Tíminn - 23.06.1983, Síða 6
FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ1983
KARLMAÐURiNN
SEM KALLA MÁ
„SÚPER-MODEL“
fræð-
ingarí
módel-
brans-
anum
■ Aquilon þykir mjög íþróttamannslegur, en hann segist ekki stunda mikið íþróttir,
sagði. Sundið er best, segir JefT, sem reynir að synda á hverjum degi.
og alls ekki lyftingar, þxr eru svo „sálarlaus íþrótt“, eins og hann
■ Jeff Aquilon var heldur ófrýni-
legur þegar hann kom fyrst á
vettvang í „fyrstu kynningu", eða
„go-see“, eins og fyrirsætur kalla
það.
Það var í október 1978 og Jeff
var þá tvítugur og fyrirliði fyrir
sund-póloflokki Malibu Pepper-
dine háskólanum. Hann hafði ver-
ið í erfiðri keppni daginn áður, og
var með glóðaraugu á báðum aug-
■ Aquilon-hjónin í gönguferð á
ströndinni og Jeff munar ekki um
að bera Nancy spölkorn, þegar
hón er orðin þreytt. Ekki sjáum
við betur en að sópermódclið JelT
Aquilon sé í íslenskri lopapeysu.
Kannski hefur hann verið að
kynna íslcnskar ullarvörur.
um og saumaö sár á hægri kinn og
blár og bólginn á þeim vanga.
Hann segir þannig frá: „Einhver
sagði mér að fara ór boinum, sem
ég gerði og þá tók sá hinn sami upp
Polaroid-myndavél og smellti af
einni mynd og sagði - Þakka þér
fyrir að koma. Eg hugsaði með
sjálfum mér: - Hvílík tímaeyðsla
hjá mér.“
En það var nú eitthvað annað
en þetta væri tímaeyðsla hjá Aq-
uilon, því að vegna myndarinnar,
sem þarna var tekin, var hann
tveim dögum síðar farinn að sitja
fyrir hjá Ijósmyndara fyrir tímarit-
ið Gentlemen's Quarterly.
Nú í dag er hann 25 ára og
viðurkenndur, sem sá færasti í
sínu fagi. Hann er kallaður „Sup-
er-módelið í karlaflokki“. Stuttu
eftir að hann kom í fyrstu mynda-
tökuna var hann sendur til Barba-
dos ásamt með Muriel Heming-
way, þar sem voru teknar myndir
af þeim, sem áttu eftir að prýða
forsíður blaða og tímarita. „Við
réðum hann við fyrstu sýn“, segir
Joe Hunter í Ford-fyrirtækinu,
sem hefur í mörg ár gert margar
fyrirsætur frægar. Aquilon hefur
líka unnið fyrir Calvin Klein, og
hinn fræga Giorgio Armani (sem
nýlcga var hér á íslandi með
tískusýningu) og Jeff hefur setið
fyrirá ótal forsíðum frægra blaða.
Aquilon byrjaði með 60 dollara
á timann, þegar hann vann sem
módel, en nú kemur fyrir að hann
vinnur sér inn 2000 dollara á dag.
Fyrir tvcimur árum kvæntist
hann Nancy Donahue, 25 ára, sem
er líka í fyrirsætustarfi. Þau hittust
í London, þar sem var verið að
mynda regnföt í ekta Lundúna -
þoku og súld.
Jeff segir: „Mér leist strax svo
vel á Nancy, hún var svo eðlileg,
ómáluð og regnblaut í framan.
Við urðum fljótt vinir.“ Nancy
sagði aftur á móti: „Það sem mér
líkaði best við Jeff var hvað hann
var rólegur og þægilegur í fram-
komu og hann var ekki að reyna
við mig strax, hcldur lofaði hlutun-
um að hafa sinn gang.“
Þau vinna bæði áfram í sínu
fagi, og eiga heimili bæði á Man-
hattan í New York og eins í
Kaliforníu.
viðtal dagsins
„LÚIHERVILDISÆTTA
ALLAR MRKIUDÐLHR"
— segir séra Gunnar Krist jánsson
■ Prestastefna íslands 1983 var
sett í gær af hiskupnum yfir
íslandi Herra Pétri Sigurgeirs-
syni. Umræðuefni prestastefn-
unnar er: Hinn lútherski arfur í
kirkju nútímans. í tilefni þessa
náði blaðamaður tali af cinum
þeirra presta sem ráöstefnuna
sitja, séra Gunnari Kristjánssyni
presti á Reynivöllum í Kjós, og
bað hann að gera svolitla grein
fyrir skoðunum sínum á Marteini
Lóthcr og kenningum hatis.
Hvað Ci það við hugmyndir
Martcins i.úthers sem þú telur
að valdið hafi mestum straum-
hvörfum í vestrænu trúarlífi?
„Það er einkum tvennt í hug-
myndum og kenningum Lúthers
sem straumhvörfum veldur. I
fyrsta lagi kallar hann hinn
kristna einstakling til ábyrgðar
gagnvart sjálfum sér og Guði.
Ábyrgð mannsins eða einstak-
lingsins er cinmitt mikil að hans
áliti vegna hins frjálsa vilja sem
honum er áskapaður. í öðru lagi
kallar hann einnig kirkjuna til
ábyrgðar því hennar hlutvcrk
sem stofnun, er að virkja ein-
staklinginn í sínu trúarlega hlut-
verki.
Þegar Lúther kemur fram með
þessar hugmyndir sínar verðum
við að gera okkur Ijóst við hvers
konar bákn hann þurfti við að
stríða þar sem hin kaþólska
kirkja var. í raun var hin kaþóís-
ka kirkja orðin stöðnuð sem
stofnun og berá syndaaflausnirnar
sem hún gaf út því skýrast vitni.
Þetta var Lúther sjálfum vel ljóst
og vildi leggja sitt af mörkum til
þess að bæta úr ýmsum þeim
misfellum sem hann sá á hinni
kaþólsku kirkju. Þess vegna er
það svolítið raunalegt þegar því
er haldið fram að Lúther hafi
verið einhverskonar uppreisn-
armaður sem hafi viljað gera veg
sinn sem mestan og viljað stofna
einn sértrúarflokkinn enn. Þvert
á móti vildi hann sameina kirkju-
deildirnar innan hinnar kristnu
kirkju, því honum var Ijóst að
sameinuð stæði kirkjan mun bet-
ur að vígi. Ágsborgarjátningar-
nar eru að mínu áliti mikilvæg-
asti vitnisburðurþess hve Lúther
vildi ganga langt til þess að ná
■ Séra Gunnar Kristjánsson.