Tíminn - 23.06.1983, Síða 7

Tíminn - 23.06.1983, Síða 7
FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ1983 MMiíI 7 ■ Ringo og kona hans eru ánægð með kyrrðina í sveitinni. Ringo Starr og Barbara Bach njóta sveitalífs- ins í Englandi ■ Dagurinn okkar byrjar eiginlega ekki fyrr en um há- degi“, sagði Barbara Bach, kvikmyndaleikkona og eigin- kona Ringo Starr úr Bítlunum, í blaðaviðtali nýlega. Hún sagði, að það hefði ekki verið annað fyrir sig að gera, en að breyta sínum svefnvenjum til samræmis við eiginmanninn, en Ringo vinnur mest á kvöldin og nóttunni, - og einhverntíma þarf maður að sofa, ég þarf a.m.k. 8 tíma svefn,“ sagði Barbara. M ■ „Ég hef ekkert tilboð feng- ið um hlutverk síðan við flutt- um hingað, sem gæti réttlætt það, að yfirgefa heimili mitt í margar vikur og mánuði við upptöku á kvikmynd. Ég hef líka nóg að gera sem húsmóðir á stórbýli“, sagði Barbara. Nú er umhugsun um börn og dýr, og heimilisstörf sem eru dagsverk Barböru. Þar er mikil breyting frá Iífinu í Los Ange- les og lífi hennar þar sem kvikinyndastjörnu.þar lék hún t.d. i James Bond myndinni „The Spy Who Loved Me“, og hún var þar njósnarinn sem elskaði James Bond. „Hugmyndin hjá okkur Ringo var að koma okkur fyrir á okkar góða sveitasetri, og koma þar upp góðri aðstöðu til að taka upp plötur og vinna að áhugamálum okkar, en þetta hefur tekið tvö ár, og á þeim tíma höfum við fest okkur í sessi hér, svo það má segja að það sé ekkert sem freisti okkar til að eiga aftur heima í Ainer- íku.“ Barbara segir að börn sín frá fyrra hjónabandi (með ítölsk- um kvikmyndaframleið- anda), Þau Francesca, 14 ára, og Gianni, níu ára, væru jafn- hrifin og hún af því að búa í Englandi. Fjölskyldan hefur tvo stóra hunda sem varð- hunda, en eru sammála um það, að þá sé mikill munur að þurfa ekki að vera alltaf með lífverði á eftir sér eins og þau gerðu í Ameríku. „Ég er orðin tedrykkju- manneskja og horfi spennt á bresku framhaldsþættina í sjónvarpinu, svo sem Corona- tion Street, svo mér finnst ég sé orðin ensk í húð og hár“, sagði Barbara að lokum. samkomulagi við hina rómversk- kaþólsku kirkju. Spurningin um það hvers vegna leiðir Lúthers og kaþólsku kirkjunnar skildu tel ég að megi kalla sögulega nauðsyn því breytt heimsmynd og skoðanir almennings kröfðust nýrra viðhorfa í hinum trúarlegu efnum sem hin kaþólska kirkja gat ekki veitt. Þróunin fram á þennan dag hefur svo orðið sú að meira er reynt að benda á Lúther sem einstakling sem að vísu hafði sína bresti og breyskleika, en einnig er mikið lagt upp úr að benda á þann mikilvæga skerf sem hann lagði til kristinnar kirkju og kristins trúarlífs. “ Hvernig finnst þér hafa til tekist með siðbreytingunni hér á íslandi? „Það er blettur á íslensku þjóðinni hvernig siðbótin gerist hér. Við verðum að hafa það í huga að um leið voru stórpólitískir atburðir að eiga sér stað hér sem rugla menn í ríminu. Sá sorgarat- burður þegar Jón Arason var hálshöggvinn er auðvitað and- stætt hugmyndum Lúthers og kenningum hans því hann barð- ist gegn órettlætinu eins og hann frekast gat. Þess vegna finnst mér að menn ættu að nota tæki- færið á þessum tímamótum til að eyða þessum misskilningi og horfa jákvætt fram á við.“ Hver eru helstu verkefni kirkjunnar um þessar mundir? „Það má segja að þrjú höfuð- viðfangsefni einkenni starf kirkjunnar núna. í fyrsta lagi eru það friðarmál og má í því sam- bandi benda á hið fjölmenna og vel heppnaða þing sem haldið var í Svíþjóð nú í vor. Í öðru lagi mannréttindamál sem ég hygg að flestir viti hvar skórinn krepp- ir og í þriðja lagi umhverfismál. Við viljum minna á að jörðin er sköpunarverk Guðs og menn verða að umgangast hana með virðingu og lotningu. Þetta eru málefni sem heitast brenna núna, einkum hér á vestur- löndum og það er einmitt hlut- verk kirkjunnar að ráða fram úr og leiðbeina í þeim málum“, sagði séra Gunnar Kristjánsson að lokum. -ÞB ■ Glenn í hópi stuðningsmanna Reagan mun bráðlega gefa kost á sér til endurkjörs Glenn verður sennilega keppinautur hans ■ ÞÓTT forsetakosningar fari ekki fram í Bandaríkjunum fyrr en eftir 16 mánuði má segja að undirbúningur þeirra sé þegar hafinn. Þannig liggur það nú í loftinu, að Reagan forseti muni tilkynna innan skamms tíma, að hann muni gefa kost á sér til endur- kjörs og jafnframt leggja til að Bush verði áfram varaforseti. Ymsir fylgismenn Reagans hafi lagt fast að honum að undan- förnu að draga ekki lengur að tilkynna opinberlega að hann verði í framboði. Slík yfirlýsing myndi fylkja flokksmönnum enn fastara um hann og gera mögu- legt að samstæður flokkur gæti strax farið að vinna að endur- kjöri hans. Þetta myndi hins vegar breyt- ast, ef svo færi, að Reagan drægi sig í hlé. Þá myndi hefjast mikil keppni milli ýmissa helztu forustu- manna republikana um fram- boðið, líkt og hjá demókrötum, þegar Johnson dró sig í hlé 1968. Þau átök gætu orðið vatn á myllu andstæðinga flokksins. Það hefur verið nokkuð föst venja, að forseti sækti um endur- kjör eftir fyrsta kjörtímabilið. Jafnvel þótt hann hafi verið umdeildur, er hann yfirleitt tal- inn sigurvænlegri en aðrir leiðtogar flokksins. Þetta gildir um Reagan, því að ótvírætt nýt- ur hann mestra vinsælda af leið- togum republikana nú. FARI svo, að Reagan lýsi fljótlega yfir framboði sínu, skapar það republikönum mikið forskot. Þeir vita hver frambjóð- andi þeirra verður og geta strax hafið að vinna fyrir hann. Öðru máli gegnir um demó- krata. Sennilega verður það ekki endanlega ljóst, hvert forseta- efni þeirra verður fyrr en á flokksþingi þeirra næsta sumar. Fram að þeim tíma verður hörð barátta milli jíeirra, sem nú sækjast eftir framboði fyrir flokkinn. Oft vill slík barátta leiða til þess, að enginn sleppur heill úr þeim leik. Keppinautarnir kepp- ast ekki aðeins við að telja fram kosti sína. Þeir keppast einnig oft við að gera keppinautana tortryggilega. Jafnvel þótt þeir reyni sjálfir að forðast þetta, gera æstustu fylgismenn þeirra það óspart. Þannig notuðu republikanar það í síðustu forsetakosningum, að Edward Kennedy og fylgismenn hans höfðu látið falla marga óvægilega dóma um Carter forseta ■ Reagan og Bush meðan á prófkjörunum stóð. Meðan hörkuprófkjör verða hjá demókrötum, munu próf- kjörin fara fram friðsamlega hjá republikönum, því að ótrúlegt er, að Reagan fái í þeim nokkurn keppinaut sem máli skiptir. Samheldnin hjá republikönum getur átt eftir að draga dilk á eftir sér hjá demókrötum á þann hátt að það hafi áhrif á úrslitin í prófkjörunum. í mörgum ríkjum fara próf- kjörin þannig fram, að þau eru opin öllum. Demókratar geta kosið í prófkjörunum hjá repu- blikönum og öfugt. Þetta hefur oft leitt til þess, að séu úrslitin ráðin fyrirfram hjá öðrum flokknum, taka fleiri eða færri af liðsmönnum hans þátt í prófkjörunum hjá hinum flokkn- um og kjósa þá venjulega þann frambjóðanda, sem er ósigur- vænlegastur. Þannig styrkja þeir raunverulega flokk sinn í sjálfri kosningunni. Þetta átti t.d. sinn þátt í því, að Stevenson gekk illa í prófkjör- inu 1956. Eisenhower sótti þá um endurkjör og átti engan keppinaut í prófkjörunum. Republikanir tóku því þátt í prófkjörunum hjá demókrötum og kusu að sjálfsögðu keppinaut Stevensons. Þessi saga gæti hæglega endur- tekið sig nú. Á ÞESSU stigi er erfitt að spá því hvert forsetaefni demókrata verður. Þegar hafa sex af leiðtogum þeirra gefið kost á sér til framboðs. Eins og nú horfir virðist líklegast, að aðalkeppnin verði milli Mondale fyrrv. vara- forseta og Glenn öldungadeild- arþingmanns frá Ohio, en hann er ekki sízt þekktur vegna þess, að hann var fyrsti bandaríski geimfarinn. Fyrir þremur mánuðum virtust skoðanakannanir benda til þess, að Mondale yrði hlutskarpastur. Hann var þá langefstur af keppi- nautunum. í nýlegustu skoðanakönnunum hefur þetta breytzt. Glenn hefur alltaf verið að síga á og er nú kominn fram úr Mondale. Það er þó sennilega enn meiri styrkur fyrir Glenn, að skoðana- kannanir sýna, að hann myndi standa sig betur í samkeppni við Reagan, ef hann verður forseta- efni republikana, en Mondale. Það virðist veikja Mondale verulega, að hann er bendlaður við Carter og stjórn hans. Þá virðist fátt benda til, að hann yrði það, sem kallað er sterkur forseti. Glenn hefur reynzt farsæll og traustur sem öldungadeildar- maður. Hann er talinn miðju- maður í flokknum, en Mondale er talinn til frjálslyndari armsins. Glenn er enginn ræðugarpur, en þykir skýr í málflutningi og frek- ar rökfastur. Það hefur aukið tiltrú til hans. Sennilega skiptir það svo ekki minnstu, að hann þótti reynast vel sem geimfari. Þótt þeir Mondale og Glenn hafi nú forustuna, er engan veg- inn rétt að afskrifa aðra keppi- nauta þeirra strax. Þannig kom nýlega saman fylkisþing demókrata í Wiscon- sin, en það mun síðar kjósa fulltrúa á landsþing demókrata, sem velur forsetaefnið. í sam- bandi við þingið fór fram könnun meðal fulltrúanna um afstöðu þeirra til forsetaefnanna, sem hætta voru á þinginu. í hennT varð Cranston öldungadeildar-' maður frá Kaliforníu hlutskarp- astur, en fyrirfram hafði Mondale verið spáð sigri. Cranston er talinn hafa notið þess, að hann hefur gert gagn- kvæma frystingu á framleiðslu kjarnavopna að aðalmáli sínu. Glenn mætti ekki á þinginu og náði könnunin því ekki til hans. Það þykir ávinningur fyrir hann, að Mondale beið ósigur fyrir Cranston. Þórarinn Þórarinsson, o ritstjóri, skrifar Ktfl

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.