séra Róbert Jack.
„H0LLT FYRIR ÍSLENDINGA
RD META TRÚARARF SINN”,
— sagdi herra Pétur Sigurgeirsson biskup
við upphaf presfastefnu í gær
Jón Helgason dóms- og kirkjumálaráðherra ávarpar prestastefnu 1983,