Tíminn - 23.06.1983, Qupperneq 17
FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ1983
17
■ umsjón: B.St. og
K.L.
andlát
Anna Johannessen, Garðastræti 43,
Reykjavík lést 15. júní. Hún verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík föstud. 24. júní nk. kl. 10.30 f.h.
Brynjólfur Gíslason, fyrrv. veitingamað-
ur, Tryggvagötu 16, Selfossi, lést í
Sjúkrahúsi Suðurlands 21. júní.
Magnús Ingimundarson, húsasmíða-
meistari, Reynihvammi 24, Kópavogi,
lést að hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
20. júní
Anna J. Blöndal, frá Siglufirði, lést í
Landakotsspítala að kvöldi 19. júní.
Samþykkt frá aðalfundi
Umsjónarfélags einhverfra
barna:
■ Aðalfundur Umsjónarfélags einhverfra
barna haldinn 18. maí 1983 lýsir yfir ánægju
með þann mikilsverða áfanga að opnað var
meðferðarheimili fyrir einhverf (geðveik)
börn að Trönuhólum I. Reykjavík í október
s.l.
Fundurinn þakkar öllum þeim sem stutt
hafa Umsjónarfélagið með fjárframlögum og
þannig gert því kleift að leggja fram sinn
skerf, sem var að útvega húsbúnað. Stjórn-
völdum er þakkaður sá skilningur sem heim-
ilisbyggingin fékk og stjórn Framkvæmda-
sjóðs þroskaheftra og öryrkja fyrir að gera
þetta að einu af sínum fyrstu verkum. Öllum
sem unnið hafa að íramkvæmdum er þakkað
fyrir vel unnin störf.
Aðalfundurinn óskar heimilis- og starfs-
fólki að Trönuhólum 1 velfarnaðar í starfi og
heitir öllum þeim stuðningi, sem Umsjónar-
félaginu verður fært að veita starfseminni.
Að lokum vill fundurinn benda á þá
staðreynd að þessi áfangi nægði ekki til þess
að fullnægja þeirri þörf, sem var eftir vistun
einhverfra barna á meðferðarheimilum.
Kemur það fram í því að hafna varð fullgild-
um umsóknum um dvöl að Trönuhólum 1
þótt ekki hafi verið auglýst opinberlega eftir
umsóknum.Vitað er að einhverf börn dveljast
á ýmsum stofnunum fyrir þroskahefta og
taka upp rými, sem ef til vill hentar betur
einstaklingum með annars konar fötlun.
Strax þarf því að huga að fleiri úrræðum til
þess að mæta núverandi þörf og fyrr en varir
þarf að finna úrlausnir fyrir þá sem flytjast
frá meðferðarheimilum t.d. vegna aldurs.
sundstaðir
Reyk|avík: Sundhöllin, Laugardalslaugin
og Sundlaug Vesturbæjar eru opnar frá kl.
7.20-20.30. (Sundhöllin þó lokuð á milli
kl. 13-15.45). Laugardaga kl. 7.20-17.30.'
Sunnudaga kl. 8-17.30. Kvennatimar i
Sundhöllinni á fimmtudagskvöldum kl.
21-22. Gufuböð í Vestubæjarlaug og Laugar-
dalslaug. Opnunartima skipt milli kvenna og
karla. Uppl. í Vesturbæjarlaug í síma 15004,
i Laugardalslaug i síma 34039.
Kópavogur: Sundlaugin er opin virka daga
kl. 7-9 og 14.30 til 20, á laugardögum kl. 8-19
og á sunnudögum kl. 9-13. Miðasölu lýkur
klst. fyrir lokun. Kvennatímar þriðjudaga og
miðvikudaga.
Hafnarfjörður: Sundhöllin er opin á virkum
dögum kl. 7-8.30 og kl. 17.15-19.15 á
laugardögum 9-16.15 og á sunnudögum kl.
9-12.
Varmárlaug i Mosfellssveit er opin mánud.
til föstud. kl. 7-8 og kl. 17-18.30. Kvennatírrú
á þriðjud. og fimmtud. kl. 19-21.30. Karlatim-
ar á miðvikud. kl. 19-21.30. Laugardaga opið
kl. 14-18, sunnudaga kl. 10-12.30. Sauna,
kvennatímar á þriðjud. og fimmtud. kl..
17-21.30, karlatímar miðvd. kl. 17-21.30 og
laugard. kl. 14.30-18. Almennirsaunatímar í
baðfötum sunnud. kl. 10.30-12.30.
Sundlaug Brefðholts er opin alla virka
daga frá kl. 7.20-9 og 17-20.30. Sunnudaga
kl.8-13.30.
áætlun akraborgar
Frá Akranesi
Kl. 8.30
kl. 11.30
kl. 14.30
kl. 17.30
Frá Reykjavík
Kl. 10.00
kl. 13.00
kl. 16.00
kl. 19.00
I apríl og október verða kvöldferðir á
sunnudögum. — I .mai, júni og september
verða kvöldferðir á föstudögum og sunnu-
dögum. - I júlí og ágúst verða kvöldferðir
alla daga nema laugardaga.
Kvöldferðir eru frá Akranesi kl. 20.30 og frá
Reykjavik kl. 22.00.
Afgreiðsla Akranesi sími 2275. Skrifstof-
an Akranesi simi 1095..
Afgreiðsla Reykjavík, simi 16050. Sfm-
svari í Rvik, sími 16420.
FÍKNIEFNI -
Lögreglan í
Reykjavík, mót-
taka upplýsinga,
sími 14377
flokksstarf
Framsóknarfélag Skagafjarðar
Aðalfundur félagsins verður í framsóknarhúsinu á Sauðárkróki
fimmtudaginn 23. júni kl. 21.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson mæta á
fundinum.
Stjórnin.
Félagsmálanámskeið
í Vestmannaeyjum
Um helgina 24.-26. júní veröur haldið félagsmálanámskeið í
Vestmannaeyjum á vegum S.U.F. (SUF) Námskeiðið hefst kl. 20 á
föstudagskvöld, á laugardag frá kl. 10-19 og sunnudag kl. 13-19.
Námskeiðið verður í Gestgjafanum (uppi). Leiðbeinandi Hrólfur
Ölvisson. Allar nánari upplýsingar gefur Oddný Garðarsdóttir í síma
2635.
S.U.F.
Frá vorhappdrætti
Framsóknarflokksins
Dregið hefur verið í vorhappdrættinu, og eru vinnningsnúmer
innsigluð hjá borgarfógeta, þar sem allmargir eiga enn eftir að gera
skil fyrir heimsendum miðurh. Greiðslum má framvísa á næstu
dögum samkvæmt meðfylgjandi gíróseðli í pósthúsi eða bankastofn-
unum.
Bátsferð - Fjöruvarðeldur - Bátsferð
Unglingaklúbbur FUF í Reykjavík fer í siglingu með Skúlaskeiði út í
Viðey og e.t.v. fleiri eyjar. Lagt verður upp frá Sundahöfn fimmtudag-
inn 23. júní kl. 19.
Verð kr. 100.00. Frítt fyrir börn innan 12 ára og kr. 50.00 fyrir 13-14
ára. Pylsuparty verður í Viðey.
Fararstjórar verða Örlygur Háldánarson formaður Viðeyingafélagsins
og Helgi Hjaltason formaöur unglingaklúbbsins.
Heiðursgestur: Guðmundur G. Þórarinsson gjaldkeri Framsóknar-
flokksins.
Þátttaka ekki bundin við meðlimi unglingaklúbbsins. Tilvalin fjöl-
skylduferð fyrir FUF félaga.
Norðurland vestra
Fundur verður haldinn í launþegaráði Framsóknarflokksins í Norður
landi vestra n.k. laugardag kl. 14.
Fundarstaður: Félagsheimili Framsóknarmanna við Suðurgötu á
Sauðárkróki.
Á fundinn koma forystumenn launþegaráða Framsóknarmanna á
Suðurlandi, Vesturlandi og Norðurlandi eystra. Einnig mætir Guð-
mundur Bjarnason, ritari flokksins, á fundinn.
Kópavogur
Hin árlega sumarferð Framsóknarfélagana í Kópavogi verður farin á
Snæfellsnes og út í Breiðafjaröareyjar dagana 2. og 3. júlí, n.k.
Upplýsingar í símum:
42643 Þorvaldur
45918 Inga.
Ferðanefnd.
Kjarnaborun
Tökum ur steyptum veggjum fyrir hurðir, loftræstingu, glugga,
og ýmisskonar lagnir, 2", 3", 4", 5", 6" og 7" borar.
HLJOÐLÁTT OG RYKLAUST. Fjarlægum múrbrotið, önnumst
ísetningar hurða og glugga ef óskað er. Hvert á land sem er.
Skjót og góð þjónusta.
Kjárnaborun sf.
Hestar til sölu
Hjá Hrossakynbótabúinu á Hólum í Hjaltadal eru
til sölu nokkur hross þ.á.m. hryssur með 1. og 2.
verðlaun og tamdir geldingar.
Upplýsingar um hrossin gefa Ingimar Ingimars-
son og Grétar Geirsson á Hólum, sími um
Sauðárkrók.
t
Útför móður okkar og tengdamóður
Guðrúnar Jóhannesdóttur
frá Frambæ Eyrarbakka
Hófgeröi 18, Kópavogi.
er lésl 14. júní verður gerð frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 25. júní
kl. 2.
Sigurveig Þórarinsdóttir BaldurTeitsson
Jóhann Þórarinsson Ingunn Ingvarsdóttir
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma
Ágústa Kristín Sigurbjörnsdóttir
frá Höfn í Hornafirði
til heimilis að Hjarðarslóð 3 Dalvík
verður jarðsungin frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 25. júnl kl. 2 e.h.
Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem vildu minnast hennar er bent
á Krabbameinsfélag íslands.
Eyjólfur J. Stefánsson
Sigmar Eyjólfsson Mjallhvíf Þorláksdóttir
Hreinn Eyjólfsson Þrúður S. Ingvarsdóttir
Kristinn Eyjólfsson Valgerður Hrólfsdóttir
Elísabet Eyjólfsdóttir Bjarni Jónsson
og barnabörn.
Ég sendi öllum þeim sem sent hafa mér hlýjar
kveðjur gjafir og blóm á 90 ára afmælinu, hugheilar
þakkir og kveðjur.
Helga Kristjánsdóttir
Auglýsing frá Bifreiðaeftirliti
ríkisins í Reykjavík
Hinn 1. júlí n .k. eiga allar bifreiðar sem bera lægra Skráningarnúmer
en R-46000 að hafa mætt til aðalskoðunar. Vegna sumarleyfa verður
engin aðalskoðun auglýst frá 11. júlí tii 15. ágúst n.k.
Bifreiðaeigendur, sem ekki hafa látið skoða áður boðaðar bifreiðar
geta mætt með þær til aðalskoðunar til 8. júlí n.k.
Reykjavík, 21. júní 1983.
Bifreiðaeftirlit ríkisins.
Frá menntmálaráðuneytinu
Staða kennara með sérmenntun í stærðfræði, eðlisfærði og helst
einnig tölvufræðum - forritun - við Stýrimannaskólann í Reykjavík er
laus til umsóknar.
Umsóknir meö upplýsingum um námsferil og fyrri störf sendist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,101 Reykjavík fyrir 15. júlí.
Menntamálaráðuneytið
Laus staða
Við Fjölbrautaskólann á Akranesi er laus til umsóknar kennarastaða
I stærðfræði og eðlisfærði.
Laun samkvæmt launakerfi ríkisins.
Umsóknir ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf skulu
hafa borist menntamálaráðuneytinu fyilr 15. júlí n.k. Umsóknareyðu-
blöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
21. júní 1983.
Útboð
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í lagningu ræsis og gerð fyllingar úr
bólstrabergi neðan við aðalstíflu Sigölduvirkjunar og í jarðvinnu og
að steypa plötu á yfirfallssvæði sömu stíflu.
Helstu magntölur eru:
Ræsimeðsteinsteypurörum 200 m
Gröfturjarðefna 9000 m“
Fylling úr bólstrabergi og möl 32000 ‘nn^
Steypt plata 8000 m2
Útboðsgögn fást á skrifstofu Landsvirkjunar að Háaleitisbraut 68,
Reykjavík frá og með föstudeginum 24. júní 1983 og kostar hvert
eintak 500 krónur.
Tilboöum skal skila á sama stað fyrir kl. 14 þriðjudaginn 5. júlí 1983.