Tíminn - 16.10.1983, Blaðsíða 10
10
SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1983
kvikmyndir
■ í fyrrá skrapp fræg leikkona frá New
York til Lontlon í tveggja daga fríinu
síihi l’rá sýningum á vinsælu Broadway-
leikriti. Tilgangur fararinnar var að hitta
Kevin Kline sem dvaldi í London við
gerð myndarinnar „The Pirates of Penz-
ance" (Sjóræningjarnir frá Penzanee).
Á milli „taka" lágu þau skötuhjúin á
gervigrasinu í kvikmyndaverinu og
spjölluöu saman en á meðan á tökum
stóð fyigdist leikkonan áhugasöm með
Kevin í hlutverki sjóræningjakóngsins.
Pegar Kevin Kline lék sama hlutverk í
upprunalegri sýningu leikritsins á
Broadway biöu ungar stúlkur í hópum
við bakdyrnar eftir hverja sýningu í
(reirri von að fá að berja leikarann
augum og jafnvel aö komast yfir eigin-
handaráritun hans. Samt sem áður lítur
Kcvin Kline ekki á sig sem neitt kvenna-
gull. Pessi hávaxni, dökkhærði og stór-
mvndarlegi leikari er sjálfur þeirrar
skoðunar að tilviljun ein hafi ráðið því
að hann lenti í svo yfirmáta rómantísk-
um hlutverkum í tveimurfyrstu myndum
sínum. Sophic's Cltoice (Val Soffíu) og
Thc Pirates of Penzance.
Kevin Kline er nýgræðingur í kvik-
myndahciminum - hann kom fyrst fram
á kvikmyndasjónarsviðið í Sophie's
Choice þó að Sjóræningjarnir hafi verið
kvikmyndaðir á undan og hann hafi
verið búinn að heilla leikhúsgesti New
Yorkborgar í næstum fimm ár þcgar
hann hætti að vinna með leikhópnum
sem hann átti sjálfur þátt í að stofna, og
ákvað að reyna sig á „hinum almenna
lcikhúsmarkaði". Árið 1978 gaf leik-
stjórinn Harold Prince (Evita) Kcvin
fyrsta stóra tækifærið til að spreyta sig í
Broadway uppsetningunni á „On the
Twcntieth Century". Hann reyndist
trausts leikstjórans verður því fyrir fram-
mistöðu sína í þessu verki hlaut hann sín
fyrstu Tony verðlaun. Ári síðar fékk
hann góða dóma í alvarlegu leikriti eftir
bandaríska leikritahöfundinn Michael
Weller, „Loose Ends“, ogsumarið 1980
opnaðist frægðarbrautin honum upp á
gátt þcgar hann lék sjóræningjakónginn
í uppfærslu verksins á Shakcsþeare há-
tíöinni í Central Park í New York.
Þaðan var sýningin tlutt á Broadway, en
önnur aðalhlutverk voru í höndum
Lindu Ronstadt og Rex Smith. Fyrir
frammistöðu sína í þcssari sýningu hlaut
Kevin Kline önnur Tony verðlaun sín.
Linda Ronstadt ranghvolfir risavöxn-
um svörtum augum sínum við tilhugsun-
ina um þetta tímabil. „Ég skal sko segja
ykkur það að það leið barasta yfir
mannskapinn þegar Kevin birtist í
Central Park. Stelpurnarmisstubókstaf-
lega öndina þegar hann steig á sviðið.
Og hann var líka uppáhald allra stelpn-
anna sem unnu viö sýninguna," bæti
Linda við. „Og þegar við komum til
London..."
Draumahlutverk
allra leikara
Linda og Kevin fengu reyndar sinn
skammt í slúöurdálkunum þegar þau
horðuöu saman nokkrum sinnum. „Við
gcngum alltaf í gegnum garðinn cftir
sýningar og fórum á Museum Café (mun
vera „hip" veitingastaöur í vesturhíuta
New Yorkborgar. í nágrenni leikhússins
í garðinum) og spiluðum á plötusalann
og átum krabba og hlustuðum á Rex sem
var ævinlega meö okkur. Hann skemmti
okkur alltaf eftir sýningarnar. Við
skemmtum okkur alveg æðislega vel
saman, öll þrjú. Þetta er besta sumarið
sem ég hef lifað. Við vorum miklir
félagar og bæði Rcx og Kevin voru mjög
gefandi. Þeir voru ofsalega góðirsaman.
Það hefði getað oröið hryllilegt skilurðu.
tveir sætir strákar sem skipta með sér
aðalhlutverkunum, cn þeir voru þræl-
góðirsaman."
Kevin Kline vakti athygli leikstjórans
Alan Pakula í Broadway uppfærlslunni
á Sjóræningjunum. Hann var þá að leita
að rétta manninum til að leika Nathan
Landau hinn reikula elskhuga Soffíu í
Sophic's Choice. Nathan er öfgafull
persóna. Aðra stundina er ha.nn hinn
blíðasti elskuhugi en hina stundina er
liann grimmdin uppmáluð. Hann getur
verið umhyggjusamur og Ijúfur, fullur
tortryggni og illsku. ótrúlega kátur eða
þunglyndur og dapur. Þetta er drauma-
hlutverk allra leikara og Kevin cr eilíf-
lega þakklátur fyrir að hafa fengið það.
Þar sem hann hafði aldrei áður lcikið
í kvikmynd var valið alls ekki sjálfsagt.
Leikstjórinn, Pakula, segist hafa séð í
honum „frclsi til að sleppa fram af sér
beislinu og þora og einnig eins konar
siðfágun. Hinir leikararnir sem komu til
greina höfðu fremur á sér grót'ara yfir-
bragð en í mínum agum var Nathan
millistéttarmaður." Lýsingin á vel við
Kevin. Það er ákveðinn glæsileiki við
göngulág hans. hreyfingar og málfar. En
jafnframt býr hann yfir óþvingaðri kæti
og hlátur hans er auðvakinn. Hann
hæfði t'ullkomlcga mótleikara sínum,
Meryl Streep, í hlutvcrki sínu.
Hún segist liafa hlakkað mikið til að
vinna með honum. „Ég hafði séð Kevin
í leikhúsinu og hrifist af leik hans. Hann
er ólíkur öðrum að því leyti að í stað
þess að ganga fram að ákveðnu marki og
halda síðan aftur af sér. eins og svo
margir leikarar gera. þá stingur hann sér
beint fram af." Sá sem leikur þriðja
aðalhlutverkið í myndinni Sophie's Cho-
ice er Peter MacNicol. Hann leikur
Stingo, ungan rithöfund frá Suðurríkj-
unum sem segir söguna um Nathan og
Sophie,. Hann segir: „Kevin er einn af
þessum stórmennum heimsins. Hann er
meiri en allt sem anda dregur. Hann er
geíandi og hlýr og glaðvær. Hann er
frábitinn því aðgera mikið úrsjálfum sér
og setur ævinlega út á allt sem hann
gerir. Ég varð ástfanginn af Meryl og ég
varð ástfanginn af Kevin. Það tókst
fljótlega með okkur góður vinskapur og
ég var alveg miður mín þegar ég kvaddi
þau við lok myndarinnar."
„Hitler sagði það
sem allir hugsuðu“
Kevin Kline kynnti sér rækilega sál-
fræði-kenningar R.D. Laings og sögu
útrýmingar Hitlers á gyðingum í því
skyni að undirbúa sig undir hlutverkið.
Þó að Kevin sé gyðingur í föðurætt vissi
hann lítið um sálræn og tilfinningaleg
áhrif útrýnringarherferðarinnar þar eð
hann var alinn upp í anda rómversk-ka-
þólisma móður sinnar. „Ég reyndi að
kynna mér hvernig það hlýtur að hafa
verið að vera gyðingur árið 1947 og varð
djúpt snortinn," segir Kevin. Nathan
kallaði á miklar heimspekilegar vanga-
veltur fyrir hann. „Þetta getur hljómað
langsótt en það má segja að Nathan sé
fulltrúi Þýskalands á blómaskeiði sínu í
fagurfræðilegu menningarlegu og fræði-
legu tillti ásamt öllu því sem að baki því
leynist geðveikinni, hryllingnum,
grimmdinni og ljótleikanum. Hitler stóð
loksins upp og sagði það sem allir
hugsuðu en enginn þorði að segja. Hann
þorði að segja það scm maður segir ekki
- hann greindi frá hinum ljótustu og
dýrslegustu tilfinningum. Það hlýtur að
hafa soðið upp úr þegar hann talaði. Það
er eitthvað hræðilega heillandi við það.
Eins og þegar einhverjum tekst að láta
ósiðlega hluti Ifta út sem í hæsta máta
viðeigandi. Ég er bara leikari. Ég er
enginn sérfræðingur í Adolf Hitler og
Þriðja ríkinu en það er eitthvað í Nathan
sem minnir á þetta."
Kevin þótti kvikmyndagerðin fremur
skelfileg í fyrstu: „Það var ekki fyrr en
við voruin hálfnuð með Sophie's Choice
að ég gerði mér í rauninni grein fyrir
kjarna málsins. Þá rann upp fyrir mér
Ijós og ég hugsaði: aha okkur gefst ekki
kostur til að betrumbæta þetta annað
kvöld. Auðvitað vissi ég það allan
tímann. en þarna skildist mér hvað það
þýðir í raun og veru. Maður verður að
beita allt öðrum vinnubrögðum við kvik-
myndaleik, einbeita sér öðru vísi og nota
annars konar orku. Þannig beitir maður
t.d. allri orku sinni í tvo og hálfan tíma
þegar Sjóræningjarnir eru sýndir á sviði.
vinnur eins og spretthlaupari. Við kvik-
myndaleikinn verður orkan hins vegar
■ Kevin Kline þótti standa sig vel í
frumraun sinni á hvíta tjaldinu - i
hlutverki hins öfgalulla Nathans í Sop-
hie’s Choice. Og þeð er Meryl Streep
sem leikur umrædda Soffíu.
að endast í tólf tíma á dag, líkt og í
langhlaupi.” Hann segir að ekki sé
hægt að bera kvikmyndaleik og leik á
sviði saman, báðar þcssar hliðar leik-
listarinnar séu erfiðar, en erfiðleikarnir
séu óliks eðlis. Og ekki veröur annað
sagt en að honum takist bærilegá að
sigrast á hvorum tveggju.
Vinsælt slúðurdákaefni
Það mun vera algengt á meðal leikara
sem sífellt fást við ný og ný verkefni að
þeir missi tengsl við fyrri vini sína, en
þannig er því ekki varið nrcð Kevin.
Þrátt fyrir velgengnina á hvíta tjaldinu
sýnir hann enga stjörnustæla. I einkalíf-
inu er hann, ef ekki feiminn, þá alla vega
rólegur og jafnvel strákslegur. Hann
tekur gjarnan þátt í hópstarfi ýmiss
konar og aðstoðaði m.a. nýlega leikhóp-
inn sem hann lék með um fjögurra ára
skeið við að afla fjár til húsnæðiskaupa
með því að þjóna lil borðs í Museum
Café eitt laugardagssíðdegi.
Kevin Kline hefur gaman af að lelka
með hópi leikara. Hann var sérstaklega
ánægður með það að eftir Sophie's
Choice var hann valinn til að leika í The
Big Chill, undir leikstjórn Lawrence
KEVDl
KLINE
Kasdan (sem gerði myndina Body
Heat), sem tekin var í Suður Karólínu-
fylki. Sú mynd greinir frá því er hópur
skólafélaga úr háskóla hittast að 20 árum
liðnum, þegar einn félaganna hefur
framið sjálfsmorð. Meðal leikenda í
þeirri mynd er Glenn Close (sem var
útnefndur til Óskarsverðlauna fyrir leik
sinn í myndinni The World According to
Garpj, Bill Hurt (Body Heat) og Kevin.
„Söguhetjurnar voru allir bestu vinir í
háskóla og sumir þeirra hafa haldið
sambandi síðan," segir Kevin. „Þegar
einn þeirra fremur allt í einu sjálfsmorð
hittast þeir og eyða einni helgi í að reyna
að finna út hvað hafi hent vin þeirra,
hvað hafi hent þá sjálfa, hvar þeir standi
nú í samanburði við hvar þeir stóðu sem
stúdentar á sjöunda áratugnum félags-
lega, pólitískt og siðferðilcga.”
Hér voru aðstæður aftur þannig að
hugsanlegt hefði verið að samkeppnis-
andi skapaðist, sérstaklega á milli Kevin
og Bill Hurt, sem líta mætti á sem
keppinauta. Þeir virðast höfða til sömu
áhorfenda og eru oft til nefndir í sömu
hlutverkin. „Já, við erum jafngamlir svo
að það er hugsanlegt að við myndum
keppa að sömu hlutverkunum," segir
Kevin. „Sjálfsagt hefðuni viðgetaðreynt
að skera hvorn annan á háls en við
gerðum það nú ekki. Við lékum bestu
vini í myndinni og það var afar ánægju-
legt. Við Bill vorum báðir í Juilliard
skólanum, en ekki á sama tíma. Hann
var á fyrsta ári þegar ég var á fjórða ári
svo að við kynntumst ekki náið. Við
höfðum aldrei unnið samah fyrr þó við
hefðum hist nokkrum sinnum. Ég get
því ekki sagt að við höfum verið vinir,
en við urðum vinir." Maður sem á
vinkonur jafnt sem vini á á hættu að
verða álitinn kvennamaður mikill, sér-
staklega ef hann er jafn myndarlegur og
kynþokkafullur og Kevin Kline. En
hann ber þennan áburð af sér. Slúður-
dálkarnir bendla hann ýmist við konur
sem hann hefur aldrei hitt eða gera
gönguferðir hans með gömlum vinkon-