Tíminn - 06.09.1983, Blaðsíða 4

Tíminn - 06.09.1983, Blaðsíða 4
12 ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1983 íþróttirf umsjón: Samúel Örn Erlingsson spyrnan... Skoska knattspyrnan... BUBBI SKORAÐI JOFNUNflBMftRKffl — fyrir Motherwell gegn St Mirren-Aberdeen vann 5:0 ■ Jóhannes KAvaldsson, fyrrum lands- liósfyrirliði Islands skoraði um helgina glæsilegt mark fyrir lið sitt Motherwell í hinni hörðu keppni skosku úrvalsdeild- arinnar. Motherwell lék á útivelli gegn St. Mirren, og skoraði St. Mirren eftir 15 inínútna leik. Jóhannes jafnaði með þrumuskoti þremur mínútum fyrir leiks- lok, og bjargaði þar með því að Mot- herwell fór heim með eitt stig. „Gott stig þar hjá Wallace og strákun- um hans,“ sagði enski útvarpsmaðurinn er hann skýrði frá úrslitum lciksins. - Og Jóhannes greinilega í stuði, og leikur gegn Hollendingum á morgun með ís- lenska landsliðinu eftir langt hlé. Alls komu um 100 þúsund áhorfendur á lciki skosku úrvalsdeildarinnar á laug- ardag. Fyrsta mark dagsinsskoraði Ran- gers-lcikmaðurinn Ally McCoist,skoraði eftir 29 sckúndna leik. Það dugði þó skammt, Roy Aitkcn jafnaði á 8. mín- útu. Rangcrs sofnuðu síðan á verðinum í lokin, og Frank McGarvey skoraði sigurmark Celtic. - Aherdcen vann stór- sigur á St. Johnstone, 5-0 þar skoruðu Willie Miller, Eric Black tvö, McGhee og Grahant Stark. Dundee komst yfir gegn Dundee United 1-0, en tvö mörk frá John Reilly og eitt frá Ralph Milne gáfu meisturunum sigur. Þeir koma hingað í haust og leika við Skagamenn. Ralph Callaghan og Edwin skoruðu fyrir Hibernian á Edinborgarhátíð í leik gegn Hearts, en Hcarts vann nteð tveim- ur mörkum frá hinum unga John Robert- son, og einu frá Jimmy Brough. - SÖE ■ Jóhannes Eðvaldsson - Búbbi - skallar hér að marki í landsleik fyrir nokkrum árum. Hann skoraði um helgina fyrir Motherwell, og leikur á morgun gegn Hollendingum. Enska knattspyman... enska knattspyrnan... u v': , i \ i ~~ __i j I' 'J' ! ' J ■ n — Withe skorað báðumegin — QPR vann — markasúpa í Luton ■ West Ham er nú eina liðið sem liefur fullt hús stiga í ensku lyrstu deildinni, og hefur sýnt af sér einkar sannfærandi leiki það sem af er. West Ham skellti um helgina Tottenhain Hotspur á White Heart Lane, hjá Tottenham virðist flcst í rusli þessa dagana, og áttu þeir ekki roð. Liver- pool og Manchester United náðu að vinna um helgina, og eru saman í öðru sæti með 7 stig ásamt Southampton, scm kom mjög á óvart með því að sigra Arsenal. West Ham var mun betra liðið á White Heart Lane. Leikmenn Tottcn- ham voru aðallega í því að horfa á boltann, sérstaklega cftir að Glenn Hoddle varð að yfirgcfa ieikvöllinn vegna meiðsla rétt fyrir lcikhlé. Þá voru „Hammers" komnir í 2-0 mcð mörkunt þeirra Steve Whitton og Dave Swindlehurst, og „Spurs" sem voru án Steve Archibald, sem rcyndarer kom- inn á sölulista, gátu ekkert gert til að breyta þcssu. - Þessu höfðu áhangend- ur West Ham bcðið eftir, þrír fyrstu leikirnir í deildinni sigraðir, skoruðsjö mörk, og ekkert enn kornið í mark West Ham. Steve Whitton skoraði snyrtilega fyrsta markið eftir 10 mínútur. Hann fékk boltann fyrir framan markið, eftir ■ Kenny Dalglish var kóngurinn á Anfield Road. að Alvin Martin tók hornspyrnu. Síöara markið kom í lok fyrri hálfleiks, þegar hinn síógnandi Tony Cottee fann Dave Swindlehurst frían fyrir framan markið, sendi þangað boltann strax og mark. Góð vinna Grahams Roberts á miðjunni hjá Tottcnham, skemmtilegir taktar Tonys Galvin á vinstri kantinum og barátta Hoddles á miðjunni í fyrri hálfleik komu að engu gagni í lciknum fyrir Tottenham. Qucens Park Rangers fengu góða byrjun á heimavelli, í fyrsta fyrstu- deildarleik á gervigrasinu, á Loftus Road. Rangers unnu leikinn verð- skuldað, cn það var stundum eins og þeim lægi fullmikið á. Þeir komust í 1-0 strax á 4. mínutu, Steve Stainrod skoraði, cftir að vörn Aston Villa stóð gersamlega stirðnuð. Rangers skoruðu annað mark þegar síðari hálfleikur var hálfnaður, Peter Witheskallaði í eigið mark. hann er nú öllu vanari að stunda slíkt réttu megin á vellinum, cftir mistök hins annars ágæta varnarmanns Rangers, Bobs Hazel. En það var orðið of scint, þá aðeins mínúta eftir. Fyrsta hálftímann í leik Southam- pton og Arsenal á the Dell var auðvelt að sjá hvers vegna Arsenal var með 6 stig eftir tvo leiki. Graham Rix, Tony Woodcock og Charlie Nicholas fengu allir tækifæri til að koma Arsenal yfir, en ekki gekk það, og viljinn ogdugnað- urinn týndust einhvers staðar. Sout- hampton virtist alltaf eftir það vera líklegra til að skora. Danny Wallace leikmaður Southampton gerði Arsenal lífið leitt. tvisvar gaf hann á Frank Worthington í dauðafæri sem Wort- hington tókst ekki að nýta, og 18 mínútum fyrir leikslok plataði Wallacé vörn Arsenal upp úr skónum og endaði með því að gefa á varamannin lan Bear sem var í dauðafæri. David Arms- trong hefði einnig átt að geta skorað fyrir Southampton, og þó Arsenal væri meira með boltann þegar á leið, skap- aði liðið sér ekki færi. Hávaðarok í Notthinghum gerði það að verkuin aö stundum voru tilburðir ágætustu leikmanna í leik Notts Co- unty og Ipswich dálítið klaufalegir. Fyrsta markið í leiknum skoraði Justin Fashanu, án þéss þó að ógna marki andstæðinganna. Hann skallaði óverj- andi í eigið mark eftir hornspyrnu, Kári gamli var með í spilinu. Hins vegar var enginn vafi á að Ipswich- mcnn skoruðu sjálfir annað mark sitt, Paul Mariner af tíu metra færi, þegar vörn Notts County beið átekta, og ætlaði hver hinum að hreinsa. Ipswich var mun betra liðið, og í síðari hálfleik, þegar þeir höfðu vind- inn í bakið, héldu þeir boltanum niðri, og létu hann rúlla. John Chiedozie Nígeríumaðurinn blakki, var besti maður County í leiknum. Notthingham Forest virtist ætla að standa sig svo vel á Anfield Road. Markvörður þeirra Hollendingurinn van Breukelen varði mjög vel, meðal annars vítaspyrnu frá Phil Neal. Alan Hansen var næstum búinn að skora sjálfsmark, en allt kom fyrir ekki, Kenny Dalglish var í stuði. Hann lék á miðjunni fyrir aftan fremstu mennina tvo, Rush og Robinson. Hann mataði þá á gullnum sendingum, og svo fór, 7 mínútum fyrir leikslok að lan Rush fékk eina sem skein af og var allt í einu einn fyrir innan, einfalt hjá Rush og mark. Ekki að ófyrirsynju að áhang- cndur Liverpool öskra svo mjög af hrifningu þegar Kenny fær boltann, hann er þarna pottur og panna. Stoke var mun betra liðið framan af á Victoria Ground gegn Manchester United. Hratt og nákvæmt spil þeirra kom vel út, og þeir áttu leikinn gegn vindinum. Ian Painter og Thomas velgdu United undir uggum, og ein- ungis snilli Garys Bailey t markinu bjargaði United. Thomas komst oft inn fyrir og átti þá að hafa Bailey, en ef hann var kominn framhjá Bailey, náði Bailey boltanum með löppunum án þess að vita nákvæmlega af því. tvisvar. Painter líka í færum. - En United skoraði þvert ofan í gang leiksins, Stapleton gaf fyrir. Whiteside skallaði út, Robson þrumaði á markið. Fox varði, en Arnold Múhren var nærstaddur og skoraði eftir að Fox missti boltann sem var þrumufastur frá Robson. Stoke náði sér aldrei á strik eftir markið. sem skorað var á 55. mínútu. og United var sterkara það sem eftir var. Wilkins og Robson voru góðir, Stapleton hugaður, og hefur sjálfsagt verið marinn eftir. Birmingham vann sin fyrstu stig á kcppnistímahilinu verðskuldaö heima gegn Watford. Tveir fyrrum Aston Villa leikmcnn, Tony Reeceog Robert Hopkins voru aðalskelfar Watford liðsins. Reece gaf á Hopkins sem skoraði fyrra markið, og aftur gaf Reece síðustu sendingu fyrir mark, þá á Mike Halsall, sem skoraði annað markið. Watford fann aldrei rétta taktinn. Leicester situr nú eitt á botninum. Útlitið slæmt, liðiö kont upp í vor. Clive Whitehead skoraði markið sem dugði til aö sökkva Leicester fyrir West Bromwich Albion. Luton kaffærði Sunderland í mörkum í Luton. Ricky Hill og Paul Walsh skoruðu fyrst fyrir Luton og þriðja markið var sjálfsmark Sunder- land. Colin West minnkaði muninn fyrir Sunderland, en Brian Stein bætti um betur, reyndareftiraðhafaklúðrað vítaspyrnu. Mick Hatton skoraði fyrir Coventry, en Kevin Sheedy jafnaði fyrir Everton. Tvö mörk snemma í leiknum frá Keith Bertschin og John Deehan nægðu gegn Wolves, reyndar bætti Deehan við einu enn síðar í lciknum. í Fulham eru ekki tíndar rósir, Hateley og Biley skoruðu fyrir Port- smouth, og stigin enn fá hjá Fulham, eins og reyndar sumum fyrrum fyrstu deildarliðum þessa dagana. Frank Gray og George McCluskey skoruðu fyrir Leeds United, sem gerði sitt besta til að tapa fyrir Middelsbro- ugh, David Currie skoraði bæði fyrir Boro. Jiin Tolmey skoraði líka tvö fyrir Manchéster City og Derek Farlanc skoraði líka gegn Barnsley. ■ Úrslit uröu þcssi í ensku knatt- spyrnunni um helgina: 1. deild: Birminghani-V\atford ....... 2-0 •Coventry-Everton............ 1-1 Liverpool-Nott.For........... 1-0 Luton-Sunderland............. 4-1 Norwich-Wolves............... 3-0 Notts C-Ipswich.............. 0-2 Q.P.R.-Aston Villa........... 2-1 Southampton-Arsenal ...... 1-0 Stoke-Man. United............ 0-1 Tottenham-West Ham........... 0-2 W.B.A.-Leicester............. 1-0 2. deild: Brighton-Chelsea ............ 1-2 Camhridge-Blackburn ......... 2-0 CardifT-Grimsby.............. 3-1 Derby-Swansea................ 2-1 Fulham-Portsmouth............ 0-2 Huddcrsfield-Charlton........ 0-0 Man. City-Barnsley........... 3-2 Middelsbrough-Leeds ......... 2-2 Newcastlc-Oldham ............ 3-0 Sheffleld Wed.-Carlisle ..... 2-0 Shrcwsbury-Chrystal Palace . . 1-1 ■ Staðan í 1. deild ensku knatt- spyrnunnar er nú þessi: ■ Danny Wallace lagði grunninn að sigri Southampton á Arsenal. WestHam ..330 0 7-0 9 Ipswich ..321 0 7-3 7 Liverpool 0 3-1 7 'Southampton . ..321 0 2-0 7 Luton ..320 1 8-3 6 Notts County . ..320 1 6-3 6 Man. United .. ..320 1 5-3 6 Aston Villa .... ..320 1 6-5 6 Arsenal ..320 1 4-3 6 Coventry ..312 0 5-4 5 Norwich ..311 1 4-2 4 Everton ..311 1 2-2 4 Q.P.R ..311 1 3-4 4 Stoke City ..310 2 3-3 3 Nott. Forest.... ..310 2 2-3 3 W.B.A 2 5-7 3 Birmingham ... ..310 2 3-6 3 Watford ..301 2 4-7 1 Wolves ..301 2 2-6 1 Sunderland .... ..301 2 2-6 1 Tottenham .... ..301 2 2-6 1 Leicester ..300 3 0-8 0 2. deild: Sheff. Wed 0 4-1 V Chelsea ..220 0 7-1 6 Newcastle ..320 1 4-1 6 Man. City ..320 1 6-4 6 Cardiff ..320 1 5-4 6 Shrewsbury . . . ..312 0 3-2 5 Cambridge .... ..211 0 2-0 4 Charlton ..211 0 2-0 4 Middlesbrough . ..211 0 3-2 4 Leeds ..311 1 5-4 4 1 Blackburn ..311 1 3-4 4 | Derby ..311 1 3-7 4 i Barnsley ..210 1 5-3 3 Portsmouth .... ..210 1 2-1 3 Oldham ..210 1 1-3 3 j Huddersfield ... ..202 0 2-2 2 Grimsby ..201 1 2-4 1 C. Palace ..201 1 1-3 1 Carlisle ..301 2 0-3 1 Swansea ..200 2 1-3 0 Brighton ..300 3 3-6 0 Fulham ..200 2 0-5 0

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.