Tíminn - 03.11.1983, Blaðsíða 1
Siðumúla 15 - Pósthólf 370 Reykjavik - Rrtstjorn 86300- Auglýsingar 18300- Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvóldsimar 86387 og 86306
FISKIFRÆÐINGAR VlUfl DRAGA
UM ÞRIÐJLNG ÚR ÞORSKVEHHIM
— „Þetta eru mjög alvarleg tídindi’% segir Halldór Ásgrímsson
■ Hafrannsóknastofnun leggur
til að aðeins verði veiddar 200
þúsund lestir af þorski á íslands-
miðum á næsta ári. Verði farið
að tillögum stofnunarinnar þarf
að leita 35 ár aftur í tímann til að
finna sambærilegar tölur um
þorskveiði, en frá árinu 1949
hefur hann alltaf verið meiri.
„Þetta eru að sjálfsögðu mjög
alvarleg tíðindi. Við höfum vitað
að ástandið væri slæmt, en við
höfðum alls ekki reiknað með að
það væri svona slæmt,“ sagði
Halldór Ásgrímsson, sjávarút-
vegsráðherra, í samtali við
Tímann.
Hann kvaðst ekki geta sagt
um hvort farið yrði að tilmælum
fiskifræðinganna á þessu stigi.
Það að minnka þorskaflann um
þriðjung frá því sem er í ár, væri
svo alvarlegt mál gagnvart ýms-
um þáttum í þjóðfélaginu, að
menn hlytu að hika áður en
slíkar ákvarðanir væru teknar.
Hins vegar hikuðu menn einnig
við að ganga nær stofninum en
mælt er með.
Einar Jónsson, fiskifræðingur,
sagði að, nýja skýrslan um á-
stand þorskstofnsins væri sú
svartasta sem nokkru sinni hefði
komið fram. Hann sagði að auð-
vitað yrði að reikna með frávik-
um, en með hliðsjón af afla-
brögðum í ár væri rík ástæða til
að taka niðurstöðurnar alvarleg-
ar en áður.
„í fljótu bragði sýnist mér að
það sé í kringum 4% minni
þjóðarframleiðsla sem þessi
minnkun þorskafla hefði í för
með sér“, sagði Steingrímur
Hermannsson, forsætisráðherra.
Hann sagði ennfremur að spár
um þorskafla hefðu því miður
reynst haldlitlar hingað til. „Það
er ljóst að þarna vantar okkur
langtum mciri þekkingu, svo
unnt sé á að byggja," sagði
forsætisráðherra.
- Sjó/— AB
- Sjá nánar bls. 2 og 3.
Svartasta skýrsla Hafrannsóknarstofnunar Iftur dagsins Ijós:
Skipbrotsmennirnir sem
sluppu iifandi af Kampen:
■ „Við erum þakklátir þeim
fjölmörgu sem lögðu hönd á
plóginn við björgun okkar. Við
þökkum þá aðhlynningu sem við
höfum fengið, bæði í
Vestmannaeyjum og Reykjavik.
Alúð ykkar og samúð hafa snort-
ið okkur djúpt,“ voru orð skip-
brotsmannanna þýsku af
Kampen, er Tíminn hitti þá að
máli á Hótel Esju síðdegis í gær,
en þá voru þeir nýkomnir frá
Vestmannaeyjum. Að öðru leyti
sögðust skipbrotsmennimir ekki
geta rætt við blaðamenn fyrr en
eftir sjópróf sem hefjast í
Reykjavík á morgun.
Skipbrotsmennirnir dvöldu á
Sjúkrahúsinu í Eyjum í fyrri nótt
og voru furðu vel á sig komnir.
Þeir komu til Reykjavíkur um
þrjúleytið í gær, en þýski sendi-
herrann hér gætti þess vandlega
að þeir ræddu ekki við blaða-
menn umfram það sem að ofan
kemur fram.
Skipverjamir sem fórust af
Ms. Kampen voru: Hellmuth
Thomsen skipstjóri 52ja ára, Ro-
land Lesener, 2. sýrimaður 31
árs, Ruppert Riesenhuber 1. vél-
stjóri 56 ára, Friedrich Scholl 2.
vélstjóri 49 ára, Emmanuel Ye-
boah matsveinn 38 ára, Guenter
Schroeder háseti 40 ára og Wolf-
gang Ulrich vélamaður 33ja ára.
Þeir voru allir þýskir, nema rnat-
sveinninn sem var Ghanabúi. Lík
þeirra verða flutt til Reykjavíkur
í dag og síðan til Þýskalands.
Þeir sem af komust: Jan Gar-
bers 1. sýrimaður 26 ára, Rudolf
Neumair háseti 30 ára, Peter
Hadamek, háseti 30 ára, Thomas
Zimmermann háseti 20 ára, Eric
Boellert háseti 18 ára, Peter
Klitsch vélamaður 39 ára. Þeir
eru allir þýskir.
-BK
Sjá nánar bls. 5
og baksíðu
Skipbrotsmennimir á Hótel Esju í gær, laust eftir komuna til Reykjavíkur.
Tímamynd Róbert
Samgönguráðherra afturkallar aðgerðir flugmálastjóra:
Tilkynntar ráðuneytinu
eftir ad þær tóku gildi
ÁTTA SÍÐNA BLAÐAUKI UM AKRANES
FJÖLBREYTTfl OG BETRA BL RA m
Fimmtudagur 3. nóvember 255. tölublað - 67. árgangu 1983 r
„VIÐ ERUM
ÞAKKUTIR”
Tuddinn vildi ekki iáta slátra sér:
FLÚÐI ÚT í LAGARFUÓT
— náðist eftir mikinn eltingaleik
■ Egilsstaðabúar lentu í heil-
miklum eltingarleik við mannýg-
an tudda sem slapp út úr rétt við
sláturhúsið þar í gær. Nautið
stökk þar yfir grindur og gerði
sig líklegt til að ráðast á nær-
stadda menn en þegar fleiri
komu þarna að lagði boli á flótta
og tók strikið niður að Lagar-
fljóti.
Allmargir ráku flóttann að
fljótinu en þar lagðist boli til
sunds. Hann snéri þó fljótlega til
sama lands aftur en þegar menn
gerðu sig líklega til að handsama
bola fór hann aftur út í fljót. Boli
hélst þó ekki lengi við í vatninu
og svamlaði aftur að iandi og var
þá runninn af honum mesti móð-
urinn. Hann var þá gripinn og
fluttur aftur í réttina þar sem
örlög hans voru ráðin.
-GSH
■ „Samgöngumálaráð-
herra er minn yfirmaöur og
ég hlýði fyrirmælum hans,
meira hef ég ekki um máiið
að segja,“ sagði Pétur Ein-
arsson, flugmálastjóri, í
samtali við blaðið í gær, en
samgönguráðuneytið gaf
flugmálastjóra fyrirmæli um
það í gærmorgun að draga
til baka tilskipun um að
ekki yrði ruddur snjór af
flugvöllum eftir 1. nóvem-
ber, nema þar sem flug-
málastjórn ætti tæki til
þeirra hluta og eldsneyti á
þau en ekki yrði um viðhald
á þeim að ræða né eldsneyt-
iskaup. Sama átti að gilda
um viðhald öryggistækja við
flugvelli.
í fréttatilkynningu sem sam-
gönguráðuneytið sendi frá sér í
gær um þetta mál segir að að-
gerðir flugmálastjóra hafi komið
ráðuneytinu algjörlega í opna
skjöldu, enda hafi þær ekki verið
tilkynntar ráðuneytinu fyrr en
eftir að þær voru gengnar í gildi.
Ráðuneytið hafði þá umsvifa-
laust fyrirskipað að aðgerðimar
yrðu dregnar til baka þegar í
stað enda hefði þegar verið að
skapast óviðunandi ástand í áætl-
unarflugi innanlands. Jafnframt
segir í fréttatilkynningunni að
flugmálastjóri hefði rætt við sam-
göngu- og fjármálaráðherra um
rekstrarvanda flugmálastjórnar
og í framhaldi af því hefði fjár-
laga- og hagsýslustofnun verið
falið að leita lausnar á vandanum
og ynni hún að því nú.
-JGK
Sjá bls. 4.