Tíminn - 03.09.1983, Blaðsíða 6
H'l IHH l't'l
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1983
f spegli tímans
GÆLUDÝRiN STÆKKA OG STÆKKA
■ . Þcssi tvö indælu litlu „gælu-
dýr“, sem hér sjást ásamt eig-
anda sínum og húsbónda,
Johnny Kottal, 18 ára þjóni í
Odense í Danmörku, sluppu
naumlega við það að verða
aflífuð, en Johnny var að gefast
upp á að ala önn fyrir þeim og
hafa þau í húsinu.
í staðinn fyrir að vera gælu-
dýr í venjulegri íbúð koma litlu
krókódílarnir til með að eyða
dögunum í „Danmarks Akvar-
ium“ (fískasafninu þcirra þar),
þar sem þcir verða til sýnis.
- Ég hef að undanförnu
leitað eftir einhverjum sama-
stað fyrir þessi gæludýr mín,
segir Johnny. - Litlu sætu
krókódílaungarnir mínir eru
orðnir 3ja ára og þeir voru
orðnir uggvænlcga stórir. Þeir
stækkuðu að meðaltali um 6
sm á viku. Þetta eru Karmann-
krókódílar og þeir geta orðið
yfir 4 m á lengd, svo mér var
hætt að lítast á blikuna, sagði
eigandi þcirra, - enda var hann
með djúpt sár á annarri hend-
inni þegar hann aflienti dýrin.
K ’ g a j
t"’' • 1 L.l
UuV:.:, 1 . 1
■ Er veggurinn gagnsær, eða hvað?
GAGNSSRVEGGUR?
■ Það hefur komið fvrir
margan vegfarandann, sem
ekur fram hjá þessu húsi í
Wuppertal í Vestur-Þýska-
landi, að snarbremsa og horfa
agndofa „inn í húsið“ - að því
er þeim fínnst. I raun horfa
þeir þá aðeins á gluggalausan
vegg, sem listamaðurinn Hans-
Gunter Obermaicr hefur mál-
að þessa skreytingu á.
Það er engu líkara en að
tjald sé dregið frá og íbúar
hússins sjáist við daglcga iðju
sína: Ung stúlka er að hafa
fataskipti á efri hæðinni og
maður liggur í rúminu sínu, en
á neðri hæðinni situr herra-
maður á klósettinu með
dagblað, en lítur upp úr því
eins og hann hafi verið ónáðað-
ur. Svo situr einn í hægindastól
og lætur fara vel um sig. Hvort _
fyrirsæturnar á myndunum búa
í þessu húsi eða ekki fæst
listamaðurinn ekki til að segja
neitt um.
Það var listunnandi í ná-
grenni hússins sem borgaði fyr-
ir verkið. Hann sagðist vera
svo leiður á þessum gráa vegg.
viðtal dagsins
Hagsmunafélag myndlistarmanna sýnir á Kjarvalsstöðum
MYNNR
AFBORGUNUM
— segja Ólafur Lárusson og Halldór B. Runólfs-
son, tveir skipuleggjenda sýningarinnar.
■ „Þessi sýning er haldin til að son og Halldór B. Runólfsson í meðal skipuleggjenda sýningar- sem ekki hafa getað verið í
sýna fram á það að félagið er viðtali, en Hagsmunafélag innar. öðrum myndlistarfélögum. í
ekki eins vafasarnt og af er myndlistarmannaernúmeðsýn- „Hagsmunafélag myndlist- þessu félagi ægir saman fólki
látið“, sögðu þeir Ólafur Lárus- ingu á Kjarvalsstöðum. Eru þeir armanna var stofnað fyrir þá semekkihefurfengiðinniannars
Ólafur Lárusson og Halldór B. Runólfsson.
Tímamynd Róbert