Tíminn - 24.09.1983, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1983
Framandi menning
í framandi iandi
Ert þú fædd/ur 1966 eða 1977?
• Viltu búa eitt ár í framandi landi?
• Viltu auka þekkingu þína á umheiminum?
• Viltu kynnast lifnaðarháttum annarra þjóða?
• Viltu verða skiptinemi?
Ef svarið er já, hafðu samband við:
Umsóknarfrestur til 7. okt. Opið daglega milli kl. 14 og 17.
Hverfisgötu 39. - P.O. Box 753 -121 Reykjavík.
Sími 25450.
á íslandi
alþjóðleg fræðsla og samskipti
Haust og vetrartískan $3/84
®p 03/8A cwawai % 3ut Uier/i 1000 gð'jxfXs 198 - Nafn Vörur í sérflokki X, Þú sendir okkur WStí °SSreidirí ísl. kr. páfc Aðallisti1092 bls + aukalistar Wssm
Heimilisfang Póstnr.
Otto Versand Box 4333-124 Reykjavík s. 66375
Gömlu dansarnir,
barnadansar,
þjóðdansar
Innritun í alla flokka í símum 43586 og 76068 milli
kl. 14-19 virka daga.
Gömlu dansarnir fyrir unglinga og fullorðna.
Byrjendur, framhald, upprifjun.
Barnadansar: Börn frá 4 ára aldri.
Lifandi músík í öllum flokkum.
Þjóðdansafélag Reykjavíkur
Sveit
Reglusöm kona óskast á sveitaheimili 1. okt.
Aðeins tveir í heimili.
Upplýsingar gefur Gunnhildur í síma 96-22236
eða 96-31219
Söngskólinn
í Reykjavík
verður settur á morgun sunnudag kl. 17 í Gamla
bíói
Skólastjóri
Fundur með
bandarískum öryggis
málasérfræðingi
Varðberg og Samtök
um vestræna samvinnu.
■ Max M. Kampelman, sendiherra og
aðalfulltrúi Bandaríkjanna á Öryggis-
málaráðstefnu Evrópu, cr staddur hér á
landi. Samtök um vestræna samvinnu og
Varðberg efna til sameiginlegs hádeg-
isverðarfundar með honum í Átthagasal
Hótel Sögu í dag, og verða saiarkynni
opnuð klukkan tólf.
„Max M. Kampelman er fæddur árið
1920. Hann er lögfræðingur að mennt og
starfi, hefur kennt við marga háskóla og
setið í stjórn þeirra, tekið þátt í starfi
Demókrataflokksins og unnið í banda-
rísku friðarhreyfingunni.
■ Georg Frey og Sigrún Ó. Olsen sitja með mynd Sigrúnar, í ró, á milli sín.
Tímamynd GE
Gallerí Lækjartorg:
Glerlista-
verk og grafík
■ Sigrún Ó. Olsen og Georg Frey opna
myndlistarsýningu í Gallerí Lækjartorgi
laugardaginn 24. september kl. 15.
Þarna verða 46 verk til sýnis og sölu:
eggjatemperamyndir og grafík eftir Sig-
rúnu, og glerlistaverk eftir Georg.
Sigrún Ó. Olsen er búsett í Þýskalandi
og er þetta fyrsta sýning hennar hér á
landi. Hún hefur tekið þátt í semkeppn-
um og samsýningum í Stuttgart og við
TAT leikhúsið í Frankfurt. Hún er
nemandi við Listaakademíuna í
Stuttgart.
Georg Frey er einnig við nám við
Listaakademíuna í Stuttgart. Hann er
þýskur að þjóðerni og er arkitekt að
mennt. Hann hefur haldið nokkrar sýn-
ingar á glerverkum í Þýskalandi.
í fréttatilkynningu um sýninguna segir
að þemað í verkum Sigrúnar sé hið
daglega líf, þar sem hringurinn er þunga-
miðjan. Liturinn fær að renna, drjúpa,
klessast, lifa lífi sínu. Verk hennar eru
full af lofti og léttleika líkt og íslenska
ullin.
Verk Georgs eru í raun skýrar, ein-
faldar grafískar hugmyndir sem með
hjálp gamallar tækni verða að hrífandi
Ijósgljúpum myndverkum. Glerið sem
hann notar er munnblásið og síðan
skorið í sundur og flatt út í ofni. Hann
notast aðallega við gler sem er blásið í
mörgum litum, sem eru lagskiptir.
- GSH
Norskur fiðluleik-
ari með „Aldrei aftur“
■ Söngsveitin „Aldrei aftur" heldur
tónleika í Norræna húsinu í dag kl. 16.
Sveitina skipa þau Bergþóra Árnadóttir,
Pálmi Gunnarsson og Tryggvi Húbner.
Að þessu sinni bætist þeim góður liðs-
styrkur þar sem er norski fiðluleikarinn
Svein Nymo.
Nymo er vel þekktur í heimalandi
sínu og reyndar víða um Skandinavíu.
Hann hefur unnið mikið fyrir útvarp og
sjónvarp og leikið inn á fjölmargar
hljómplötur, sérstaklega með vísnatón-
list.
- JGK
Kvartmílukeppni
á laugardaginn
■ Harka er að færast í íslandsmeistara-
keppnina í kvartmílu og í flestum
flokkum eiga nokkrir keppendur mögu-
leika á að hreppa titilinn. Fjórða kvart-
mílukeppni sumarsins sem gefur stig til
íslandsmeistaratitils verður haldin í dag
á Kvartmílubrautinni við Straumsvík og
heldur Kvartmíluklúbburinn keppnina.
Búist er við að bræðurnir Bragi og
Stefán Finnbogasynir mæti til leiks með
427 cid Chevy Firebirdinn en þeir settu
nýtt íslandsmet í götubílaflokki í síðustu
keppni.
Óperusöngur í
Norræna húsinu
■ Erlingur Vigfússon óperusöngvari
heldur tónleika í Norræna húsinu mið-
vikudaginn 28. september og í menning-
armiðstöðinni Gerðubergi 29. septem-
ber. Báðir tónleikarnir hefjast kl. 20.30
ogundirleikari er Jónas Ingimundarson.
Erlingur er nú staddur hér á landi
vegna upptöku á óperunni Cavalleria
Rusticana en óperan var flutt í Þjóð-
leikhúsinu s.l. vor. Hann er annars
fastráðinn við óperuna í Köln og hefur
verið svo frá árinu 1970.
- FRI
Merkjasöludagur
Sjálfsbjargar
■ Merkja- og blaðasöludagur Sjálfs-
bjargar er á morgun, sunnudag. Þetta er
24. söludagur samtakanna og að þessu
sinni verður sölumerkið endurskins-
merki í tilefni norræna umferðaröryggis-
ársins. Jafnhliða er útgáfa ársrits Sjálfs-
bjargar ætluð til kynningar og fræðslu
um starfsemi samtakanna og málefni
fatlaðra yfirleitt. Félagsdeildir Sjálfs-
bjargar byggja möguleika sína til félags-
legrar rtarfsemi að miklu leyti á tekjum
fjáröflunardagsins.
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á Akureyri,
hefur nú flutt starfsemi sína í ný húsa-
kynni, þar sem Plastiðjan Bjarg, endup-
hæfingarstöðin og félagsmiðstöðin verða
undir sama þaki. Byggingin er þó hvergi
nærri fullbúin og enn hefur ekki verið
hægt að hefja framkvæmdir við fyrirhug-
aða sundlaug vegna fjárskorts.
í Reykjavík er verið að ganga frá
lóðinni kringum Sjálfsbjargarhúsið og
verða bílastæðin þar upphituð með tilliti
til hálku og snjóa.
Af efni í tímariti Sjálfsbjargar má
nefna ávarp Alexanders Stefánssonar
félagsmálaráðherra, grein eftir Arin-
björn Kolbeinsson læknir í tilefni norr-
æna umferðaröryggisársins, grein um
hina nýju löggjöf um málefni fatlaðra
eftir Margréti Margeirsdóttur fulltrúa,
sagt frá vernduðum vinnustað í Kópa-
vogi, og birtar frásagnir og viðtöl við
hreyfihamlað fólk.
Verð tímaritsins er kr. 60,- og endur-
skinsmerkisins kr. 40,-
Sýning Sissú
■ Myndlistarsýning Sissú Pálsdóttur
verður opin til 30. september nk. í
Verslunarhöllinni við Laugaveg (gengið
inn frá Grettisgötu) frá kl. 14 -17 og
20 -22 dag hvern. Á sýningunni eru
bæði málverk og teikningar auk leir-
gríma.
■ Listamaðurínn, Elías Halldórsson
Sauðárkrókur:
Myndlistarsýning
í Safnahúsinu
■ Elías Halldórsson listmálari opnaði
myndlistarsýningu í Safnahúsinu á Sauð-
árkróki um síðustu helgi 17. -18. sept.
og v'erður sýningin einnig opin um þessa
helgi 24. -25. sept.
Elías Halldórsson er þekktur sem
afkastamikill og vandvirkur listmálari og
hefur sýnt víða um land við góðan
orðstír. Að þessu sinni eru 37 myndir á
sýningunni hjá Elíasi, bæði í olíu, vatns-
litum og pastel. Þá eru á sýningunni
teiknimyndir unnar í kol og sýna þær
myndir að listamaðurinn er sérlega góð-
ur og snjall teiknari.
Þetta er sölusýning og þegar hafa selst
nokkrar myndir.
- G.Ó/BK
Stóðréttir
Stóðréttir _________________________________Dagsetningar
Auðkúiuréttir í Sv inadal, A-Hún sunnudagur 25. sept.
Undirfellsréttir í Vatnsdal, A-Hún sunnudagur 25. sept.
Víðidalstunguréttir í Víðidal, V-Hún sunnudagur 25. sept.