Tíminn - 06.09.1983, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1983
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1983
10
Wimm
11
Umsjón: Samúel Örn Erlingsson
■ Markalaust jafntefli varð niðurstaða
viöureignar Þórs frá Akureyri ug Vík-
ings Reykjavík á Laugardalsvellinum á
laugardag. Var helst sem liðin sættu sig
við þessa útkomu. Stigin komu sér vel
fyrir bæði lið, hvorugt í bráðri fallhættu,
en þurftu stigin öryggisins vegna.
Leikurinn var rislágur knattspyrnulega
séð, en Víkingar áttu þó í vök að verjast
fyrir allfrískum norðanmönnum, sem
léku nú sinn skásta útilcik í nokkurn
tíma.
Leífturssókn
■ Það er sannkölluð Leifturssókn í úr-
slitakeppni 4. dcildarinnar í knatt-
spyrnu. Um helgina voru tveir leikir,
Stjarnan og Víkverji skildu jöfn 0-0 í
A-riðli, og Leiftur vann Hvöt í B-riðli
7-0. Leiftur frá Ólafsfirði hefur því 6 stig
í B-riðli, og Stjarnan og Víkverji 4 hvort
í A-riðli. Lciftur mun berjast við Leikni
frá Fáskrúðsfirði um 3. deildar sætið í
B-riðlinum, Hvatarmenn eru alveg úr
leik, en enn geta allir sigrað í A-riðli, þó
Haukar hafi ekkert stig.
- SÖE
Sigurður og
Ingi Björn eru
markahæstir
■ Nú berjast helst um markakóngstitilinn í
fyrstu deild íslandsmótsins í knattspyrnu þeir
Sigurður Grétarsson Breiðuhliki, og Ingi
Björn Alhcrtsson Val. Sigurður skoraði tvö
mörk á föstudag fyrir Breiðablik gegn Þrótti,
og komst þar með í 11 mörk fram fyrir lnga
Björn sem hefur verkið markahæstur leik-
manna lengst af í sumar. Ingi bætti úr daginn
eftir, á laugardag, skoruöi gegn ÍBÍ, og nú
hafa þeir kappar báðir skorað 11 mörk. Ingi
Björn á meiri möguleika á titlinum og gullskó
Adidas sem keppt er nú um í fyrsta skipti, því
Valsmenn eiga eftir tvo leiki, en Breiðablik
einungis einn. Sjá hér neðar. -SÖE
Þessir leikir
eru eftir á
íslandsmótinu:
■ Nú eru 1. dcildin í knattspyrnu
komin á lokastig, og fáir leikir eftir. Um það
bil ein umferð eftir, og svo frestaðir leikir. í
1. dcild eru þessir leikir cftir:
Þróttur-Akranes
Keflavík-ísafjörður
Valur-Víkingur
Þór-Breiðablik
Vestmannaeyjar-KR
og frestaðir leikir:
Valur-Vestmannaeyjar
V est mannacyjar-Brciðablik
Ovett náði
heimsmetinu
■ Steve Ovett frá Bretlandi, 1500 metra
hlauparinn snjalli frá Brctlandi, endiirheimti
heimsmet sitt i 1500 metra hlaupi um helgina.
Hann liljóp 3:30,77 mín á nióti á Ítalíu á
sunnudag, og þar incð féll nýsett heimsmct
Bandaríkjamannsins Sydney Maree, það var
3:31,24 niín og var sett fyrir viku, þá féll
þriggja ára heimsmet Ovetts. - SÖE
Eria skoraði 7!
- þegar Breiðablik
vann Víði 10-0
■ Erla Rafnsdóttir Breiðabliki var svo sann-
arlega á skotskónum á sunnudagínn þegar
Breiðablik lék gegn Víði í 1. deild kvenna í
knattspyrnu. grla skoraði 7 at' 10 mörkum
Breiðabliks, og mörg hver mjög gkesilega.
Leikurinn var einstefna allan tímann, þó
Víðisstúlkurnar léku ágætlega í fyrri hálfleik.
Staðan í hálfleik var3-0. Ásta B. Gunnlaugs-
dóttir opnaði markareikning Breiðabliks, en
síðan skoraði Erla 5 mörk í röð. Sigríður
Tryggvadóttirog Ásta B.skoruðu þá sín hvort
markið, og Erla bætti að lokum tveimur við.
Erla skoraði tvö mörk með fallegum skotum
frá vítateig, og tvö eftir fallegan samleik við
Bryndísi og Ástu B. Hin voru einstaklings-
framtak Erlu, sem var í þrumustuði. - Auk
markanna tíu brenndu Breiðabliksstelpurnar
af tveimurvítaspyrnum, Bryndís Einarsdóttir
og Erla Rafns hittu ekki markið. Bryndís átti
auk þessa skot í stöng, og Erla skot í slá og
þrumuskalla rétt yfir. - Sigurinn hefði því
getað orðið stærri.
Staðan í 1. deild kvenna er nú þcssi:
Breiðablik........ 9 8 0 1 26-6 16
KR ............... 8 5 2 1 19-4 12
Akranes........... 9 4 2 3 24-9 10
Valur............. 8 4 2 2 15-5 10
Víkingur.......... 9 2 0 7 5-18 4
Víðir............. 9 0 0 9 4-51 0
Markahæstar eru:
Laufe' Sigurðardóttir ÍA ..... 13
Erla Ralnsdóttir UBK ......... 10
Guðrún Sæmundsdóttir Val ....... 8
Ásta B. Gunnlaugsdóttir UBK .... 6
Bryndís Einarsdóttir UBK....... 6
Kolbrún Jöhannsdóttir KR ...... 6
- SÖE
SÆTTUSK VIB
JAFNKFUfi..
Víkingur og Þór ekkert mark
Liðin sóttu á víxl til að byrja með.
Lleimir Karlsson skaut yfir og tveir
Þórsarar komust einir inn fyrir, Ög-
mundur varði þar, og Guðjón Guð-
mundsson og Helgi Bentsson komust
báðir í tæri við markið eftir þetta, en
ekkert varð úr. Fjörug byrjun og lofaði
góðu, en það var allt og sumt. Leikurinn
varð smám saman barátta á miðjunni, og
lítið um færi. Lcið svo fyrri hálfleikur.
í síðari hálfleik var hið sama uppi á
teningnum. Miðjuþóf, og bæði liðin
virtust helst hafa sætt sig við orðinn hlut,
það er að halda, en ná ckki að skora. Þó
voru norðanmenn frískari, og voru
Víkingarnir eins og ráðalausir á
stundum, og furðulegt að sjá menn
skjóta boltanum útaf, af því þeir vissu
eiginlega ekki hvað þeir áttu við bóltann
að gera, eins og fyrir kom.
Leikurinn varð aldrei neitt stórræði,
eins og líklega er komið fram. Ögmund-
ur Kristinsson markvörður Víkings var
sá leikmaður sem reis upp úr meðal-
mennskunni og varði oft vel. Aðrir voru
ekki mjög minnisverðir eftir á. Kjartan
Ólafsson dæmdi leikinn, og hefur átt
betri daga. Áhorfendur liðlega fjögur-
hundruð.
-SÖE.
Dæmigerð mynd fyrir viðureign Víkinga og Þórsara á laugardag. Boltinn víðs fjarri, en hart barist samt. Ekkert mark var skorað í leiknum. Tímamynd Róbert
SKAGAMENN NAOU
HLSKILDU STIGI
og eru íslandsmeistarar í knattspyrnu -
gerðu jafntefli við ÍBV 1-1
Frá Andrési Olafssyni tíðindamanni á
Akranesi:
■ Skagamenn tryggðu sér á laugardag-
inn íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu,
er þeir gerðu jafntefli við Eyjamenn á
grasvellinum á Akranesi. Leikurinn var
markaiaus þar til rétt í lokin, þá skoruðu
Skagamenn gott mark við mikinn fögnuð
metfjölda áhorfenda, Islandsmeistara-
titilinn virtist í höfn. Það var hann, að
vísu jöfnuðú Eyjamenn undir lokin en
eitt stig var alltaf öruggt. Nú hafa
Skagamcnn 23 stig, og ekkert lið getur
náð þeim að stigum, og einn leikur eftir.
Skagamenn byrjuðu leikinn af krafti,
og sóttu mun meira í fyrri hálfleik, án
þess þó að skora. Oft skall þó hurð nærri
hælum. Aukaspyrna var dæmd á Aðal-
stein Eyjamarkvörð á markteig á 4.
mínútu, og firnafast skot Árna Sveins-
sonar, eftir að boltanum hafði verið
rennt út til hans, small í varnarveggnum.
Fimm mínútum síðar komust Eyjamenn
í eina af sínu mjög hættulegu skyndi-
sóknum, og Jón Áskelsson náði að
bjarga frá Ómari Jóhannssyni á síðustu
stundu.
Leikurinn varð síðan baratta mikil án
færa, uns Sigurður Jónsson átti eina
snilldarsendingu á Hörð Jóhannesson
sem skaut á markið, en Aðalsteinn
varði. Aðalsteinnhélt þóekkiboltanum,
og Árni Sveinsson fékk hann fyrir opnu
marki. Á einhvern óskiljanlegan hátt.
skaut Árni framhjá. - Undir lok hálf-
leiksins átti svo Sigurður Jónsson Itörku-
skalla rétt framhjá Eyjamarkinu eftir
góða fyrirgjöf GuðbjarnarTryggvasonar.
I'síðari hálfleik jafnaðist leikurinn, og
nú áttu Eyjamenn fullt eins í leiknum.
Tómas Pálsson skapaði stórhættu við
Skagamarkið á 56. mínútu, stal þá
snyrtilega boltanum af Skagamanni, lék
á annan, komst einn gegn Bjarna mark-
verði, lék á hann en var þá í mjög
þröngri stöðu við cndalínuna. Tómas
reyndi að skrúfa boltann í inarkið, og
hefði eflaust tekist það, ef Guðjón
Þórðarson bakvörður hefði ckki verið
mættur á marklínuna og skallað frá.
Skagamenn sóttu skömmu síðar, og
þá skaut Sigþór viðstöðulaust í hliðar-
netið eftir fyrirgjöf Árna Svcins. Svein-
björn Hákonarson skallaði rétt framhjá
eftir hornspyrnu Sigurðar Jónssonar á
65. mínútu, og aftur var hætta eftir
hornspyrnu Sigurðar fimm mínútum fyr-
ir leikslok. Þá skoruðu Skagamenn,
Guðbjörn nikkaði boltanum aftur fyrir
sig við nærstöngina, beint í netið, og
áðurnefndur fögnuður skall á.
Allt útlit var fyrir að Skagamenn
ætluðu að taka titilinn með trompi, cn
tveimur mínútum fyrir leikslok jöfnuðu
Eyjamenn. Ágúst Einarsson braust þá
upp kantinn, gaf út á vítateiginn frá
endalínunni, cn þar kom stórskyttan
Ómar Jóhannsson á fullri ferð og skoraði
með miklum tilþrifum. - Stórglæsilegt
mark a la Ömar, og helst virtist sem
boltinn mundi rífa netmöskvana.
Leikurinn var í heild ágætur, og áttu
Skagamenn meira í honum. Úrslitin þó
ekki ósanngjörn. Guðbjörn Tryggvason,
Sigurður Halldórsson, Jón Áskelsson og
Guðjón Þórðarson léku allir mjög vel
fyrir Skagamenn cn Ómar Jóhannsson
var langbestur Eyjamanna. Þá voru
Aðalsteinn markvörður og Valþór Sig-
þórsson góðir. Þóroddur Hjaltalín dóm-
ari dæmdi þokkalega. aó/SÖE
zg.
aaa-t&i..
VALSMENN UFA
ENN f VONINNI
eiga nú raunhæfa möguleika á ad halda
1. deildarsætinu eftir 3-1 sigur á ísafirði
■ Valsmenn stigu mikilvægt skref á
laugardag í baráttu fyrstu deildarinnar í
fótbolta. Sigruðu þeir þá ísfirðinga 3-1 á
Isafirði, og var sá sigur sannfærandi, enda
Isafjarðarliðið dauft í leiknum, þrátt
fyrir að hafa fengið óskabyrjun. Isfirð-
ingar skoruðu í byrjun leiksins, Vals-
menn jöfnuðu í byrjun síðari hálfleiks,
og bættu svo tvcimur mörkum við þegar
á leið.
ísftrðingar skoruðu úr sinni fyrstu
sókn í leiknum. Dæmd var aukaspyrna
rétt utan vítateigs á Val, ogJón Oddsson
skoraði upp úr henni, eftir að boltanum
hafði verið ýtt til hliöar. Brynjar Vals-
markvörður hélt ekki skoti Jóns, og
rúllaði boltinn yfir markalínuna. - Eft-
ir þetta var leikurinn einstefna að marki
ísfirðinga. ísfirðingar fengu ekki fleiri
færi í fyrri hálfleik, en Valsmenn voru
aðgangsharðir fram á við. Ingi Björn
Albertsson komst í gott færi um miðjan
hálfleikinn, cn Hreiðar Sigtryggsson
markvörður ísfirðinga náði að verja á
ótrúlegan hátt, og svo gekk til hálfleiks,
yfir marklínuna vildi boltinn ekki.
Vart var liðin meira en mínúta af
síðari hálfleik, þegar Guðmundur Þor-
björnsson hafði jafnað fyrir Val. Ingi
Björn prjónaði sig skemmtilega upp
kantinn, og gaf vel út þegar hann var
kominn upp að endalínu. Þar kom
Guðmundur aðvífandi og skoraði með
góðu skoti, 1-1.
ísfirðingar áttu tvær skyndisóknir cftir
þetta, en án árangurs. Guðmundur Jó-
hannsson hinn hávaxni átti skalla að
marki Valsmanna og úr varð þvaga . Þá
komst Jón Oddsson á skrið, en Guðni
Bergsson, sá ungi ogefnilegi Valsmaður
stöðvaði hann. Ingi björn Albertsson
skoraði síðan annað mark Valsmanna á
70. mínútu.
Ingi Björn fékk boltann á miðjum
vallarhelminigi ísfirðinga, og eftir að
hafa lent í návígi við eina tvo varnar-
menn og leika á einn, komst hann í færi
og skoraði með góðu skoti, 2-1. Rétt fyrir
leikslok innsiglaði Njáll Eiðsson sigur
Valsmanna með góðu marki, en Njáll
kom inn á sem varamaður þegar 10
mínútur voru eftir af leiknum. - ísfirð-
ingar vöknuðu aðeins í lokin þegar
Bjarni Jóhannsson hafði verið settur inn
á, og áttu þeir gott færi rétt fyrir leikslok.
Ámundi Sigmundsson skallaði þá rétt
framhjá.
Leikurinn var leikur Valsmanna. ís-
firðingar daufir, og enginn stóð upp úr.
Valur Valsson stóð upp úr liði Vals-
manna, frískur og skapaði oft mikla
hættu. Þá var Hilmar Sighvatsson
sterkur, og Ingi Björn ógnandi. B-SÖE
Fram og KA líklega
upp úr 2. deild:
1. DEILD ■ ■
Heima Úti Samtals
Leikir Unnið Jafnt Tapað Mörk Stig Leikir Unnið Jafnt Tapað Mörk Stig L U J T M St.
Akranes 9 6 2 1 20-6 14 8 4 1 3 9-6 9 17 10 3 4 29-12 23
K.R. 9 3 5 1 9-7 11 8 2 4 2 9-12 8 17 5 9 3 18-19 19
Þór 8 3 4 1 13-6 10 9 2 3 4 7-12 7 17 5 7 5 20-18 17
Víkinqur 9 2 5 2 10-8 9 8 2 4 2 9-10 8 17 4 9 4 19-18 17
Þróttur 8 4 3 1 15-11 11 9 2 2 5 9-20 6 17 6 5 6 24-31 17
Breiðablik 9 4 3 2 12-8 11 7 1 3 3 7-9 5 ‘ 16 5 6 5 19-17 16
IBV 7 5 1 1 17-5 11 8 0 4 4 8-15 4 15 5 5 5 25-20 15
ÍBK 8 3 1 4 12-12 7 9 4 0 5 9-15 8 17 7 1 9 22-27 15
Valur 7 3 1 3 10-12 7 9 2 3 4 14-18 7 16 5 4 7 24-30 14
IBI 9 2 4 3 11-12 8 8 0 5 3 5-13 5 17 2 9 6 16-25 13
2. DEILD ■ ■
Heima Úti Samtals
Leikir Unnið Jafnt Tapað Mörk Stig Leikir Unnið Jafnt Tapað Mörk Stig L u J T M St.
KA 9 6 2 1 18-10 14 8 3 3 2 9-9 9 17 9 5 2 27-19 23
Fram 8 5 2 1 18-9 12 8 3 4 1 10-7 10 16 8 6 2 28-16 22
Víðir 9 5 3 1 7-3 13 8 2 4 2 7-8 7 17 7 6 3 14-11 20
FH 9 4 4 1 17-11 12 7 2 3 2 9-7 7 16 6 7 3 26-18 19
Njarðvík 8 4 2 2 9-4 10 9 3 1 5 8-13 7 17 7 3 7 17-17 17
Einherii 8 3 4 1 9-6 10 9 2 3 4 7-12 7 17 5 6 5 16-18 17
Völsunqur 9 2 3 4 5-6 7 8 4 0 4 10-10 8 17 6 3 8 15-16 15
KS 8 3 3 2 9-7 9 9 1 4 4 6-11 6 17 4 7 6 15-18 15
Fvlkir 8 2 2 4 5-9 6 9 1 2 6 9-15 2 17 3 4 10 14-24 10
Revnir 8 1 3 4 5-15 5 9 0 5 4 5-10 5 17 1 8 8 10-25 10
Corneliusson
með þrennu!
Samstarfið við Ásgeir frábært
Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn:
■ Sænski landsliðsmaöurinn Dan
Corneliusson bjargaði VFB Stuttgart
frá tniklum hrakförum með því að skora
þrisvar með skalla í 4-2 sigri VFB á
Bochum um helgina. Reyndar var Svíinn
sá eini sem spilaði knattspyrnu á vellin-
um, því hinir voru greinilega með hug-
ann við eitthvaö annað en fótbolta.
Gestirnir voru yfir í hálfleik 0-1 eftir
ljót mistök Ásgeirs Sigurvinssonar. En
Corneliusson skoraði á 50. mínútu eftir
einstaklega fallega hornspyrnu frá Ás-
geiri. Þó úthaldið sé ekki fullkomið og
meiðsli hái honum enn, verður ekki af
Ásgeiri tekið að h ann er einn af þremur
bestu knattspyrnumönnum Bundeslíg-
unnar, þegar að nákvæmum sendingum
kemur.
Bochum komst aftur yfir, en vara-
maðurinn Múller jafnaði. Corneliusson
KS ER ÖRUGGT MEB 2. DEILDAR SÆTIB
■ Siglfirðingar tryggðu sér áframhald-
andi veru í annarri deildinni í knatt-
spyrnu um helgina, þegar þeir sóttu sinn
fyrsta útisigur í annarri deildinni á
Húsavík. Siglfirðingar unnu þar 1-0, en
hafa nú 15 stig eins og Völsungar sem
ekki hafa hlotiö nema þrjú stig í síðari
umferð deildarinnar. Fylkir og Reynir
Sandgerði eru nú endanlega fallnir í 3.
deild, og klárt að ekki fer nema annaö
þeirra upp að ári, þar eð þau lenda í
sama riðli. Allt bendir til að Fram og KA
fari að nýju upp í 1. deild, en þau er efst
og hafa góða stöðu. Hægt er að leika sér
þannig með tölur að bæði FH og Víðir
hafi möguleika, sem þau vissulega hafa,
en ákaflega ótrúleg úrslit verða að koma
til.
Hafþór tryggði sætið
Hafþór Kolbeinsson, hinn eldfljóti
sóknarmaður Siglfirðinga skoraöi sigur-
mark þeirra á Húsavík. Siglfirðingar
komu til leiks sem grenjandi Ijón, og
ákveðnir í að halda stiginu. Það gerðu
þeir, þrátt fyrir mun meiri sókn Völs-
unga. Siglfirðingar fengu óskabyrjun,
þegar dæmd var réttlát vítaspyrna á
Völsung eftir fjórar mínútur, en hinn
annars knái framherji KS, Björn Ingi-
marsson fór þar illa með gott færi,
brenndi af. Völsungar sóttu stöðugt, án
þess að ná að skora, en skyndisóknir KS
með þá Björn og Hafþór í fararbroddi
voru stórhættulegar. Úr einni slíkri skor-
aði Hafþór, fjórum mínútum fyrir leiks-
lok. Varnarmönnum Völsungs urðu þá
á mistök, og allt í einu var Hafþór
sloppinn með boltann innfyrir.
„Það byrjaði vel keppnistímabilið hjá
Völsungum, en í síðari umferðinni fór
allt í baklás, og síðan hefur hvorki gengið
né rekið hjá Húsvíkingum,“ sagði tíð-
indamaður Tímans, Hafliði Jósteinsson.
„En við reynum að gera betur næst, hér
er mikill og góður efniviður að byggja á.“
- Leikurinn á Húsavík var frekar
grófur, og gefin fjögur gul spjöld á
KS-liðið.
Jafnt á Krikanum
„Lið okkar var baráttulaust, og virtist
helst að leikmennirnir hefðu lítinn áhuga
á að komast í fyrstu deild,“ sagði Helgi
Gunnarsson í FH eftir að jafntefli FH og
fallliðsins Reynis frá Sandgerði var orðin
staðreynd. Lokatölur urðu 1-1
Leikurinn var dapur. FH-ingar náðu
að komast yfir 1-0, Jón Erling Ragnars-
son skoraði þá eftir góða fyrirgjöf besta
manns vallarins, Pálma Jónssonar. Eftir
þetta varð leikurinn þófkenndur, fremur
leiðinlegur á að horfa. FH-ingar sóttu
þó á köflum, en Reynismenn vörðust vel.
Helst til mikið kapp var í mönnum, og
má vera að það hafi skemmt fyrir
FH-ingum, að helst átti að skora tvö
mörk úr hverri sókn. - í lokin náðu
Reynismenn að jafna leikinn, Júlíus
Jónsson skoraði gott mark tíu mínútum
fyrir leikslok.
Víðirvann áseiglunni
Fylkismenn komust í forystu eins og
reyndar í fyrri leiknum við Víði í sumar,
en ekki dugði það til stórátaka. Rcyndar
skipti ekki máli hvernig leikurinn fór
fyrir Fylki þegar upp var staðið, þar eð
KS vann Völsung, en góður sprettur
Fylkismanna í lok þessa íslandsmóts
náði fram í síðari hálfleik í Garðinum.
- Fylkir sótti án afláts í fyrri hálfleik.
Guðmundur Baldursson kom þeim í 1-0
á 15. mínútu, og Víðismenn áttu aðeins
eitt færi í fyrri hálfleik, sem Ólafur
Magnússon markvörður Fylkis varði vel.
I síðari hálfleik pressuðu Fylkismenn
enn stífar, og gættu ekki að sér í
vörninni. Þannig komust Víðsimenn í
skyndisókn fimmtán mínútum fyrir
leikslok og Guðmundur Knútsson, sá
gamli markarefur, skoraði. Fimm mínút-
um fyrir leikslok skoruðu svo V íðismenn
sigurmark þegar Fylkir hafði lagt allt
kapp á að skora sigurmark.
Víðismenn léku vel í leiknum, voru
frískir og börðust vel, en engu að síður
voru þeir óhemju heppnir.
„Það var engin spurning, við urðum
að vinna til að eiga möguleika, þó það
reyndar hafi ekki skipt máli þegar upp
var staðið, úr því Siglfirðingarnir unnu,“
sagði þjálfari Fylkis, Axel Axelsson eftir
leikinn. „Það verður að bíta í þetta súra
epli, og nú verðum við bara að einbeita
okkur að því að halda hópnum saman,
sterkum.“ - SÖE
skoraði 3-2, aftur eftir frábæra horn-
spyrnu frá Ásgeiri, og fjórum mínútum
fyrir leikslok kom 4-2 frá þessum stór-
hættulega Svía.
Cornelíusson er nú loks búinn að
finna sér íbúð í Stuttgart, og á föstudag-
inn kom unnusta hans frá Svíþjóð. „Nú
loksins get ég farið að spila fótbolta",
sagði Svíinn við það tækifæri. - Ætli
hann hafi ekki haft rétt fyrir sér.
* "<-v ‘-N ^ \ ■
IIÉi. tíii
igglll
■ Norræn samvinna gæti verið orðið yfir samvinnu þeirra Ásgcirs Sigurvinssonar
og Dans Corneliussonar, en þeir ná mjög vel saman með Stuttgart. Ásgeir leitar Dan
uppi með sínum frábærum sendingum, og Corneliusson er ekki í vandræðum með að
búa til mörkin.
..—.......