Tíminn - 28.09.1983, Qupperneq 3

Tíminn - 28.09.1983, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 2«. SEPTEMBER 1983 fréttir Kvikmyndagerðarmenn: .JMGSKRARGERD SMNVARPSINS BOB- IN IÍT HL KVIKMVNDAFYRIRTÆKJA” færist f vöxt erlendis ■ Það hefur verið að færast í vöxt alls staðar erlendis að sjónvarpsstöðvar leiti til einstakra kvikmyndagerðarmanna eða fyrirtækja“, sagði Sigurður Sverrir Pálsson, form. kvikmyndagerðarfyrir- tækisins K.O.T. h/f, en félagsfundur þar hefur skorað á stjómvöld að beita sér fyrir því að „dagskrárgerð sjónvarpsins verði boðin út til kvikmyndafyrirtækja“. í rökstuðningi frá félaginu segir að nú sé starfandi fjöldi frjálsra kvikmyndafyr- irtækja, sem geti framleitt bæði betra og ódýrara myndefni en sjónvarpið sjálft, eins og þær kvikmyndir sanni sem komið hafa á markaðinn á síðustu árum. Útboð sjónvarpsefnis yrði til að skapa enn fleiri tækifæri á hinum frjálsa markaði fyrir kvikmyndagerðarfólk og aðra listamenn sem fást við myndmál. Hinrik Bjarnason, deildarstjóri Lista- og skemmtideildar sjónvarps sagðist ekkert vilja úttala sig um þessa tilteknu áskorun, enda hefði hann ekki séð hana. Hins vegar mætti geta þess „að sjónvarp- ið keypti töluvert af efni. Það sem sjónvarpinu er boðið er allt skoðað og metið hvort hægt er að kaupa það. Það má líka segja það að hér hefur alltaf verið unnið mikið verk af fólki sem er ekki fastráðið, og þannig hlýtur það alltaf að verða. Mér er það í rauninni til efs að það sé í mörgum stofnunum meira verk unnið af fólki, sem ekki er fastráðið hjá stofnuninni, en hér. Almennt vil ég segja það að ég veit ekki betur, en þegar dagskrárstjórar hér hafa lagt fram áætl- anir sínar að þá hafi yfirleitt verið innlegg í þá umræðu frá þeim sú hugmynd að bjóða út tiltekinn geira af þessu verki, ef svo mætti segja. Hitt er augljóst að við erum verkstjórar fyrir hóp af fólki sem hjá okkur vinnur, fastráðið og lausráðið, og við erum með þær frumskyldur að þetta fólk hafi sínar hendur fullar af, við skulum ætla, skemmtilcgum og áhugaverðum verk- efnum", sagði Hinrik Bjarnason að lokum. Hlutafélagið K.O.T. var stofnað árið 1975 og er sameign 23ja aðila, sem er meginþorri starfandi kvikmyndagerð- armanna. Tilgangur félagsins er að skapa hluthöfum aðstöðu fyrir tónsetningu og klippingu kvikmynda sinna. -BK skúrunum“ „Erum mót- fallin breyt- ingum á vinnu- Tillögu um viðræður við lóðarhafa í Grafarvogi: — segir í yfirlýsingu 52 starfsmanna Vegagerðarinnar í Árnessýslu ■ „Við, starfsmenn Vegagerðarínnar og vélstjórar og vélamenn í vinnu þar, viljum ítreka þá skoðun, sem við reyndar létum strax í Ijósi, þegar við heyrðum um fyrirhugaðar breytingar á vinnu- skúrum Vegagerðarínnar, og gífurlegan kostnað því samfara, að við erum þeim mótfallin. Sú aðstaða sem við höfum í vinnuflokkunum er góð og fullnægj- andi“, segir í yfirlýsingu sem Tímanum hefur boríst og undirrítuð er af 52 starfs- mönnum Vegagerðar ríkisins í Árnes- sýslu vegna fréttar í Tímanum 7. septem- ber s.l. „Frá okkur hafa ekki komið kvartanir um aðbúnað síðan rafmagnskyndingu var komið á og hreinlætisaðstaða gerð,“ segir ennfremur í yfirlýsingunni. „Það erum ekki við sem höfum óskað eftir þeim breytingum sem nú eru á döfinni, hvorki á eldhúsi né svefnskálum. Við viljum fá að halda því ástandi sem er sem lengst. Okkur finnst ekki eðlilegt að þessar kröfur séu gerðar á hendur Vegagerð- inni. Hún býður sínu fólki upp á ágæta aðstöðu og getur hver sem er komið og séð ef hann kærir sig um, á sama tíma og verktakar þeir, sem nú stendur til að selja verkefni Vegagerðar ríkisins í hendur, geta nánast boðið sínum starfs- mönnum að eta bitann sinn sitjandi úti á næstu þúfu“. ■ Þjóðleikhúskórinn varð 30 ára s.l. vor og heldur nú upp á afmælið með plötuútgáfu, en á plötunni verður óperan Cavaleria Rusticana eftir Pi- etro Mascagni, sem flutt var í Þjóð- leikhúsinu s.l. vor. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn sem heil ópera verður gefin út á plötu með íslenskum flytj- endum. Stjómendur Þjóðleikhúskórs- ins hafa verið dr. Victor Urbancic, Carl Billich og núverandi stjórnandi er Agnes Löve. Myndin var tekin við upptöku í Háskólabíói í gær. Lengst til vinstri eru Erlingur Vigfússon og þá Ingveldur Hjaltested, en þau fara bæði með einsöngshlutverk. Það er Jean Pierre Jaquillat sem stjórnar félögum úr Sinfóníuhljómsveit Islands og Þjóð- leikhúskórnum. Timamynd Ámi Sæberg. Flugstödvarbyggingin: SAMNINGAR VIÐ HAGVIRKI UNDIRRITAÐIR ■ Gengið hefur verið frá samningum milli Hagvirkis h.f. og varnamáladeildar utanríkisráðuneytisins um framkvæmdir við fyrsta áfanga byggingar flugstöðvar á Keflavíkurflugveili. Voru samningar undirritaðir í gær í húsakynnum varna- máladeildar. „Það nægir að skrifa undir samninginn fyrir mánaðamót. Hins vegar munu starfsmenn Hagvirkis hefjast handa við verkið á næstu dögum, sennilega fyrir mánaðamót,'* sagði Sverrir Haukur Gunnlaugsson, deildarstjóri varnamála- deildar, þegar hann var spurður hvort fjárveitingar Bandaríkjamanna til verks- ins myndu ekki falla niður ef ekki yrði hafist handa 'við framkvæmdir fyrir 1. október næst komandi. Eins og fram hefur komið var tilboð Hagvirkis í verkið það þriðja lægsta sem barst. Við undirritunina sagði Sverrir, að við athugun á lægri tilboðunum hefði komið í ljós, að vcrktakarnir hefðu ekki litið rétt á útboðsgögn, þannig að staðan hefði verið metin þannig að hag- kvæmast væri að taka tilboði Hagvirkis. - Sjó „Undirskrifta- söfnunin geng- ur ágæta vel“ — segir í frétt frá BSRB ■ Fundarherferð BSRB um samn- ingsrétt og kjaramál stendur nú sem hæst. í frétt frá bandalaginu segir að fundirnir hafi tekist mjög vel í alla staði. Þátttuka hafi verið góð og um- ræður líflegar. Haldnir hafa vcrið 14 fundir og í dag verða 6 fundir úti á landi. Þess utan eru haldnir fjöldi vinnustaðafunda dag hvern. Auk fundanna stcndur yfir undir- skriftasöfnun verkalýðsfélaganna, þar sem skorað-er á stjórnvöld og Alþingi „að fella úr gildi án tafar öll ákvæði bráðabirgðalaganna frá 27. maí 1983, sem afnema eða skcrða samningsrétt samtaka launafóllcs“. í frétt frá BSRB segir að undírskriftasöfnunin gangi ágæta vel. Algengl sé að allir starfs- menn skrifi undir á fjöimennum vinnu- stöðum. Undirskriftasöfnunin stenduri til 7. október og vcrða listar afhentir stjórnvöldum á samkomudegi Alþing- is, þann 10. öktóber n.k. -BK Hafnað í ■ Borgarráð hafði til umsagnar í gær tillögu frá Sigurjóni Péturssyni sem til var vísað á síðasta borgarstjórnar- fundi, þess efnis að leitað skyldi eftir viðræðum við lóðarhafa við Grafarvog með það fýrir augum að mynda mætti þar heiilegan kjarna í upphafi, þótt lítill yrði. Eftir að nær 2/3 þeirra sem þar höfðu fengið úthlutun í ár hættu við að þiggja lóðir sínar er Ijóst að byggðin verður afar dreifð í byrjun og til verður í dæminu að aðeins eitt hús standi við götu. Meirihluti borgarráðs hafnaði til- lögu Sigurjóns en Sigurjón og Krístján Benediktsson greiddu atkvæði með henni. Hjörleifur Kvaran skrifstofustjóri borgarverkfræðings lagði fram ítarlega umsögn um tillöguna þar sem hann leggst gegn henni á þeim forsendum að óskir lóðarhafa séu misjafnar, sumir vilji búa við sjóinn, aðrir vilji búa á slétt- lendi, en aðrir nálægt útivistarsvæði. Þetta geri það að verkum að engar forsendur séu til að þjappa saman þeim lóðum sem þegar hafa greidd gjöld af. Lóðir verði áfram til úthlutunar á svæðinu og reikna megi' með að mikið framboð á þeim leiði til lækkunar á lóðaverði. Efnahagsbati samfara fækk- un lóða til húsbyggjenda muni vafa- lítið leiða til aukinnar eftispurnar eftir lóðum í Grafarvogi á nýjan leik. - JGK

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.