Tíminn - 24.09.1983, Page 9

Tíminn - 24.09.1983, Page 9
LAIJGARDAGLIR 24. SÉPTEMBÉR 1983' 4 4 U'f pj5> 9 SUF—sldan „Ungt fólk hefur áhuga á S.U.F." -segir Finnur Ingólfsson, formaður S.U.F. ■ „Vetrarstarfið fór af stað með stjórnarfundi SUF, sem haldinn var fyrir skömmu", sagði Finnur Ingólfs- son, formaður SUF, í samtali við SUF síðuna. „I byrjun október verður mið- stjórnarfundur SUF að Bifröst í Borg- arfirði og ýmislegt fleira fylgir á eftir. Ég vona að sem flestir miðstjómarmenn SUF sjái sér fært að mæta á fundinn að Bifröst, en þar verður starf samtak- anna næstu mánuði endanlega mótað“. Nýfélög Það kom fram í samtalinu við Finn að í vetur er fyrirhugað að stofna fjölmörg ný FUF félög. Á þessu ári hafa verið stofnuð þrjú félög og Finnur sagði að skrifstofa SUF hefði í sumar undirbúið stofnun margra nýrra. „Það skal viðurkennt að FUF félögunum fækkaði mikið síðasta áratug, en nú- verandi stjórn hefur sett sér það markmið að þau verði a.m.k. 25 þegar hún skilar umboði sínu haustið 1984. Haft hefur verið samband við unga framsóknarmenn víða út um land og ég held að mér sé óhætt að segja að undirtektirnar séu góðar. Sem sýnir að Framsóknarflokkurinn á hljómgrunn hjá ungu fólki. Á sumum stöðum er því þó þannig varið að félög eldri og yngri manna hafa verið sameinuð vegna fámennis í viðkomandi sveitar- félagi. Það eru því einkum stærri staðimir sem við einbeitum okkur að“ - Hefur ungt fólk áhuga á að ganga í ungliðasamtök stjómmálaflokkanna -eða í stjórnmálaflokka yfirleitt? „Eg get að sjálfsögðu ekki svarað fyrir aðra flokka en Framsóknarflokk- inn og svarið er jákvætt. Ég héf orðið þess var að ungt fólk hefur áhuga á t.d. SUF, en því er þó ekki að leyna að alltof stór hópur ungs fólks vill ekki koma nálægt stjómmálum, telur að allt sem má tengja við þau sé af hinu illa. Þeir sem halda þessari skoðun fram hafa sjaldnast kynnt sér stjómmála- flokkana, vita ekki hvemig þeir starfa. Ef við tökum Framsóknarflokk- inn sem dæmi þá ætti uppbygging hans síður en svo að fæla ungt fólk frá honum og ég vil geta þess að í miðstjórn Framsóknarflokksins sem er ein æðsta valdastofnun flokksins situr fjöldinn allur af ungu fólki. Það er staðreynd að stjórnmálaflokkamir, eins og við þekkjum þá í dag, eru undirstaða þess lýðræðisþjóðfélags sem við búum í og ef grafið væri undan flokkunum er síður en svo ljóst hvað tekur við. Hitt er svo aftur annað mál að stjórnmálaflokkamir verða að gæta þess að endurnýja sig og taka meira tillit til þeirra málaflokka sem snerta sérstaklega ungt fólk. Víti til varnaðar Ungir Framsóknarmenn hafa t.d. lagt á það höfuð áherslu að Framsókn- arflokkurinn móti atvinnustefnu sem hægt sé að styðjast við allt fram til aldamóta, geri sér m.ö.o. grein fyrir því hve margir koma á atvinnumarkað- inn og hvað stjórnvöld þurfi að gera til þess að skapa öllu því fólki sem á vinnumarkaðinn kemur á þessu árum atvinnutækifæri. Við teljum að það atvinnuleysi sem er í nágrannalöndun- um eigi að vera okkur víti til varnaðar. Þetta er mál sem svo sannarlega er mál unga fólksins og fyrir viðlíka mála- flokkum erum við ungir framsóknar- menn að berjast innan okkar flokks. - Getur þú nefnt mér nokkur atriði úr fyrirhuguðu vetrarstarfi? „Samkvæmt vetrardagskrá er ætlun- in að hefja útgáfu á sérstöku skóla- blaði fyrir framhaldsskólanemendur og hvað önnur útgáfumál varðar þá má ekki gleyma Þjóðmálaritinu SÝN. Þriðja tölublað SÝNAR kemur út eftir röskan mánuð. Við ætlum að efna til ráðstefnu um umhverfismál fyrir jól og höfum í hyggju að leggja til við FUF félögin að þau fjalli um sama mál heima í héraði þegar ráðstefnan er afstaðin. Vetrarstarfið „Fyrir jól verður einnig efnt til ráðstefnu um mismunandi rekstrar- form og í byrjun nóvember mun SUF standa fyrir fundi um friðarmál. Ætl- unin er að SUF standi fyrir utanlands- ferð, en eins og margir vita þá fóru 80 manns utan með MS EDDU í lok ágúst á vegum SUF. Þessi ferð heppnaðist prýðilega og viljum við reyna að bjóða upp á aðra utanlandsferð. Enn er ekki endanlega afráðið hvert verður haldið en einhver Evrópuborgin verður fyrir valinu. Nú, fyrirhugaðir eru kapp- ræðufundir við ungliðasamtök hinna flokkanna, það er að segja ef þau þora að mæta okkur. Þá má geta þess að stjórn SUF hefur unnið að því að SUF og FUF félögin á Reykjavíkursvæðinu efni til skemmti- og fræðslufunda í vetur og ég vona að það verði að raunveruleika. Þá eru ótalin ýmis föst verkefni, svo sem útgáfa fréttabréfa, útgáfa á jóla- almanaki, leiðbeiningastörf á félags- málanámskeiðum FUF félaganna og margt fleira væri hægt að telja upp. - Þú ræddir hér að franian um miðstjórnarfund SUF. Hverjir sitja þennan fund og hvert er aðalmál fundarins? „Miðstjórn SUF er skipuð fólki víðsvegar að af landinu. Yfirleitt er þetta fólk á milli tvítugs og þrítugs, en hámarksaldur í SUF er 35 ár. Á miðstjórnarfundinum munu starfa ýmiskonar nefndir. í því sambandi má nefna nefndir eins og unhverfismála- nefnd, húsnæðismálanefnd, stjórn- málanefnd og nefnd sem fjallar um Framsóknarflokkinn og unga fólkið. í raun er ekki hægt að segja að eitt málið sé öðru mikilvægara. ■ Finnur Ingólfsson. mikið við sögu þegar Möðruvallahey- föngin var og hét. - Hvemig sérð þú framtíð ungiiðahreyfingar á borð við SUF? „Ég tel að hún sé björt. Vissulega kostar það mikla vinnu að halda starf- seminni gangandi og stöðugt vantar peninga, því við viljum koma æði miklu í verk. Ég er sannfærður um að ungt fólk hefur áhuga fyrir SUF og Fram- sóknarflokknum, það vill vinna með stjórnmálaafli sem er ekki kolfast í kreddukenningum. Við framsóknar- menn stefnum að þjóðfélagi þar sem menn eru metnir að verðleikum en ekki eftir því hvort þeir kunna utan- bókar kafla í Marx eða Hayek. Að ná tökum á verðbólgunni - Ert þú ánægður með störf ríkis- stjórnarinnar? „Ég er um margt ánægður með núverandi ríkisstjórn, en hún verður að sjálfsögðu að gera jafn miklar kröfur til sín og hún gerir til almenn- ings. Ég tel að ríkisstjórnin hafi skiln- ing á þessu atriði, enda er það frum- forsenda þess að vel takist til. Það er staðreynd að mjög hefur dregið úr verðbólgunni en hún hefði að óbreyttu keyrt landið um koll. Nú er t.d. talið að erlendar skuldir þjóðarinnar séu um 60% af vergri þjóðarframleiðslu og það sér hver og einn að sú tala má ekki hækka. Aðeins með því móti að ríkis- stjórnin nái tökum á verðbólgunni er hægt að tala um bjartari framtíð. Á þessu atriði og fleirum er skilningur hjá fólki - um það er ég sannfærður. Það er svo aftur annað mál hvort stjórnarandstöðunni tekst að þyrla upp slíku moldviðri að menn viti ekki í hvorn fótinn þeir eiga að stíga. Hlut- verk stjórnarandstöðu er að benda á það sem betur má fara en einbeita sér ekki að því einu að komast í valdastól- ana hvað svo sem það kostar. Þjóðin hefur ekki efni á verkföllum eða stór- kostlegum kauphækkunum. Þetta er staðreynd sem stjórnarandstaðan veit mæta vel en lætur sem vind um eyru þjóta. - Húsnæðismálin eru mál málanna í dag. Hver er afstaða SUF í þeim efnum? „Hún er mjög skýr. Fyrir skömmu ályktaði stjórn SUF um þau mál, en þar segir m.a. að stjórnin skori á félagsmálaráðherra og ríkisstjórn að gera nú þegar úrbætur í málefnum þeirra sem eru að byggja eða kaupa húsnæði. Þörfin fyrir umbætur er ekki síst hjá því fólki sem var að eignast húsnæði á meðan húsnæðismál- in voru i heljargreipum Alþýðubanda- lagsins. Einnig sagði í ályktuninni að stjórn ítrekaði fyrri samþykktir sín- •Tværmerkar bækur Fyrir jólin koma út tvær merkar bækur, sem báðar fjalla um fram- sóknarmenn. Sú fyrri er um Olaf Jóhannesson og er rituð af fjölmörg- um vinum og stuðningsmönnum Ólafs. Hin bókin er um Eystein Jónsson og það er Vilhjálmur Hjálm- arsson, sem ritar bókina. SUF vill fyrir sitt leyti hvetja framsóknar- menn og aðra til að kaupa þessar bækur, sem gefa góða lýsingu á stjórnmálaferli umræddra manna. •SUF síðan byrjan á nýjan leik Fyrir nokkrum árum birti Tíminn öðru hvoru SUF-síðu, en á henni fjölluðu ungir framsóknarmenn um málefni SUF og annað það sem þeim var hugleikið. Nú hefur verið ákveð- ið að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið og verður reynt að halda úti SUF-síðu a.m.k. svo lengi sem núverandi stjórn SUF situr við völd. Ungir framsóknarmenn, hvar svo sem þeir búa á landinu, eru hvattir til að skrifa greinar og fréttir til birtingar á þessri síðu. Vinsamlegast sendið efnið skrifstofu SUF við Rauðarár stíg. •Vilja mæta á aðalfundi og kjördæmis- þing Framkvæmdaráð SUF hefur ákveðið að reyna að senda fulltrúa á sem flesta aðalfundi í félögum ungra framsóknarmanna, svo og á aðal- fundi í eldri félögunumEinnig hefur framkvæmdaráð SUF áhuga á að fá senda fulltrúa á kjördæmisþing fram- sóknarmanna. Forráðamenn félaga og kjördæmissambanda eru vinsam- legast beðnir um að hafa samband við skrifstofu SUF nokkru áður en umrædd þing og fundir eiga sér stað, svo viðkomandi fulltrúar geti undir- búið sig sem best. Þess má geta að fulltrúi SUF fór á kjördæmisþing framsóknarmanna á Vestfjörðum og ávarpaði samkomuna. Einnig fór fulltrúi fyrir Landsamband fram- sóknarkvenna og flutti hann einnig ræðu á þessu þingi. ar um stighækkandi lánshlutfall í 80% af byggingarkostnaði, lengingu láns- tíma í 42 ár og að lán verði greidd út til lántakenda í einu lagi. Stjórn SUF skoraði einnig á ríkisstjórnina að ná þessum markmiðum á kjörtímabilinu. Þetta var kjarninn úr ályktun stjórnar- innar og þetta er mál sem verður að vinna vel í á kjörtímabilinu - ef ríkisstjórnin ætlar sér að koma í veg fyrir að fjöldi fólks lendi á götunni vegna þess hve dýrt er og erfitt að byggja“. ■ Bifröst í Borgarfirði. Þar verður miðstjómarfundurinn haldinn. Jólaalmanakið: Ein mikilvægasta frjáröflunarleiðin „Undirbúningur er í fullum gangi“ sagði Áskell Þórisson, framkvæmda- stjóri SUF, þegar SUF-síðan spurði hann umjólaalmanakSUF. „Ég var að fá tilkynningu um að almanökin væm komin til landsins og þessa stundina er ég að fá vinninga hjá ýmsum fýrirtækj- um“. SUF hefur gefið út jólaalmanak undanfarin ár. Þetta almanak er í raun happdrætti og er dregið 24. sinnum þ.e. 1. til 24. desember. Áskell sagði að í fyrra hefði almanakið verið sent til umboðsmanna víðsvegarum landið og önnuðust þeir söluna. „Þetta fyrir- komulag gaf ekki nógu góðaraun, enn eru nokkrir á svörtum lista, hafa ekki gert upp. Að þessu sinni munum við senda almanakið út með gíróseðli til fjölmargra aðila og ég geri fastlega ráð fyrir því að heimtur verði betri nú en áður“. Áskell sagði að almanakið væri ein af mikilvægari fjáröflunarleiðum SUF og að góð sala í ár tryggði að hægt væri að ráðast í ýmis verkefni sem eru á verkefnaskrá vetrarins. „Ég vil hvetja fólk til að kaupa almanakið af okkur, en að öllum líkindum verður það sent út fyrstu dagana í nóvember eða í lok október". Miðstjórnarfundurinn hefst eftir hádegi þann 8. október og lýkur næsta dag. Það er mjög mikilvægt, að þátt- taka verði góð, hún er forsenda þess að fundurinn nái tilgangi sínum“. Björt framtíð -Nú varð SUF 45 ára sl. sumar. Verður þessara tímamóta minnst á miðstjórngrfundinum? „Að sjálfsögðu. Á laugardagskvöld- ið verður afmælishóf í hátíðarsal Sam- vinnuskólans. Ef að líkum lætur verða fluttar margar snjallar afmælisræður og tímamótanna minnst í bundnu og óbundnu máli. Ég get fullvissað þá sem koma að Bifröst um að þeir verða ekki fyrir vonbrigðum með það hvern- ig við minnumst þessara tímamóta." Þá vildi ég líka geta þess að þriðja tölublað Þjóðmálaritsins SÝNAR verður helgað afmælinu að hluta. Þar verður t.d. viðtal við Elías Snæland Jónsson, ritstjóra Tímans sem kom Samband ungra framsóknarmanna er samefnari fyrir fjölmörg félög ungra framsóknarmanna, sem starfa víðsvegar um landið. Oll hafa þau áhuga á að Ijölga félagsmönnum, enda við margt að starfa. Vilt þú vera með? Ef svo er þá þarftu ekki annað en að rita nafn og heimilsfang á þennan miða, klippa hann út úr blaðinu og senda til SUF, Rauðarárstíg 18, 105 Reykjavík. Framkvæmdastjóri SUF mun sjá um að koma þér í samband við næsta FUF félag. Nafn: Heiraili: Sími: Aldur: Sendist til: Samband ungra framsóknarmanna, Rauðarárstíg 18,105 Reykja- vik.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.