Tíminn - 16.10.1983, Síða 13
SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1983
Finngálkn réttarsalanna
Þeir Andrei Wyschinsky og Roland Freisler voru tvær álnir af
sama klæði. Annar endaði lífdaga sína í rústum Berlínar en hinn
andaðist í New York sem fulltrúi lands síns á þingi S.Þ.
■ Það er gömul reynsla mannkynsins að þegar „miklir
menn“ byrja að lappa upp á ástand þess með háleita
kenningu í annarri hendinni en vöndinn í hinni, mega
smælingjarnir fara að biðja fyrir sér. „Gra er öll kenning,“
mun Göthe hafa sagt og gleggst hafa dæmin gerst um það
á þeirri öld sem við nú lifum á og opinberuðust í því
harðræði sem framruðningur sannfæringa Stalíns í Rúss-
landi og Hitlers í Þýskalandi bakaði milljónum manna. Þar
var réttlæti mælt á stiku einnar stefnu og löggæslan og
dómstólarnir urðu að finngálkni sem minnstu skeytti um
sök eða sakleysi, en hirti helst um að tæta án vægðar í sig
þá bráð sem harðstjórinn fleygði fram fyrir það. Réttarsal-
urinn varð einskonar hringleikahús þar sem skylminga-
þrællinn átti sér engrar undankomu von, hversu fimlega
sem hann varðist.
Á öllum afvegaleiddum tímum hafa komið upp persónu-
gerðir sem virst hafa sem sérstaklega til þess sniðnar að
þéna undir hið illa, þrátt fyrir vitsmuni og hæfileika ofan
við meðallag. Af nógum dæmum er að taka, en hér veljum
við úr tvo sérkennilega menn sem náðu heimsfrægð í
dómarasæti. Annar þeirra var Rússinn Andrei Januarew-
itsch Wyschinsky, en hinn var Þjóðverjinn Roland Freisler.
■ Roland Freisler.
■ Andrei Wyschinsky.