Tíminn - 06.09.1983, Síða 1

Tíminn - 06.09.1983, Síða 1
SKAGAMENN TVOFALPIR MEISTARAR ■ Skagamenn tryggðu sér á laugardag- inn Íslandsmeistaratitilinn í knattspvrnu, þegar þeir gerðu jafntefli við Eyjamenn á Skipaskaga, 1-1. Skagamenn þar með komnir með 23 stig, og nú getur ekkert lið í fyrstu deild náð þeim að stigum. Þessum áfanga Skagamanna var mjög fagnað á Akranesi á laugardag, 16 hundruð áhorfendur fylgdust með leik ÍA og ÍBV sem er met í áhorfendafjölda á Akranesi í sumar. Skagamenn eru því tvöfaldir meistarar hér á landi í sumar. Þeir eru Islands- meistarar, og bikarmeistarar urðu þeir lyrir nokkru. Glæsilegur árangur, og verð- skuldaöur, Skagamenn hafa sýnt mikinn stöðugleika í sumar, og verið að flestra dómi besta liðiö hér á landi. Þeir hafa ■ íslands- og bikarmeistarar Skagamanna. yflr aðráða sterkumhópi sem hcfur ekki vegna meiðsla og leikbanna, og sýnt veikst við það að breytingar hafi orðið sérstaka samheldni undir stjórn þjálfara síns Harðar Helgasonar. Til hamingju Skagainenn. _SÖE ARNÓR OG PÉTUR FENGU LOKS LEYFI leika með Hollendingum á morgun ■ Knattspyrnumennirnir stcrku, Arnór Guðjohnsen sem leikur með Anderlecht í Belgíu, og Pétur Pétursson sem leikur með Antwerpen fengu um helgina loks leyfl til að leika með ísl. landsliðinu gegn Hollendingum á morgun. Strákarnir áttu að leika með sínum liðum sama kvöld, og fengu ekki leyfl hjá þjálfurum sínum til að vera með, en nó var loks leyft að þeir færu til Hollands. Jóhannes Atlason landsliðsþjálfari sagði í sjónvarpsviðtali í gær, að hann ■ Unglingalandsliðið, skipað leik- mönnum 21 árs og yngrí leikur í kvöld gegn Hollendingum í Venio í Hollandi. Liðið fór utan eins og A-landsliðið á sunnudag. I fyrri leik liðanna, sem leikinn var í Keflavík í fyrra, varð jafntefli 1-1. Þá hreinlega náðu Holllendingarnir jafn- væri mjög ánægður með að þessir sterku leikmenn gætu orðið með. - Það að 16 leikmenn höfðu verið valdir áður en þetta kom upp í bæði landsliðin, A- landsliðið og lið 21 árs og yngri, verður leyst þannig að Ragnar Margeirsson færíst yflr í 21 árs landsliðið, og eru þá eftir 17 menn í hvorum hópi. Allir fara ót, en síðan mun einn verða áhorfandi ór hvorum hópi þegar til kastanna kemur! Það verða því 7 atvinnumenn sem verða með íslenska liðinu á morgun í Groningen, Arnór, Pétur, Atli og tefli, en íslendingar komust yfir 1-0, og Hollendingum tókst ekki að jafna fyrr en á lokamínútu leiksins. Hvað tekst okkar mönnum í kvöld, Tíminn skýrir frá því í fyrramálið, Magnós Ólafsson, knattspyrnusérfræðingur blaðsins í Þvskalandi mun fara til Hollands. -SÖE Jóhannes Eðvaldssynir, Pétur Ormslev, Asgeir Sigurvinsson og Lárus Guð- mundsson. -SÖE Dússeldorf tapaði Frá Magnósi Óiafssyni í Bonn: ■ Fortuna Ousseldorf tapaði sann- gjarnt sínum fyrsta leik í fyrstu deild á þessu keppnistímabili á laugardaginn, og það gegn Frankfurt, sem vann þar með sinn fyrsta sigur. Atli Eðvaldsson og Pétur Ormslev hófu báðir leikinn, og stóðu þeir sig báðir hörmulega. Pétur var tekinn ót af í hálfleik. - Atla til afsökunar má þó segja, að Körbel nokkur hafði hann í gæslu og skilaði Frankfurtarinn hlut- verki sínu vel. Aðeins einu sinni slapp Atli, og þá munaði ekki nema millimetr- um að skallabolti hans hafnaði í netinu. Strákamir leika íkvökl Stuttgart á toppnum Frá Magnósi Olafssyni í Iionn: ■ Svíar voru hinir óumdeilanlegu sig- urvegarar í 5. umferð þýsku Búnderlíg- unnar um helgina. Þeir Corneliusson hjá Stuttgart, Svensson hjá Frankfurt og Nilsson hjá Kaiserslautern voru ekki aðcins yflrburðamenn í liðum sínum, heldur skoruðu þeir cinnig 6 mörk til að Irj’g&ja örugga sigra. Annað var uppi á teningnum hjá íslensku atvinnumönn- unum, því ég minnist þess ekki aö hafa séð þá alla í einu jafnslaka og þessa helgi. En ef til vill höfðu þeir hugann bundinn við landsleikinn á morgun. Úrslitin í 5. umferð reyndust VFB Stuttgart hagstæð, enda cr liðið nú komið í efsta sæti. Nýliðarnir Bayer Uerdingcn töpuðu sínum fyrsta lcik, og það gegn lélegu Dortmundarliði, 1-2. Uerdingen virkaði óstyrkt í fyrri hálf- leik, og fengu þeir þá á sig tvö mörk. í seinni hálfleik sótti þetta skemmtilega sóknarlið án afláts, en uppskar aðeins eitt mark. Werder Bremen náði jafntefli gegn Bayern Múnchen í Múnchen í leiðin- legum leik. Heimamenn sóttu stíft, en markið sem lá í loftinu, kom aldrei. Markvörður Bremen, og varamarkvörð- ur þýska landsliðsins, Dieter Burdenski varði bókstaflega allt í þessum leik. Karl Heins Rummenigge er enn frá keppni, og Michael litli bróðir er enn ekki sá snillingur sem stóri bróðir er. Daninn Lerby var ágætur, en Ijóst er að hann er ekki enn orðinn að Paul Beitner. HSV sigraði Bielefeld 2-0 með erfið- ismunum, og var dómarinn langbesti maðurinn á vellinum. Úrslitin í 5. um- ferð urðu annars þessi: HSV-Bielefeld .................2-0 Frankfurt-Dússeldorf ..........3-0 Nurnberg-Offenbach.............4-0 Bayern M-Bremen ...............0-0 Köln-Braunschweig .............2-1 Gladbach-Waldhof ............ 3-0 Dortmund-Uerdingen ............2-1 Kaiserslautern-Leverkusen .....3-0 Stuttgart-Bochum............. 4-2 Þessir leikir voru allir spilaðir af útkeyrðum knattspyrnusnillingum. Mál- ið cr nefnilega þannig vaxið, að ótaf Bikarkeppninni hafa þeir þýsku þurft að spila þrjá leiki á tíu dögu. Hér í landi þykir þetta óhcyrilegt vinnuálag, sem kemur niður á gæöunum. Á Englandi er þetta hins vegar vcnjuleg vinnuvika. Þjóðverjar nefna svona kcyrslu enska viku, og ckkert óttast þeir meira. Staðan er nó þessi: Stuttgart ... 5 3 2 0 12-4 8 Míinchen ... 5 3 2 0 9-5 8 HSV ... 4 3 1 0 9-5 7 Uerdingen ... 5 3 1 1 15-9 7 Dússeldorf ... 5 2 2 1 6-6 6 Gladbach ... 5 2 1 2 11-9 5 Bremen ... 5 2 1 2 7-7 5 Bochum ... 5 2 1 2 11-13 5 Kaiscrslautern ... ... 5 1 2 2 10-10 4 Núrnberg ... 5 2 0 3 9-9 4 Frankfurt ... 5 1 2 2 10-11 4 Waldhof ... 5 1 2 2 7-9 4 Köln ... 5 2 0 3 5-7 4 Braunschweig.... ... 5 2 0 3 8-11 4 Dortmund ... 5 1 2 2 7-10 4 Bielefeld ... 5 2 0 3 fi-in 4 Leverkusen ... 4 1 1 2 6-7 3 Offenbach ... 5 1 0 4 6-12 2 - sjá meira um þýska boltann í opnu Bjarni varð meistari... Tímamynd Árni Sæberg ■ Bjarni Hannesson skipstjóri og áhöfn hans á Mardöll úr Garðabæ urðu íslandsmeistarar á kjölbátum í siglingum árið 1983. Bjarni og áhöfn sigruðu á Islandsmótinu sem haldið var um helg- ina, hófst á föstudag og lauk á sunnudag. Siglt var í 5 keppnum alls um helgina, við mismunandi aðstæður, hægum vindi á föstudag, logni á laugardag og óskabyr á sunnudag. Skýjaborg úr Kópavogi undir stjórn Rúnars Steinsen og áhafnar hans var í öðru sæti í keppninni, og Assa frá Reykjavík, undir stjórn Ara Berg- mann Einarssonar og áhafnar hans varð í þriðja sæti. Gletta úr Kópavogi, skipstjóri Gunnlaugur Jónasson var í fjórða sæti, Bláa dísin úr Kópavogi undir stjórn Níelsar Nielsen í fimmta sæti og Aida Kópavogi undir skipstjórn Valdimars Karlssonar í sjötta sæti.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.