Tíminn - 23.06.1983, Page 8

Tíminn - 23.06.1983, Page 8
8 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Gísli Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gíslason. Skrifstofustjóri: Ragnar Snorri Magnússon. Afgreiöslustjóri: Sigurður Brynjótfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elias Snæiand Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrímsson. Umsjónarmaður Helgar-Tímans: Atli Magnússon. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Friðrik Indriðason, Guðmundur Sv. Hermannsson, Guðmundur Magnússon, Heiður Helgadóttir, Jón Guðni Kristjánsson, Jón Ólafsson, Kristin Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (íþróttir), Skafti Jónsson, Sonja Jónsdóttir, Þorvaldur Bragason. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnssson. Ljós- myndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Kristín Þorbjarnardóttir, María Anna Þorsteinsdóttir, Sigurður Jónsson. Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar: Síðumúla 15, Reykjavík. Sími: 86300. Auglýsingasími 18300. Kvöldsímar: 86387 og 86392. Verð i lausasölu 18.00, en 20.00 um helgar. Áskrift á mánuði kr. 210.00. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent hf. Skrif Þjóðviljans fyrir og eftir stjórnarskiptin ■ Það munu áreiðanlega margir verða undrandi sem lesa stjórnmálaskrif Þjóðviljans um þessar mundir og bera þau saman við hliðstæð skrif blaðsins meðan Alþýðubandalag- ið átti ráðherra í ríkisstjórn. Þá var réttilega viðurkennt að efnahagsvandinn væri mikill og vaxandi. Þá var ekki hrópað um kauprán í Þjóðviljanum, þegar nauðsynlegt reyndist að skerða vísitölubætur. Skemmst er t.d. að minnast skrifa blaðsins um skerðingu vísitölubótanna 1. desember síðastliðinn. Þá var réttilega bent á það af talsmönnum Alþýðuflokksins, að þessi ráðstöfun væri nauðsynleg af tveimur ástæðum. í fyrsta lagi væri hún nauðsynleg til að tryggja atvinnuöryggið. í öðru lagi væri hún nauðsynleg til að draga úr skuldasöfnuninni erlendis. Jafnframt var því haldið fram af formanni Alþýðu- bandalagsins, að þessar ráðstafanir kynnu að reynast ónógar. Kreppuástandið í heiminum gæti leitt til þess, að frekari aðgerðir reyndust óhjákvæmilegar. Því miður hafa þessar spár formanns Alþýðubandalagsins rætzt. Nefna má nokkur dæmi þess, sem hafa verið að koma í ljós síðustu daga. Karfaveiðar, sem hafa verið mjög þýðingarmiklar fyrir togarana vegna samdráttar þorskaflans, munu stöðvast innan fárra daga, því búið er að afla upp í sölusamninga og lítil eða engin von til að meira seljist á þessu ári. Vegna þróunar gengismála og viðskiptamála erlendis verður mikið verðfall á saltfiski. Vafasamt er hvort nokkuð verður úr síldveiðum í ár vegna mikils framboðs á síld og verðlækkunar á erlendum mörkuðum. Þetta þrennt var ekki komið til sögu, þegar unnið var að stjórnarmynduninni í maímánuði. Samt taldi formaður Alþýðubandalagsins efnahagsástandið svo slæmt þá, að hann lagði til að fresta alveg vísitölubótunum 1. júní um mánuð, meðan verið væri að semja um frekari aðgerðir. Svavari Gestssyni var ljóst þá, að atvinnufyrirtækin myndu ekki þola 20% kauphækkun og afleiðing slíkrar kauphækkunar yrði stöðvun þeirra og stórfellt atvinnu- leysi. Nú lætur Þjóðviljinn hins vegar eins og það stafi af hreinni illmennsku og skilningsleysi, að kaupið skyldi ekki hækka um 20% um síðustu mánaðamót. Vísitölubæturnar Þjóðviljinn þykist nú andvígur því, að vísitölubætur séu framkvæmdar á þann hátt, að hálaunamenn fái margfalt meiri bætur en láglaunamenn. Annað hljóð var hins vegar í Þjóðviljanum fyrir kosningarnar 1978. Eitt aðalefni laganna, sem deilt var um þá, var að skerða bæturnar meira hjá hálaunafólki en láglaunafólki. Þá hóf Alþýðubandalagið mikla baráttu undir kjörorðinu: Samningana í gildi. Sú stefna þess sigraði með þeim afleiðingum, að hálaunamennirnir héldu sínu. Það er lofsvert, að Þjóðviljinn skuli vera kominn á aðra skoðun. En meira þarf til. Enn hefur ekkert heyrzt um það frá flokksmönnum blaðsins innan Alþýðusamband s- ins og BSRB hvernig þeir vilja haga þessum greiðslum öðruvísi en að fullar bætur komi á öl! laun. Hér strandar ekki sízt á launþegasamtökunum. Þ.Þ. FIMMTUDAGUR 23. JUNI 1983 skrifað og skrafað Upplýs- inga- skylda??? ■ „Það er ekki heiglum hent að ætla sér að skrifa um stjórnmál á Islandi, eins og ástand þeirrar umræðu er í landi hér. Raunar er hún nær engin, heldur líta stjórn- málamenn á það sem hlutverk sitt þegar þeir tala til fólks að hafa uppi taugaveiklunarkenndar varnir fyrir sig og flokka sína eins og sakamenn væru, og málflutningur- inn felst í einföldun stað- reynda í stað upplýsinga um raunveruleikann, og heitir það á mannamáli áróður. Vitaskuld leggur sæmilega skynsamt fólk engan trúnað á slíkan þvætting." Þetta er upphafið á málæði sem Guðrún Helgadóttir alþingismað- ur hefur uppi í Þjóðvilj- anum undir dálkaheitinu Stjórnmál á sunnudegi, en það blaktir iðulega á týrum forystuliðs Alþýðubandalagsins. I næstu málsgrein ber þingmaðurinn blak af „kjörnum fulltrúum fólksins“ og kennir fjöl- miðlakosti þjóðarinnar um þann málflutningsem hún er að enda við að lýsa og segir þekkingar- leysi manna á störfum Alþingis með ólíkindum og allt sé gert til að sverta þingmenn í augum þjóð- arinnar. Og áfram er haldið og sökudólgar fundnir. „Fastráðnir fréttamenn fjölmiðlanna á þingi bera þarna ekki litla ábyrgð. Og þegar miðað er við að þeir eru viðstaddir alla þingfundi og dveljast nær daglangt í þinginu sjálfu, er furðulegt hversu lítið og ónákvæmlega er skýrt frá flutningi mála og um- ræðu í þinginu.. Þing- mennirnir hafa einfald- lega ekki tíma til að skýra allan málflutning sinn sjálfir í dagblöðunum, það er verkefni frétta- manna á þingi.“ Hér gefst á að líta. Sé litið á fyrstu málsgrein er stjórnmálaumræðan heldur bágborin og stjórnmálamenn hafa uppi taugaveiklunar- kenndar varnir, sem er áróður og skynsamt fólk leggur engan trúnað á slíkan þvætting. En ábyrgðinni er kastað á fréttamenn á þingi. Málgleði og fámenni Þingmaðurinn bendir á að fréttamenn séu við- staddir alla þingfundi og dveljist daglangt í þing- inu. Að staðaldri eru fjórir fréttamenn sem pakkað er eins og sardínum í dós undir rjáfri þingsla, þeg- ar fundir standa yfir. Þingmenn kvarta oft og mikið yfir sinni starfsað- stöðu og telja að þeir sitji þröngt. Þingfréttaritarar hafa ekki til þessa séð ástæðu til að vorkenna sjálfum sér opinberlega vegna starfsaðstöðu, og hafa þó greiðan aðgang að fjölmiðlum. Alþingismenn eru 60 talsins. Þeir vinna mikil- væg störf og tími þeirra er dýrmætur. Mikil störf eru unnin í nefndum og síðan eru þingflokks- fundir og fer hvoru- tveggja fram utan þess tíma sem þingfundir eru haldnir. Það kemur ekki ósjaldan fyrir að setulið- ið í fréttamannastúku er fjölmennara en kjörnir fulltrúar í þingsal. En það kemur væntanlega ekki fyrir eftir að þing- mönnum verður fjölgað. Þvf miður er það svo að inálflutningur á Al- þingi er oft ekki til þess fallinn að upplýsa eitt né neitt. Alltof margir þing- menn virðast halda að það sé hlutverk sitt og tilgangur að standa í pontu og hlusta á sjálfa sig tala. Oft eru mál teygð og toguð í ólíklegustu áttir og verður að virða vesa- lingum þeim, sem við þingfréttir fást, það til vorkunnar að þeir vita stundum ekki um hvað er raunverulega verið að fjalla. Eldhúsdagsum- ræður eru hafnar af ólík- legustu tilefnum og eru þá margir tilkallaðir að láta ljós sitt skína. Reyndir þingmenn kvarta mjög yfir hvílík málgleði grípur iðulega um sig í þingsölum. Bornar hafa verið fram tillögur um að breyta þingsköpum til að færa þingstörfin til skynsam- legri vegar, svo sem um takmörkun ræðutíma og fjölda ræðumanna í fyrir- spurnartímum. í fyrir- spurnum og svörum koma stundum fram athyglisverðar upplýs- ingar. En þær vilja kafna í málæðinu þegar fjöldi þingmanna þarf að tjá sig um spurningar og svör. Tíðar utandag- skrárumræður og bólgin mælska oratoranna auð- velda hvorki störf Al- þingis eða þeirra sem burðast við að reyna að skýra almenningi frá því sem þar fer fram. Pólitískir málaliðar Guðrún Helgadóttir alþingismaður hlýtur að vera orðin svo þingvön, að hún viti hvernig þing- fundir fara fram, eða á hverju byggir hún lýsingu sína á hlutverki stjórn- málamanna og starfsað- ferðum, sem hún hefur grein sína á. Hví í ó- sköpunum að sakast við þingfréttaritara um þann óskapnað sem hún er sjálf að lýsa, Þingmenn eiga ekki að skýra allan málflutning sinn á þingi í dagblöðun- um, segir þingmaðurinn. Það er verkefni frétta- manna. Enn og einu sinni skal vísað til umsagnar þingmannsins um stjórn- málaumræðu þeirra sem í víglínunni streða. Það gæti orðið til að æra óstöðugan að skýra allan málfutning þing- manna í dagblöðunum hvort sem þeir gerðu það sjálfir eða einhverjir aðrir, og sé það hlutverk fréttamanna að greina kjarnann frá hisminu má benda Guðrúnu Helga- dóttur alþingismanni á, að málflutningur og um- ræða á Alþingi er ekki alltaf þess eðlis, að það taki því að saka frétta- menn um að furðulega lítið og ónákvæmlega sé sagt frá gangi mála. Það eru ekki þeir sem stjórna umræðu þar eða hlaupa út og suður í orðaflaumi um allt og ekkert. Áfram með smjörið: „En þeir eru annars veg- ar á mála hjá pólitískum fjölmiðlum og hins vegar sinna þeir ekki eins og þeim ber þeirri skyldu sinni að greina á skýran og skilmerkilegan hátt frá inntaki mála og af- stöðu einstakra flokka og oft á tíðum einstakra þingmanna, svo að menn geti sjálfir tekið af- stöðu.“ Þetta er skýrt og skil- merkilegt. Fréttamenn eru pólitískir málaliðar svo að þeir eru ekki færir um að koma óbrengluð- um fréttum frá Alþingi á framfæri. Það er undar- legt mat stjórnmála- manns að frásagnir af þingstörfum megi alls ekki bera keim af flokks- pólitík. Öll störf Alþingis eru flokkspólitísk. Þing- menn eru kjörnir sem þingmenn pólitískra afla og þeir haga störfum sín- um og gjörðuni á Alþingi samkvæmt því. Dagblöð- in eru málgögn stjórn- málaflokka og eru ekki að reyna að sýnast neitt annað og það gengur enginn lesandi að því gruflandi að svo sé. Næg- ir að benda þingmannin- um á það málgagn sem hún skrifar sjálf í, eða hvernig væri litið á ef þingfréttaritari þess blaðs færi að leggja al- gjörlega sjálfstætt og persónulegt mat á störf þingsins í skrifum sínum hverju sinni? Hér er einnig vikið á ómaklegan hátt að þing- fréttariturum Ríkisút- varpsins. Sú kvöð og raun fylgir starfi þeirra að skýra frá nánast öllum málum sem upp koma á þingi og sitja afskaplega fámenna þingfundi svo lengi sem einhverjum þingmanni þóknast að teygja lopann, jafnvel fram á miðjar nætur. Þingfréttaritarar hljóð- varps verða að gjöra svo vel og reyna að draga saman aðalatriði hvers máls og gera því skil. Deila má um hvernig þeim tekst til, en það er skoðun þess sem hér hripar, að þeir vinni þau störf af fyllstu sam- viskusemi og óhlut- drægni og það hlýtur að vera fljótfærni að draga þá í dilk með þeim sem eru á pólitískum mála. Þingfréttaritarar eru engin ofurmenni og von- andi er ekki til þess ætlast að þeir séu það. En samt ætlast þingmaðurinn til að þeir skýri á skilmerki- legan hátt frá öllum mál- um og afstöðu allra flokka og þingmanna til þeirra. Og svo eiga menn úti í þjóðfélaginu að taka afstöðu samkvæmt þeim frásögnum. Langflest mál sem upp koma á Alþingi eru flokkspólitísk. Mörg þeirra eru þess eðlis að ekki er til annars ætlast en að þau séu áróður, yfir- boð eru algeng og hver otar sínum tota. Sum eru þess eðlis að þeim er beinlínis ætlað að vera fjölmiðlamatur og lítið annað. Vel má vera að þingfréttaritarar séu ekki alltaf ginkeyptir fyr- ir slíkum málatilbúnaði en vafamál verður að telja hvort við þá er að sakast eða þingmenn, að frásagnir verða litlar og ónákvæmar. Störf Alþingis eru ekki alltaf þess eðlis að auð- velt sé að greina skýrt og skilmerkilega frá því sem þar gerist. Umræður um einstök mál koma oft upp aftur og aftur allan þing- tímann og jafnvel á fleiri þingum og er eins og afgreiðslu þeirra ætli aldrei að Ijúka, og svo fer vissulega um mörg mál. Þá er alþekkt sú staða, að fjölmög mál, oft viðamikil eru af- greidd í tímahraki þegar þingmenn eru að fara í frí eða undir þinglausnir. Þá er slíkur handagangur í öskjunni að þingmenn eiga fullt í fangi með að fylgjast með hvað þeir eru að samþykkja eða fella, og svo er gerð krafa um að einhverjir málalið- ar sinni þeirri skyldu sinni að greina skýrt og skilmerkilega frá afstöðu flokka og einstakra þingmanna til tiltekinna mála, og beri ábyrgð á réttri skoðanamyndun almennings. Hér er rétt að minna aftur og enn einu sinni á inngang greinarhöfundar urn hvaða hlutverk stjórnmálamenn telja að þeir hafi. -OÓ (Niðurlag í næsta blaði).

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.